Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.1977, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.1977, Blaðsíða 9
MálttS ð veitingahúsi: Dýrast að borða f Tokyo, ódýrast f í Moskvu. ALLT er í heiminum hverfult og breytilegt, ekki sízt verð- lagið. Mismunandi verðbólga á ekki hvað minnstan þátt í því. í annan stað eru sum lönd lágtekjusvæði; þar er öll þjónusta ódýr og verðið er að minnsta kosti hagstætt fyrir þá, sem koma frá löndum með betri launakjör. Á hátekjusvæðum eins og Vestur-Þýzkalandi og Sviss verður þessu öfugt farið. Um siðustu áramót birtist i blaðinu Financial Times fróð- legt yfirlit um verðlag í 60 borgum i öllum heimsálfum. Þær tölur eru ugglaust að ein- hverju leyti breyttar núna, en ættu þó að duga til saman- burðar. Samkvæmt þessari skýrslu er dýrasta land jarðar- innar Abu Dhabi við Persa- flóann, en hefur að öllu saman- lögðu ekki nema örlítið yfir New York, sem annars er dýr- ust borga. Hér er aðeins tekinn úrdráttur úr skýrslunni og vald- ar úr 25 borgir, sem flestar eru í Evrópu og annasstaðar þar sem búast má við að íslend- ingar ferðist. Hins vegar höfum við sleppt borgum i fjarlægari Austurlöndum, SuðurAmeríku og Ástralíu. Af þessu yfirliti er Ijóst, að fyrir utan New York eru dýr- ustu borgir heimsins Frankfurt í Þýzkalandi, Paris, Brússel og. Stokkhólmur. Tokyo, Mont- real, Osló og Kaupmannahöfn fylgja fast á eftir, en þrátt fyrir dýrtíðina hér, er Reykjavík um það bil á listanum miðjum; þó heldur ofar. Nitján borgireru taldar dýrari en Reykjavik, en 40 eru ódýrari. Líkast verðlag og í Reykjavík er samkvæmt þessu i Genf og Helsinki. Að öllu samanlögðu er lægsta verðlagið á Kýpur og litið eitt hærra í Jóhannesarborg i Suður Afriku. Dublin og Lissabon í sérflokki íslenzkir ferðamenn leggja ekki leið sina austur fyrir Járn- Hótelherbergi — þá er ekki átt við neinn fburS og heldur ekki þaS ódýr- asta — kostar mest í New York, en minnst f Jóhannesarborg. Til vinstri: Parls. borg Ijósanna, er fögur jafnt a8 nóttu sem degi. En verSlagiS þar er ekki a8 sama skapi hagstætt. RliSÍSlilÍSSi Þa8 er öllu fremur Svipur gamla tfmans á Dublin hér a8 ofan og Lissabon til hægri, en þessar borgir eiga þa8 sameiginlegt a8 vera borga ódýrastar f Evrópu ásamt Belgrad og Moskvu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.