Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.1994, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.1994, Blaðsíða 7
ur nyrzt, er í hásuðvestur frá Litladal og Stóradal (áður Djúpadal). Hins vegar eru í Hagámesi norðan við Hagá, þar sem hún fellur í Djúpadalsá, „tóftarbrot forn, og herma munnmæli, að þar hafi verið býij “i° Tóftir þessar eru norður af MæK- fellshnjúki, og er því hugsanlegt, að hnjúk- urinn hafi verið hádegismark þaðan, en frekari vitneskju um byggð á þessum stað skortir. Norðaustan við Mælifell var sam- nefnt sel frá Djúpadal á síðari öldum, og í Jarðabók Árna og Páls er sagt, að munn- mæli séu um, að þar hafi í fymdinni verið byggð.11 Um Mælifell í Djúpadal segir Steindór Steindórsson: „Framar í dalnum eru ýms- ir hnjúkar, sem eigi verða hér taldir, en hæstur þeirra er Mælifell fyrir miðjum dal.“12 í sömu stefnu og Djúpidalur (þ. e. í suðvestur) ganga fjórir dalir, og eru þijú fell á milli þeirra: Hvassafellshnjúkur vestast, Mælifell í miðjunni og Sneis aust- ast. Norðvestur frá Djúpadal gengur hins vegar Hagárdalur milli Kambfellsfjalls og Litladalsfjalls. En Mælifell er einnig miðju- sett í þeim skilningi, að það veður langt fram fyrir önnur fell í dalnum og er því „fyrir miðjum dal“, eins og Steindór Stein- dórsson kemst að orði. Mælifell hjá Þeista- REYKJUM Mælifell hjá Þeistareykjum er stakt fell (455 m) austan undir Lambafjöllum skammt norðvestur af Þeistareykjum. Fellið virðist vera mjög miðja vega austan undir Höfuðreiðarmúla og Lambafjöllum. Frá Sæluhúsmúla við Reykjaheiðarveg, þar sem sýslumörkin eru, suður í Gijót liggja vesturmörk smölunarlands Þeista- reykja.13 Baldur Jónsson bóndi í Yzta- hvammi í Aðaldal (f. 1934), sem gengið hefur Þeistareykjaland í 40 ár, staðfestir, að nærri lagi sé að telja Mælifell miðja vega á þessu svæði milli Sæluhúsmúla og Gijóta, þar sem iandið fer að hækka og verður gróðurlaust, og er það um 17 km leið. Mælifell á Mælifells- SANDI Mælifell á Mælifellssandi norðan Mýr- dalsjökuls er rétt sunnan við Fjallabaksveg syðri. Sveinn Pálsson segir, að á austur- leið stefni menn rétt norðan við Mæli- fell.17 Það kann að vera hálfnaðarmark einhvers tiltekins áfanga á þeirri leið. Gróðurfar á þessum slóðum hefur breytzt mikið í tímans rás vegna eldsumbrota, og er því erfitt að gera sér grein fyrir, hvar verið hafa áningarstaðir með Fjallabaks- vegi syðri á fyrri öldum. Ekki virðist þó óeðlilegt að gera ráð fyrir áningarstað í Hvanngili um 15 km vestan Mælifells og þá öðrum áningarstað álíka langt austan Mælifells ofarlega í Skaftártungu, t. d. í Mælifell á Mælifellssandi, öðru nafni Meyja(r)strútur að sögn Eggerts Ólafssonar. Myndina tók þýzkur Ijósmyndari, Klaus D. lU staðaheiði eða vestui af Búlandsseli Franche, og var hún nýlega á sýningu hans í Listasafni Akureyrar. eða Réttarfelli. Mælifellshnjúkur í Skagafirði. Mælifell í Eyjafirði. Mælifell í Vopnafirði Jón Þorgeirsson bóndi í Skógum í Vest- urárdal í Vopnafirði (f. 1926) segir um Mælifell þar í sveit: „Heiðin dregur nafn af rúmlega 800 m háu fjalli, Mælifelli, sem er um miðja heiði.. ,“14 Mælifellsheiðin nær frá Almenningsá inn að Haugsfjall- garði (Botnafjallgarði) norðan Selár að sögn Jóns. Mælifell (822 m) er og miðja vega milli Kistufells (820 m) og Hrúta- fjalla (862 m). Þess er enn að geta, að Mælifell er við gamla leið um Haug eða Haugsöræfi frá Vesturárdal í Vopnafirði til Hóls á Hólsfjöllum.15 Á þeirri leið mætti hafa Mælifell sem miðjumark milli Fremri-Hlíðar í Vesturárdal, en þaðan var yfirleitt lagt upp, og Austari-Haugs- brekku, en þar eru bæði sýslumörk og vesturmörk smölunarlands Vopnfírðinga. Mælifell í álftafirði Mælifell í Álftafirði er á milli Hlíðar- fjalls og Krossanesijalls. En tindurinn er einnig í hásuður frá bænum á Þvottá og blasir við þaðan. Kristinn Guðmundsson bóndi á Þvottá (f. 1920) segist hafa litið svo á, að Mælifellstindurinn (487 m) væri hádegismark frá Þvottá, en kveðst þó ekki hafa heyrt menn tala um annað eyktamark þaðan en Nónbotna. Enn bæt- ist það við, að Mælifell er við sjó, og hef- ur því hugsanlega mátt nota það sem miðjumark á sjóleið. Nærri lætur, að það sé miðja vega á um 64 km sjóleið milli Djúpavogs (undir Búlandstindi), verzlun- arstaðar frá síðari hluta 16. aldar, og Papaóss (undir Brunnhorni), en í Papa- firði er gamall lendingar- og útróðrarstað- ur Lónsmanna.16 Mæliíell 10J km LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 4. JÚNI' 1994 7

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.