Lesbók Morgunblaðsins - 15.09.1990, Page 8
uuammfiWmmnmnmm
(TimnDJIinilHMi
Tveimur 28 tonna svönum og risaskeljum er komið fyrir uppi á þoki annars hótelsins og þykir mörgum, að þar keyri
smekkleysið úr hófi.
Mikka Mús-
arkitektúr
í Florida
Walt Disney Company, sem aðsetur hefur
bæði í Kaliforníu og Florida, færir sífellt
út kvíamar og nú er í upsiglingu risastór
Disney-veröld utan við París. Það er fyrsta
innrás Mikka í Evrópu - og Mikki er enginn
annar en Mikki Mús, frægasta teiknimynda-
fígúra Walt Disneys, og táknmynd þessa
risafyrirtækis.
Heima hjá sér hjá sér í Orlando í Florida
hefur Mikki heldur ekki setið aðgerðalaus.
Nú hefur hann bætt við stórveldið tveimur
stórum hótelum og stærstu ráðstefnumið-
stöð á Florida. Til að hanna þessar bygging-
ar var fenginn einn af páfum póst-módernis-
mans í arkitektúr: Bandaríkjamaðurinn Mic-
hael Graves. Einkennismerki hans er urm-
ull af jafnhliða gluggum, sem þekja stóra
fleti og úr fjarlægð minnir þetta á punkta
í prentmynd. En Graves er' líka ófeiminn
við að nota allskonar „tilvitnanir" í bygging-
arsöguleg atriði, sem gegna hlutverki
skreytingar. Dæmi um það sjá hér á mynd-
unum: Yfír sívölum útbyggingum, sem gætu
hýst hringstiga, eru risastór ker. í þeim eru
■1: ’
Michael Graves er höfundur nýju hótelanna við Disneyland í Florida, sem óhætt
er að segja nð eigi sér ekki margar hliðstæður í útliti.
Forhlið annars hótelsins minnir á pýr-
amída - en er aðeins þríhyrningur.
gosbrunnar. Það sem aðkomumaður tekur
þó fyrst eftir eru tveir 28 tonna svanir uppi
á þaki annars hótelsins. Á öðrum stað hefur
Graves látið koma fyrir hliðstæðri mynd af
risastórum höfrungi og um 10 metra háar
eftirlíkingar af skeljum standa á tveimur
stöðum uppúr húsgöflum.
í blöðum um arkitektúr, sem hafa lítillega
getið þessa framtaks, er þetta yfirhöfuð
talinn heldur lélegur brandari. Talað er um
„Mikka Mús-arkitektúr“ í augljóslega nið-
randi merkingu, en Graves hefur unnið verk
sitt í samræmi við þann fantasíu- og nostal-
gíustíl, sem látinn er ríkja yfír öllu Disney-
veldinu. Bent er á, að þegar þjóðir verði
auðugar, komi upp þessi þörf til að hverfa
inn á lendur nostalgíunnar; ævintýraheimur
Disneylands sé andsvar við öllu hinu hvers-
dagslega í háþróuðu þjóðfélagi.
Það sem mest fer í taugarnar á alvarlega
þenkjandi mönnum um umhverfi og bygg-
ingarlist, eru öll þau merki, sem þeir þykj-
ast sjá um vondan smekk. Sem dæmi um
það má nefna, að ekki þykir nóg að gluggar
setji svip á húshlið, heldur er veggskreyting
sett ofan í allt heila gillið. Og þegar komið
er á hótelgangana, gengur gesturinn fyrst
inn í strákofa á leið til herbergis síns.
í hinu upphaflega Disneylandi vestur í
Kalifomíu, sótti Walt Disney fyrirmyndir til
hinnar ævintýralegu hallar Lúðvíks Bæjara-
kóngs, Neuswanstein. Þær fyrirmyndir, sem
Michael Graves hefur litið til, eru hinsvegar
af allt öðrum toga. Hæsta byggingin virðist
vera pýramídi frá ákveðnu sjónarhorni, en
er raunar aðeins þríhyrningur, þakinn ýms-
um ferhymdum formum. Þetta minnir meira
á forn hof Azteka en hallir Lúðvíks. Sýki
hefur verið grafið í kringum hótelið, sem
kennt er við svanina þungu. Yfir það liggja
brýr, sem eiga að gefa hugmynd um biýr
yfir forn kastalasýki. Tímaritið The Arc-
hitectural Review kallar þetta „að sameina
fantasíu og fangelsis-arkitektúr".
Einkunnar orð núverandi stjórnanda Di-
sney-veldisins er „Entertainment“
skemmtun. Allt á að stuðla að sem mestri
skemmtun. Til þess að gestirnir skemmti
sér sem bezt, er talið æskilegt að bygging-
ar og annað í umhverfínu séu einskonar
leikmynd. Kannski eykur Michael Graves
ekki arkitektahróður sinn með þessu verki,
en til afsökunar má segja, að þarna hafi
hann teiknað hús, sem urðu að vera í sam-
ræmi við Disneyland-formúluna. Út frá því
sjónarmiði má alveg eins halda því fram,
að honum hafi tekizt vel.
GS.
SIGURJÓN
GUÐJÓNSSON
Horft
yfir val
Fer að haust,
falla blóm í val,
hallandi höfði
að hrímgri jörð.
Sæl eruð þið blóm
frá sumri liðnu,
er glödduð augu
ungs og gamals.
Tregablandin
tár hníga
á bleikan beð
blóma.
Höfundur er fyrrum prófastur í Saurbæ
á Hvalfjarðarströnd.
ANNA S.
BJÖRNSDÓTTIR
Eitt sinn
Ég vængstífði
sjálfa mig.
Klippti litlu
fallegu vængina burt.
Núna
sér enginn
að ég var
eitt sinn
engill
í konumynd.
Höfundur er kennari og hefur gefið út
tvær Ijóðabækur.
JON VALUR
JENSSON
Sumar-
morgunn
(A Jónsmessu 1990)
Nú rennur Drottins dagur nýr
með dögg í lautu, ferskan ilm
aflyngi og björk — oglogaskin,
er röðull lyftist heitur, hlýr.
I eyrum þínum hljómar hvellt
úr hæstu loftum gauksins
hnegg,
en flugnasuð úr svölum mó
— og innst í daln um dapurt gelt.
Þú mosann treður, mjakast enn
að marki settu. Gnestur hátt
í brotnum kvistum. Brosir sól
á klapparholti. Kominn sennl
ífjarska, dreifð um fagran völl
viðfjallsins dyr: þín hjörðin öll.
Höfundur er guðfræðingur.