Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.1977, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.1977, Blaðsíða 7
Til vinstri: Kenneth Haigh og Mary Ure I fyrstu uppfærslu „HorfSu rei8- ur um öxl" árið 1956. Að neðan: John Osborne heima hjá sér, 43 ára að aldri. morguninn eftir aö ég kom fór ég niður á jarnbrautarstöð að taka á móti leiktjöldum og öðrum leik- munum. Svo fór ég niður í Empireleikhúsið að búa mig undir fyrstu sýninguna. Þetta var mesta puð, og það voru tvær sýn- ingar á kvöldi. Atriðaskipti voru hröð. Einu sinni hafði ég svo hraðar hendur, að ég var ekki nema 21 sekúndu að skipta um sviðsbúnað. Tvennt vakti athygli mína sér- staklega, þegar ég fór að vinna í leikhúsum. Annað var jafnrétti kynjanna. Allir höfðu jafnt kaup, fengu jafna auglýsingu, skiptu með sér kostnaði. Hitt var það, að hvarvetna voru kynvillingar fyrir. Það var krökkt af þeim. Og þetta hefur lítið breyzt. Alla tíð siðan hef ég verið hundeltur af þessum dýrum. Ég var mér nú úti um skrá yfir gististaði leikara og í næstu viku fann ég annan og miklu betri en þann, sem ég gisti fyrst. Hann var i Huddersfield. Fyrir þrjú pund á viku fékk maður herbergi, morgunmat — og kvöldmat. Þetta var sanngjarn pris á þeim tíma, nokkurn veginn i meðallagi. Sums staðar kostaði gisting og morgunmatur ekki nema 15 shill- inga, í Glasgow, til dæmis. En yfirleitt áttu menn ekki góða vist í slíkum gistihúsum, og gat svo farið, að þeir kæmust aldrei úr frakkanum fyrir kulda en stæðu upp við skilvegg öll kvöld og reyndu að orna sér við hitann af arineldinum í herberginu við hliðina. En það voru annars stór- merkilegir staðir, þessi gistihús, sem leikarar sóttu. I Manchester, til dæmis að nefna, var nærri hvert hús i sumum götum undir- lagt af leikurum. Voru sumar þær götur alræmdar, svo sem Ackers- stræti. Leikarar tímdu sjaldnast að gista i hótelum, jafnvel ekki frægustu leikarar. Þeir áttu sér margir eftirlætisstaði þar, sem þeir gistu hvað eftir annað. Ég kom varla svo í slikt gistihús, að ekki héngi þar uppi árituð ljós- mynd af G.H. Elliott ellegar George Formby eldri, og stóð á þeim eitthvað á þessa leið: „Til Rósu — með beztu þökkum fyrir yndislega viku. Maturinn indæll eins og ævinlega — og nóg af honum — og ekki vantaði fjörið! Hlakka til að koma aftur“. Veitingakonur þær, sem hystu leikara, voru flestar allsérstæðar. Allarólu þær með sér drauma um það að verða leikkonur, og reynd- ar voru þær ágætar leikkonur sumar hverjar. Þær fengu ókeypis leikhússmiða og komu oftast á mánudagssýningar. Þær voru ákaflega gagnrýnar. Og dómar þeirra voru komnir um all- an bæ þegar á þriðjudagsmorgun. Það var alvarlegt mál, ef þeim likaði ekki sýning. En þær lágu ekki heldur á lofinu, ef þeim þótti vel hafa tekizt. Þá sögðu þær sem svo: „0 — þú varst svo sætur i þessu hlutverki. Ég sagði það líka við Albert. Hann er svo mikið krútt í þessu hlutverki, sagði ég“. Var það hástig lofs. Öðru máli gegndi um eigin- manninn, eða unnustann, sem þær áttu sér flestar. Hann húkti frammi í eldhúsi og lét fara litið fyrir sér. Sat þar á skyrtunni og las veðmálablaðið. Jafnan var látið í veðri vaka, að hann væri húsbóndinn á heimilinu, og réði lögum og lofum, einkum í sið- ferðissökum. Ef maður ætlaði að fara upp á kvenmann inni í her- berginu sinu var hyggilegast að láta veitingakonuna vita af þvi. Hún svaraði ævinlega samkvæmt fastri forskrift: „Ja, ég verð nátt- úrulega að segja Alberti frá þvi. Sjálf hef ég ekkert við það að athuga. Það er annað mál með Albert. Hann er nefnilega trú- aður“. Þetta lét svolítið undarlega i eyrum þar eð Albert var búinn að hanga í bjórkránni allan sunnudaginn, nema hvað hann skrapp út á hundahlaupabrautina og heimsótti stúlku nokkra, lausa á kostunum, sem hann þekkti þar í nágrenninu. En hvað um það: þegar hann skaut upp kollinum gaf kona hans manni merki og maður reyndi þá að láta lítið á sér bera þar til hann fór aftur. Oft var það eftir mikla og góða kvöldmáltið með bjór, að þau drógu upp hljóðfæri, ukelele, fiðlu og harmoniku og svo var leikið með á píanó og öll fjöl- skyldan söng. öll sungum við. Ég átti nú frelsi að fagna í fyrsta sinn á ævinni. Ég lifði kóngalifi á sjö pundum á viku. Og ég var ástfanginn af yngstu og efnilegustu leikkonunni i flokkn- um. Hún hét Sheila. Þegar fram liðu stundir skrifaði Renée mér og hafði þau tíðindi að segja, að við hefðum sloppið naumlega rétt enneinu sinni; hún spurði svo, hvenær við ættum að trúlofast. Það væri tími til kominn. En við Sheila fullkomnuðum ástir okkar framan við gaseldinn í stofunni hjá frú Coleman í Dudleystræti 70 í Wolverhampton. Það var á föstudaginn langa. Ég var múrað- ur, ástfanginn, alltaf að læra eitt- hvaó nýtt og það, sem mest var uni vert — i vinnu. í árslokin afréð ég að reyna að fá mér nýja vinnu og helzt betri. Ekki svo að skilja, að mig langaði mikið til London aftur. En ég þreifaði fyrir mér hjá ýmsum um- boðsmönnum. Alls staðar fékk ég afsvar. Ég fór að halda að mér hefði orðið á reginskyssa og hefði verið vitið meira að halda áfram að flakka um landsbyggðina. En hvað um það: ég var nýfarinn aó vera meó mér eldri konu. Það var I fyrsta sinn. Hún var 10 árum eldri en ég. Hún fór með mig eins og uppivöðslusaman krakka og kenndi mér betri siði. Hún kom mér upp á grænmetisát. I 10 ár eftir þaó át ég ekki annað en grænmeti. En þessi kona hvatti mig lfka til þess að fara að semja leikrit. Varð hún fyrst manna til þess. Mér þótti þetta allt með ólíkindum. í heilt ár bjuggum við í veglegri kjailaraíbúð í Arundel Terrace i Brighton. Maðurinn konunnar átti ibúðina. Hann var hommi, mesti gæðamaður og stóð i vafasömum fyrirtækjum. Hann gerði út leikflokk, sem fór um landið með leikrit, er nefndust einu nafni Syndugar konur (bönnuð börnum). Hann var ævinlega á höttunum eftir ódýr- um bjór, og alltaf var hann á flótta undan gjaldheimtunni. En við, ég og konan hans, dvöldum framéftir i rúminu á hverjum morgni. Á föstudögum fór ég með Southdownrútunni til London. Þar fékk ég gott að borða hjá mömmu og veitti ekki af. Ég hélt svo aftur heim með kassa fullan af niðursoðnum mat og 10 shillinga að auki. Stundum vorum við ástmey mín svo aðþrengd eftir helgar, að við slepptum fram af okkur beizlunum þegar við hittumst aftur, og höfðum samfar- ir í aftasta sætinu í strætó. Það þótti henni gott. Lika þótti henni gaman að því í járnbrautarlest- um, einkum á sunnudögum. Hún sagði að ég væri of kvenlegur til þess að verða góður leikari en ætti heldur að einbeita mér að leikritagerð og verða mikið leik- skáld. Ég var búinn að heyra hana nota þetta orð „kvenlegur" í ýmsum merkingum og tók þetta ekki illa upp. (Hún notaði það um Beethoven, aftur á móti var Mozart það ekki o.s.frv. Hún átti ekki við það, að ég væri kyn- villtur). Þár kom, að ég varð að taka vinnu, sem mér bauðst í eld- húsinu i Metropole. Þaó var upp- þvottur. Siðar fékk ég vinnu i Rank Starlets Dirty Weekend Hotel I Rottingdean. Það var líka uppþvottur. Þetta var mesta puð, unnið frá hálfsjö á kvöldin til ellefu og vikukaupið 14 pund. Svo gerðist það að vinkona min réðst til leikhúss i Keswick.Hún sagðist mundu gera mér orð, þegar hún væri búin að leggja dálitið fyrir. En ekki löngu seinna skrifaði hún mér svolátandi, að öllu væri lokið okkar á milli og nú byggi hún í hjólhýsi meó manni á sinu reki. „Ég treysti því alltaf, að ég gæti losað mig við þig rétt eins og að höggva af mér handlegg,“ sagði hún. „Og svona hlaut að fara. Þú verður að reyna að skilja þetta. Viltu skrúfa fyrir gasið og slökkva öll ljós, þegar þú flytur úr ibúðinni?" Ég lét það ógert. Og skilning brast mig alveg. Dögum saman ráfaði ég um og mældi göturnar í Kemptown og Brighton. Ég var jafnvel enn daufari í dálkinn en ég^ hafði nokkurn tima verið í skólanum. Fimm næstu ár var ég atvinnu- laus oftar en ekki. Ég fékk at- vinnuleysisstyrk; sótti hann tvisvár i viku. Að auki fékk ég 30 shillinga á viku frá ríkinu. Þá sjaldan að ég fékk vinnu voru það leikferðir vikulegar og tjaldað til einnar nætur á hvgrjum stað. Jafnvel fór ég með Pygmalion á vegum Listaráðs til Wales. í Wales var afi minn fæddur og uppalinn. Annars fór ég víða: kom i Huddersfield, Leicester, Derby, Ilfracombe og Bridge- water. í Bridgewater kvæntist ég aðstoðarsviðsstjóranum, stór- fallegri rauðhærðri stúlku, sem var nýbúin að láta snöggklippa sig. Forráðamönnum flokksins likaði ekki ráðahagurinn. Við vor- um rekin. Við héldum til London. Við áttum 20 pund alis. Ég vékk vinnu í Camberwell, tvær sýningar á kvöldi, og við fengum leigða ibúð i Hammersmith. Svo liðu þrjú ár. Þá fór konan frá mér. Upp frá því bjó ég við kynbindindi af fúsum og frjálsum vilja, át einu sinni á dag og skrif- aði í almenningsbókasafni. Þar var hlýjan. Um vorið 1955 var mér boðin hálfsmánaðar vinna i Morecambe. Ég átti að leika smáhlutverk í Seagulls Over Sorrento. Það var von mín að mér yrði boðió að vera áfram um sumarið. Það varð nú ekki. En mér þótti gott að koma norður aftur, þótt ekki stæði ég lengi við. Norðlendingarnir voru langtum alúðlegri en Lundúna- búar. Á hverjum degi sat ég lang- timum saman niðri á bryggju, hlustaði á skemmtiferðamennina frá mylluborgunum, og skrifaði tvo fyrstu þætti Look Back in Anger — Horfðu reiður um öxl. Mörgum árum síðar las ég það mér til mikillar furðu I bók eftir einhvern merkisgagnrýnanda, að leikritið hefði upphaflega heitið „On the Pier at Morecambe". Framhald á bls. 14 ©

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.