Lesbók Morgunblaðsins - 05.01.1991, Blaðsíða 11
Þróunarsaga
Þristsins ^
Minnsta gerðin af BMW, 300-línan, hefur verið lítið breytt
síðan 1982. Nú hefur nýjum og.mjög mikið breyttum
Þristi verið hleypt af stokkunum og verður í næsta blaði
sagt ítarlega frá þessum frábæra bíl, sem verður án efa
ný rós í hnappaga tið hjá Bílaverksmiðju Bæjaralands, BMW. Hér
er rakin með fáeinum myndum þróunarsaga Þristsins, sem nær alveg
aftur til 1929. Sá nýi var kynntur í fornu, rómversku hringleikahúsi
í Nimes í Suður Frakklandi, og þar gátu blaðamenn einnig virt fyrir
sér forverana.
BMW 3/15 Dixi. Þessi elzta gerð BMW er frá 1929 og var framleiddur til
1932. Það er engin tilviljun, að hann minnir á brezka bíla frá þessum tíma,
því hér var í rauninni byggt á Austin. Dixi var með 4ra strokka vél og af
bonum voru smíðuð 15.948 eintök.
BMW 319 er annað þróunarskref-
ið oghérfæðistá framendanum
„nýrað", sem stundum ernefnt
svo og hefur orðið kennimark
BMW lengst af og óslitið síðan
1966. BMW 319 erað útliti ísam-
ræmi við drossíur á fjórða ára-
tugnum; hann var framleiddur í
samtals 6.543 eintökum á tveimur
árum, 1935 -1937. Þótt ekki sé
hann stór, var hann samt búinn
6 strokka vél, sem aðeins af-
kastaðiþó 45 liestöflum.
BMW 700LS var framleiddur á árunum
1962-1965 ogþá var farið að flytja hann
til íslands. Vélin var tveggja strokka box-
ari, 32 hestöfl. Nú var framleiðslan komin
á skrið e'ftir stríðið ogBMW smíðaði 98.o81
eintak af þessum bíl. A honum er stílrænt
frávik: Kennimarkið, „nýrað", var ekki
liaft á framendanum, enda sýnist eitthvað
vanta, sem þar á að vera.
Nýi Þristurinn verð-
ur kynntur í næstu
Lesbók. Myndin af
honum er tekin í Suð-
ur Frakklandi þann
11. desember, þegar
blaðamönnum gafst
kostur áað reynslu-
aka gripnum. Hér er
aukin straumlína
komin til sögunnar,
en formið ersvipað
ogáFimmunni.
BMW 321 fram framleiddur á sögulegum tímamótum íÞýzkalandi:
1939-1941. Vélin íhonum varmeð 6 strokkum, sem allir voru íeinni
röð, hestaflatalan 45. Afþessum bíl voru aðeins framleidd 3814 eintök
þvíiðnaður íÞriðja ríkinu átti að einbeita sérað öðruþarfara en að
smíða drossíur og forsvarsmenn verksmiðjunnar máttu vístþakka fyr-
irað sleppa lifandi með þennan fingurbrjót.
Með 1600-gerðinni 1966-1975 náði BMWþeirri sérstöðu í út-
liti, sem haldist hefur síðan, „nýrað" á sínum stað og útlitið
nokkuð kantað. Svo hefur verið tilþessa, en sú breyting var
helzt orðin á 300-línunni frá síðustu árum, að framendinn hall
ast ekki innundir sig eins og áður var.
Snjallir stjórnendur hjá Toyota
Menn hafa á því ýmsar skoðan-
ir eins og gengur, hvort Toy-
ota smíði betri eða fallegri
bíla en aðrir, Það er samt
hafið yfir vafa, að þessu risafyrirtæki er svo
vel stýrt að það telst til fyrirmyndar að sögn
bandaríska tímaritsins Fortune, sem sérhæfir
sig í viðskiptamálefnum. Það er einnig á
' hreinu, að Toyotaeigendur þurfa ekki að
kvarta yfir sífelldum bilunum, því Corolla
hefur verið í fyrsta sæti tvö ár í röð og Camry
í fyrsta sæti í þijú ár í röð í Bandaríkjunum
sem sá bíll er minnst bilar („Most troublefree
car“). Það er hinsvegar jafn ljóst, að Toyota
er ekki í forystuhlutverki þegar til þess kem-
ur að taka í notkun nýja tækni, hvort sem
það er aldrif, stýri á öllum eða túrbínur. Það
blasir líka við, að Toyota er langar leiðir frá
því að vera í forustuhlutverki í framúrstefnu-
hönnun; margir Toyotabílar hafa verið æði
hversdagslegir í útliti og skort séreinkenni
I og persónuleika.
Þetta vita þeir allt saman, sem stjórna hjá
Toyota. Þeir láta aðra um að þróa nýja
tækni, en byggja sjálfir á því sem hefur sann-
að sig. Og þeir telja þessa hönnun vel til
þess fallna að ná til hins breiða fjölda, sem
og hefur komið í Ijós. Reyndar hafa þeir ný-
lega gert útrás frá þessari fílósófíu með lúxus-
bílnum Lexus, sem hefur mjög ákveðin sérein-
kenni og þykir hafa tekizt frábærlega vel.
Toyota græðir á tá og fingri að sögn Fort-
une, enda þriðji stærsti bílaframleiðandi
heimsins síðan 1978 á eftir General Motors
og Ford. Sem dæmi er nefnt, að fyrirtækið
eigi lausafé uppá 22 milljarða Bandaríkja-
dala, sem mundi nægja til þessa að kaupa
upp allt hlutafék í bæði Ford og Chrysler og
ætti þó 5 milljarða í afgang. Nú er raunar
svo komið, að Toyota hefur meiri tekjur af
fjárfestingum og lánastarfsemi en sjálfri bíla-
framleiðslunni.
Fortune nefnir nokkrar ástæður fyrir vel-
gengninni. Ein er móttóið Kaizen sem er jap-
anska og merkir „stanzlausar framfarir" En
ugglaust hafa allir framleiðendur þetta sama
mottó í fyrirrúmi svo það getur naumast tal-
ist sérstakt.
Annað mottó er að lítil framfaraskref eru
líka skref, og taki maður þau nógu ótt og
títt, komist maður framúr keppinautunum.
Þriðja mottóið er kanban, sem merkir að all-
ir hlutir í sambandi við bilaframleiðs.luna eiga
að berast á réttan stað „á slaginu".
Það er viðurkennt að nýi lúxusbíllinn Lex-
us sé eins vandaður og það allra bezta sem
þekkist í bílaiðnaðinum. Samt þarf Toyota
aðeins einn sjötta þess mannafla, sem til
dæmis Mercedes Benz þarf til framleiða jafn
marga bíla. Launaliðurinn hjá Toyota er öf-
undarefni margra úr samkeppninni. Samtals
eru starfsmennirnir 91.790, en til samanburð-
ar eru þeir 766.000 hjá General Motors í
Bandaríkjunum.
Vestræn æskudýrkun, sem gerir ráð fyrir
því að menn séu varla brúklegir í vinnu eftir
45 ára aldur, hrjáir þá ekki hjá Toyota. Sá
sem öðum fremur leiðir fyrirtækið er stjórnar-
formaðurinn, Shoichiro Toyoda, sem nú er
65 ára og er doktor í vélaverkfræði. Frændi
hans Eiji Toyoda, sem nú er 76 ára, er snill-
ingur í skipulagningu og hann er heilinn á
bak við hina árangursríku framleiðsluaðferð
Toyota. Shoichiro formaður er vel á verði og
þóttist nýlega koma áuga á það sem hann
kallar „stórfyrirtækja-sjúkdóm". í samræmi
við þá sjúkdómsgreiningu var sagt upp starfs-
fólki svo um munaði. Sársaukafull aðgerð,
en náuðsynleg, sagði formaðurinn, því honum
fannst orðið bera á sambandsleysi milli æðstu
Stjórnarformaður Toyota heitir Toy-
oda og sonarsonur stofnandans. En þar
sem Toyoda þýðir „frjósamur
hrísgrjónaakur", eða því sem næst á
japönsku, þótti það ófært sem heiti á
bíl og því var einum staf breytt. Galdur-
inn á bak við velgengni Toyota er sögð
vera einber stjórnunarsnilld.
stjórnenda og þeirra sem vinna við að setja
bílana saman..
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5. JANÚAR 1991 11