Lesbók Morgunblaðsins - 07.09.1991, Blaðsíða 11
7. SEPTEMBER 1991
TIL HÆGRIEÐA VINSTRI!
IBILALEIGUBIL A BRETLANDI
- Taktu bíl á Heathrow og skelltu þér út í vinstri handar um-
ferð! Þannig hófst ratleikurinn út frá M25, hraðbrautinni um-
hverfis London, sem Bretinn nefnir „stærsta bílastæði í heimi“
vegna umferðaröngþveitis á háannatíma (Bretinn léttir sér alltaf
lífið með góðlátlegu gríni)! Ég kveið þessi lifandis ósköp fyrir,
enda örvhent (eða öllu heldur jafnvíg á báðar hendur) - og hef
alltaf átt í ótrúlegum erfiðleikum með að skynja hinn fræga mun
á hægri og vinstri stefnu!
Nú, einhver verður að
lesa á kort fyrir mig.
A sjálfsagt í nægum
erfiðleikum með að
halda mig réttu megin á veginum.
Stefni því breskum ríkisborgara
af íslensku kyni út á flugvöll sem
reynist öruggur áttaviti við hlið
mér í bílafrumskógi stórborgar-
innar.
Bílaleigurnar raða sér meðfram
langborði við útgöngudyr. Bíl er
tekinn hjá Hertz. - Gakktu eina
hæð niður, yfir götuna þar sem
bíllinn okkar bíður, segir 'af-
greiðsludaman. Skutlbíllinn kem-
ur á 5 mínútna fresti. Elskulegur
bílstjóri skilar okkur inn í Hertz
portið upp að splunkunýjum,
breskum Ford.
Kortið er dregið f'ram. - Hvað
ökum við lengi eftir M25 áður en
við beygjum út á A12? Klukkan
er 4 svo að við náum að aka í
klst. áður en umferðarþunginn
eykst um kl. 5. - Snemma á
morgnana, um hádegið og eftir
vinnutíma er óráðlegt að stefna
út á þessa umferðarþyngstu hrað-
braut Bretlands.
Við merkjum öll númer á hrað-
brautum, þjóðvegum og tenging-
um á milli hraðbrauta (junction)
- gerum okkur grein fyrir hvert
Víða fallegar sandvíkur í S-
Englandi.
við stefnum (Eastbound - West-
bound) og skrifum allt samvisku-
samlega niður á lítinn, gulan
límmiða sem ég festi á mælaborð-
ið.
Undir stýri sýnist allt svo um-
hent. Einkum gírstöngin. Ég
stend mig að því, oftar en einu
sinni, að sýna ósjálfráð viðbrögð
með hægri hendi (maður er 'bund-
inn í vélrænan vana)! - Miklu ör-
uggara, ef þið stefnið í vinstri
handar akstur að panta sjálfskipt-
an bíl, þó það sé eitthvað dýrara.
- Og það tekur þó nokkurn tíma
að venjast að nota speglana
„öfugu“ megin. Eins virðist vægi
bílsins, „öfugu“ megin, furðulega
mikið!
Umferð reynist hæg á flugvall-
arsvæðinu og kemur því ekki að
sök þó að ég fari aðeins vitlaust
í beygjumar! Reyni samt að fylgja
bílstjórum á undan fast eftir. A
M25 er umferðarhraði eins og
gerist á hraðbrautum meginlands-
ins. - Best er að halda sig á miðak-
rein, en færa sig yfir ystu vinstri
akrein rétt áður en beygt er út
af. Á ystu hægri akrein er stöðug-
ur framúrakstur. Og á ystu vinstri
akrein getur maður skyndilega
lokast inni á braut sem stefnir
út af hraðbrautinni - lent á villi-
götum.
Úti á þjóðvegum koma merk-
ingar ekki með eins miklum fyrir-
vára og á meginlandinu. Maður
þarf því að vera fljótur að hugsa!
Hringtorgin reynast býsna erfið -
fyrst - mörg með þreföldum ak-
reinum og iðandi umferð. Ég tók
það ráð að bíða aðeins lengur eft-
ir að umferðin hreinsaði sig, fara
síðan fremur hægt inn á og jafn-
vel aka tvo hringi, ef ég var ekki
viss um hvar aka ætti út af. Best
að halda sig á miðju, þar sem 3
akreinar eru, nema ekið sé út á
fyrstu hliðarbraut. - Fyllstu að-
gátar er þörf við að halda sig á
réttri akrein innan hringtorgsins
og taka nógu aflíðandi ’beygju út
af.
Sveitavegir í Bretlandi eru víða
býsna þröngir, umgirtir háum
trjám og umferð strjál. Eins gott
að gleyma ekki að halda sig réttu
megin, þegar bíll birtist skyndi-
lega eftir langan tíma! í miðbæj-
um gömlu þorpanna mætast oft
þröng öngstræti. Þá er aðalatriðið
að muna að víkja fyrir umferð frá
hægri. Ef óvíst er hver á réttinn,
látið þá Bretana ráða, en þeir eru
mjög tillitssamir í umferðinni.
Ótrúlegt hvað maður er fljótur
að aðlagast breyttum aðstæðum.
Eftir þriggja daga akstur um
sveitir Bretlands (jafnvel um út-
hverfi Lundúna!) finnst mér ég
vera fær í flestan sjó og myndi
ekki hika við að taka aftur bíla-
leigubíl i Bretlandi. En ég myndi
taka lest út frá London. Breska
sveitin er yndisleg og notalegt að
flakka á milli litlu þorpanna þar
sem andrúmsloftið er svo rólegt,
að tíminn virðist standa í stað;
setjast á þorpskrána eða breska
tehúsið innan um „glamrandi te-
bollana!" En þangað er erfitt að
komast, nema á eigin bíl.
- Fáið ykkur bækling yfír um-
ferðarmerki hjá Umferðarráði. Og
bókin „The Highway Code“ (fáan-
leg í bílferjum og lögreglustöðv-
um) sýnir breskar umferðarregl-
ur. - Gleymið ekki ökuskírteininu
heima!
Oddný Sv. Björgvins
Flýtið yður hægt og njótið fcrðarinnar.
Dragið kortið fram, ef þið eruð ekki viss,
Kastalaturnar og sveitasæla.