Lesbók Morgunblaðsins - 27.07.1991, Blaðsíða 12
a
Chevrolet Astro
- mikið fyrir mikið
Hliðarhurð að aftan er aðeins hægra
megin og er það rennihurð.
í dag skoðum við enn einn ferðabílinn
eða stórfjölskyldubílinn. Er það Chevro-
let Astro en það er Jötunn við Höfða-
bakka í Reykjavík sem flytur hann inn
eins og aðra bíla frá GM í Bandaríkjun-
um. Astro er allstór bíll, getur tekið
allt að 8 manns, er með sítengdu al-
drifi og aflmikilli 4,3 lítra vél. Þetta er
vel búinn bíll sem henta myndi vel til
ferðalaga og jafnvel utan alfaraleiða
en þó með ákveðnum takmörkunum.
Astro er hins vegar alldýr, kostar um
3,5 milljónir króna, og slær því seint
sölumet hérlendis en hann hefur náð
miklum vinsældum í heimalandinu.
Astro er einnig fáanlegur með eindrifi
en hér verður aðallega boðin aldrifs-
gerðin og hefur einn slíkur þegar verið
seldur.
Stílhreinn
Astro er nokkuð stílhreinn og laglegur
bíll. Hann er með hefðbundnu sendibíl-
slagi, vélarhúsið er stutt og hallar örlítið
og enn meiri halli er á framrúðu sem ger-
ir hann straumlínulagaðan. Stuðarar eru
fremur fíniegir, gluggamir allstórir og hlið-
arhurðin, sem aðeins er hægra megin, er
rennihurð. Afturhurðin opnast til hliðar.
Bíllinn er til í tveimur lengdum, 4,67 metr-
ar og 4,42 metrar en hjólhafíð í báðum
gerðunum er það sama eða 2,78 metrar.
Það er nokkuð langt og því stuttir endar
fram og aftur fyrir öxla nema á lengri
gerðinni þar sem lengingin kemur öll að
aftan.
Önnur helstu mál eru: Breidd er 1,92
m, hæð 1,84 m, þyngd rétt innan við 2
tonn og burðargetan 925 kg. Bensíntankur
tekur 120 lítra. Vélin er 4,3 Iítra, V6 og
160 hestafla með rafstýrðri beinni innsp-
rautun. Bíllinn er búinn aflstýri, veltistýri,
rafdrifnum rúðuvindum og hurðalæsingum
nema á hliðargluggum afturí, hemlalæsi-
vöm, hraðastillingu og fjögurra þrepa sjálf-
skiptingu.
Búinn sem fólksbíll
Með þessum búnaði og nokkuð íburða-
mikilli innréttingu gefur Astro ekkert eftir
vel búnum fólksbíl hvort heldur er hið innra
eða ytra. Framstólarnir tveir eru hábaks-
stólar, með góðum hliðarstuðningi og vel
stillanlegir. Gott er að ná til allra tækja
og mælaborðið er stafrænt eða tölritað og
skemmtilega frágengið eins og á Blazer
jeppanum. Gírstöng er í stýri og hefði
mátt vera liprari og sennilega betur komin
í gólfí. Annars er gott að höndla bílinn á
allan hátt og óhætt er að segja að þetta
sé með skemmtilegri bílum sem hér hafa
verið kynntir. Á það bæði við um sjálfan
aksturinn og alla meðferð.
Fyrirkomulagið afturí getur verið með
ýmsu móti. Hægt er að hafa bílinn sex
manna, þ.e. eingöngu með hábaksstólum,
sömu gerðar og framstólarnir. Bíllinn sem
var prófaður var með einum þriggja manna
bekk aftur í en hægt er að hafa tvo slíka
bekki þar og er hann þá orðinn átta manna.
Þegar aðeins einn bekkur er afturi er far-
angursrýmið yfírdrifið en minnkar til muna
ef bekkirnir eru tveir. Þessir bekkir eru
þægilegastir fyrir tvo, þ.e. miðjusætið hef-
ur ekki eins góðan bakstuðning og enda-
sætin og því væri bíllinn ef til vill lang
skemmtilegastur með sex hábaksstólum
og þannig væri léttara yfir honum að inn-
an og hann rýmri á allan hátt. En þessir
möguleikar bjóða upp á fjölbreytta notkun
og svara ólíkum þörfum notenda.
Chevrolet Astro -
ferðabíll fyrir fimm
til átta manns.
Astro er með nokkuð
hefðbundnu
sendibílslagi.
Astro er með sítengdu
aldrifi.
nýtur sín vel góð sjálfstæð framfjöðrun og
mjúk afturfjöðrun einnig. Astro er því kjör-
inn ferðabíll og hægt er einnig að leggja
á ijallvegi utan alfaraleiða á slíkum bíl.
Það er þó háð vissum takmörkunum því
hjólhafið er nokkuð langt og ekki er mjög
hátt undir bílinn og ökumenn ættu heldur
ekki að tefla á tæpasta vað á honum. Þetta
er líka of dýr bíll til að fara með í áhættu
í íslenskum ám.
Staðgreiðsluverð Chevrolet Astro er kr.
3.436.000. Sé lánað í bílnum er verðið
nærri 3,6 milljónir og við verðið bætist síð-
an ryðvörn og skráning sem er um 38
þúsund krónur. Þetta er mikið verð en fyr-
ir það fæst líka mikið. Það er síðan spurn-
ing um hversu mikið menn vilja eða þurfa
að leggja í bílakaup. jt
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Sætin eru góð og mæla-
borð er skemmtilega út-
fært.
Nýtur sín vel á þjóðvegi
Sem fyrr segir er Chevrolet Astro búinn
kraftmikilli sex strokka vél. Hún sparar
ekki aflið og er bíllinn viljugur í meira lagi.
Uti á vegi er hann snöggur að bæta við
þegar skjótast þarf framúr og í bænum
getur hann verið röskur og lipur. Eftirtekt-
arvert er hve vélin er hljóðlát og skipting-
in þýð og með þessu sérstaka Chevrolet
hljóði.
Þar sem tækifæri er til má láta Astro
spretta vel úr spori langt upp fyrir hám-
arkshraða og væri sennilega skemmtileg-
ast að ferðast á honum í Þýskalandi. Þjóð-
vegaakstur er auðveldur á Astro og ekki
finnst mikið fyrir hinum venjulega ferða-
hraða á íslenskum vegum. Á malarvegi
Danskur rafbíll
kominn á göturnar
Danski smábíllinn El-Jet
kostar þar í landi
sem svarar 680
þúsund íslenskum
krónum.
Danska fyrirlækið KEWET-industri í
Hadsund á Jótlandi hóf nýlega fram-
leiðslu á rafbíl og mun á næsta ári einn-
ig bjóða hann með bensínvél. Bílarnir
heita El-Jet og City-Jet og eru eingöngu
hugsaðir til innanbæjaraksturs enda
bera þeir ekki nema tvo menn eða einn
Innrétting er einföld.
fullorðinn og tvö börn. Rafbíllinn, El-
Jet, kostar í Danmörku tæpar 680 þús-
und krónur.
Knud Erik Westergárd eigandi KEWET-
industri hefur undirbúið þessa framleiðslu
með nokkurri leynd síðustu tvö árin en á
liðnu hausti var helstu prófunum og athug-
unum lokið og leyfi fengin til framleiðslunn-
ar. Nú í sumar er bíllinn að koma á dansk-
an markað og mun útflutningur ráðast af
móttökunum heima fyrir. El-Jet er knúinn
7 hestafla rafmótor frá Bosch og er bíllinn
afturdrifinn. Hámarkshraði er 70 km og
bíllinn vegur 750 kg. Hann er 2,44 m lang-
ur, 1,42 m breiður og 1,43 m hár. Danska
bílablaðið Auto segir að fjögurra gíra kass-
inn gefi bílnum furðu gott viðbragð.
BensínbíIIinn sem væntanlegur er á næsta
ári er með 16 hestafla, 500 rúmsentimetra
vél sem Honda smíðar en hann vegur að-
eins tæp 400 kg. Hámarkshraði hans er
sagður verða 110 km á klukkustund og
gert er ráð fyrir að hann eyði innan við fjór-
um lítrum á hundraðið.