Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.1994, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 04.06.1994, Page 9
Vinnuhjúa- verðlaunin Talið er að þrælahald hafi lagst af á íslandi á tólftu öld. Ekki er alveg ljóst hvers vegna því var hætt, en víst er að ekki var um neinn utan að komandi þrýsting að ræða og voru íslending- ar fyrri til að hætta þrælahaldi en nágrannar Búnaðarfélagið mun síðast hafa veitt vinnuhjúaverðlaun árið 1987 og er reyndar merkilegt að vinnuhjú séu enn til í landinu. Búnaðarritið nafngreinir ekki verðlaunahafana, en trúlega er um að ræða gamalt fólk sem sest hefur í helgan stein. eftir LÚÐVÍK VILHJÁLMSSON þeirra. í þá daga hvarflaði ekki að nokkrum manni að þrælahald væri á einhvern hátt sið- ferðilega rangt, svo ekki var það samviskan sem nagaði menn. Við hlutverki og störfum þræla tók stétt sem þegar var fyrir, það er, vinnuhjú. Litlu betri hafa kjör þessa fólks verið en þræla þótt frjáls ættu að kallast. Trúlega hefur kostur þeirra farið versnandi í rás ald- anna með auknum kotbúskap, versnandi efna- hag og hallærum. I bókmenntum okkar er ekki mikið fjallað um þetta fólk eða aðbúnað þess og virðist eins og að um snöggan blett sé að ræða á sálartetrinu, samanber þá furðulegu geðs- hræringu sem þjóðin komst í við að horfa á kaunasting Baldurs Hermannssonar í sjón- varpinu á síðasta ári. Vinnuhjúastéttin starfaði í sveitum landsins möglunai’laust, allt frá landnámi fram á tutt- ugustu öldina. Starfíð gekk oft í erfðir. Pegar kemur fram á okkar daga er eins og að vottur af samvisku láti á sér kræla. Arið 1905 fer Búnaðarfélagið að veita svo- kölluð Vinnuhjúaverðlaun. Viðurkenningar þessar voru í formi göngustafa, tóbaksdósa, skrúfhólka og skeiða. Verðlaun þessi voru veitt í áratugi, og fengu allt frá einum og upp í rúmlega þrjátíu manns verðlaunin ár hvert. Stór galli var á þessu þó ágæta og virðingar- verða framtaki en það vai’ að þau vinnuhjú sem þóttust ef til vill eiga skilið'viðurkenning- una urðu sjálf að sækja um verðlaunaútnefn- ingu skriflega til Búnaðarfélagsins, og með þurfti að fylgja vottorð frá húsbóndanum um að viðkomandi hafí þjónað sér af dugnaði og trúmennsku, og hve lengi. Áreiðanlega hafa margir sem uppfylltu skilyrðin ekki haft geð í sér að setjast niður við slík betliskrif. En úti í Kaupmannahöfn sat íslenskur fræðimaður sem vildi gera hlutina betur og af einhverri reisn. Bogi Th. Melsted fæddist 1860, sonur Jóns Melsted prests að Klausturhólum, sonar Páls amtmanns Melsted; Páll var sonur Þórðar prests Jónssonar á Völlum og Ingibjargar Jónsdóttur prests á Melstað, og er þaðan komið Melsted-nafnið. Árið 1882 fór Bogi til háskólanáms í Kaup- Ung vinnukona í eldhúsinu á Víðimýri í Skagafirði. Myndina teiknaði erlendur ferðamaður 1863. mannahöfn og tók magister próf í sögu 1890. 1892-3 er hann þingmaður Arnesinga, en fær þá starf við Ríkisskjalasafn Dana og starfaði þar í 10 ár. Arið 1903 sagði hann stöðu sinni lausri til að stunda fræðistörf og þó einkum til að sinna hjartans áhugamáli sínu, en það var að skrifa sögu Islendinga allt fram á hans daga. Þetta átti að vera tröllaukið verk í átta bindum. Ekki sýnist hann beinlínis hafa hlaup- ið til verksins því nærri 30 árum síðar (1893- 1920) eru komin út þrjú bindi og söguefnið rétt fí-am á tólftu öld. Því miður varð þetta verk ekki lengra, en Bogi gaf út ýmis rit og bækur tengdar sögu íslands. Þegar Kaupmannahafnardeild Bókmennta- félagsins flutti til Islands var Bogi ákaflega andstæður þeim flutningi og sárnaði mjög. Því var það að árið 1912 stofnaði hann Hið íslenzka fræðafélag ásamt nokkrum vinum sínum. Til að forða hinu nýja félagi frá illum örlögum Bókmenntafélagsdeildarinnar setti Bogi félaginu þannig lög að ekki var nokkur hætta á að um óvæntan flutning frá Kaup- mannahöfn yrði að ræða. 1. grein: „Hið íslenska fræðafélag er sjálf- stæð stofnun. Það er sinn eigin eigandi, og skal ávallt eiga fast aðsetur í Kaupmannahöfn og má aldrei flytja þaðan.“ í þriðju grein seg- ir að félagar skuli vera tólf og allir verða þeir að eiga heima í Kaupmannahöfn. Fræðafélagið stóð að ýmiskonar útgáfu- starfsemi og árið 1916 kom fyrsta ársrit fé- lagsins út en þau urðu ellefu alls. Bogi var ritstjóri til dauðadags og virðist félagið logn- ast útaf við fráfall hans (1028), en eftir hans dag kernm- aðeins eitt ársrit út. í ritinu birt- ust ýmiskonai’ fróðleikur, svo sem ferðasögur, ritgerðir um söguleg efni, greinar um merka menn og eiginlega eitthvað fyrir alla nema ljóðaunnendur. En það var bókstaflega rit- stjórnarstefna að birta engan kveðskap af neinu tagi svo skrítið sem það hljómar sérstak- lega þegar tíðarandinn er hafður í huga. í fyrsta ársritinu birtist grein eftir Boga sem heitir Verðlaunasjóður handa duglegum og dyggum vinnuhjúum í sveit. í greininni segir Bogi mann nokkurn, sem ekki vilji láta nafns sins getið (sic) hafa komið að máli við sig og boðist til að gefa eitt hundrað krónur til stofnunar slíks sjóðs með þeim skilyrðum: 1: Að landsmenn vilji sinna málinu að minnsta kosti svo, að á fyrsta ári komi loforð frá jarðeigendum, ábúendum eða einhverjum öðrum um að greiða í sjóðinn fyrir 100 jarðir, tillög, er séu eigi minni fyrir hverja jörð en nú segir: 5kr. fyrir minnstu jarðir og hjálegur alt að 10 hndr. að dyrleika, 10 ki’. fyrir jarðir að dýrleika 10-15 hund- ruð, 15 kr. fyrir jarðir að dýrleika 15-20 hund- ruð, 20 kr. fyrir jarðir að dýrleika 20-25 hund- ruð, 25 kr. fyrir jarðir að dýrleika 25-30 hund- ruð o.s.frv. eftir dýrleika jarðanna, eitt tillag fyrir hverja jörð í eitt skipti fyrir öll. 2: Rétt til verðlauna fá aðeins þau hjú sem eru í vist á jörðum sem greitt hafa í sjóðinn. Börn sem vinna hjá foreldrum sínum sem hjú eiga líka rétt til verðlauna. 3: Minni verðlaun en 100 — eitt hundrað — kr. veitast ekki úr sjóðnum og konum jafnhá og körlum. 4: Verðlaunin leggist á sparisjóðsbók, er beri nafn vinnandans, hún og afhent honum. 5: Vinnandi skal hafa verið minnst 7 ár í vist á sama stað, eða 10 ár á tveim. 6: Verðlaunasjóðinn skal ávaxta í aðaldeild Söfnunarsjóðs lslands. Bogi kemst að því að eftir jarðarmatinu 1861 ættu að safnast 75.000 eða 86.775 eftir því hvemig borgað er í sjóðinn. Útborgun úr sjóðnum yrði kr. 3.500 á ári og mundi samt bætast við höfuðstólinn. Verðlaunin áttu að vera mishá, en hæstu verðlaunin ekki minni en 250 kr. Bogi bendir á að þeir best settu í þjóðfélag- inu fái orður og peninga fyrir sín störf, og að bændur fái peninga frá kónginum fyrir jarðarbætur, sem þeir svo sjálfir njóta. Hann getur um verðlaun Búnaðarfélagsins, en þau séu af opinberu fé, í formi dauðra hluta, og megi ekki kosta meira en 15 krónur. „Þetta er betra en ekld, en bara allt of lítið.“ Nýju verðlaunin skal veita fyrir dug og dyggð, það er; verklegan dugnað og kunnáttu, gott vinnu- lag, iðni, skyldurækt og trúmennsku. Næst er bai’a að koma málinu af stað og er Bogi bjartsýnn á framgang málsins og bendir á leiðir til að bændur sleppi jafnvel sjálfir við að borga í sjóðinn. Til dæmis gæti féð komið frá einhverjum sem bjó á bænum en er fluttur (uppkomin börn komin á möl- ina), nú eða einhverjir aðrir sem bera hlýhug til jarðarinnar vegna góðra stunda þar (sumar- börn af mölinni?). Síðan eni náttúrulega vinnuhjúin sem enga erfingja eiga og geta arfleitt jörðina að lífsstritinu. Hvem munar um að gefa lambs- eða kind- arverð í sjóðinn? Enda er eins víst að lambið eða kindin sem fyrir valinu yrði mundi hvort eð er hafa drepist strax næsta vetur úr hor, þótt ekki sé svó sem auðvelt að spá um slíkt! Næst koma vangaveltur um vinnuhjú á ís- landi og satt er að þeim fer fækkandi, en vís- ast er að þeim fjölgi aftur seinna og öruggt að hjú verða alltaf á Islandi rétt eins og í öðrum menningarrílqum. Bogi hefur áhyggjur af kunnáttu og agaleysi hjúa, en það er bænd- um að kenna því þeir kunna ekkert að stjórna. Svo koma stúlkur til Danmerkur til að vera í vist, en þeim er umsvifalaust vísað á dyr á betri heimilum. Þær virðast halda að þær geti leyft sér hvað sem er því enginn þekki þær svo langt að heiman. Bogi hefur meira að segja hlerað um tvær sem lentu alla leið inni í tugthús. Þrátt fyrir allt þetta og reynd- ar margt fleira eiga þau samt skilið að sjóður- inn verði stofnaður. Því næst ræðir Bogi um stjóm sjóðsins og telur eðlilegt og í henni verði húsbóndi, húsmóðir, vinnumaður, vinnu- kona og oddamaður, en í þá stöðu vill Bogi fá formann Búnaðarfélagsins. Og nú er bara að byrja og senda Boga línu með loforði um framlag og fá menn þá birt nöfn sín í næsta ársriti. I því ársriti fræðafélagsins telur Bogi upp átta einstaklinga sem lofað hafa framlögum í sjóðinn. Þetta em vonbrigði, en ekki er þó víst að hann viti af öllum, því sjóhernaður Breta og Þjóðverja hamlar nú öllum siglingum á Norður-Atlantshafi. Hvað um það, málið hefur fengið mjög jákvæða umfjöllun á íslandi og ónafngi-eindi maðurinn sem kom málinu af stað hefur góðfúslega veitt árs frest um stofnun sjóðsins. Enn em menn hvattir til að senda inn loforð um greiðslu og fá nafnið sitt á prent í næsta ársriti. Árið eftir hafa loforð borist frá 100 jörðum og er helmingur þeirra úr Hrunamannahreppi og Gnúpveijahreppi (úr kjördæmi Boga fyrrum). Ekki fá allir Hlutverk vinnu- manna var við úti- störf, gegningar, heyskap, smala- mennskur og stund- um voru þeir sendir íverið. Myndin er tekin í Gilhaga í Skagafirði 1898. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 4. JÚNI1994 9

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.