Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1986, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.1986, Blaðsíða 8
Leitin að fegurðinni Ný listaverkabók Lðgbergs og Listasafns ASÍ fjallar um brautryðjandann Ásgrím Jónsson, sem túlkaði umfram allt fegurðina í ásýnd landsins. Þar að auki lagði hann rækt við tvennskonar myndefni: Eldgosa- og þjóðsagnamyndir. Allt er það skilgreint í texta bókarinnar, sem þau Hrafnhildur Schram og Hjörleifur skrifa. Gísli Sigurðsson lítur á bókina og skrifar um hana og Ásgrím. Aþessum nýbyrjaða vetri erum við minnt á brautryðjandann Ásgrím Jónsson með lista- verkabók, sem Bókaforlagið Lögberg og Listasafn ASÍ standa að; þetta er raunar sjö- unda listaverkabókin sem þetta samstarf Sjálfsmynd, máluðmeð vatnslitum. skilar og er gott eitt um það að segja. Merkilegt er í útgáfu okkar á listaverkabók- um, að búið er að gefa út margar Kjarvals- bækur; enga þeirra stóra — og tvær Asgrímsbækur — á meðan tveir íslenzkir stórmeistarar af næstu kynslóð á eftir liggja enn óbættir hjá garði: Jón Engiiberts og Gunnlaugur Scheving. Ekki er þar fyrir ástæða til að amast við bók um Ásgrím, sem er þó mun betri að ýmsu leyti en Ásgrímsbók Helgafells frá því fyrir margt löngu. Þar munar mestu um fleiri litmyndir og öllu betra myndval; einnig ljósmyndir af málaranum frá því hann þénaði í Húsinu á Eyrarbakka og allt til efri ára. Þessar ljósmyndir eru ákaflega verðmætar og við skiljum Ásgrím kannski ögn betur þegar við getum á þennan hátt skyggnst inn í heim hans, þar sem mynd- sköpunin gekk fyrir öliu. SnemmaBeygist Krókurinn Að sögn Ásgríms var hann lítt hneigður til átakavinnu og þess erfiðis sem var al- mennt hlutskipti í þá daga. Myndin af drengnum frá Rútstaðahjáleigu, tekin af honum á fermingaraldri við Húsið, sýnir þó að hann hefur síður en svo verið neinn væskill og með tíð og tíma varð Ásgrímur frekar stór og þrekvaxinn og á myndinni, sem tekin er í Húsafelli af þeim Þorvaldi Skúlasyni 1941, ber hann næstum höfuð og herðar yfír Þorvald að líkamsvexti. Það hefur því líkast til verið vöntun á einhveiju öðru en Iíkamsþreki, sem fékk hann til að kaupa sig lausan úr vegavinnu á Hellis- heiði. í þessu samhengi má benda á, að ekki þótti Einar Jónsson í Galtafelli liðsmað- ur góður til vinnu. „Hann var alltaf með hugann við annað og eiginlega gagnslaus," sagði mér afí minn sem var með honum um tíma hjá séra Magnúsi Helgasyni á Torfastöðum. Ekki bar þó á öðru en Einar réði vel við steinhöggið síðar meir og er það þó erfiðisvinna. Og svo einn snillingurinn enn sé nefndur: Halldór Laxness var á unga aldri svo gagnslaus til vinnu, að Jónas i Stardal var í vandræðum með hann, þegar hann átti að nota strákinn sem kúsk f vega- vinnu á Mosfellsheiði. Halldór lagði bara upp taumana á klámum og settist sjálfur á sandhlassið, en klárinn fór að bíta. Þeir sem hafa áhyggjur af svokallaðri leti í unglingum geta séð af þessu, að hver veit nema Eyjólf- ur hressist. Því hef ég nefnt þessa þijá menn til sög- unnar, að þeir reyndust allir síðar feiknar- legir vinnu- og afkastamenn, þegar þeir voru komnir á sína réttu hillu. Aðeins var það heilsuleysi Ásgríms sem tafði hann á köflum; það var asmi sem stundum lagðist þungt á hann. Erfið Spurning Upphaf málaralistar á íslandi bar á góma Hekla, 1919, olíumálverk, 150x290sm. Þetta er stóra Heklumyndin, sem svo er nefnd og er á Listasafni íslands. í samtali sem ég átti nýlega við bandarískan safnstjóra í Washington. Hann spurði: Hversvegna fóru þrír eða fjórir ungir menn allt í einu í listnám til Kaupmannahafnar fyrir aldamótin; hvað orsakaði slíka hreyf- ingu? Ég átti bágt með að svara þeirri spumingu. Varla verður því slegið föstu að vaxandi þjóðemiskennd og sjálfstæðislöng- un hafí rekið þá Þórarin B. Þorláksson, Einar Jónsson, Jóhannes S. Kjarval og Ásgrím Jónsson utan til náms. Nei, það hefur verið eitthvað allt annað og hefur ein- faldlega átt sína uppsprettu í hugskoti þessara einstaklinga. Það hefur samt eitthvað verið í timanum sem orsakaði, að ungir menn létu verða af því að hrinda svo ijarstæðukenndri hug- mynd í framkvæmd. Á undan þeim hafa örugglega verið uppi hæfíleikamenn, sem urðu að beija þessa ástríðu niður, því hún samræmdist engan veginn íslenzkum þjóð- félagsveruleika á þeim tíma. Engu er líkara en Ásgrímur Jónsson hafí notið einhverrar handleiðslu til að komast að settu marki. í fyrsta lagi komst hann strax um fermingaraldur í vist í Húsinu á Eyrarbakka, þar sem hann hlýtur að hafa fengið nasasjón af myndlist úti í þeim stóra heimi. Auk þess kynntist hann þar tónlist, sem varð siðan önnur ástríða hans, þótt Rútstaðalyáleiga í Gaulverjabæjarhreppi í Flóa. Þessa vatnslitamynd málaði Ásg

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.