Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.1995, Síða 9
MYNDIRNAR eru af málverkum eftir Michael Kvium.
Raunveru-
leikinn
umskrifaður
Myndir hans eru byggðar fólki af tvíræðu kyni,
sem ber svip hans, í drungalegu umhverfi
við óræðar aðstæður. Þegar gesturinn spyr
hvaðan myndirnir spretti, lítur hann undr-
andi upp og spyr hvort þær komi eitthvað
undarlega fyrir sjónir. Danski málarinn
Michael Kvium segist finna myndir sem
allir sjái en sjái samt ekki. Það sem ekki
sést heillar hann og í það leitar hann í rým-
inu, þar sem ekkert er og þar sem myndirn-
ar geta sprottið fram. Sérkennilegar sköp-
unarverur hans hafa dregið að sér athygli
margra, ýmist heillað eða hrint frá, bæði í
Danmörku og víðar. Hann verður fertugur
seinna á árinu, fínnst það ögn ógnvekjandi
og á tvö böm. Kona hans, Kristín Guðna-
son, er af íslenskum ættum. Sjálfur brá
Kvium sér fyrir nokkrum árum til íslands
með norska málaranum Odd Nerdrum, sem
er heillaður af íslandi og þótti ófært að
útlendingur, giftur íslenskri konu, hefði
aldrei heimsótt landið.
Það eru áhöld um hversu
mikil gróska sé í danskri
myndlist, en það eru
engin áhöld um að einn
af þeim sem skarar fram
úr í hópi yngri
listamanna er Michael
Kvium.
Eftir SIGRÚNU
DAVÍÐSDÓTTUR
Að Finna Sér Stað...
En meira um hvaðan myndirnar spretta.
Hann segir sækja í þverstæður, sem ekki
séu sérlega auðleysanlegar, en mjög raun-
verulegar samt sem áður. „Ég sækist eftir
að komast þangað sem aðrir hafa ekki kom-
ið áður, þar. sem ég get verið í listrænum
friði og þar sem ekki er hópur af málurum
fyrir. Það er ekki hægt að mála eins og
ekkert hafi gerst í hundrað ár. Tíminn er
mikilvægur þáttur í málverkinu. Þegar ég
byijaði að mála blés ekki byrlega fyrir
málverkinu og það var dæmt úr leik. En
það heldur manni við efnið að vera í útjaðr-
inum, því þá neyðist maður til að gera það
sem manni finnst sjálfum rétt. Það kostar
heilmikið uppgjör við sjálfan sig að finna
út hver maður er og hvar maður stendur.
Það er mikilvægur liður í hinu listræna ferli
að finna sinn stað, ekki endilega til að kom-
ast í burtu, heldur til að vera sér meðvitað-
ur um hvar maður stendur. Annars er mað-
ur í stöðugri táningatogstreitu og það er
ekki fijótt til lengdar.
Tíminn skiptir mig máli í málverkinu og
ég fer inn og út úr mínum tíma. Margt í
verkum minum er skírskotun til eldri listar.
Þó við lifum á Microsoft-tímum þá er gott
að vera í snertingu við einfalda hluti eins
og svínshársbursta, sem enn eru eins og
þeir voru fyrir íjórum öldum. Ég vinn í fíg-
úrativri hefð, en syndi samt móti straumn-
um. Eina nútímaleiðin er að fylgja ekki
hinni beinu og breiðu braut.
Um það af hveiju hann máli, yppir Kvium
öxlum. „Ég veit það ekki. Það er þægilegt,
því ég er ekki mjög hagsýnn og kann vel
við að vinna einn. Ég gríp stundum í kvik-
myndagerð með öðrum og finnst.það spenn-
andi, en það er erfitt verk að skrapa saman
peninga til þess og óteljandi fólk flækt í
hana með manni. Ég get hins vegar alltaf
málað, því það kostar ekki neitt. Ég kann
best við mig einn við málverkið.
Undir niðri er eitthvert aðdráttarafl, sem
dregur mig að málverkinu. Löngun til að
rannsaka eitthvað, að vinna sig i gegnum
hið einskisverða að því sem liggur að baki.
í þessu ferli liggur mikil flokkunarvinna,
að flokka frá hið einskisverða. Ég vinn fíg-
úratívt og það fínnst mér mikill kostur, því
þá þarf ekki heldur að finna myndunum
nein skýringarorð. Á eftir er svo kannski
hægt að útskýra, skoða aðrar myndir og
samhengið.
Hver mynd felur í sér allar myndirnar,
sem áður er komnar, allt það sem maður
er og getur. En hver mynd getur ekki inni-
haldið allt og þá tekur við þetta flókna ferli
að flokka frá. Flokka allt frá, sem ekki
má stranglega missa sín. Líka það sem á
einhvern hátt er of rétt verður að taka frá.“
Mynd Sprettur Af Mynd
Myndefnið er svona eins og fæðukeðjan.
Eitt tekur við af öðru og hefur áhrif á allt
hitt. Þetta er hæg og seigbítandi þróun og
að baki hverrar myndar liggja margar skiss-
ur. Skissurnar eru grunnurinn, þar sem
maður skrifar niður einstök leiðarorð. Þær ■
eru samfelld dagbók, þar sem hugmyndirn-
ar eru reyndar og prófaðar. Það er erfítt
I eqprV MpBRMN01 ttr>S<MS 10 NÖVSMRPR 1P9R 9