Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.1977, Síða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 24.04.1977, Síða 16
Sigurður Ingólfsson SÍÐBÚIÐ VOR Loksins kom vorið. Það glampar jafnt á látúns- hnappa löggæslumanna sem pollinn innan við hafnar- mynnið. Fegurðardrottning staðarins er venju fremur ár- isul og skartar sfnu sfðasta. Ökutæki bæjarbúa eru gljá- fægð. Fyrstu farfuglarnir eru komnir en láta Iftt á sér bera, þreyttir eftir langt og áhættu- mikið flug. Gæfusamar endur, sem kunna ekki að fljúga nema stutt geispa værðarlega til brauðgefenda, fcgnar þvf að þurfa ekki lengur að hfrast f volgrunni við fsbrúnina. Vordagur eins og þeir gerast bestir, bjartur og hlýr. 1 garð- inum við tjörnina nálgast vfða- vangshlauparar marklfnuna. Tveir mjóslegnir bftast um forustu, uns annar slftur snúr- una útréttum höndum. Nær- staddir feður hossa smábörn- um á öxlum af eintðmum æsingi á meðan feitlaginn tfmavörður veifar stoppúri framan í þá mjóslegnu, er kyssast vel og lengi. Vafalaust met. Myndatökumaður sjón- varpsins er óvænt hlaupinn um koll af tveimur smá- pollum, sem koma seinastir f mark. Uppi f brekkunni ofan garðs- ins geysist'fressköttur á eftir læöu yfir hvað sem fyrir verð- ur og fær að lokum vilja sfnum framgengt bak við öskutunnur bandarfska sendiráðsins. Ja vor, ekkert jafnast á við vorið. Blóm springa út, blóma- rósir springa út. Uppi á fæðingardeild springur sjálft lffið út. Allt er þar fullt af nýorðnum eða verðandi mæðr- um. Hreyknir feður klfna nef j- um utan f glerrúðuna og virða fyrir sér nýnúmeraða einstakl- inga, sem hafa æskt inngöngu f þennan ótrygga heim. Uppi á sólskýli sundhallar- innar sprangar fólk um ber- rassað eða tekur kerfis- bundnar æfingar. Kvenfólkið ber saman brjóst sfn, sólin skín, öll verða þau brún þann dag. Jafnvel túristarnir finna vorkomuna. Fyrir alllöngu hafa þeir þó átt sfn vor, hjá þeim er sumar. Fyrstu skemmtiferðaskipin liggja á sundunum og lopinn selst eins og lummur. Austan Hellis- heiðar þyrla ótal rútubflar upp ryki á leið til Guilfoss og Geysis. „Stórkostlegt að eiga svona dag. Maður fyllist stolti og nýrri trú á landið að lifa svona dag. Annað en að berjast á móti nepjunni og þora ekki að lfta framan f nokkurn mann eins og sé maður samsekur um að byggja land, sem er í raun- inni ekki byggilegt og í önd- verðu einungis ætlað fuglum". „Mesti munur“. Þessar við- ræður áttu sér stað f leið tólf milli tveggja manna, f vagni yfirfullum af öskrandi krökk- um á leið f þrjú bfó. Afbragðsdagur hjá rón- unum, slátturinn gekk vel. Fjarskyldir ættingjar og skóla- bræður frá þvf f barnaskóla komust ekki hjá þvf að leggja út fyrir spfraglasi eða pylsu. Þeir tóku sig bara vel út þegar þeir skeiðuðu yfir götuna f skósfðu frökkunum á þessu séreinkennilega göngulagi, sem minnir á bfl, sem er orð- inn skakkur á grindinni. önnur höndin út-rétt er þeir kalla gælunafn „kunningjans" handan götunnar. „Stórkostlega er kvenfólkið okkar fallegt," varð einum sundlaugargesti að orði. Hann maraði næstum allur í kafi f miðjum heita pottinum, þannig að rétt nasir og munn- ur stóðu upp úr. „Það má nú segja,“, kvað við f vini hans, sem hins vegar var allur á iði, gónandi á eftir baðgestum af vcikara kyninu. Lfkir f rödd- inni og bændur, sem virða fyrir sér fjárhóp nýgenginn af fjalli. Uppi f holtunum fyrir ofan bæinn bylja við hamarshögg og vélsagarhljóð frá mönnum, sem gera sér ekki dagamun, en nýta hvern dag til að koma yfir sig þaki. Þessir menn eru með byggingarglampa f augum og sjá ekki, að það er komtð vor. Þeir sjá ekki heldur fjöl- skyldu sfna að heitið geti f mörg ár og sfðan eru þeir jafn- legni að jafna sig. Þegar þcir fara að taka eftir vorinu eru þeir búnir að ná sér. Það er gaman að horfa yfir sundin á svona degi og virða fyrir sér sólroðann á fjöll- unum á kvöldin. Þau eru eins og bærinn , f sjálfu sér eilíf. Leikmynd sjónarspilsins cnda- lausa á nesinu. V

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.