Lesbók Morgunblaðsins - 10.03.1990, Side 6
/
!
i
Eiríkur Smith: Kvöld í janúar.
Daði Guðbjörnsson: Tólftónafugl.
Kynslóðabilið
brúað í Hafiiarborg
Arum saman hef ég unn-
ið að því að koma sam-
an sýningu sem þess-
ari, þar sem menn á
ólíkum aldri gætu sýnt
saman“, sagði Kjartan
Guðjónsson, einn sýn-
enda á NONAGINTA,
samsýningu fimm málara í Hafnarborg í
Hafnarfirði. Þetta latneska heiti merkir
víst 90. Auk Kjartans, sem er fæddur
1921, eru í hópnum Eiríkur Smith, f.
1925, Daði Guðbjömsson, f. 1954, Ómar
Stefánsson, f. 1960 og yngstur er Björn
Roth, f. 1961.
„Kynslóðabilið hefur verið brúað“, sagði
Kjartan og bæði hann og Eiríkur voru á
einu máli um það, að myndlistarmenn
hefðu alltof mikið verið dregnir í dilka
eftir aldri uppá síðkastið. „Það var ekki
svo fýrir 30-40 árum“, sagði Eiríkur, „þá
sýndum við yngri mennirnir oft með þeim
eldri“. Einn af fimmmenningunum taldi,
að þessi dilkadráttur væri listsagnfræð-
ingum að kenna; það væru þeirra ær og
kýr að flokka allt niður og koma myndlist-
inni í þessa óæskilegu aldursfarvegi.
Raunar var það nefnt einnig, að svo mik-
ið væri óðagotið við að „uppgötva" nýja-
brumið, að þeir eldri vildu gleymast, enda
Kjartan Guðjónsson: Barnagæla.
ættu þeir helzt að vera dauðir og grafnir,
sem komnir eru yfir fimmtugt. Segja má
að til þess að brúa kynslóðabilið betur,
vanti einhvern um fertugt eða fimmtugt.
Raunar var Einar Hákonarson ráðinn, en
hann flutti í bili til Svíþjóðar og gat ekki
verið með.
Hvað sem því líður, er þetta mjög at-
hyglisverð sýning og gefur góða hugmynd
um þá breidd, sem ríkir hér innan málara-
listarinnar. Menn eru sannarlega ekki all-
ir að skarka í því sama. Kjartan málar
bæði fólk og umhverfi þess og stílfærir á
sinn þróttmikla hátt. Eiríkur sýnir einung-
is vatnslitamyndir; náttúrustemmningar
og vetrarlandslag með birtubrigðum
skammdegisins og myndar áhrifamikla
andstæðu við hina. Daði er eiginlega bar-
okmálari í nútímanum, en hefur skapað
sér ævintýralegan, skrautlegan stíl sem
er hans eigin. Ómar virðist hafa náð í
skottið á „Nýja málverkinu", en hann
hefur ræktað sinn garð á persónulegan
hátt. Björn Roth er afar ólíkur með sína
firna dökku fleti og málverk, sem að sumu
leyti sýnist vera sprottið af landslagsáhrif-
um ásamt þýzkri myndlistarhefð. Allt
myndar þetta góðan éfnivið í samsýningu.
Hafnarborg er sannarlega komin á kortið
sem merkileg menningarmiðstöð undir
stjórn Pétrúnar Pétursdóttur. Þar hefur
nú hver myndlistarviðburðurinn rekið ann-
an; fyrst athyglisverð sýning Norður-
landamálara, síðan málverkagjöf Eiríks
Smith til Hafnarfjarðarbæjar og loks sam-
sýningin, sem nú stendur yfir. Að endingu
er þess að geta, að kaffistofan á jarð-
hæðinni er bæði falleg og býður uppá
góðar veitingar.
GS.
Björn Roth: Nesti IV.
Ómar Stefánsson: Geimrusl.
6
/