Lesbók Morgunblaðsins - 15.11.1997, Side 19
Morgunblaöið/Ámi Sæberg
HLUTI flytjenda sem fram koma á tónleikum Caritas í Kristskirkju á morgun, sunnudag.
Gunnar Kvaran, sellóleikari, Ragnhildur Pétursdóttir, fiðluleikari, Einar Jóhannesson, klar-
inettleikari, og Zbigniew Dubik, fiðluleikari.
✓
TONLEIKAR
TIL STYRKTAR
BÁGSTÖDDUM
CARITAS á íslandi efnir til tónleika til
styrktar bágstöddum fyrir jólin í Krists-
kirkju, Landakoti, sunnudaginn ltí. nóvem-
ber kl. 17. Aðstoðin fer fram í samstarfi við
Hjálparstofnun kirkjunnar. Leitað hefur
verið til fjölmargra listamanna og efnisskrá
tónleikanna er viðamikil. I hópi flytjenda
eru einleikarar, söngvari og kór.
Flytjendur á tónleikunum eru Einar Jó-
hannesson, klarinettleikari, sellóleikararnir
Gunnar Kvaran og Nora Kornbluh, fiðlu-
leikararnir Ragnhildur Pétursdóttir og
Zbigniew Dubik, Signý Sæmundsdóttir,
sópransöngkona, og Hamrahlíðarkórinn
undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Org-
elleikari er Steingrímur Þórhallsson. A efn-
isskrá eru kórverk eftir Atla Heimi Sveins-
son og Þorkel Sigurbjörnsson. Gunnar
Kvaran flytur kafla úr einleikssvítu eftir
Bach og verk eftir Gounod ásamt orgelleik-
aranum Steingrími Þórhallssyni, sem einnig
leikur með í einleiksverkum Einars Jóhann-
essonar eftir Tartini og Hovhaness. Signý
Sæmundsdóttir syngur aríur eftir Hándel.
Önnur verk eru eftir Johan Halvorsen og
Schubert.
Caritas er alþjóðlegt styrktarfélag innan
kaþólsku kirkjunnar sem stofnað var í
Þýskalandi seint á síðustu öld. íslandsdeild
Caritas var komið á laggirnar árið 1989 og
formaður félagsins er Sigríður Ingvarsdótt-
ir. Ár hvert stendur félagið að átaki til
styrktar alhliða líknarstarfi og marka góð-
gerðartónleikarnir upphaf þess starfs. Síð-
asti sunnudagur í nóvember er söfnunar-
dagur Caritas. Meðal þeirra sem notið hafa
aðstoðar Caritas má nefna krabbameinsveik
börn og alzheimer-sjúklinga á Islandi. I ár
beinir félagið athygli sinni að. öllum þeim
sem líða skort í samfélaginu.
GESTALEIKUR FRA
VILNlUS í
ÞJÓÐLEIKHÚSINU
LÍTHÁÍSK uppfærsla á Grímudansleikn-
um, Maskarad, eftir rússneska skáldið Mik-
hail Lérmontov, verður sýnd á Stóra sviði
Þjóðleikhússins 19. og 20. nóvember næst-
komandi. Leikstjóri er Rimas Tuminas, sem
kunnur er af uppfærslum sínum á Mávinum,
Don Juan og Þremur systrum í Þjóðleikhús-
inu en sýningin er samstarfsverkefni þjóð-
leikhúss þein’a Litháa og Litla leikhússins í
Vilníus.
í kynningu kemur fram að leikararnir
átján, sem þátt taka í sýningunni, séu í
fremstu röð litháískra leikara og að sýningin
á Grímudansleiknum hafi unnið til verð-
launa í Litháen, Póllandi og Rússlandi, auk
þess að vera boðið á fjölda leiklistarhátíða
víða um heim.
Mikhail Lérmontov (1814-1841) hefur oft
verið nefndur arftaki Pushkins. Hann telst í
hópi rómantískra höfunda en jafnframt ein-
kennast verk hans af háðskri ádeilu og bitru
raunsæi. Lérmontov skrifaði fimm leikverk
en afkastamestur var hann í ljóðlist og
skáldsagnagerð. Söguhetjur hans eru gjarn-
an fulltrúar „óþörfu mannanna“, ungra
gáfumanna sem voru áberandi á tímum
skáldsins og komu síðar mjög við sögu í
rússneskum bókmenntum.
Texti Grímudansleiksins mun birtast í ís-
lenskri þýðingu á skjá í Þjóðleikhúsinu og
mun það vera í fyrsta sinn sem slíkt er gert í
leikhúsi. Hefur þessi tækni til þessa ein-
göngu verið nýtt á óperusýningum.
ÚR uppfærslu þjóðleikhússins í Litháen á
Grímudansleik Lérmontovs.
Menntamálaráðhen-a Litháens verður
með leikhópnum í för en heimsókn þessi er
liður í samstarfssamningi sem þjóðleikhús
landanna tveggja hafa gert sín á milli.
AKALL TIL
FRIÐAR
IÓM.ISI
Sfgildir diskar
BARTÓK
Béla Bartók: Strengjakvartettarnir 6. Emer-
son strengjakvartettinn (Eugene Drucker,
Philip Setzer, fiðlur; Lawrence Dutton,
vfóla; David Finckel, selló.) Deutsche
Grammophon 423 C57-2. Upptaka: DDD,
Ncw York 1-3/1988. Útgáfuár: 1988. Lengd
(2 diskar): 148:39. Verð (Skífan): 2.999 kr.
ÁSAMT 15 kvartettum Sjostakovitsjar
eru hinir 6 strengjakvartettar Bartóks tald-
ir merkasta framlag til tóngreinarinnar á
20. öld (hugsanlega eiga 20 kvartettar
Holmboes eftir að teljast þar með, þótt enn
séu mun óþekktari, enda fyrst að koma út í
heild á plötu núna). En ef áhrifamáttur einn
og sér er mælikvarði, þá skaga hin ein-
stæðu verk Bartóks upp úr flestu öðru,
jafnvel að síðustu kvartettum Beethovens
meðtöldum.
Bartók-kvartettamir eru engar
jólalummur. Þeir heimta sitt af áheyrand-
anum, en skila því líka margfalt aftur eftir
hæfilega legu í sém'tunnum þroskans.
Engu að síður er svo mikið vatn nú til sjáv-
ar runnið, að nýr hlustandi sem torgað get-
ur Gorecki og MacMillan, ætti auðveldlega
að geta fundið eitthvað við sitt hæfi strax
við fyrstu heym, þó að enn fleira eigi eftir
að bætast við síðar. Nóg er t.a.m. fyrir
hrynfíklana - heyrið bara „tangó“-músík-
ina og „búlgörsku" rytmana í nr. 5! Og fyrir
sögumeðvituðum lifnar fyrri hluti 20. aldar
bókstaflega við - fríða skeiðið í nr. 1 (1909),
fyrri heimsstyrjöldin í nr. 2 (1917), milli-
stríðsárin í nr. 3, 4 og 5 (1927,1928 & 1934)
og dögun seinni heimsstyrjaldar í nr. 6
(1939), djúpu, persónulegu ákalli manns-
andans til friðar. I einu orði sagt mögnuð
tónlist.
Sem meginprófsteinar í sinni grein er lítil
furða þótt margar hljóðritanir séu þegar í
boði af Bartók-kvartettunum á geisladisk-
um. Meðal heildarútgáfna má nefna fram-
lög fjórmenningshópa sem kenna sig við
Takács, Végh, Alban Berg, Lindsay, New
Budapest, Chilingrian, Keller, Novák og
Bartók. Hinn aðeins níu ára gamli Emer-
son-kvartett (á upptökutíma) stendur þar
framarlega. Hann hlaut verðlaun tímarits-
ins Gramophone fyrir sína túlkun, og ekki
að ófyrirsynju, því spilamennskan er bæði
innlifuð og örðulaus, þó að blóðið freyði
kannski ekki jafnheitt og hjá Janácek-kvar-
tettnum á átakamestu sveiflustöðum í nr. 5
(aðalviðmiðun undirritaðs), því Tékkamir
tóku ívið meiri áhættu, e.t.v. á kostnað fág-
unar. En túlkun Emersons er engu að síður
mjög sannfærandi, og miðað við fremm-
hagstætt verð (fyrir DG), fína hljóðritun og
velskrifaðan bækling verða þessi að teljast
afar góð kaup fyrii' lífstíðarfylginaut.
THOMSON
Virgil Thomson: Kvikmyndatónlist (Svíta úr
The Plough that Broke the Plains; Svíta úr
Louisiana Story; Akadiskir dansar og söngv-
ar úr Louisiana Story; Fúgur og kantílenur
úr Power Among Men. Nýja Lundúnahljóm-
sveitin u. stj. Ronalds Corps. Hyperion
CDA6G576. Upptaka: DDD, Londonj?]
10/1991. Útgáfuár: 1992. Lengd: 68:06. Verð
(Japis): 1.490 kr.
VIRGIL Thomson (1896-1989) naut
sem tónlistargagnrýnandi ekki ósvipaðrar
stöðu óttablandinnar virðingar í Bandaríkj-
unum á fyrri hluta aldarinnar og Eduard
Béla Bartók
Hanslick í Vínarborg tveimur kynslóðum á
undan. En andstætt Hanslick var Thomson
einnig virtur sem tónskáld. Hann nam tón-
smíðar við Harvard, síðar hjá Nadiu Bou-
langer, og tengdist Satie og franska tón-
skáldahópnum Les Six vináttuböndum. Og
þó að lítt væri gefinn fyrir að bera tilfinn-
ingar á torg, náði Thomson að semja þrjár
óperur, Fjórir dýrlingar í þrem þáttum,
Móðir okkar allra (báðar við librettó eftir
Gertrude Stein) og Byron lávarður, sem að
vísu hafa enn ekki hlotið mikla útbreiðslu,
og líklega að ósekju.
Thomson samdi aldrei fyrir Hollywood.
Samt er kvikmyndatónlist hans meðal
fremstu framlaga Bandaríkjamanna til
greinarinnar. Heimildai-mynd Pares Lor-
entz um Sléttuplóginn (1936) og hörmung-
ar Rykbalans svonefnda (Dust Bowl), þeg-
ar akurlendi miðvesturríkjanna blés upp í
þurrkum í byrjun heimskreppunnar, var
ríkisstyrkt - gerð fyrir nýstofnaða Kvik-
myndaþjónustu ríldsins (Hollywood sá
fljótlega til þess að slík „ójöfn samkeppni“
yrði lögð niður), og mynd Roberts Flaher-
tys, Louisiana Story (1948) og heimildar-
mynd Thorolds Dickinsons, Power among
Men (1958) voru einnig óháðar drauma-
verksmiðjunni.
Góð kvikmyndatónlist er ekki gerð til að
standa ein, heldur til að styðja myndferlið;
helzt án þess að áhorfandinn veiti henni
sérstaka eftirtekt. En kvikmyndatónlist
Thomsons er meðal fárra undantekninga
sem eiga óhikað erindi á hljómdisk. Reynd-
ar eru Plógsvítan og sú Ákadíska sagðar
mest fluttu tónverk hans. Sú fyrri vitnar
m.a. í kúrekalög, og hin síðarnefnda -
kennd við frönskumælendi þjóðarbrot
(Cajuns) í Louisiönu, er þangað fluttust
þegar Nýja Skotland (áður Acadia) komst
undir enska stjórn 1755 - angar af sér-
stæðum dreifbýlissjai-ma Cajun-þjóðlaga.
Þessi tæra sinfóníska alþýðutónlist er í
sumu ekki ólík þjóðleigheitunum í kvik-
myndatónlist og ballettum Coplands, og
hljómasamböndin í Pastoral-þætti hinnar
Louisiönu-svítunnar geta m.a.s. minnt á v-
fágaða útgáfu af Jóni Leifs. Þó kennir fleiri
grasa, þ.á m. nokkurra fúgna, en sjaldnast
á kostnað lagrænunnar, því undir niðri
finnur maður heiðríka sálmalagshefð
Baptistakmkjunnar streyma, sem Thomson
ólst upp við í Kansas City. Allt piýðilega
vel túlkað af New London Orchestra og
Ronalds Corps í vammlausri hljóðritun.
Ríkarður Ö. Pálsson
LEIÐRETTING
í prósaþ'óði Marianne Pidoux, Til Michaels, sem birtist í Lesbók 8. nóv. sl. víxluðust orð í fyrstu
línu og breytist merking þeirra við það. Ranglega stóð: Fyrst tókst þú þér ferð á hendur...,en
rétt er þessi setning þannig: Fyrst þú tókst þér ferð á /ie/idur...Leiðréttist þetta hér með og
eru liöfundur og lesendur beðnir velvirðingar.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 15. NÓVEMBER 1997 19