Lesbók Morgunblaðsins - 27.09.1970, Síða 1
ANDREW WILSON
HEIMUR
GAGNKVÆMRA
HÓTANA
HVE LENGI MUN HANN STANDA?
Kjarnorkusprengjan 1945 markaði mannkyninu
tímamót. Síðan hefur þróunin í gereyðingar-
vopnum verið hrollvekjandi og hú eru til kjarna
vopn til að eyða allri byggð, sýklavopn til
gereyðingar, og partur þess taugagass,
sem til er, mundi sálga mannkyninu. —
Að morgni mánudagsins 6.
ágúst 1945 lögðu þrjár am-
erískar sprengjuflugvélar upp
frá eynni Tinian i vestur
Kyrrahafi og stefndu á Japan,
rúrna 2000 kílómetra í burtu.
Tvær þeirra fluttu visinda-
menn og magn flókinna mæl-
ingatækja. Sú þriðja, sem hét
Enola Gay, eftir móður flug-
stjórans, Paul Tibbets höf-
uðsmanns, flutti úransprengj-
una Little Boy, sem verið hafði
í smiðum í meira en fjögur ár.
Enola Gay mætti engri mót-
spyrnu þar sem hún nálgaðist
mark sitt — brú nokkra í miðri
iðnaðarborginni Hiroshima.
Hún sleppti sprengjunni, sem
sveif niður í fallhlíf, og sveigði
frá til að forðast sprengju-
þrýstinginn. Um leið og sprengj
an sprakk, mættu 75.000 manns
dauða sínum, skjótum eða hæg-
fara af völdum sprengingar,
bruna eða geislunar — en það
voru nærfeilt fjórum sinnum
sinnum fleiri en framleiðendur
sprengjunnar höfðu gert ráð
fyrir.
Fregnin um að spi’engjan
væri fallin barst til Washing-
ton og þaðan til kjarnorku-
rannsóknastöðvanna i Los Ala-
mos, New Mexico, þar sem hún
var básúnuð gegnum hátalara-
kerfi.
Einn þeirra, sem heyrðu
hana, vísindamaðurinn Otto
Frisch, minntist þess síðar að
hafa heyrt köll starfsbræðra
sinna er þeir geystust að síma-
tækjunum til að panta hátíða-
kvöldverðina. En Frisch sjálf-
um óaði við því að það skyldi
ekki aðeins vera tæknisigur
heldur dauði þúsunda manna,
sem skálað var fyrir í kampa-
vini þetta kvöld.
1 óeiginlegri mei'kingu var
Enola Gay ekki fyrsta flugvél-
in, sem flutti kjarnasprengju.
Önnur hafði orðið til þess
fyrst, í ímyndun rithöfundarins
H. G. Wells 31 ári áður. Skot-
mark hennar voru aðalbæki-
stöðvar Frakka í styrjöld milli
Frakka og Þjóðverja.
Hugmyndaflug Wells náði
lengra en atburðirnir í Hiro-
shima, því hann lýsti stríði þar
sem kjarnasprengjurnar voru
gerðar af ódýrum málmi, sem
nefndist carolinum. París vstrð
fyrst fyrir barðinu á þeim, síð-
an Berlín. Milljónir fórust í
bruna og hungursneyð áður en
ríkisstjórnir fengust til að láta %
af heimsveldastefnu sinni og
hefja friðsamlega atómöld.
Athyglisverðasta atriðið í
bók Wells, „The World Set
Free,“ var spá hennar um hern
aðarleg og siðferðileg vand-
kvæði er risa mundu við það
að maðurinn næði valdi yfir
kjarnorkunni. 1 raunveruleik-
anum gerðu jafnvel færustu vis
.
•-•-L' v ./ . ..
■
\