Lesbók Morgunblaðsins - 11.07.1992, Síða 7
Geysisgos á byrjunarstigi og í fullu veldi, framkallað með sápu.
Ljósm.: Sigurður Greipsson.
Ljjósm.: Björn Hróarsson.
Hverinn Smiður þjá Geysi gýs myndarlega eftir að
sápa hefur verið sett í hann.
Ljósm.: Bjöm Hróarsson.
Strokkur er sá eini af hverunum við Geysi, sem gýs
af sjálfsdáðum með skömmu millibili.
Ljósrn.: Sigurður Sveinn Jónsson.
Óþerrisholu, skammt frá Geysi, framkallað
iápu.
hrúður á yfirborði. Strokkur er nú eini hver-
inn á Geysissvæðinu sem gýs af sjálfsdáð-
um. Hér er eindregið hvatt til að framkölluð
verði gos í nokkrum öðrum hverum á svæð-
inu, og það sem oftast. Verði það gert á
fyrirfram ákveðnum og auglýstum tímum.
Framköllun gosanna yrði í höndum eftirlits-
manna.
Ekki hefur verið sýnt fram á með vísinda-
legum rökum að sápan sem sett er í hveri,
valdi röskun þeirra, leysi upp hverahrúður
eða valdi öðrum spjöllum á hverunum sjálf-
um. Við sápugos rennur örlítið sápumengað
vatn frá viðkomandi hver og berst út í
umhverfið. Vegna þess hve sápumagnið er
lítið miðað við vatnsmagn hveranna er þó
um sáralitla umhverfísmengun að ræða.
Sápumagnið í vatninu sem rennur frá Geysi
eftir framkallað sápugos er til dæmis um 1
kg í tonni, 0,1 prósent eða 1 prómill. Þrátt
fyrir það er sjálfsagt að nota umhverfis-
væna sápu og jafnframt kanna til hlítar
hvert það lágmarksmagn er sem unnt er
að komst af með til að viðkomandi hver
gjósi. Rannsóknir höfunda hafa leitt í ljós
að í mörgum tilfellum þarf aðeins örlítið
magn af sápu og miklu minna en nú er
notað til að koma hverum af stað. Skiptir
þar miklu máli hvernig sápa er notuð og
tímasetningin á því hvenær hver tegund er
sett út í hverinn.
Smið, Sóða, Fötu og aðra litla hveri á
Geysissvæðinu ætti að láta gjósa helst á
hverjum degi og Geysi minnst einu sinni í
viku. Þá mætti ef til vill gera tilraunir til
að koma fleiri hverum af stað. Síðast en
ekki síst þarf að selja aðgang gegn vægu
gjaldi en að Geysi koma á þriðja hundrað
þúsund gestir á hverju ári. Hver og einn
gestur þarf því ekki að greiða háa upphæð
til að halda uppi nokkrum starfsmönnum í
fullu starfi. Þá væri svæðinu líklega borgið,
niðurlægingu þess myndi ljúka en upp-
gangstímar fara í hönd.
Miðað við þessar hugmyndir virðast síð-
ustu aðgerðir Náttúruvendarráðs skjóta
skökku við. Sumarið 1991 gaus Geysir að-
eins þrisvar sinnum, tvisvar sinnum á vegum
ráðsins en eitt sinn á vegum einkaaðila.
Náttúruverndarráð sætti nokkurri gagn-
rýni fýrir „sölu“ sína á gosum Geysis sumar-
ið 1991. Lítt heyrist þó af svörum Náttúru-
verndarráðs fýrr en leið að vori nú fyrir
skemmstu. Geysir skyldi aldrei gjósa fram-
ar. Bann var lagt við því að láta hverinn
gjósa og enginn má framar beija það sjónar-
spil augum. Er þar um geðþóttaákvörðun
að ræða sem lítt eða ekki byggir á vísinda-
legum gögnum eða rannsóknum.
Þessar aðgerðir Náttúruverndarráðs
munu ekki auka hróður svæðisins — þvert
á móti. Gos Geysis og annarra hvera á svæð-
inu fara betur með hverina og umhverfi
þeirra en aðgerðarleysið sem nú ræður ríkj-
um á þessu stórfenglega hverasvæði. Auk
þess myndu hveragosin auka á sjónarspil
svæðisins og laða þangað ferðafólk í aukn-
um mæli.
Höfundar eru jarðfræöingar, hafa ritaö bók um
hveri á íslandi þar sem fræöast má frekar um
Geysi og aðra hveri á (slandi.
RÖGNVALDUR RÖGN-
VALDSSON
Sprungið
dekk
Mér líður eins og sprungnu dekki
ég verð aldrei eins og áður
- örið mun alltaf fylgja mér
og þegar ég held aftur af stað
á gamlar slóðir eða nýjar
og rilja upp minningarnar
þá finn ég alltaf til í sárinu
- eins og sprungið dekk. ..
Sorg
Ég horfi á tréð
og sé það gráta
laufunum á jörðina
það grætur eins og ég
og eftir stutta stund
synda laufin burt
eftir votri moldinni
- Þá stend ég upp
þurrka tárin, og fer
að safna fleiri tárum
til að geta grátið
með einhverju öðru tré...
seinna
Höfundur er viðskiptafræðingur.
INGÓLFUR JÓNSSON
frá Prestbakka
Bræðramál
I.
Grettir:
Knýr nú Hösmagi hurðir
nei harðar þessi ber
sem hamslaus, illur andi
þar ÖnguII að gættum fer.
Bágt er að vera svo bjargarfár
sem bundin kerling við flet.
En eigi mun bregðast eggin hvöss,
sem ungur ég tryggðum hét.
Gangið þið piltar greiðar fram
því Grettir lifandi er.
Hvort hræðist þið mig á hnjánum?
Ég hegg þann sem deigur fer.
Ber væri hver að baki sér
ef bróður síns nyti ei.
Eldrauð verður þeim IUugi hríðin
hér áður en ég dey.
II.
Illugi:
Vart er Illuga hugur hallur
þótt hogginn Grettir sé.
Bræðrum tveim frá Bjargi vestur
þeim bauðst ekkert vopnahlé.
Syngur hátt í sverði mínu
sungið er brátt þess stef.
Grið sem þið bjóðið mérget ei þegið
ég gjarnan kýs mér hel.
Brýndar axir bíta vel.
Bjart er í vesturátt.
Þar leiftrar nú gullin geislabrú
um glóhvolf vítt og blátt.
Brostu nú hlýtt yfir Bjargi sól
þar bíður kona ei.
Geymir brátt móðir sagan sjálf
sona þinna bein.
Ljóðið er úr nýjustu Ijóðabók höfundarins,
sem út kom hjá Skákprenti og heitir “Litir
regnbogans". Hún er sjötta Ijóðabók Ing-
ólfs.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 11. JÚLÍ1992 7