Lesbók Morgunblaðsins - 23.04.1961, Síða 8
220
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Ókunn lönd og þjóðir
Nýa lýðveldið Ceylon
AÐ ÞVÍ ER menn bezt vita, voru
fyrstu íbúar Ceylons hinir svo-
nefndu Vedda. Þetta voru húð-
dökkir menn og höfðust aðallega
við inni í frumskógunum á eynni.
Þeir eru grannvaxnir, höfuðsmáir,
með dökk augu og liggja augun
djúpt. Hárið er svart og mikið og
er látið falla laust. Þeir lifðu á
veiðum í skógunum og villijurt-
um. Þeir bjuggu í hellum, enda
er nóg af þeim þar í fjöllunum.
Um 643 f. Kr. gerðu Sinhalesar
innrás á eyna. Þeir voru komnir
frá norðanverðu Indlandi. Hröktu
þeir Vedda skjótt frá beztu og
frjóvsömustu stöðunum. Hurfu
Veddar þá með öllu inn í frum-
skógana og hafa hafst þar við
fram að þessu. En byggð Sinhal-
esa blómgaðist skjótt. Reistu þeir
þar mörg fögur hof handa Búdda,
en þau eru nú rústir einar og
komnar á kaf í frumskóginn,
ásamt byggðum þeim, er umhverf
is þau voru. Er skammt síðan að
rannsóknarmenn fundu þarna
tvær horfnar borgir, Anaradap-
ura og Polonaruwa, og þriðju borg
ina, sem höggvin hafði verið inn
í kletta og nefnist Sigiriya. Þar er
enn veggskraut mikið og málverk,
sem ekki hefir látið lit, þrátt fyrir
ellina.
Seinna gerðu Tamilar innrás á
Ceylon. Þeir komu frá suðurhluta
Indlands. Ekkivoru þeir þar neinir
aufúsugestir, en Sinhalesum tókst
ekki, þótt fleiri væri, að reka þá
af höndmn sér. Þessir tveir þjóð-
flokkar voru svo þarna í nábýli
og áttust alltaf illt við, þangað
til Evrópumenn komu þangað ár-
ið 1505. Væringar hafa altaf verið
með þessum tveimur indversku
þjóðflokkum, en þeir berast ekki
á banaspjót lengur.
Sinhalesar skiftust innbyrðis í
fjandsamlega flokka, sem áttu stöð
ugt í styrjöld sín á milli. Skift-
ust þeir í Láglendinga og Kandy-
ana eða Fjallabúa, sem áttu heima
um miðbik eyarinnar sunnanvert.
Þeir eru hættir að berjast, en ríg-
ur og ulfúð nokkur ríkir á meðal
þeirra.
Það voru Portúgalar, sem fyrst-
ir hvítra manna komu til eyar-
innar og settust þar að árið 1505.
Síðan komu Hollendingsr og réðu
eyunni um 140 ára skeið, eða frá
1656 til 1796. Þá hröktu Bretar þá
þaðan og hafa ráðið eynni síðan.
Fyrst í stað náðu hvítir menn
aðeins fótfestu á ströndunum, því
að þeir heldust ekki við inni í
skógunum vegna þess hvað lofts-
lag var þar óholt fyrir þá. Helzt
þetta fram á 19. öld. Það var
snemma á þeirri öld að Bretar
reyndu að ryðja vegu í gegnum