Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.1994, Side 8

Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.1994, Side 8
-i mynduð fjöll, sem standa í beinni línu norð- ur og suður með stuttu millibili, hvort sín- um megin við Fjallabaksveg syðri, rétt norðan við Mýrdalsjökul. Sá er munur á, að Strútur er margfalt breiðari um sig en Mælifell og hið síðamefnda því í saman- burði við Strút réttnefndur Meyja(r)strútur í merkingunni ‘mjói strúturinn (strýtan)’. Það er því freistandi að ætla, að hér hafí Mælifell rutt burt eldra nafni, eftir að far- ið var að nota það sem leiðarmerki og mælistiku á þjóðleið. 1) Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar. Steindór Steindórsson frá Hlöð- um íslenzkaði II (Rvk. 1974), 98, sbr. Eggert Olafsens og Biarne Povelsens Reise igiennem Island (Soroe 1772) II, 771. 2) Sveinn Pálsson: Journal 1793, í ÍB 2 fol., 185, sbr. Ferðabók Sveins Pálssonar (Rvk. 1945), 257. 3) Margeir Jónsson: Bæjanöfn á Norðuriandi I (Ak. 1921), 51-53. 4) Namn och Bygd 1932, 29. 5) Chr. Matras: Stednavne paa de færoske Norðuroyar (Kbh. 1933), 35-36. 6) Sjá Nord. kultur XXX (Sth. 1936), 85, sbr. mynd á bls. 117. 7) Sjá Kulturhist. leks. I (Kbh. 1956), 642-43. 8) Sjá grein eftir Gösta Berg í Annen Viking kongress (Univ. i Bergen, Árbok 1955, Hist.-antikv. rekke, Nr. 1) (Bergen 1956), 77-83. 9) Jón Sigurðsson: Land og lýður (Rvk. 1933), 112. 10) Angantýr H. Hjálmarsson og Pálmi Krist-' jánsson: Ómefui í Saurbæjarhreppi (1957), 197. 11) ív. r. X, 238. 12) Árb. Ferð. 1938, 32. 13) Göngur og réttir V (Ak. 1987), 110-11. 14) S. r. V, 489. 15) Leiðarinnar er getið í sýslulýsingu 1745 (sjá Sýslulýsingar 1744-1749 (Rvk. 1957), 287). Þorvaldur Thoroddsen fór hana 1895 og lýsir í Ferðabók III (Kh. 1914), 347-49. Norðmenn lögðu símalínu um Haug 1906. 16) Sjá Lúðvík Kristjánsson: ísl. sjávarhættir II (Rvk. 1982), 80. 17) ÍB 2 fol., 185, sbr. Ferðabók Sveins Páls- sonar (Rvk. 1945), 257. 18) Ferðabók Eggerts og Bjarna II, 98, sbr. E. Olafsens og B. Povelsens Reise II, 771. 19) ÍB 2 fol., 185. 20) Sjá Lex. poet.3 undir mjór. 21) Sjá Norges geografiske oppmáling, M711 1319 IV (1973). 22) Sjá Kálund: Hist.-topogr. Beskrivelse I, 151. 23) H. Stáhl: Ortnamn och ortnamnsforskning (Uppsaia 1976), 23-24. Vegalengdir í kílómetrum í þessari grein eru samkvæmt grófri mælingu á kortum. Stjörnumerktar orðmyndir eru endurgerð- ar orðmyndir, þ. e. koma ekki fyrir í rit- uðum heimildum. Þ. V. Mælifell í Álftafírði. Meyjarstrútur í framhaldi af þeim ummælum sínum, að Mælifell beri oft annað nafn, segir Eggert Ólafsson: „Eitt slíkt íjall er Meyja- strútur (Meestruten í útgáfu Eggerts) á Mælifellssandi."18 Sveinn Pálsson segir Eggert Ólafsson kalla Mælifell ranglega Meyjarstrút (Meyarstrútr í handriti Sveins); það nafn tilheyri aðeins öðru fjalli líkrar gerðar suðaustan Torfajökuls.19 Ég er ekki sannfærður um, að Eggert hafí hér rangt fýrir sér, enda var hann fyrr á ferð en Sveinn og því hugsanlegt, að hann hafí stuðzt við eldri heimildar- menn. Þessar efasemdir mínar eru grund- vallaðar á merkingu forliðar fjallsheitisins. Meyjar- í ömefnum hygg ég sé yfírleitt ekki dregið af nafnorðinu mær ‘meyja’, heldur lýsingarorðinu mær, sem er hliðar- mynd lo. mjór, sömu merkingar. Orðmynd- in mær kemur fyrir í fomum kveðskap, t. d. mæ borð, mævar skeiðar.20 Hliðstæður þessara tvímynda em t. d. lo. fijór - frær. *Mæ- eða *Mæva- (áður borið fram Mé-, Méva-) hefur þá orðið í ömefnum Mey(ja)- og síðan Meyjar-, sbr. hina ríku tilhneig- ingu til að lesa persónur út úr forliðum ömefna. Meyja(r)dalur er á þremur stöðum hér á landi: í Grunnavík, á Ströndum og í Jökuldalsheiði, og em það allt mjóir dalir eða mjórri en aðrir dalir í grennd. Meia- eða Meierdalen heitir fram af Valldal á Sunnmæri, þar sem dalurinn mjókkar, en um þennan mjóa dal liggur leiðin síðan niður hinn fræga Trollstig ofan í Raums- dal.21 Meyjarsæti ofan við Hofmannaflöt er mjór klettarani, enda kallar Kálund það „det smalle „borg“formige Meyjarsæte“, og hefur nafnið fætt af sér rómantískar hugmyndir um, að þar hafí meyjar setið, horft á og dæmt um viðureign riddara á Hofmannaflöt.22 „Meyjarrniga er mikið pen,“ segir í vísunni um lækjarheiti í Fljóts- hlíð, enda mjó. Meyjarvík er mjóst fímm víka í landi Nesja í Grafningi. Frá Svíþjóð má nefna til hliðsjónar ömefnið Jungfruvik- en, sem heitir Mö Wijken 1699, talið af lo. mjö ‘mjór’.23 Nú eru Strútur (968 m) og Mælifell (791 m) hvort tveggja strýtu- Mælifell í Vopnafírði. 8

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.