Lesbók Morgunblaðsins - 28.06.1970, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 28.06.1970, Page 6
Við komum til Bahama síðla dags, klukkan hefur líklega ver ið langt gengin sjö. Það tók sinn tíma að komast gegnum tollinn, því að þeir leituðu í töskunum hjá flestum nema okkur Agnari Bogasyni. Það átt um við bæði dálítið erfitt með að sætta okkur við. Svo var ferðin yfir eyjuna þvera, gegn- um höfuðborgina Nassau og yf- ir stóru brúna til Paradísareyj ar. Þar er brúartollur tveir doll arar. Við ákváðum að taka okkur góðan tíma til að þvo af okkur ferðarykið og hittast í matsaln- um klukkan hálf tíu og snæða steik. Ég skildi ekki þá, hvað ég var orðin óhemju syfjuð, svo að ég mátti varla höfði halda yfir steikinni. En þá mundi ég, að við höfðum á ferð inni yfir Atlantshafið grætt hvorki meira né minna en fimm klst. Klufckiain var reyndlar að verða þrjú, réttu lagi, og kannski ekki að undra, þótt svefndrungi sækti á menn. Sjaldan er sú spurning áhuga verðari hvað tíminn sé, en á ferðalögum, þegar maður er ým ist að missa úr klukkutíma eða þeir koma fyrirhafnarlaust upp í hendurnar á manni. Daginn eftir hafði Mailers, lögfræðingur sem starfar á veg um Int. Air Bahama, boðið hópn um í siglingu á hraðbátnum sín um. Þegar niður að sjónum kom risu öldur hátt og langt úti reis báturinn og hneig á óstýrilát- um bylgjunum. Við urðum að fara á fleka út. Þá leizt sumum karlmönnunum ekki á blikuna. Mailers fullvissaði okkur um, að sléttur sjór væri handan nessins, en allt kom fyrir ekki. Þeir kváðust ekki allir vera sjóhraustir, ferðafélagar okkar, og ákváðu að fara í bílunum til móts við bátinn. En eins og ber afkomendum írskra kóngs- dætra sættum við Margrét okk ur ekki við þau málalok og þær urðu lyktir, að fötum var fækkað og í stað þess að tefla lífi okkar í tvísýnu á hálffyllt um fleka, afréðum við að steypa okkur til sunds og freista þess að ná þannig út í bátinn. Það voru okkur dálítil vonbrigði, þegar við fundum, að við gát- um botnað alla leið. Karlmönn- unum til verðugs hróss skal frá því skýrt, að þrír þeirra hættu einnig lífi sínu í þessum ólgusjó og komust út í bátinn til Mailers, ásamt okkur Mar- gréti. Hvergi hef ég séð dýrlegri lit brigði í einum sjó, dimmblár út við sjóndeildarhring, en grænn við landsteina, inn á milli hlykkj uðust blágrænar og grænbláar ræmur. Malers vissi hvað hann söng, þegar fyrir nesið kom var þar lygn sjór og sem við renndum að bryggju voru þar ferðafé- lagarnir hinir, vel greiddir og þurrir og reiðubúnir að koma um borð. Svo var siglt með ströndinni og farið í land í lít- illi vík, þar voru nokkur lítil, 'svört börn að busla í sjónum. Flest fengum við okkur góða sundspretti þarna og sjórinn er svo brimsaltur að það hlýtur að vera þrekraun, meira að segja ósyndum manni að sökkva þar. Markaðurinn er við höfnina. Þar sitja gamlar þeldökkar kon ur, skorpnar af sól, og ungar konur sem hafa látið taka negra lokkana úr hárinu, með ærinni fyrirhöfn,. og sauma strátöskur. Þessar töskur eru ásamt skelj- unum vænu, það sem ferða- menn sækjast eftir að taka með sér heim frá Bahama. Töskurn ar eru unnar af miklu listfengi og kosta svo sem ekki neitt, miðað við hvað allt er óheyri- lega dýrt í þessari ferðamanna- paradís. Við Margrét röltum þarna um markaðinn lengi morguns og keyptum töskur og skeljar, hún keypti líka stráhatt handa lítilli frænku sinni; sú hlýtur að vera ein af fáum íslenzkum telpum, sem á hatt frá Bahama. Þessar eyjar eru ekki beinlínis í alfaraleið íslendinga. Þegar við vorum á Bahama hafði ekki komið dropi úr lofti mánuðum saman og gróðurinn var býsna óhrjálegur. Raunar er hann ekki tilkomumikill, pálmatré eins og vera ber og þarna vaxa gómsætir tómatar á stærð við kvenmannsnögl, og eflaust fjölmargir gómsætir ávextir. En yfirleitt er gróður- inn ekki miklu hærri né meiri en íslenzka kjarrið. En siíðari nóttiinia okkiar brast á með þrumur og eldingar og svo fór að rigna. Ósköp held ég að menn og jurtir hafi fagnað þeirri rigningu. Svo stytti upp jafnsnögglega og rigningin hafði byrjað. Og það er nóg af sólskini. Seinni daginn okkar í Nassau sagði bílstjórinn, sem ók okkur til hótelsins, að hann væri í þykku bómullarskyrtunni sinni, af því að honum fannst fremur svalt í veðri. Þá var hitinn um 29 stig. Það þætti okkur gott á gamla landinu. Við bjuggum á ákaflega glæsi legu hóteli á Paradísareyju, Flager Inn. Það mun vera til- tölulega nýtt af nálinni og þar er flest við höndina sem glatt getur ferðamenn, golfvellir, tennisvellir, sundlaugar og meira að segja er bar í einu horninu á sundlauginni. Það hafði enginn okkar séð áður, ekki einu sinni þeir ferðavön- ustu sem höfðu verð í flestum heimsins hornum og kipptu sér ekki upp við öll herlegheitin. En hvers verður maður vís- ari á einum og hálfum degi á þessari fjarlægu strönd Ba- hamaeyja? Hægur vandi væri að teíja upp íbúafjölda og lýsa nánar landslagi. En þvi er líka hægt að fletta upp í ferða- mannabæklingum. En fólkið, þetta dökka þriflega fólk, af- komendur þræla, sem spánskir tóku með sér úr Afríku á sín- um tima. Hvernig er'það? Hárgreið'slustúlkan á hótel- inu, ung kanadísk stúlka, segir mér að fólkið sé gott. Að vísu orðið dálítið spillt; þegar Bandaríkjamenn uppgötvuðu Jótmnna Kristjónsdóttir; UR BLAÐAMANNA TIL BAHAMA mí áZJnfj ÍWm /wZ W í / ÍIAí n Bahamaeyjar sem ferðamanna- stað gáfu þeir svo ríflega drykkjupeninga, að Evrópubú- ar geta ekki leikið slíkar kúnst ir eftir. En fólkið er hjartagott, dálítið barnalegt í hugsana- gangi, ekki beint vanþróað, en þó örlar á því finnst henni. Hún segir sem dæmi um gæzku fólksins, að hér sé konu óhætt að fara upp í bíl hjá innfædd- um, ef þeir bjóði henni. Það dytti henni aldrei í hug í Kan- ada. En hér eru karlmennirnir mestu sjentilmenn. Hún kom hingað ferðamaður sjálf og var sagt, að allt væri innifalið í hótelverðinu. Svo liðu dagar og það var sama hvað var, hún fékk enga þjónustu á neinn hátt. Þá rumskaði hún upp við það, að hér tekur enginn ofan, hvað þá meira fyrir minna en hálfan dollar. Hún var síðar svo stálhepp- in að hitta Þjóðverja, ættaðan frá Luxembourg og þau voru ekki sein á sér að trúlofast og hún flutti í skyndi af hótelinu. Hann vinnur í hótelbransanum hún greiðir hár, og fjargviðr- ast yfir því, hvað hún ætti erf- itt með að sætta sig við verð- lagið á öllum hlutum og svo þjórfé. Sem ég sat lengur undir þessu notalega hjali, hugsaði ég með mér, að ég færi þá varla á hausinn eftir þessa lagningu. Svona hjartahrein og réttþenkjandi hárgreiðsludama, færi varla að rýja mig inn að skinninu. Hárgreiðslan kostaði þá tíu dollara. Þegar ég hafði náð andanum aftur spurði ég með heims- mannslegu fasi, hvort þjórfé væri innifalið. Hún horfði á mig angurværum augum og svaraði neitandi. Auðvitað ætti það að vera einn dollar til viðbótar, en hún hefði haft svo gaman 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 28. jún.i 1970

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.