Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1980, Síða 19
Streita vegna gleöi: Sovézkur útflytjandi til ísrael hittir bróður sinn eftir 39 ára
aöskilnaö.
Streita vegna óvissu: Atvinnulausir menn í Nýja Sjálandi bíóa þess aó fá ókeypis
máltíö.
íþróttakappleikir hafa alltaf streitu í för
með sér og vex eftir því sem keppnin er
haröari.
Streita listrænnar sköpunar: Leonardo Bernstein er eins og spretthiaupari aö koma í
mark, þegar hljómsveitin svarar stjórnun hans hárnákvæmlega.
Streita einhæfninnar: Sömu handtökin
endurtekin í sífellu, daginn út og inn í
rússneskri verksmiöju, þar sem úr eru
sett saman.
lækning slíkra vandamála að sjálfsögðu
í því að forðast áreitið sem bólgunni eða
ofnæmisviöbragði veldur.
Þegar hinsvegar áreitið sjálft er
hættulegt væri kórvilla að reyna að
hamla gegn varnarviðbrögöum líkam-
ans. Þvert á móti reynum við í slíkum
tilfellum aö efla varnarviöbrögðin. Slíkt
er einmitt hlutverk hinna svokölluöu
catatoxisku efna. Sum hormón líkam-
ans geta í litlum mæli eflt þessi virku
varnarviöbrögð en sterkustu efnin af því
tagi eru búin til í efnaverksmiöjum. Eitt
virkasta þeirra hefur heitið pregneno-
lone-16a-carbonitrile. Þetta efni og
önnur skyld auka hæfni líkamans til
þess aö eyða mörgum mismunandi
sjúkdómsvöldum en nauðsynlegt er að
hafa í huga að ekki eru til nein töfralyf
og mikillar nákvæmni og aögæslu er
þörf viö notkun þeirra. Gott er að gera
sér grein fyrir því aö slík efni sem efla og
draga úr náttúrulegum viöbrögöum lík-
amans eru talsvert annars eölis en lyf
eins og fúkkalyf, móteitur eöa sársauka-
deyfandi lyf sem ætlaö er aö vinna beint
gegn sjúkdómsvaldinum sjálfum eða
afleiðingum hans.
Dr. Selye rekur þróunarsögu lífsins á
jöröinni og dregur af henni lærdóm fyrir
nútímamanninn og þjóöfélag hans.
Hann bendir á að frá einföldustu
örvefum til mannsins er það eðli lifandi
vera að vernda sína eigin hagsmuni
fyrst. Sjálfshyggja er þannig eðlilegur og
upprunalegur þáttur þess að lifa á
jörðinni. En jafnhliða býr maðurinn
ásamt sinni meöfæddu sjálfshyggju, yfir
sterkari samúðartilfinningu. Þó að þess-
ar tvær hvatir virðist stangast á, er hægt
aö samræma hvötina til viöhalds sjálf-
um sér og þaö aö hjálpa öörum. Það má
líta á samúð og samkennd sem um-
breytt form sjálfshyggju, nokkurs konar
heildræna sjálfshyggju sem hjálpar
samfélaginu sem einstaklingurinn lifir í.
Rætur þessa telur Hans Selye að liggi í
þeirri samvinnu og því samlífi fruma
sem þróun fjölfrumunga byggir á.
Frumuhópar læröu snemma í lífssög-
unni aö samvinna haföi marga kosti.
Mismunandi frumur sérhæfðu sig í
mismunandi starfsemi, sumar tóku aö
sér fræðuöflun og meltingu, aðrar sáu
um öndun, hreyfingar eöa varnir, meöan
enn aðrar frumur tóku að sér aö
samræma starf allrar lífsheildarinnar.
Þannig urðu sjálfshyggja og samúð að
nánast sama fyrirbrigöinu, því þaö er
lítið vit í harðri samkeppni meöal fruma
sem þarfnast hver annarar og deila meö
sér bæði fæðu og lífsorku.
Lífssagan færir okkur einnig mörg
dæmi um samvinnu milli einstaklinga af
mismunandi tegundum. Velþekkt dæmi
eru fjallagrösin þar sem þörungur og
sveppur lifa í svo nánu sambýli að þeir
virka út á viö sem ein lífvera. Rætur
ýmissa baunategunda gefa annaö dæmi
um samvinnu náttúrunnar. Þar lifa
sýklar á rótunum sem vinna köfnunar-
efni til hagsbótar fyrir jurtina alla.
í þriðja lagi getum við hugsað til
samvinnu manna í milli, samvinnu milli
félagshópa, stofnana og jafnvel alþjóö-
lega samvinnu, þó að enn sem komið er
vanti verulega á aö þessi form samvinnu
hafi náð því þróunarstigi sem líffræði-
dæmin sem nefnd voru sýna.
Þrjú stig aölögunar aö áreiti.
Rannsóknir Dr. Selye leiddu snemma
í Ijós að aðlögunin að áreiti sem álagi
veldur fer í gegnum þrjú stig.
1. Upphaflega hættuviðbragöið.
2. Myndun þols gegn álaginu.
3. Uppgjöf, ef álagið heldur áfram,
þetta gildir bæði um dýr og menn.
Aðlögunarhæfnin eöa aðlögunarork-
an er greinilega takmörkuö, af henni
höfum við takmarkaöan forða sem viö
fáum í vöggugjöf. Við verðum því aö
læra að nota þennan höfuðstól lífsorku
viturlega og oft verðum viö aö velja og
hafna, því það hefur engan tilgang aö
eyða orku sinni í það sem engan tilgang
hefur. Því gefur læknirinn fólki eftirfar-
andi heilræði: Þú skalt berjast fyrir því
aö ná þínu æösta marki en aldrei
berjast án árangurs.
Samvinna sjálfshyggju og samúðar.
Þó aö Dr. Selye hafi fundiö hornstein
heimspeki sinnar meö rannsóknum á
sviði náttúruvísinda er þessa sömu
hugmynd aö finna víöa svo sem í hinum
kristnu fyrirmælum „elskaöu náungann
eins og sjálfan þig“. Þetta er ekki eins
furðulegt og virðist viö fyrstu sýn þegar
haft er í huga að lögmál náttúrunnar eru
söm viö sig og þau vandamál sem fólk
glímir viö þau sömu á hvaða öld og viö
hvers konar þjóðfélagskerfi sem fólk
lifir. Á hinn bóginn ber aö gæta að
krafan um að elska náungann eins og
sjálfan sig er markmið sem nær ómögu-
legt er að ná. Því orðar læknirinn
boðskap sinn á raunhæfari hátt: „Hegö-
aöu þér þannig að þú eigir skilið aö fá
samúö náunga þíns.“
Geir Viöar Vilhjálmsson
sálfræðingur endursagði.