Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1975, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1975, Side 5
Frá samkomura, sem Maharishi jógi hélt í Kössen í Austurrfki: Nemendur hans færa honum bióm að launum. mannsins að upphafi sínu. Við iðkunina kynnist maðurinn meiri hvíld og ró en hann þekkti áður. Innhverf íhugun byggist á engan hátt á heimspekikerfi eða hugsun, heldur eðlilegri hæfni mannsins til að láta sér líða vel. Það er ekkert skilyrði að geta hugsað rökrétt — og yfirleitt er ekki farið i neitt manngreinarálit. Eina skilyrðið er að sitja og hafa aftur augun. Tæknin er ekki erfið, þegar nokkrum grund- vallaratriðum er fylgt. Eiginlega er hún alveg sjálfvirk. Þessa tækni, segir Maharishi, að menn eigi að iðka tvisvar á dag, kvölds og morguns, tuttugu mínútur í senn. Það nægi til að veita mönnum jafnvægi til vinnu- dagsins. Öll verðandi i náttúrunni byggist á tveimur skrefum, segir hann: hvíld og starfi, og með þess- ari iókun kvölds og morguns kynnist menn dýpri hvíld en þeir hafi áður þekkt og verói því fær- ari til starfa að deginum. Hún hvetur ekki til athafnaleysis heldur greiðir hún fyrir aukinni afkastagetu." „Nálgast þessar kenningar Maharishi á einhvern hátt að vera trúarbrögð?" „Maharishi neitar því að þessi fræði flokkist undir trúarbrögð. Hann segir að kynning við þessar kenningar styrki trúhneigt fólk i þeirri trú, sem þvi hefur verið innrætt, en „intellektúelt" fólk skerpist í hugsun. Ég hef aldrei verið trú- hneigður, en ég velti því fyrir mér, þegar ég byrjaði að kynna mér þessi mál, hvort ég væri að ganga á hönd einhverjum annar- legum trúarbrögðum. Mér fundust þau þó áhugaverð, svo ég hélt áfram. Síðan hef ég fundið að Maharishi hefur á réttu að standa, hvað þetta snertir. Maharishi leggur áherslu á að hann sé aó ieitast við að endur- vekja ævagamla hefð, færa hana i nýjan búning og hæfa hana okkar hugsunarhætti. Við lifum á tímum visinda og tækni. Visindi og tækni eru okkar einkenni. Þessi fornu fræði hafa margoft verið sett fram og skilin á marg- vislegan hátt. Maharishi segir að framsetningin og skilningurinn útvatnist á nokkrum hundruóum ára. Nú sé t.d. timabært að skilja þau visindalegum skilningi. Hann leggur lika mikla áherslu á að þessar kenningar séu á engan hátt hans eigið hugarfóstur, heldur séu þær erfðagóss mann- kynsins, sem það snúi sér að þegar þörfin er mest. Þessi stöð- uga endurvakning sýni að tæknin er einstök. Engin önnur þekkist, sem hefur eins greinileg áhrif á líkama og sál til góðs.“ „Hvernig?" „Maharishi grípur oft til lik- ingamáis: Hugsum okkur tré, sem stendur fölnað og hálfdautt í þurrum jarðvegi. Þaö er vökvað — og fer að laufgast og dafna, en tréð veit ekki hvernig á því stendur. Þessi tækni leiðir mannshugann inn á hin óendan- legu svið. Þaðan nær andinn vökvanum, sem nauðsynlegur er til að kynnast ómælinu — og verða eitt með því. Kannski mætti ætla, að iðkendur Ihugunarinnar verði innhverfir og utanvelta, en það er öðru nær. Ihugendur taka virkari þátt í dagsins önn eftir en áður og rannsóknir hafa meðal annars leitt i ljós, að viðbragðs- flýtir manna eykst að mun við iðkunina." „Heldurðu að þessar kenningar falli i frjóan jaróveg hjá mörgum í dag?“ „Nú á timum tæknivæðingar- innar hefur áhugi á andlegum efnum aukist meðal fólks — það finnur öryggisleysið þrátt fyrir allt. Það sér að efnaleg velsæld hefur ekki fært það nær hamingj- unni — aðeins ger.t það feitara. Góður efnahagur er ekki nógur einn, þótt hann sé ein undirstaða velsældar. Menn fara þá að svip- ast um eftir nýjum gildum og í þessum fornu fræðum er verið að fjalla um gildi, sem ekki hefur verið gefinn nægur gaumur til þessa. Þarna virðist vera leið hins almenna borgara til að kynnast sönnum gæðum. Þess vegna eru þessi fræði mikilvæg ásamt því að vera einstök. — Maharishi vitnar í Biblíuna: Ríki guðs er hið innra með yður. A Indlandi eru annars óteljandi Yogareglur — og ekki allar ekta — og margir sértrúarflokkar, en flestir höfða mest til hjartans, þ.e. tilfinninganna. Og Sigurþór heldur áfram: Sumir halda að yogaþjálfun sé óskaplega erfið — menn þurfi að sýna mikla sjálfsafneitun til að ná árangri. En Maharishi varpar öllu slíku fyrir róða. Kenningar hans byggjast sem sagt á því, að menn leiti á svið þar sem þeim líður betur — þar komi engin áreynsla til. Mönnum verði þetta eins eðli- legt og að draga andann eða líta í kring um sig. Menn eigi ekki að reyna með valdi að hafa áhrif á neinn sérstakan þátt í eðli sínu heldur leitast við að þroska alla, jákvætt og jafnt. Flestar reglur til hugþjálfunar byggjast annaðhvort á einbeit- ingu eða hugardreifingu. Maharishi afneitar hvoru tveggja. Hann segir að hugsanirnar séu alltaf á yfirborði sálarlífsins. Með þvi að beita hugsuninni séu menn eins og sífellt að stökkva á milli fljótandi pramma — alltaf á yfir- borðinu. En með innhverfri íhug- un fari menn sjálfkrafa að kafa dýpra og dýpra í vitundina af því vellíðanin aukist stöðugt við 'iðkunina. Hann likir mannlegri hegðun við öldur á úthafinu. Við notkun þessarar tækni takist öld- unni að sameinast öllu hafinu. Innhverf ihugun sé skilyrði til að komast að uppruna hugsunar- innar eða verndarinnar (the beeing). Þegar hugurinn kynnist verundinni þá öðlist hann eigin- leika hennar, og þar sem verundin sé grundvöllur alls í al- heiminum, hlýtur andinn eða hugurinn að þroskast við það. Maharishi segir: „An slíkrar tækni sem innhverf íhugun er, er öll menntun grundvallarlaus. Menntun byggist á orðum, orð á stafrófi — en á hverju byggist stafróf? Svo lengi sem menn þekkja ekki innsta kjarna til- verunnar og sin sjálfs, svífa menn i lausu lofti." Glöggt dæmi um vanþekkingu manna á þessum efnum er hve þeim tekst illa að hafa stjórn á sjálfum sér og halda frió i heimin- um. I dag nýta menn ekki nema lítinn hluta af möguleikum sínum. Sálfræðingar segja líka að menn noti ekki að jafnaði nema 10—15% af andlegu atgervi sinu. Maharishi heldur þvf fram, að innhverf ihugun sé tæki til að taka allt atgervið i gagnið. öll mein mannsins stafi af því að hann þekkir ekki uppruna allrar orku, sem er „verundin". Um leið og hann kynnist henni, eykst hon- um orka. Þetta feli þó ekki í sér lausn allra vandamála, heldur sé iðkunin sá þrekauki, sem geri Framhald á bls. 13. HVILO Meðan á iðkun innhverfrar fhugunar stendur, minnkar súrefnisnotkun Ifkamans greinilega og efnaskipti hægjast jafnvel meira en i fasta- svefni. Það ber vott um djúpa hvfld. Við dáleiðslu er hins vegar um aukningu að ræða. NEKSuebr L f FEFNAFRÆÐILEGAR BRE * ! INGAR Við taugaveiklun, hræðsluköst og háan blóðþrýsting, mælist mikið magn mjólkursýru í blóðinu. í innhverfri ihugun minnkar mjólkursýru- magn blóðsins allmjög. x o *<c CÚ < cc < c 'O X £ s > 400 300 ?00 100 0 StÖKUN BREYTING A RAFVIUNAMI HÚÐARINNAR I NNHVERF ÍHIJOUN V ?0 40 bO T ÍMI (MÍNÚTUR) Við streitu eða hræðslu minnkar viðnám húðarinnar. j innhverfri ihugun eykst viðnám húðarinnar hins vegar verulega. Það bendir til djúprar slökunar, ásamt minnkandi ótta og taugaæsings. HEIMILD: R.K.Wallace og H.Benson: The Physiology of Meditation Scientific American 226, 84—90 (1974). \ ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.