Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1960, Qupperneq 6

Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.1960, Qupperneq 6
298 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS þekking á næringarefnum líkam- ans. Upp af þessu hefir svo sprott- ið ný grein innan líffræðinnar sen menn kalla „gnotobiotics". Einhver mesti vandinn við þetta er að sjá um að dýrin taki ekki gerla í sig um leið og þau fæðast. Eru þau því tekin með keisara- skurði og líknarbelgurinn ekki opnaður fyr en inni í sérstöku hólfi, þar sem engir gerlar eru. En inni í þessu hólfi þarf einnig að vera „fóstra“, sem gengur þeim í móður stað. En einhverjir verða þó að fóðra þau og fæðan verður að vera algjörlega gerlalaus. Hólfin, sem þau eru geymd í, eru venjulega 3 fet á lengd, 2 fet á hæð og 2 fet á breidd, gerð úr ryð- fríu stáli og gleri. En inn í þessi hylki er hægt að seilast, og eru sérstakir gúmglófar í sambandi við það, og stinga menn höndunum þar í. Inn í hylkin er dælt dau-5- hreinsuðu lofti. Og þar sem þarna finnast engir gerlar — og virur líklega ekki heldur — þá skeður hér hið undarlega fyrirbrigði, að inni í hylkinu getur ekkert rotníð. Matur helet þar óskemmdur endn- laust, og eins saur dýranna, og af honum leggur engan óþef. Bezta tilraunadýrið er gínea- grísinn talinn. Hann er fær um að sjá um sig nýfæddur og honum þarf ekki að hjálpa neitt. En það þótti vísindamönnunum mikið mein fyrst í stað, að gíneagrísarn- ir tímguðust ekki í þessu um- hverfi. Menn vissu ekki hvernig á þessu stóð. Ekki gat það ver’ð vegna þess að engir voru gerlarnir, því að rottur og mýs tímguðust. En eigi alls fyrir löngu tilkynntu vísindamenn við „Notre Dame University’s Lobund Institution“ að þar hefði „gerilsneiddir“ gínea- grísir gotið í fyrsta sinn, og vakti það mikla athygli allra þeirra sem við þetta fást. Það reyndist allmiklum vand- kvæðum bundið að fá alveg geril- sneidda fæðu handa tilraunadýr- unum, því að ekki þola allar fæðu- tegundir að vera dauðhreinsaðar við suðuhita. Það kom því í ljós að ýmis efni vantaði í fóðrið. Gínea- grísir hrundu til dæmis niður vegna skorts á B-fjörefni. Þá fundu menn upp á því, að dauðhreinsa fóðrið með geislum. Komið hefir í ljós, að Pasteur hafði rétt fyrir sér, gerlalaus’r hænuungar þrífast alveg eins vel og hinir, ef þeir fá mat við sitt hæfi. En ef eitthvert fjörefni skortir í fæðuna, þá kemur það fljótt í ljós, því að þá láta ung- arnir undir eins á sjá. Enn eru ekki til nema fáar upp- eldisstöðvar fyrir gerlalaus dýr en þeim fjölgar nú óðum, því að hér þykjast menn hafa fengið ein- stakt tækifæri til þess að auðga vísindin að nýum uppfinningum. Einn vísindamaður hefir t. d. kveð- ið svo fast að orði, að hin gerla- lausu dýr sé rannsóknatæki á borð við sjálfa smásjána. Annar segir að nú gefist líffræðingum alveg sérstakt tækifæri til þess að ge’a tilraunir með ýmsa gerla, án bess að aðrir gerlar komi þar við sögu eða sé til trafala. Þetta getur orðið mjög þýðmg- armikið fyrir krabbameinsrann- sóknir, því að nú ætti að vera hægt að sannreyna hvort vírutegundir er grunaðar hafa verið um að valda krabbameini, geti gert það einar sér. Eitt hefir þegar sannazt, að tannskemmdir eru af völdum gerla. Gerlalausum rottum heiir verið gefið fæði, sem talið hefir verið að ylli tannskemmdum, en það hefir ekkert borið á því hjá þeim. Það er ekki fyr en rotturnar hafa fengið gerla í matnum. að tannskemmdir koma fram í beim. Búist er við að tilraunir með gerlalaus dýr muni veita miklar upplýsingar um það, hvernig Ivk- aminn sjálfur framleiðir varnir gegn gerlum og virum. Ein af slík- um vörnum er t. d. gamma globul- in í blóðinu. Á því ber miklu minna hjá gerlalausum dýrum heldur en öðrum. Það hefir kotnið í ljós, að þegar gerlalausum gínea- grísum er sleppt undir bert lcft, þar sem allt morar af allskonar gerlum, þá fá þeir blóðsótt og drepast skyndilega. En ef við- brigðin eru ekki of snögg ef þe^r eru smám saman vandir við gerl- ana, þá skapast hjá þeim viðnám þannig að eftir nokkurn tíma eru gerlarnir þeim ekki hættulegri heldur en meðbræðrum þeiri"a, sem alizt hafa upp við þá fra blautu barnsbeini. Enn er talið að rannsóknir þess- ar muni geta haft mikla þýðingu fyrir geimferðir manna, þegar þær hefjast. Rannsóknirnar geti bent á leið til þess að koma í veg fyrir að menn flytji gerla frá jörðinni til annara hnatta, eða taki í sig framandi gerla á öðrum hnöttum. En ágizkanir hafa komið fram um það, að bæði úti í geimnum og þó sérstaklega á öðrum hnöttum, kunni að vera allskonar gerlar, sem ekki eru til hér á jörð. Grobbið i Texasbúum er orðið heimsfrægt. Einu sinni kom maður þaðan að sunnan til að skoða Niagara- fossana. Og kanadiskur leiðsögumaður gat ekki á sér setið að segja: „Ekkert þessu líkt er til í Texas“. Þá sagði Texasbúinn: „Nei, en við eigum pípulagningamenn, sem leika sér að því að gera við svona leka“. Ung stúlka kom til geðlæknis. „Eg er í miklum vandræðum", sagði hún. „Eg tala látlaust við sjálfa mig“. „Það er ekki hættulegt“, sagði lækn- irinn, „þetta gera margir“. „Veit eg það, en þér ættuð að heyra orðbragðið!"

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.