Lesbók Morgunblaðsins - 09.03.1985, Side 15
Úr sagnabanka
Leifs
Sveinssonar
Vega-
lagning
í mývargi
Bóndi einn úr Mývatnssveit var vegaverkstjóri í Suður-Þingeyj-
arsýslu í áratugi. Á þriðja áratugnum var unnið á svæðinu milli
Másvatns og Helluvaðs. Starfsmenn bónda voru allir úr Reykja-
dal og allsendis óvanir mývargi. Þeir voru að vinna í Nónskarðs-
ásnum og þaðan er stutt í Laxá við Helluvað. Mjög heitt var í
veðri og ætlaði mývargurinn alveg að drepa vegagerðarmennina.
Þeir segja bónda, að þeir hljóti að eiga rétt á fríi á fullu kaupi, þar
sem óvinnandi sé við þessi skilyrði. Bóndi segist ekki verða vargs-
ins var. Þeir segja það ekkert að marka, hann sé alinn upp við
þetta og ónæmur fyrir vargi. Bóndi segir tillögu þeirra nálgast
uppreisn og segist ekki líða neitt slíkt. En hann býður upp á
samkomulag. Hann láti binda sig nakinn milli tveggja bíla í
matartímanum og ef hann haldi það út, vinni þeir áfram, en geti
hann það ekki, þá fái þeir frí á fullu kaupi. Þetta verður að
samningum. Þegar stundarfjórðungur er búinn af matartíman-
um, þá heyrist ægilegt óp frá bónda, en þeir láta hann afskipta-
lausan. Tíu mínútum síðar heyrist annað óp sínu hærra frá bónda
og spretta þeir allir upp úr matartjaldinu honum til hjálpar. En
mývargurinn hafði látið hann afskiptalausan, en tveir kálfar frá
Helluvaði skiptust á að sjúga hann.
LESBÖK MORGUNBLAOSINS 9. MARZ 1985 15