Lesbók Morgunblaðsins - 16.04.1978, Síða 15
É6 mur UAL DS/NS ■..
EN ÉG ÉOMST OK/d UPP MBÐ þno SEM
ÉG VAQ 'ABb/eoufí Fyp/p.
MBR hefoi TEK/ST
þAÐ, HEFÐ! as EKK/
FAP/BS/nP'A RAUÐU,
LFOS/
4M
-O'- w
o
* *
&
s
12-4-
ÓKÓL/NN VAGÐ A£> &OPGA
L/EKN/SHJÁLP/NA, þuí þE/K
HÖFBU ENC3A H/EFF)
<&A NG&PAUTAR UEfí. £>/.
Hvert stefnir
Þýzkaland
Framhald af bls. 4
áður, hér sé ekki um skærur að ræða,
sem séu undanfari ragnaraka, heldur
þjóðfélagsleg uppþot afmarkaðs tíma-
bils, sem síðar muni fá sitt svarta letur í
sögubókum handa skólum eins og aðrar
hliðstæður.
Augljóst virðist einnig, að Kristilegir
demókratar geri sér grein fyrir þeim
skaða, sem það gæti valdið áliti flokksins
ekki sízt á alþjóðlegum vettvangi, ef
honum væru ætlaðar tilhneigingar til
einræðisaðferða. Dregger, sem er gætn-
ari og, þegar allt kemur til alls, hógvær-
ari maður en Strauss. er mótfallinn þvi,
aö tekin verði upp dauðarefsing, en er
ekki andvígur þvi að lögin gegn hryðju-
verkum séu hert um takmarkaðan tíma.
Vinstrisinnaðir áheyrendur púuðu fyr-
ir nokkru á Giinter Grass, af því aö hann
rteitaði að kalla Strauss fasista. En það
sem gerir kristilegum demókrötum erf-
itt að striða gegn hinum vinstrisinnuðu
„hirðskáldum". er, að rödd þeirra heyr-
ist um heim allan og hoðskapur þeirra er
mjög hagstæður fyrir land þeirra. Þegar
deilurnar risu sem hæst út af Kappler á
ítaliu og F'rakklandi — striðsglæpa-
manninn, sem laumað var úr sjúkrahúsi
á Italiu, en nú er nýlátinn í Þýzkalandi
— þá spurðu Giinter Grass, hvað hefði
orðið um frönsku liðsforingjana, sem
drápu fólk og pyntuðu á Madagaskar og i
Alsír-striðinu. Eða Ítalina. sem frömdu
sjálfsmorð í Abyssiniu og Albaníu. Svar-
ið var, að Kappierar annarra þjóða hefðu
aldrei verið ónáðaðir, og hreinar náðanir
hefðu jafnvel gert það ólöglegt, að nöfn
sumra þeirra væru nefnd í því sam-
bandi.
„Ef til vill er það alveg nauðs.vnlegt. að
Þýzkaland i fortíö, nútið og framtíö sé
ákaflega slæmt." sagöi Grass biturlega.
— svá — þýddi.
Dœtur
byssunnar
Framhald af bls. 5.
Susanne Albrecht er 11 árum
yngri en Gudrun Ensslin og tilheyrir
síðustu bylgju arftaka hennar, þriðju
kynslóðinni. Hún virðist hafa tekið
hiklausari afstöðu gegn foreldrum
sínum, heimili og nánasta umhverfi
en Gudrun og Ulrike. En þótt hún
gerði það, þá er Albrecht-fjölskyldan
— faðir hennar er lögfræðingur, sem
fæst við meiriháttar mál fyrir sjódómi
— miklu hófsamari og hógværari en
hin fræga upphrópun dótturinnar gef-
ur til kyna, ,,að hún hafi verið orðin
þreytt á því að borða kaviar." Amma
hennar var þekkt undir nafninu
„rauða Gréta", þegar hún stundaði
nám í læknisfræði, vegna hinna sjálf-
stæðu skoðana sinna, og varð síðar
einn af frægustu taugalæknum lands-
ins Svo að þarna var enn um per-
sónu að ræða, sem hafði verið sjálf-
stæð og getið sér mikils frama og
hægt var að hafa að fyrirmynd eða
sem jók á tilfinninguna um misbrest
og vöntun
Susanne var næstelzt fjögurra
systkina. Barnfóstra hefur lýst henni
sem „þrjózku ogerfiðu barni". Kennari
minnist hennar sem „samblands af
ólund, frekju og gáfum". Hún var
send á góðan heimavistarskóla. sem
henni líkaði ekki, og seinna hætti hún
háskólanámi til að fara að vinna á
barnaheimili, þar sem henni var hrós-
að fyrir hjartagæði.
Eftir þrálátar deilur við foreldrana
fór hún að heiman og tók á leigu íbúð
í úthverfi Hamborgar. skemmtana-
hverfinu St. Pauli, ásamt Silke
Marier-Witt, sem nú er einnig á lista
yfir eftirlýsta hryðjuverkamenn. Eftir
að hafa búið um skeið i „kommúnu"
vinstrisinna varð hún náinn vinur
Karl-Heinz Dellwos, sem hafnaði í
fangelsi eftir að hafa skipulagt töku
þýzka sendiráðsins í Stokkhólmi.
Susanne var handtekin, þegar hún
var að afhenda þekktri hryðjuverka-
konu, llse Stachowiak, vegabréf sitt
til að geta flogið til Beirut til að
komast í samband við Palestínu-
menn, og aftur þegar handsprengjur
fundustí bílhennar viðhollenzkulanda-
mærin. En henni tókst að bjarga sér
út úr vandanum í bæði skiptin og
hefur síðan sloppið við handtöku.
Sennilega var það hennar ógæfa. Um
miðbik síðastliðins árs komst óaldar-
flokkurinn að þeirri niðurstöðu, að
timi væri til þess kominn, að hún
drýgði raunverulega dáð i þágu mál-
staðarins. Það var búið að merkja við
Júrgen Ponto, stjórnarformann
Dresden banka, undir lykilorðinu
Stórfé, vegna huganlegs mannráns.
Þar sem Susanne hafði verið kunnug
Ponto-fjölskyldunni, var henni falið
það hlutverk að undirbúa jarðveginn
fyrir mannræningjana. Hún fór tvisv-
ar i heimsókn til vinkonu sinnar,
Corinnu, dóttur Jurgens Ponto, til að
kanna aðstæður.
Síðan kom hún með rósavönd
ásamt tveimur ungum vinum sinum
— pilti og stúlku. Þegar Ponto neit-
aði að koma út með þeim, skutu þau
hann i höfuðið af stuttu færi og flúðu.
Það sem gerir hlyðjuverkamönnum
svo erfitt að hverfa aftur til eðlilegs
lifs — ef hið eðlilega lif vildi taka við
þeim — er að þeir eru hópur, sem
drottinhollusta tryggð, vinátta og ótti
halda saman. Susanne Albrecht varð
að reyna að jafnast við hörkutólin i
hópnum og mátti ekki valda ungu
stúlkunum, sem eru i tengslum við
hreyfinguna, vonbrigðum.
I félagsskap hvers annars missa
hryðjuverkamennirnir öll tök á venju-
legu siðgæði og eru þess i stað háðir
sælutilfinningu og örvæntingu eitur-
lyfjaneytandans. Það sem ýtti Ulrike
Meinhof til að taka ákvörðun um að
stinga sér niður i undirheima 1970
og lýsa því yfir, „að auðvitað væri
hægt að skjóta lögregluþjóna" var
aðdáun hóps forrikra tizku-róttækra
manna, sem fannst hún stórkostlega,
hrífandi djörf og hugrökk.
Það var um seinan, þegar hún sá
gildruna. Hún skrifaði: „Sá sem ekki
ver sig, deyr" Og hún bætti við
grafskrift alls fyrirtækis hryðjuverka-
mannanna „Sá sem ekki deyr, verð-
ur grafinn lifandi" Siðustu daga Ul-
rike mátti heyra i ritvél hennar langt
fram á nótt — i fingrum. sem voru að
banka á kistulokið En hópurinn i
fangaklefanum i kringum hana hafði
hætt að sýna henni ástúð eða hlýju
Bréfsnepill frá Baader endaði með
þessum orðum: „Settu hlemminn á,
þangað til þú hefur áttað þig eða
farðu endanlega til helvitis". Og á
miða frá Gudrun stendur: „Sá, sem er
að reka rýting í bak RAF, ert þú."
Það kann að vera, að eftir svo sem
aldarfjórðung verði ein eða tvær mið-
aldra konur að skrifa endurminningar
sínar frá þeim dögum, er þær voru i
Baader-Meinhof hópnum En fram að
þessu hefur spádómur Ulrike Mein-
hofs staðið nákvæmlega fyrir sinu
Sv.Á úr „Observer".