Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1975, Side 15

Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1975, Side 15
HVAÐ VARÐ UM PABBA? Framhald af bls. 3 handarbökin. „Geri ég nógu mikið fyrir hana? Ættum við ekki að taka sumarfrí sitt í hvoru lagi og ég hef börnin hjá mér? Þegar allt kemur til alls, þá fer ég oft einn á fundi eða ráðstefnur... Nú og svo hitt. Hún hefur kannski bara gott af því að reyna, hvernig það er að komast af á sínum eigin launum. Hvað skyldu þau endast henni lengi? Æ, þetta er ekki sanngjarnt af mér...“ Það hefur verið bent á það hér að framan, að um er að ræða milli- og yfirstéttar hegðunarmunstur. En hvernig fara feður í hinum lægri stéttum að því að leysa sfn vandamál? Þeir mæta meiri andstöðu heima fyrir, vegna þess að þeir hafa lakari laun og búa auk þess ekki við atvinnuöryggi. Þannig hafa þeir minna til þess að láta í skiptum. Samt hafa þeir bitið sig enn fastar en aðrir í þá hugmynd, að eiginmaðurinn eigi að vinna fyrir peningun- um, en konan að annast um heimilið. Mirra Komarovsky lýsir f bókinni „Kakískyrtuhjóna- bönd“ þeim öfugsnúningi sem verður hjá verkamanna- fjölskyldu, þar sem staða eiginmannsins fer eftir því, hvernig hann getur séð fjölskyldu sinni farborða án aðstoðar konunnar. Því fátækari og menntunarsnauðari sem þessar fjölskyldur eru, þeim mun ákveðnari er eiginmaðurinn í því að konan vinni ekki úti. Vandræðin eru, að einmitt hjá svona fjölskyldu myndi það rfða baggamuninn, ef konan færi út að vinna. Hún fellir sig því enn verr við umkomuleysi sitt og einangrun. Ein lausnin er sú, að eiginmaðurinn fái sér aðra og betur launaða vinnu, en þá getur farið svo, að þau þurfi að flytja og eignast nýja vini, sem er mjög erfitt fyrir þetta fólk. „Þessi skörpu skil á hlutverki manns og konu og svo hitt, að þau vænta sér ekki félagsskapar í hjónabandinu, skapa erfiðleika bæði fyrir eiginmanninn og eiginkon- una. Konan verður uppstökk eða leggst í sinnuleysi. Hana langar út að vinna og rjúfa þannig einangrun sína. Jafnvel þótt gjörbylting hafi orðið á þessu í þjóðfélaginu sem heild, þá nær hún ekki að milda afbrýðisemi og kvíða eiginmannsins í þessu tilfelli. Hann heldur að nú sé hann að missa töglin og hagldirnar." Þau hjón sem aðlaga sig bezt hinum nýju kringumstæð- um koma úr millistétt. Þau eru nægilega menntuð til þess að skilja, að konan hefur þörf fyrir að komast í burtu frá heimilinu og öðlast þannig víðari sjóndeildarhring og eignast nýja vini utan heimilisins. Á meðal svertingja er ástandið enn verra. Liebow segir frá þessu f bókinni „Tally’s Corner”. Hann lýsir þar mönnum sem vinna svona ef eitthvað fellur til. Þessir menn eru oftast mikið á ferðinni og eiga börn f öðrum landshlutum, sem þeir hafa kannski aldrei augum litið. Svo annast þeir uppeldið á börnum sambýliskonu sinnar. Mest halda þeir sig þó úti á næsta götuhorni og biða þess, að eitthvað hlaupi á snærið. Flestir þeirra hafa verið giftir og höfðu vonast til þess að hjónabandið entist. Þeir trúa því að það sé skylda mannsins að sjá fyrir fjölskyld- unni, en aðstaða þeirra er svo bágborgin, að þeir ná engan veginn þvi takmarki. Stundum snýst þetta uppi annarlega hegðun. Þeir fara að notfæra sér konur, annað- hvort fjárhagslega eða kynferðislega og reyna þannig að sýna yfirburði sfna og karlmennsku. Konur þeirra kvarta svo undan þvf, að þeir séu einskis nýtir sem eiginmenn. Vmis konar sambýlisform eða samsuða verður til upp úr þessu, en ekkert sem getur staðizt til lengdar, sumpart vegna fátæktar og sumpart vegna þess að allur grund- völlurinn er rangur. Þannig verður sá, sem ætlar sér að vera húsbóndi á sínu heimili f dag fyrir sárum vonbrigðum, hverrar stéttar sem hann kann að vera. Hver og einn verður að standast kröfur vinnumarkaðarins og sjálft starfið hefur líka sfna áhrif. Daniel Miller, prófessor í sálarfræði við Brunuel háskóla í Bretlandi, segir f niðurstöðu rann- sókna um áhrif starfsins á fjölskyldulifið: „Hvað ef þrýstingurinn f starfi krefst hegðunar, sem er gjörólik því sem viðkomandi á að venjast? Rannsóknir hafa leitt í ljós, að maður sem hlýðir í blindni því, sem einhver verkstjóri fyrirskipar 40 stundir á viku, fer að sýna sömu undirgefni heima fyrir, jafnvel þótt hann hafi alizt upp við að draga í efa ákvarðanir annarra og eiga sjálfur frumkvæðið. Konunni er ef til vill tamt að sýna manni sfnum virðingu, en samt neyðist hún smátt og smátt til þess að taka að sér stjórnina, enda skorast hann æ meir undan því. Um þessar mundir eru börn dr. Spocks að verða fuflvaxta. Við höfum tilhneigingu til þess að lfta svo á, að hann sé i raun og veru faðir þeirra. Hann hélt því fram, að ekki ætti að lemja börn né refsa þeim. Þeir sem vilja koma unglingavandræðunum f dag yfir á hann, kalla aðferðir hans „Undanlátssemi". En nú er komin önnur kynslóð foreldra og nýjar bækur um uppeldisfræði, eru þegar f arnar að hrannast upp. Kjarni málsins er sá, að barnauppeldi í Amríku er orðin sálfræðileg vísindagrein, sem bæði móðirin og faðirinn hefur jafnan aðgang að. Hitt er jafn vfst að refsing, sérstaklega líkamleg, sem til skamms tíma var sérgrein föðurins, er úr sögunni. Ein bezta bókin sem hefur verið skrifuð um þetta efni heitir „Hvernig á að vera pabbi", og er eftir Fitzhugh Dodson. Höfundurinn ráðleggur þar föðurnum að rassskella börnin af og til, ekki þeirra vegna, heldur sjálfs sín vegna. Það hreinsar andrúms- loftið, segir dr. Dodson. Pabbinn verður rólegri og þá er hægt að halda áfram að ræða málin af meiri skynsemi. Hér er það sálarheill hans, sem um er að tefla en ekki skyldur. I þessari bók eru ráðleggingarnar þær sömu bæði fyrir föður og móður, þ.e. hvernig á að kenna og reyna að skilja á grundvelli uppeldisfræðinnar. Hvernig á að leitast við að skiptast á skoðunum. Eini munurinn er sá: 1) Það er gengið út frá þvf sem vfsu, að faðirinn sé talsvert að heiman og geti þess vegna ekki verið inni f öllum málum. 2) Samband 'hans við syni sína er frábrugðið sambandi hans við dæturnar og kemur hér til þessi alþekkta Oedipusarduld. 3) Hann á að reyna að undir- strika það karlmannlega í fari sona sinna, án þess þó að kyngreina áhugamál barnanna. í köflunum sem fjalfa um æskuna, er foreldrunum ráðlagt að líta á könnunarferðir hennar inná svið full- orðna fólksins af samúð og áhuga. Foreldrarnir eru hvattir til þess að horfast í augu við það, að þeir eru dálítið ráðvilltir, enda svo margar breytingar á orðið síðan þeir voru unglingar. Unglingar í dag hafa greiðari aðgang að peningum, eiturlyfjum, kynferðismálum og nýjum hugmyndum almennt en nokkur undangengin kynslóð. Foreldrunum er uppálagt að reyna að kynnast börnum sínum betur og tala við þau. Ennþá fellur það þó meira í hlut móðurinnar að tala við börnin, vegna þess að hún er oftar heima við. Sannleikur inn er raunar sá, að margar mæður líta á þetta hlutverk sitt sem þungbæra skyldu. Faðirinn er elskulegi maður- inn, sem er aðeins heima á kvöldin og um helgar. Samverustundir hans og barnanna eru þess vegna of dýrmætar til þess að hægt sé að eyða þeim í tómar aðfinnslur. I þess stað finnst honum hann eigi að efla samband sitt við börnin. Osamræmið hvað snertir agann verður enn meira, vegna þess hversu skilnaður er orðinn tfður. Undir slíkum kringumstæðum hefur móðirin um- ráðarétt yfir börnunum, en faðirinn er skemmtilegi mað- urinn, sem kemur í heimsókn aðra hverja helgi eða svo. Fráskildar millistéttarkonur halda oft, að vandræði þeirra í sambandi við börnin, stafi nær eingöngu af þvf, að ekki sé karlmaður á heimilinu. Lægri stéttar konur eru alveg sannfærðar um þetta og setja sig ekki úr færi að ná í einhvern til þess að lemja viti inní hausinn á krakkagrislingunum. Þetta skapar togstreitu, sérstaklega ef maðurinn er ekki jafnframt faðir barnanna. Ef jafna þarf meiri háttar ágreining, þá er faðirinn því í mörgum tilfellum enn nauðsynlegur. Þetta strandar hins vegar á þvf, að hann nýtur ekki nægilegrar virðing- ar. örþrifapabbinn í okkar þjóðfélagi vill þess vegna oft verða einhvers konar ráðgefandi stofnun, barnaverndar- nefnd eða lögreglan. Um það bil helmingur allra útkalla lögreglunnar i New York er vegna heimilisvandræða. Þegar þannig stendur á, er lögregluþjónninn eins konar gervipabbi eða móðurbróðir eða afi. Þar sem stórfjöl- skyldan var áður, er nú kominn fulltrúi þjóðfélagsins. Faðirinn kemur sér upp tómstundaiðju, sem felur í sér fþróttir, viðhald á húsinu og bílnum og þvíumlíkt. Á undanförnum árum hafa sprottið upp deilur út af kyn- festu þessara þátta. Það er skiljanlegt, vegna þess að einmitt hér hefur faðirinn getað smokrað sér undan heimilislífinu og barnauppeldinu. Seinna þegar synirnir hafa náð þeim aldrei, leiðir hann þá með sér inní þennan dularheim. Hér er kominn vettvangur, þar sem faðir og sonur geta talast við um gildi, vandamál og lausnir sem eru þvi samfara að vera karlmaður. Iþróttir krefjast auk styrkleika og hæfni þess, að viðkomandi hafi vald á sjálfum sér undir erfiðum kringumstæðum. Iþróttamaður þarf að búa yfir því, sem kalfað hefur verið íþróttaandi, þ.e. að kunna að halda aftur af sjálfum sér í þágu heildarinnar. Hann þarf að bæla niður að vissu marki bæði gleði og niðurlægingu. I heimi íþrótta kemur faðirinn ýmist fram sem beinn þátttakandi eða áhorfandi. Þessar athafnir eru að vissu leyti táknrænar og skfrskota til þess, er maðurinn hér fyrr meir barðist við náttúruöflin eða aðra menn og ann að hvort sigraði eða beið lægri hlut á jafnréttisgrund- velli. Sé þetta borið saman við hinn raunverulega heim í hagræddu skriffinnskuþjóðfélagi, þennan heim sem menn eru stöðugt að reyna að flýja, heim vanabundinnar vinnu og óvissrar umbunar, er mismunurinn auðsær. I seinni tíð hafa konur ráðist inn í þennan „flóttaheim" líka. Þær stunda golf og tennis, stangaveiði og útilegur og „fara á völlinn". Langþráð ósk um að komast í burtu úr litla húsinu með þessum fjórum persónum, hefur nú rætzt, ekki síður fyrir móður og dóttur en föður og son. En áður átti sér stað togstreita, sem raunar lenti alla leið fyrir dómstólunum. Það átti ekki að leyfa konum að horfa á knattspyrnukappleiki. Rökin voru hins vegar hlægileg og það var augljóst, að hér voru karlmenn einungis að verja reit, sem þeir höfðu helgað sér og töldu sig hafa einkarétt á. Aðal flóttagrín og sfðasta vígi karlmannsins, bílaviðgerðir, er meira að segja fallið. Ef konan yill, getur hún skriðið undir bíl, alveg eins og henni er heimilt að fara á klámbfó. I báðum tilfellum, mætir hún kannski smá fyrirstöðu, en hún getur fengið sínu framgengt ef hún vill. Konur eru nú farnar að sækjast eftir því að verða pipulagningamenn og húsasmiðir. Þær hafa stofn- að eigin skóla í því augnamiði og þær eru farnar að gefa út íþróttablað. Hvað hefur gerzt? Nærri helmingur allra giftra kvenna vinna úti, eftir að börn þeirra hafa náð skólaskyldualdri. Þær hafa á höndum sams konar vanabundin störf og karlmennirnir. Tilveran er í stórum dráttum eins hjá eiginmanni og eiginkonu í millistétt. Sú breyting sem hefur orðið á heiminum og börnunum gerir mæðurnar jafn ráðvilltar og feðurna. Þær vita ekki hvað snýr upp og hvað snýr niður á þessu öllu saman og eru jafn óánægóar og óöruggar um sig. Þær hafa því jafn mikla þörf og karlmennirnir fyrir að gera eitthvað jákvætt og skemmtilegt. Eftir því sem öll þessi atriði hafa orðið minna bundin við karlmennina, hefur tómstundaiðja hjá hvftflibbastétt æ meir orðið miðpunktur heimilislífsins. Það sem hver einstaklingur aðhefst, annað hvort í hóp eða einn út af fyrir sig, er orðið þáttur í persónuleika hans. Það er sagt að þessi eða hin fjölskyldan stundi sjóskíðaíþróttina. Sonurinn er í rokkhljómsveit. Faðirinn er skátahöfðingi eða organisti. Hver og einn gengur upp í sinni grein og aðrir virða hann fyrir það. En eftir allar þessar breytingar, er pabbinn sem slíkur þá ekki orðinn algjörlega óþarfur? Sálfræðingar eru ekki á eitt sáttir um þetta. Þeir róttækustu telja að faðirinn sé sfður en svo ómissandi varðandi uppeldi barnanna, enda geta einhleypar konur nú tekið að sér barn og dómstólar hafa ekkert við það að athuga. A hinn bóginn, segir einn vinur minn, sem er heldur kall í krapinu og býr í slæmu hverfi. Hann segir: „Ein- hver verður að kenna börnunum, hvernig á að bita frá sér.“ Sonur minn Alex, sem er 8 ára, segir: „Feður eru nauðsynlegir vegna þess að þeir kenna okkur krökkununt ýmislegt. Þeir bera okkur á háhesti og þegar ég er orðinn pabbi, ætla ég líka að bera mína krakka á háhesti." Þetta eru sannfærandi rök. Þau minna okkur á, að það verður að líta á hlutverk föðurins af sérstakri nærfærni, því að ennþá er hann til staðar þrátt fyrir allt og mikilvægur í augum margra. Það fer ekki framhjá okkur, sem afskipti höfum af vandræðafjölskyldum, að mikið í hegðunarmunstri barn- anna, er eitthvað sem þau taka upp eftir öðrum á heimilinu. Venjulega er það faðirinn eða móðirin. Þær hugmyndir sem verða hvað rótgrónastar hjá þeim um t.d. blíðu, kjark, vonbrigði og fyrirgefningu, fara eftir því hvernig foreldrarnir koma fram hvert við annað. Á eitt skal bent hér. Fyrir hvert eitt tilfelli, sem hin kynbundna hefð, hefur skapað samræmi f lífi föður og móður og veitt þeim styrk og ró, get ég nefnt annað þar sem því er öfugt farið. Eiginmaður og eiginkona reka saman lítið fyrirtæki, en þau gera hvort öðru lífið leitt. Hún hefur meiri skipulagsgáfur en hann. Samt heimtar hann að vera í forsvari á stjórnarf undum og krefst þess að hún styðji hann. Faðir nokkur hefur sérstakt auga fyrir leikjum og að segja börnum sínum gamansögur. Þetta notfærir hann sér til þess að skyggja á konuna. Hún hefur hálfgerða skömm á svona barnaskap, en getur ekki almennilega játað það og finnst hún ekki ná hylli barn- anna til jafns við hann. Auk þess finnst henni hún bregðast sem móðir. Þess eru mýmörg dæmi, að hjón sem hafa skilið á miðjum aldrei, hafa notið sín miklu betur eftir á. Þegar sárasta tómleikanum sleppir, detta þau niður á lífsstíl, sem hefði verið óhugsandi á meðari þau voru að leika óæskilegt hlutverk sem mótpartur hins. Sem sálfræðingur hef ég ekki rekizt á svo fá dæmi þess, hvernig upplag og forfð hæfir illa lífi sumra. Sannleikur inn er sá að foreldrar gera börnurn sínum mestan greiða, ef þau leitast við að vera þau sjálf á skapandi hátt og reyna að njóta hæfileika sinna og menntunar til hins ýtrasta. Þetta ætti barnið að taka sér til fyrirmyndar, en ekki einblína á kynhlutverkið. Aðal skerfur föðurins ætti því að vera að veita móður- inni stuðning, þannig að þau geti hvort um sig unnið að þeim hugðarefnum, sem standa hjarta þeirra næst.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.