Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1994, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 03.12.1994, Blaðsíða 6
Um meinta fróð- leiksfýsn barna ITT af því fyrsta sem ég lærði í uppeldis- og kennslufræði var að öllum bömum sé fróðleiks- fysnin í blóð borin. Þetta stendur í ótal fræði- ritum og kennslubókum. Meðal annars í riti eftir ekki minni spámann en Wolfgang Edel- stein. í eftirfarandi tilvitnun segir Edelstein frá skoðunum svissneska barnasálfræðings- ins Jeans Piagets og gerir þær um leið að sínum eigin: Vitund barns bregst við reynslu með námi. Þekkingaröflun er hluti af líffræði- legu eðli og arfleifð mannsins. Það þarf því meira en smátilfæringar til að hamla forvitni barns og kæfa þekkingarlyst þess. Loks sér Piaget - líkt og aðrir gagnrýnendur skólans - að nokkur ár í skóla virðast nægja til að láta saltið dofna, skerða námsviljann og slökkva námsfjör fjölda barna. Sýn Piagets er hvort tveggja, djúp og takmörkuð. Hann hefur kannað þroska- eðli uppvaxandi manneskju og fundið að börn hungrar og þyrstir eftir þekkingu, ekki síður en réttlæti. Og hann finnur að þau geta á sinn hátt tileinkað sér svo til allt með sleitulausri námsgleði sinni ef námið svarar lágmarkskröfum um þroskavænleg, þ.e. eðlileg, náttúrleg námsskilyrði: (Wolfgang Edelstein 1988, bls. 165-6) Þótt þessi kenning þeirra Piagets og Edelsteins sé vinsæl þykir mér hún heldur einfeldningsleg. Víst er mönnum og mörgum öðrum dýrum eðlilegt að vilja læra hvaðeina sem nauðsynlegt er til að komast af í því umhverfi sem tegundin bjó við meðan nátt- úruvalið mótaði sköpulag hennar og hátt- erni. Kettlingar hafa til dæmis meðfædda hneigð til að læra allt sem kunna þarf til að veiða mýs. En þeim er ekki í blóð borinn neinn sérstakur áhugi á að læra þær um- gengnisvenjur sem ætlast er til af heimilis- köttum. Mannaböm hafa tilhneigingu til að læra að ganga og tala en það er engin ástæða til að ætla þeim öllum meðfædda löngun til að læra mikið umfram það sem steinaldarböm þurftu að kunna til að lifa fram yfir gelgjuskeið og auka kyn sitt. 011 þau bóklegu fræði og öll sú skóla- speki sem nauðsynlegt er að kunna til að komast vel af í nútímasamfélagi em af- sprengi mannkynssögunnar. Þessi saga er stutt í samanburði við líffræðilega þróunar- sögu mannsins. En hún er hröð og viðburða- rík og furðulegir duttlungar hennar hafa skilað okkur inn í öld flókinnar tækni, vand- lærðra siða og torskilinna samfélagshátta. Hugleiðingar um vísindalegt uppeldi, náttúrulegan fullkomleika mannlífsins og vesaldóm kennarastéttarinnar. Eftir ATLA HARÐARSON Þessi stutta saga hefur ekki haft nein veru- leg áhrif á erfðavísa mannkynsins og það er af og frá að nútímabörn séu neitt lík- legri en steinaldarbörn til þess að hafa alger- lega sjálfkvæman áhuga á lestri, skrift og reikningi. Áhugi nútímabarna á bóklegum fræðum og skólalærdómi er þeim ekki í blóð borinn. Hann er alinn upp í þeim, oft með ærnu erfiði og mikilli fyrirhöfn. Frá kenningunni um meðfæddan fróð- leiksþorstá allra barna er stutt í þá skoðun að það sé samfélaginu og stofnunum þess, einkum skólunum, að kenna ef böm vilja ekki læra. Þessi skoðun er reginfirra. Hið rétta er að það er samfélaginu og stofnunum þess, ekki síst skólunum, að þakka hvað mörg börn em viljug að læra. Kenningin um meðfædda þekkingarlyst barna er goðsögn. Þessi goðsögn hefur því miður staðið skólastarfí töluvert fyrir þrifum og grafíð undan virðingu kennarastéttarinn- ar, enda bera þeir sem breiða þessa sögu út yfírleitt litla virðingu fyrir kennurum. Þeir álíta jafnvel að það sé sök kennara ef sumum bömum miðar lítt áfram í námi. Til dæmis segir Wolfgang Edelstein: Það er ekki námsefnið sem veldur nem- endum erfíðleikum í námi fyrst og fremst, heldur kennslan, aðgerðir kennaranna. Vanskilin á náminu (sem allir kvarta undan) verða á einn eða annan veg rakin til kennslunnar sem nemendur hljóta. (Wolfgang Edelstein 1988, bls. 157) ... nokkur ár í skóla virðast nægja til að láta saltið dofna, skerða námsviljann og slökkva námsfjör fjölda barna. (Wolfgang Edelstein 1988, bls. 166) Sem kennari hlýt ég að hafna þessu. Samt neita ég því auðvitað ekki að frá unga aldri hafí mörg börn áhuga á að læra. Böm meðtaka gildismat hinna fullorðnu og ef fullorðna fólkið hefur áhuga á listum og íþróttum, vísindum og fræðum þá kviknar oft svipaður áhugi hjá börnunum. En þótt þessi áhugi sé mismikill og minnki stundum á einhveiju aldursskeiði er fráleitt að halda því fram að skólamir drepi niður náms- áhuga (hvað þá meðfæddan námsáhuga) hjá börnum. ★ Goðsagan um fróðleiksfýsnina er ekki ein um að grafa undan virðingu kennara og draga úr árangri skólastarfsins. Önnur vit- leysa sem fínna má í mörgum ritum um uppeldis- og skólamál er á þá leið að brátt muni einhveijir vísindamenn, einhveijir „þeir“, fínna vísindalegar kennsluaðferðir sem eru svo fullkomnar að í samanburði við þær verði allt starf kennara til þessa í besta falli hlægilegt kák. Þessari hugmynd sér víða stað. Til dæmis í skýrslu Nefndar um mótun menntastefnu þar sem segir: Fyrirsjáanlegt er að kröfur til kennara- starfsins munu aukást vemlega á kom- andi árum samfara stóraukinni þekkingu á eðli náms og kennslu, ... og hjá Wolfgang Edelstein sem segir: Okkur væri hollt að viðurkenna að þrátt fyrir lofsvert átak í rétta átt eru skólarnir - alls staðar - enn furðu frum- stæðar stofnanir, Eg gæti tínt til margar fleiri tilvitnanir í svipuðum dúr. Það virðist útbreidd skoðun að skólarnir séu frumstæðir, en vísindaleg þekking á eðli náms og kennslu muni brátt bæta þar úr og gera skólana nýtískulega, tæknilega og skilvirka. Ég neita því að sjálfsögðu ekki að sál- fræðingar, líffræðingar og aðrir vísinda- menn kunni að uppgötva ýmislegt um hug og heila bama og þessar uppgötvanir geti nýst kennurum og leitt til betra skólastarfs. En ég hafna því að það séu einhveijar alls- heijarlausnir í sjónmáli. Enn sem komið er duga „vísindalegar“ aðferðir við uppeldi yfirleitt engu betur en alþýðusálarfræði og hversdagslegt bijóstvit. Þótt mannvísindun- um hafi fleygt fram á þessari öld hefur ekki leitt af þeim mikið af nýtilegri tækni eða aðferðum til að leysa vandamál mann- lífsins og ekkert bendir til að „vísindalegar" uppeldisaðferðir verði þess umkomnar í bráð að bæta skólastarf svo neinu nemi. Kennar- ar eiga auðvitað að fylgjast með rannsókn- um t.d. á eðli lestrarerfíðleika og annarra námserfíðleika. En þeir eiga líka að taka hátimbraðri kenningasmíð með hæfilegri varúð eins og upplýstum mönnum ber. ★ Síðan hugmyndaheimur nútímans varð til með upplýsingunni á 18. öld hafa þessar tvær villukenningar sem ég hef gert grein fyrir sett svip sinn á dijúgan hluta allrar umræðu um uppeldis- og menntamál. Lengi vel, en einkum nú á síðustu árum, hefur þriðja bábiljan fléttast saman við þær. Hún er á þá leið að fullkomleikinn sé hið náttúru- lega ástand mannlífsins' og frávik frá hon- um þurfí ævinlega að skýra, helst með því að fínna sökudólg. Æði oft fá skólarnir að leika hlutverk sökudólgsins. Þá er sagt að þeir hafí brugðist ef atgervi uppvaxandi kynslóðar er ábótavant í einhveijum grein- um. Þeim er jafnvel kennt um vaxandi of- beldi í samfélaginu þótt réttara sé að þakka þeim fýrir að ofbeldið skuli ekki vera mun meirai Það er eins og fólk ímyndi sér að hægt sé að leysa allan tilvistarvanda mann- lífsins með fáeinum tæknibrellum sem skól- ar og aðrar stofnanir geta gripið til hvenær sem á þarf að halda. Þegar menn rekast svo á það hvað eftir annað að veruleikinn stendur langt að baki væntingunum halda þeir að skólamir, ríkið eða einhveijir „þeir“ séu að bregðast þeirri skyldu sinni að tryggja öllum auðvelt og þægilegt líf. ★ Sú þrefalda vitleysa sem hér hefur verið gerð að umtalsefni hefur einfaldan boðskap. Hann er á þá leið að það sé auðvelt að ala upp góða menn og vitra. Þessi boðskapur er að því leyti óhagstæður kennumm að þeir sem trúa honum hljóta að álykta að kennarar séu hinir mestu amlóðar fyrst þeir geta ekki unnið svona auðvelt verk betur en raun ber vitni. Boðskapurinn er ekki bara óhagstæður kennurum. Hann er líka arfarugl. Eftir mörg þúsund ára þróun er siðmenningin ekki komin lengra en svo að með æmu erfíði tekst stundum að móta samfélag þar sem fólk lifir í friði, ber virð- ingu fyrir sjálfu sér og náunganum og hef- ur áhuga á menntun og lærdómi. Þessi árangur er engan veginn sjálfsagður og lengst af hefur hann ýmist náðst illa eða alls ekki. Þótt menn hafi lengi glímt við erfðasyndina hefur enn engum tekist að koma henni nema á annað hnéð. ★ Því er ég að pára þessar línur að mér fínnst mál til komið að við kennarar gerum okkur skipulega grein fyrir villukenningun- um og ranghugmyndunum sem standa skól- unum fyrir þrifum. Þessar hugmyndir eiga sinn þátt í því að kennarastéttin er hálf hnípin og óánægð með sjálfa sig. Þeir kenn- arar sem trúa þeim hljóta líka að þreytast og mæðast meira en lítið þegar veruleikinn hagar sér ævinlega allt öðru vísi en starfs- áætlanir þeirra og vinnutilhögun gera ráð fyrir. Síðast en ekki síst grafa þessar kenn- ingar undan stolti og sjálfsvirðingu stéttar- innar. Hvernig eiga kennarar að bera virð- ingu fyrir sjálfum sér ef þeir trúa því að skólarnir séu „furðu frumstæðar stofnanir“ og „kennslan [valdi] ... nemendum erfiðleik- um í námi“ og „nokkur ár í skóla ... [nægi] til að láta saltið dofna, skerða námsviljann og slökkva námsfjör fjölda barna“? Öðrum stéttum fremur ætti kennarastétt- in að vera stolt af því sem áunnist hefur og hróðug af verkum sínum. Öðrum fremur er það kennurum að þakka að tekist hefur að byggja þó þetta menningarlegt samfélag: Samfélag þar sem áhugi á vísindum og fræð- um, íþróttum og listum kviknar hjá mörgum börnum og mannúðleg sjónarmið eru nógu algeng til þess að sumum dettur jafnvel í hug að þau séu öllum mönnum í blóð borin. Frá upphafi skipulegrar barnafræðslu á íslandi hafa kennarar beitt sér í þágu barn- anna, vakið áhuga þeirra á námi og mennt- un og unnið gegn illu atlæti, ósiðum og heilsuspillandi lifnaðarháttum." Allt frá upphafí hefur dáðleysið, naglaskapurinn, slenið og meðalmennskan í öllum sínum seigdrepandi fáfengileika staðið gegn hug- sjónum kennara og notið liðveislu hugmynda og kenninga af því tagi sem hér hefur ver- ið rætt um. Samt hafa kennarar komið miklu góðu til leiðar og mér finnst ekki vonlaust að okkur takist enn betur ef við hrekjum ranghugmyndirnar og villukenn- ingarnar af vettvangi. Aftanmálsgreinar * Kristján Kristjánsson heimspekingur Qallar á einum stað um svipaða bábilju og kallar hana „goðsögn hins gefna“. Siá Kristián Kristjánsson 1992, bls. 137-141. Upphafí barnafræðslu og skólahalds á Islandi er vel lýst í bók Gunnars M. Magnúss: Sögu alþýðufræðslunnar á íslandi sem Samband íslenskra bamakennara gaf út árið 1939. Rit Gunnar M. Magnúss. 1939. Saga alþýðufræðslunnar á íslandi, Samband íslenskra bamakennara, Reykjavík. Kristján Kristján88on. 1992. Þroskakostir, Rannsókn- arstofnun í siðfræði, Reylgavík. Skýrsla Nefndar um mótun menntastefnu. 1994. Menntamálaráðuneytið, Reykjavík. Wolfgang Edelstein. 1988. Skóli, nám, samfélag, Ið- unn, Reykjavík.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.