Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.1956, Qupperneq 8

Lesbók Morgunblaðsins - 18.03.1956, Qupperneq 8
m LESBÓK MORGtJNBLAÐSINS Lýsing Dyrhólaeyar og 1. mynd .(horft til suðurs): 1 Dyrhólaey, 2 Dyrhólaós, 3 Lundadrangur, 4 Hildardrangur, 5 Mávadrangur. 6 hafið, 7. ströndin. (Skýringarnar með myndunum eru allar eftir Sæmund Hölm). 2. mynd (horft til norðurs): 1 Dyrhólaey, 2. Mýrdals og Kötlugjárjökull, 3 Burfell, 4 Bærinn Dyrhólar eða Dyrhólm- ar (prestsetur), 5 Dyrhólaós, 6 Oddnýartjörn (ferskt vatn), 7 Hildardrangur. 8 Mávadrangur, 9 Lundadrangur, 10 Hái- drangur, 11 Skerin þrjú, 12 Eiði. y ESTAN við Dyrhólaey er svo- köUuð Dyrhólahöfn. Var þar útneði öldum saman og skipanaust. Aðdýpi er þar mikið og hafa því stiindum verið uppi ráðagerðir um að gera þar höfn. En sá. er fyrstur manna mun hafa hreyft þessu máli, var Sæmurdur Magnússon Hólm, siðar prestur a Helgafelli. Saemundur var fæddur 1749 i Hólmaseli i Meðallandi. Hann var tekinn i Skálholtsskóla 1767 og varð stúdent 1771. Þremur árum seinna sigldi hann til háskólans í Kaupmannahöfn, tók próf í hcini- speki 1776 og guðfræðipróf 1780. Eh sanitimis þessu námi stundaði harrn nám i Ustaháskólanum og fekk fimm siniium verðlaun þar fynr mjmdir cg uppfmnmgu ser- staks gljapappirs. Sýnir það, að hann hefir haft góða hæfileika til þess að verða listamaður. Árið 1780 ritaði hann í Kaup- mannahöfn eftirfarandi grein um Dyrhólaey og dró upp f.jórar mynd- ir af henni og umhverfi hennar. Þær myndir munu vera dregnar eftir minni, og eru þær ef til vill merkilegastar þess vegna. Greinin og myndirnar eru nu í Landsbóka- safni (ÍB 333, 4to). Ma sjá, að fyrir Sæmundi hefir vakað að reyna að fá dönsku stjórnina til þess að lög- gilda þarna verslunarstað, íbúum Vestur Skaftafellssýslu til ómetan- legt hagræðis. Greimn er á dönsku og er þetta þýðing á henni: ★ Tilsýndar er Dyrholaey ems og mikið fjall, einkum að vestan- verðu. Er hún umgirt þverhnýpt- um björgum allt um kring og eru þau um 300 faðma, þar sem þau eru hæst.*) Á sumrin er eyan notuð sem bit- hagi fyrir sauðfé, því að hún ér grasi gróin. Hún er tengd við land og þar aðems er hægt að komast. út í hana, en annars skagar um helmingur hennar fram í sjó. í björgunum vex mikið af hvönn og blóðrót, sem hér er kölluð Hellu- hnoðila. Flöt sandströnd er bæði fyrir austan og vestan eyna. En fyrir *)Þetta er agizkun hans og hvergi nærri réttu lagi, því að Dyrhólaey er hvergi haerri en 120 metra.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.