Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.1977, Qupperneq 11

Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.1977, Qupperneq 11
hliðstæðum aðilum, svo sem stórum samtökum og félögum. Ríkiðá að gera þetta, borgin hitt, ergjarnan viðkvæðið. Þessir tveir aðilar verða gjarnan sökudólgarnir i augum al- mennings, þegar eitthvað fer miður. Það er sjálfsagt mjög þægilegt að geta varpað skuldinni á svo óper- sónuleg fyrirbæri og ætlað þeim að bera synd heimsins, þegará bjátar, en vafasamt hvort það er sérlega árangursrikt. Ætla má að betur færi á þvi, að frumkvæði færðist miklu meira í hendur almennings, for- eldrahópa, t.d. í einstökum bekkjar- deildum eða skólum, samtaka for- eldra i ákveðinni götu eða tilteknum hverfum Á slikum vettvangi er heppilegast að ræða vandamálin og þær ráðstafanir sem gera þarf og leita síðan til opinberra aðila um aðstoð, þar sem hún á við. Þetta má þó ekki misskilja i þá veru, að mælt sé með þvi að opin- berir aðilar dragi saman seglin i framlögum sínum og afskiptum, heldur er hugmyndin sú að breytt sé um áherzlu Afskiptum hins opin- bera á þessum vettvangi mætti skipta i þrjá flokka: 1) að tryggja með öflugri rannsóknastarfsemi að ávallt sé fyrir hendi traust vitneskja um þróun og ástand i uppeldismál- um Hér er akurinn að mestu óplægður og þyrfti þvi hið opinbera að gera mikið átak t.a.m. i sam- vinnu við rannsóknastofnanir. 2) að sjá til þess að alltaf sé til nauðsynleg frumaðstaða, svo sem húsrými, leik- svæði o.fl. 3) að aðstoða samtök foreldra eftir beiðni þeirra. Frumkvæði foreldrahópa geturað sjálfsögðu verið með ýmsum hætti Einstöku sinnum hafa tilraunir verið gerðar í þá átt, og eru þar liklega kunnust foreldrafélög við barna- og unglingaskólana Þau félög hafa þó haft tilhneigingu til þess að dofna að athafnasemi og jafnvel gufa upp með timanum Á vegum dagvistar- stofnana fyrir vangefna i Reykjavik eru og starfandi prýðilega virk sam- tök foreldrá, sem hafa komið mörgu góðu til leiðar og sýna hvað hægt er að gera með góðu samstarfi. Sú hugmynd hefur stundum skot- uð upp kollinum i umræðum, að æskilegt gæti verið, að um það leyti sem börn eru að hefja skólagöngu, sex eða sjö ára, komi foreldrar ein- stakra bekkjardeilda sér saman um að mynda eins konar samvinnuhóp í slikum hópi væri markmið foreldr- anna að kynnast hvert öðru, ræða skólagöngu barnanna og uppeldi þeirra, reyna að aðstoða kennarann i fræðslu- og uppeldisstarfi hans, halda sameiginlega skemmtifundi með nemendum og kennara, fara saman í smáferðalög o fl þ h Ef sliku samstarfi er haldið áfram upp eftir skólanum og lögð við það rækt, ætti að skapast grundvöllur fyrir, — annars vegar miklu nánari sam- vinnu og samstillingu foreldra á þvi aldursstigi, sem þess er einna mest þörf, og hins vegar miklu nánari samskipti milli unglinga og foreldra Foreldrar gætu þá i samvinnu við unglingana hrundið af stað margvís- legri tómtundastarfsemi og skemmt- unum innan hverfa og tekið þátt í slíku með unglingunum Telja má fullvíst, að margir fullorðnir (þrátt fyrir ýmsar annir) myndu vera fúsir til slíks samstarfs, og ekki er fyrir- Framhald á bls. 14 © Sennilega er sú fullyrðing rétt, að nú á timum sé meiri fjarlægð á milli unglingakynslóðarinnar og hinna fullorðnu en áður var. Báðar kyn- slóðir lifa í sínum heimi, og þeir heimar eru allólíkir. Fylgifiskur þess- arar fjarlægðar er nokkur gagn- kvæm tortryggni, sem raunar hefur blossað upp endrum og eins með heldur óskemmtilegum hætti. Hvor kynslóðin hefur kastað hnútum að annarri m.a. ífjölmiðlum og klögu- málin hafa gengið á víxl. Efalaust hafa þessar aðstæður ýtt undir unglinga i þéttbýlinu að þjappa sér saman, skýrgreina sig sem hóp og reyna afl sitt við hina eldri. Það þarf naumast að taka fram, hversu þessi fjarlægð og það sem henni fylgir er óæskileg, svo mjög sem hún torveldar leiðsögn hinna fullorðnu og kemur i veg fyrir að unglingar fái notið þess uppeldis, sem þeir þarfnast. Samt sem áður er nokkur fjarlægð og viss tortryggni milli þessara tveggja aldurshópa áreiðanlega ekki nýtilkomin, og hún þarf ekki að vera alls kostar neikvæð. Hverju ung- menni, sem er að finna sjálfan sig, er nauðsynlegt að fjarlægjast aðra um skeið. Nýjungar og framfarir eru aukin heldur lítt hugsanlegar, án þess að uppvaxandi kynslóð dragi í efa, gagnrýni og hafni um sinn hefðum og verðmætamati þeirra sem eldri eru. En það sem hér um ræðir er, að nú virðist sem þetta fræga bil sé orðið meira en góðu hófi gegnir og hætta á að það leiði til skaðsemdar. í fyrri pistlum hefur raunar verið leitt getum að því, hverjar ástæður kunna að valda, með þvl að skoða þjóðfélagslega þróun siðustu ára- tuga. Verður það ekki endurtekið Að hinu skal hugað með hvaða ráðum kunni að vera mögulegt að færa þessar kynslóðir eilítið nær hvor annarri Á síðustu áratugum hefur tvenns konar þróunar orðið vart, sem varð- ar þetta mál. Annað er siaukin hneigð til að skilja fólk að eftir aldri: börn, unglingar, fullorðnir, aldraðir. Einatt er talað um tilteknar ráðstaf- anir, sem gilda fyrir afmarkaðan aldurshóp. Þetta er sérstaklega ein- kennandi fyrir skemmtanahald i höf- uðborginni. Þessi staður er opinn unglingum á aldrinum frá. til Hann er svo ef til vill opinn á öðrum tímum fyrir unglinga á öðrum aldri. Aðrir staðireru alveg lokaðir unglingum, en ætlaðir fullorðnum. Það kemur jafnvel til enn nánari skipting, sem fólk finnur upp á sjálft. Til eru staðir þar sem fólk eldra en þritugt kemur ógjarnan og aðrir þar sem óvenjulegt er að sjá fólk mikið undir miðjum aldri. Þó að þetta sé e.t.v. eitthvað stílfærð lýs- ing, er a.m.k. sjáldgæft að sjá tólk á öllum aldri skemmta sér saman. Enginn vafi er á þvi, að venjur eins og þessar stuðla að fjarlægð milli kynslóða og þyrfti því að vinna gegn þeim Enda er vandséð að það þurfi að vera gleðispillir, að fólk á ólikum aldri njóti tómstundanna saman. Hitt einkennið er sú vaxandi f u11- vissa, að allt frumkvæði um úrræði skuli koma frá hinu opinbera, riki og sveitarfélögum og öðrum nokkuð

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.