Lesbók Morgunblaðsins - 26.01.1975, Síða 16
Eitt dagblaðanna, Vísir, hefur nú nýlega
gert úttekt á því í dálkunum „Vísir spyr"
hvernig hinn fullkomni maki eigi aS vera.
Enda þótt ekki sé við því að búast, að fólk
geti rutt úr sér visdómi og margslunginni
speki þegar gengið er að því á götu og borin
upp spurning, sem verður að svara á stund-
inni, gefa þó svörin athyglisverðar visbend-
ingar. Og vissulega kemur sú afstaða sem
speglast i svörum karlanna/kvenanna
nokkuð á óvart. Á þessum síðustu tímum,
þegar allir eru meira og minna fylgjandi
jafnrétti kynja, alténd í orði.
Oft hefur verið bent á það af sérfræð-
ingum, að íslendingar séu með pattaralegri
þjóðum í Vestur Evrópu, enda kemur upp úr
kafinu að eiginmennirnir, sem spurðir eru,
leggja verulega mikið upp úr þvi að eigin-
konan sé dálítið dugleg að búa til mat. Væri
raunar fróðlegt að vita, — þótt það sé
útúrdúr — hvað eiginmönnum finnst góður
matur. Ætli það séu nautalundir með berne-
sósu, grillsteiktir kjúklingar, fiskibollur með
smjöri eða ný ýsa með hamsatólg? Er það út
af fyrir sig rannsóknarefni fyrir áhugamenn
að kynna sér matarsmekk landans.
Einn karlmaður nefndi að konan ætti að
vera skemmtileg i viðræðum og annar að
hún ætti að leyfa manninum að sjá um
fjárhag heimilisins. Eru þetta eins og annað
hógværar og stillilegar óskir í hvívetna.
Hjá kvenfólkinu voru þær prúðmannlegu
óskir bornar fram að eiginmaðurinn væri
alúðlegur við börnin og svo átti hann að vera
dáiítið traustur og heiðarlegur. Ekki virtist
skaða þótt hann væri myndarlegur á velli.
Aftur á móti tók enginn karlmannanna það
fram að eiginkonan þyrfti að vera sérstakt
augnayndi og er það út af fyrir sig einnig efni
í ritgerð fyrir þjóðfélagsfræðinema að gera
könnun á því.
Konurnar voru mjög umburðarlyndar varð-
andi heimilisverkin. Það tók ekki að minnast
á að hann ætti að þvo upp — það var
greinilega framtíðarsýn svo fjarlæg að
nánast mátti heyra andköfin, þegar blaða-
maðurinn hefur innt sérstaklega eftir því.
Ein kona aðeins tók fram að eiginmaðurinn
ætti að elska konuna sina og einn karlmanna
var á þeirri skoðun að ánægjulegt væri ef
konan væri góð við manninn sinn.
En að slepptu öllu gamni þá gefa slík svör
óneitanlega ýmis sjónarmið til kynna, þótt
þeim verði ekki til skila komið í svo stuttu
máli sem þarna er ætlað. Hjónabandið og
fjölskyldan hefur verið mjög til umræðu hin
síðari ár og margir sagt það úrelt í núverandi
mynd. Alls konar róttækar og allfráleitar
skoðanir hafa verið fram settar um hið eftir-
sóknarverða framtíðarskipulag þeirra mála.
Sumar á þann veg að ekki er ástæða til að
leggja of mikið kapp á að framfylgja þeim. En
slík svör gefa fyrst og fremst tilefni til
vangaveltna i framhaldi af spurningunni, og
þær vangaveltur gætu farið út í ýmsa sálma
og niðurstöður orðið hinar fjörlegustu. Fyrir
nú utan allar þær vinsælu úttektir sem
mætti síðan gera af þeim.
Jóhanna Kristjónsdóttir.
\hN/ J Ir \Hi íf \ 1 V (X TURr HiH J KTtAK AifíFU V lTf?r flfZ fflK ru \M£> 1 [51© flDlR WTÍ
JÍSN K 5K- IK'K’" ye\ íX
ÞR' ÆLir- U M Y IÐfíR- bUtuR (Jprir í/1
vnL IA a X >flM- m-j. X" TolU
'XI . > F o Í2- To LUM e. R r i l
'o\J\l P- f
STVR- KTUV\ GRfe/R- brrft R
Díiec,i LEQff X D UUti- frÐUR YUDIÐ
’mz- xm \r SlLf\' K-£ppur 'pOLff IÐfJ- M£NM
X p ToTL- LIR Hfl ie SoL 1 N
a»' UÐUR. T<\ LA9I UM Srtin- TEHT- (/ k+tks - X>S/R. FERIK- R R.
CiT- U< M - U R ■ H/fFUR n
fí/E&l- LEUfí JUPT/N 0LAÐUR SflUR- M
F7 RIQ- LE sr- 1 ? f\ 1 ■ K«orr- rówN
X
LEWLO are'iN'- INílhJ UMDfl Femz ;
*.*
Krossgáta
Lesbókar
Morgunblaðsins
Lausn
á síðustu krossgátu
Í npv1 ^ is-5? Pffflmí PVDOI x1- D!KM- ViDRI ílH HARK
ifsp'-* t* B 1 M s b T r M R í|í 5 £
ÓKfl O R M H Tafl L R u T SLK.K) MATuR / L L
s 'JÍI Ht- Llfl F L A A ■ *■ V A K o*0 O F
V Hucl AÐS H«r HJ A Sm£> N u D J> kcxi iK-a- 01 R 0 & T A
LiTmR »T«) K Ö L b T T ú R ÚR. 1 N *T*t>l rÖL- S T A L
[Kki ruii ö R Á s> Ö 5 A R % A F r Ú R £
FRulA Er fJi H A nritiw u R T A B x- flLKfl A ffl A u K Úfl/J- IR í>
V£Tt 1 Duc- LEfil A A A' R WKC.f>| FTÓU U R M u L sv. IWflfl U R R A R
jr S 1 T U R ▼ « £ A' T A N l
>í L.K N Á R / V 1 r r N U áw. S«ói» H 1 i>
L < H K A & r 1 £> R A M M U R krflr-
ve« rfcCI A L A L 1 £> Fc« V-T A u R d S rRutrt ÉFNl E
F J- F 1 Ð * L> R ú Nl -♦ A H N S
1 H & M 1“ N J> S K £ R P R S
1*
a