Tíminn - 15.12.1966, Qupperneq 1

Tíminn - 15.12.1966, Qupperneq 1
Gerizt áskrifendur að Tímanum. Hringið i síma 12323 Auglýsing í Tímanum kemur daglega fjrrir augu i 80—100 þúsund lesenda. 250 MILUON KR. GJALDA- HÆKKUN Á REYKVÍKINGUM AK-Rvík, 14. desember- — Fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir árið 1967 verður til síðari umræðu á fundi borgarstjórnar á morgun. Fundurinn hefst í Skúlatúni 2 kl. 5 síðdegis og má búast við því að fundurinn standi eins og venjulegt er við síðari umræðu fjárhagsáætlunar fram undir morgun. Jóiatréssala LandgræðslusjóSs hófst í dag og voru þá margir orSnir langeygir eftir jólatrénu sínu en venju- lega hefur salan hafizt fljótlega eftir mánaSamótin nóv..des. Bjuggust jólatréssalar viS því, aS mikiS yrSi aS gera í dag, en þeir eru á víS og dreif um bæinn, alls um 20 talsins. GE tók þessa mynd í Bankastræti í gær. Vegna þess að Tíminn er alveg helgaður 50 ára afmæli Fram- sóknarflokksins á föstudaginn, verður frásögn af borgarstjórnar fundinum að bíða laugardags. Eins og áður hefur verið rakið hér í blaðinu, er það síður en svo nokkur stöðvunaráætlun sem borg arstjórinn hefur lagt fram fyrir árið 1967, því að fjárhagsáætlunin sjálf hækkar um nær 17%, sem er syipuð hækkun og verið hefur að meðaltali síðustu 5—6 verðbólgu ár, og er því auðséð, að blátt áfram er gert ráð fyrir svipaðri verðbólgu. Þó er enn minni „stöðvun" í gjaldahækkunum borgarinnar á Reykvíkingum. Útsvörin eiga að hækka um 18% og útsvör og aðrir tekjuskattar til borgarinnar sam an hækka um 140 milljónir, en séu gjöld þriggja stærstu þjón ustufyrirtækjanna, vatnsveitu, raf veitu og hitaveitu tekin með þá hækka þau samtals um 100 millj. og gjöld til borgarsjóðs og þriggja stærstu þjónustufyrirtækjanna hækka um 250 millj. sem er 21—22% hækkun frá áætlun árs Yfirlýsing formanns fjárveitinganefndar Alþingis í gær: Aðeins er tii fé í niður- greiðslur til 1. nóvember TK-Reykjavík, miðvikudag. I þær myndu reynast haldlausar til I hverfingaléik að ræða, sem leika Við 3. umræðu um fjárlagafrum stöðvunar nema skamma stund og ætti fram yfir kosningar til að V'frpið fyrir árið 1967 játaði for-1 Því væri hér aðeins um sjón-1 blekkja þjóðina með sama hætti og omiður fjárveitinganefndar það,1 ^^ wdi fjármagn væri aðeins tiltækt tíl að halda niðurgreiðslum áfram til 31, október. Fjármálaráðherra sté s stól á eftir og sagði, að hér væri aðeins átt við þær niður greiðslur, sem bætt hefði verið við upp á síðkastið til að koma í veg fyrir hækkun vísitölunnar. í þessu felst, að „verðstöðvunarniður- greiðslunum“ á að hætta á næsta ári. Stjórnarflokkunum finnst nóg að hafa þær í gildi fram yfir kosningarnar. Halldór E. Sigurðsson, framsögu maður nefndarhluta Framsóknar- manna k fjárveitinganefnd, benti á, að hér hefði stjórnin játað, að ,,verðstöðvunarstefnan“ væri ekki framkvæmanleg nema í nokkra mánuði. Framsóknarmenn hefðu lýst því yfir, að þeir hefðu ekki mikla trú á þessum verðsföðv unarheimildum ríkisstj órnarinnar, 1959. Stjórnin hefði nú óbeint ját að þetta með þessari játningu. Framhald á bls. 15. ’ns 1966. Þetta er hin raunverulega gjaldahækkun á borgarbú- um, og má fyrr vera, en slíkt sé kennt við „stöðvun“. Þá er það og annað meginein- kenni þessarar fjárhagsáætlunar, að rekstrargjöldin stórhækka eða um 18,6%, en framlög til varan legra framkvæmda borgarinnar hækka aðeins um 10,5% og drag ast því raunverulega saman. Þetta er því áætlun um hækkandi rekstr arkostnað en minnkandi fram- kvæmdir. Auk fjárhagsáætlunarinnar sjálfrar og breytingartillagna við ! hana eru á dagskrá borgarstjórn arfundarins allmargar tillögur frá Framsóknarmönnum og Alþýðu- | bandalaginu, og einnig tillaga um afnám reglugerðar um lokunar- tíma sölubúða. sem fulltrúi Al- þýðuflokksins flytur. Framsóknarmenn flytja um 40 breytingartillögur við rekstrarliði áætlunarinnar flestar til lækkunar á útgjöldum. og nokkrar tillögur um nýja útgjaldaliði. svo sem um að veita listaverðlaun árlega á afmælisdegi Reykjavíkur, að tekin verði upp skipuleg fræðsla um umfeðramál fyrir almenning, og að sjónvarpið verði hagnýtt í þeim tilgangi, að starfsfræðsla verði tek in upp í efstu bekkjum skyldu námsins, að veita tveimur knatt spyrnufélögum, Fram og Þrótti, sérstaka aðstoð við að koina uppj íþróttavöllum á félagssvæðum sín um og að verja 200 þús. kr. til eflingar bindindisfræðslu meðal ungs fólks, Við eignabreytingaráætlunina, þ. e. um framkvæmdir borgarinnar, flytja Framsóknarmenn allmargár tillögur, m. a. að framlag í ráðhús Framhald á bls. 15 Sovézkir geimfarar tii tunglsins næsta sumar? NTB-Moskvu, miðvikudag. Endaspretturinn í kapphlaup- inu milli bandarískra og sov- ézkra vísindamanna um send- ingu fyrsta mannaði geimfars ins til tunglsins er nú hafinn. Haft var eftir áreið- anlegum heimildum í Moskvu í dag, að svovézkir vís- indamenrn einbeiti sér nú ein- ungis að því verkefni að senda mann til tunglsins fyrir nóvem ber næsta ár. Hefur allri geim- vísindaáætlun Sovétríkjanna verið breytt í þeim tilgangi að skjóta Bandaríkjamönnutn ref fyrir rass í þessum efnum. Haft er eftir Reuter, að öll- um hugsanlegum ráðum verði beitt til þess að unnt verði að framkvæma fyrstu lendingu mannaðs geimfars á tunglinu fyrir 7. nóvember næsta árs, en þá eru liðin 50 ár frá rúss 'nesku byltingunni. Leggja leiðtogarnir áherzlu á, að takmarki þessu verði náð fyrir umræddan tíma, svo að Sovétríkin geti sýnt alheimi, að þau standi í fararbroddi á geimvisindasviðinu. Haft er eftir einstökum vís- indamönnum, að allt geimvís- indastarf í Sovétríkjunum bein 'ist nú að þessu eina vérkefni og segja sumar heimildir, að e. t. v. muni mánaferð lónast þegar fyrir 15. júní næsta ár. Bandaríkjamenn hafa áætlað að senda mannað geimfar til tunglsins einhvern tíma á ár- inu 1968 og síðustu útreikning ar í því sambandi ganga út á, Framhald á bls. 15.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.