Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.1977, Qupperneq 10

Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.1977, Qupperneq 10
London er meSal þeirra borga. sem íslendingar heimsækja hvaS mest og þrátt fyrir allt er verðlag f London enn tiltölulega hagstætt. vera mjög ódýr í Frankfurt, sem annars er meðal dýrustu borga. í yfirlitinu hefur verið leitað eftir verðlagi á 8 atriðum, sem snerta ferðamenn Þau eru: Hótelherbergi með morgun- verði, máltið á veitingahúsi án vins, flaska af góðu vini, ein- faldur viskýsjúss, einn bjór, létt máltíð og leiguíll í hálfs kíló- metra spöl. Séu þessi atriði tekin fyrir lið fyrir lið, er hótelherbergið dýr- astiNewYork: 14.973 krón- ur, en dýrast i Evrópu er það i París: 1 1.624 krónur. Ódýrust gisting er í boði i Jóhannesar- borg: 3 1 00 krónur nóttin, en ódýrast i Evrópu er i Belgrad: 3.604 kr.Að borða á veitinga- húsi án vins er dýrast i Tokyo: 6 202 krónur, en Moskva býður bezt kjör að þessu leyti: 453 krónur máltiðina. Vilji tjald i þeim mæli, að verðlag þar skipti miklu máli. Á áhrifa- svæði íslenzkra ferðamála i vestanverðri Evrópu eru hins vegar tvær borgir sem skera sig nokkuð úr um lágt verðlag Annars vegar er Dublin á ír- landi og hins vegar Lissabon i Portúgal írland hefurverið vanrækt af hálfu íslendinga að þessu leyti og er það ekki mak- legt, þar sem irland er meðal næstu nágrannalanda okkar, einstaklega fagurt land og írar kannske okkur skyldastir þjóða En írar hafa farið var- hluta af þeim efnahags- undrum, sem breyta löndum úr lágtekjusvæðum í hátekju- svæði. Þess vegna er hótelher- bergi i Dublin helmingi ódýrara en i Franfurt og Paris; sæmileg máltið er sömuleiðis helmingi ódýrari þar en i fyrrnefndum borgum. Einfaldur viskysjúss er nærri þvi þrisvar sinnum ódýrari þaren i Reykjavík, bjór- inn þar er helmingi ódýrari en í New York og um það bil fjórum sinnum ódýrari en i Stokk- hólmi. Létt máltið er þrisvar sinnum ódýrari i Dublin en i Tokyo, fimm sinnum ódýrari en í Frankfurt og hérumbil fjórum sinnum ódýrari en i Kaup- mannahöfn. Leigubíll hálfan kilómetra er þar meira en sex sinrium ódýrari en i Bru^ssel og Frankfurt. Fjórum sinnum ódýr- ara að gista í Lissa- bon en New York Portúgal er miklu meira ferðamannaland en írland; þar eru baðstrendur og þekktir staðir, sem auglýsa sólina og pólitiskt ástand i landinu er nú með þeim hætti, að ferðamenn þurfa ekki að óttast það Að öllu samanlögðu er Lissabon ennþá ódýrari borg en Dublin Hótelherbergi þarerfjórum sinnum ódýrara en i New York, þrisvar sinnum ódýrara en i París og helmingi ódýrara en í Kaupmannahöfn og Osló. Mál- tið i Lissabon er á sama hátt helmingi ódýrari en i Frankfurt, Paris, Brússel og Stokkhólmi og þrisvar sinnum ódýrari en i Tokyo. Leigubíllinn kostar þar meira en þrisvar sinnum minna en i Reykjavík og rúmlega tiu sinnum minna en í Brússel Því miður nær yfirlitið ekki til Edinborgarog Glasgow, sem eru borga næstar íslandi og báðar hagstæðar að verðlagi. En kannske er engin erlend borg eins fjölsótt af Islend- ingum og London og verðlag i London verður að minnsta kosti að teljast hagstætt borið saman við löndin handan Ermarsundsins. Hótelherbergi í London kostar næstum nákvæmlega helmingi minna en i Paris; máltíðir í Frankfurt Nœst um ferðamöl: Hvað kostar að fljúga? og Paris eru á sama hátt nálega helmingi dýrari en i London Máltið í Reykjavik er einnig um 50% dýrari en í London. Flaska af góðu vini er fjórum sinnum ódýrari i London en i Brússel og helmingi ódýrari en í New York og Stokkhólmi Létt máltið i London er fjórum sinnum ódýr- ari en í Frankfurt og rúmlega helmingi ódýrari en i Paris og Kaupmannahöfn. Leigubilar i London eru samkvæmt skýrsl- unni nálega helmingi ódýrari en í Reykjavik og hvorki meira né minna en fimm sinnum ódýrari en i Frankfurt. Það ódýrasta er ekki allt á einum stað Til þessaðverða þessaðnjót- andi, sem ódýrast er á boð- stólum kostar að visu nokkurn eltingaleik. Þá kaupir maður sér gistingu í Jóhannesarborg, snæðir léttan morgunverð í Varsjá, fær sér einn viskýsjúss i Dublin, borðar i Moskvu, kaupir sér flösku af góðu víni í Belgrad og tekur leigubíl i Lissabon. Og þaðertalandi tákn fyrir ..ýmislegheitin i kringumstæðunum" eins og Kjarval orðaði það, að flaska af góðu vini skuli af öllum stöðum maður bæta máltiðina með flösku af góðu vini, er það einnig dýrast i Tokyo: 7.035 og mundi þá máltið með slikri vinflösku kosta rúmlega 1 3 þúsund krónurihöfuðborg Japans. í Evrópu er vínflaskan dýrust i Brússel: 7.029, sem er harla undarlegt í námunda við alla þá vínrækt Ódýrust er vin- flaskan i Belgrad og eins og áður segir i Frankfurt. En sam- kvæmt yfirlitinu er hún lika það eina, sem ódýrt i Frankfurt. Að hressa sig á einföldum viskýsjússi er dýrast i París: 797 krónur, en i Dublin kostar sá sjúss 1 35 krónur og er ekki völ á því ódýrara. Bjórinn er dýrastur i Stokkhólmi; flaskan kostar þar 564 krónur, en ódýrust er bjórflaskan í Moskvu: 1 05 kr. Smámáltíð — þá er líklega átt við grillstaði eða þviumlíkt — er dýrust i Frakklandi: 1 663 krónur, en i Varsjá er völ á slikri máltíð fyrir aðeins 23o krónur og er það ódýrast. Að bregða sér hálfan kíló- metra i leigubil er nokkuð sem ferðalangurinn þarf oft að gera, hvar sem hann er staddur. Á leigubílaverði er ótrúlegur munur eftir löndum. Dýrast er aðtaka leigubíl i Brússel; þar kostar 'A km 2.161 krónu og mjög svipað i Frankfurt, en i Lissabon kemst maður þennan spöl fyrir aðeins 1 57 krónur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.