Alþýðublaðið - 29.03.1983, Síða 1
alþýöu-
blaöió «i
Þriöjudagur 29. mars 1983.
46. tbl. 64. árg.
Magnús H. Magnússon
Magnús H. Magnússon:
sem eru að byggja í fyrsta sinn. En
Svavar Gestsson hefur farið með
þetta ráðuneyti árum saman og í
rauninni lagt kerfið í rúst. Sjálf-
stæðismenn segjast nú vilja veita
þeim sem byggja í fyrsta sinn sér-
staka fyrirgreiðslu og lána allt upp
í 80% byggingakostnaðar. Á sama
tíma ætla þeir að draga stórlega úr
erlendum lántökum og lækka
skatta. Hvernig fer þetta saman?“
Þetta sagði Magnús H. Magnús-
son, fyrrverandi félagsmálaráð-
herra í viðtali við Alþýðublaðið í
gær. Við spurðum Magnús H.
Magnússon, fyrst hve hátt hlutfall
húsbyggjendur fengju nú frá Hiís-
næðisstofnun ef tillögur hans á sín-
um tima hefðu náð fram að ganga.
„Lánið frá Húsnæðisstofnun
yrði sem svarar 45% af verði staðal-
íbúðar sem kostar 1.2 millj. króna
og yrði lánið 540 þús. krónur. Eins
„Mér ofbýður málflutning-
ur sjálfstæðismanna og al-
lýðubandalagsmanna um
iúsnæðismálin“
# Alþýðubandalagið
hefur lagt kerfið í
rúst
• Tillögur
Alþýðuflokksins
enn í fullu gildi
„Ég verð að segja það, að mér of-
býður gersamlega þessi málflutn-
ingur forystumanna Alþýðubanda-
lags og Sjálfstæðisflokks um hús-
næðismálin á síðustu dögum. Al-
þýðubandalagið stendur nú á rúst-
um hins opinbera lánakerfis hús-
næðismarkaðarins, en ætlar siðan
nú að bjarga öllu við þegar eru að
koma kosningar. NÚ segjast þeir
geta sett upp sérstakt kerfi fyrir þá
og þetta er í dag nær þetta hlutfall
ekki 20% á pappírnum en er þó í
rauninni miklu lægra vegna þess að
greiðslurnar eru ekki verðtryggðar.
Þannig að þegar verðbólgan er tek-
in með í dæmið, þá má gera ráð fyr-
ir að hlutfallið fari niður í allt að
10—12%. Samkvæmt mínum til-
Iögum var hins vegar gert ráð fyrir
því að greiðslurnar yrðu verð-
tryggðar. En eins og nú er fá menn
heildarupphæð sem ekki breytist
neitt í þeirri óðaverðbólgu sem hér
ríkir.
„Nú er staðan sú, að hlutfall
lengri lána væri nú um 65% af
byggingarkostnaöi staðalíbúðar.
Skv. þínum till. Er ekki nauðsynlegt
að hækka þetta hlutfall?
„Jú, það var einmitt það mark
sem við settum okkur á sínum tíma
að fara með þetta hlutfall í 80% á
Framhald á 2. síðu
Alþýðuflokkurinn kynnir stefnuskrá sína:
BJ, W
Sfefna Alþýðuflokksins i komandi kosnlngum kynnt á blaða-
mannafundi í gær. Frá vinstri: Kristín Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Alþýðuflokksins, Magnús H. Magnússon, varafor-
maður, Kjartan Jóhannsson formaður flokksins og Bjarni P.
Magnússon, formaður framkvæmdastjórnar Alþýðuflokksins
sitja fyrir svörum.
hafa ekki komist til almennilegra
verka".
Kjartan sagði fyrsta áfanga
efnahagsstefnunnar eiga að vera
að treysta atvinnuna og að
brjótast úr verðbólgufarinu og
þessari sívaxandi erlendu skulda-
söfnun./Hann lagði áherslu á að
þetta yrði ekki auðvelt og það
myndi reyna á samstöðu og styrk
íslendinga.
„Það er megin'atriði að það
verði hætt að verja peningum i
óarðbærar framkvæmdir, í óhóf-
legar útflutningsbætur og óheyri-
legan innflutning á togurum. Með
þessu móti losum við fé til þess að
byggja upp arðbær störf, skapa
eðlilegan aðgang að rekstrarfé,
gera það kleift að úrvinnsluiðnað-
ur í sjávarútvegi eða landbúnaði
Betri leiðir bjóðast -
Gerbreytt efnahagsstefna
Samstillt áætlun í stað bráðabirgðaráða
„Staðreyndin er sú að við höfum
búið við sömu leiðir og sömu
flokka i landsstjórninni nú i 12 ár.
Framsóknarflokkurínn hefur set-
ið öll árin, Alþýðubandalagið hef-
ur verið í átta ár af þessum 12 í
ríkisstjórn og sjálfstæðismenn
hafa veriö átta ár líka. Þessir aðil-
ar hafa ráðið ferðinni og beitt sín-
um ráðum en við viljum benda á
að það eru til betri leiðir og höf um
barist fyrir því að þær yrðu teknar
upp. Við viljum gerbreytta efna-
hagsstefnu“.
Svo sagði Kjartan Jóhannsson,
formaður Aiþýðuflokksins í gær
á blaðamannafundi, sem boðað-
ur var til að kynna efnahagsstefnu
flokksins og höfuð baráttumál
hans í komandi kosningabaráttu.
Auk Kjartans voru mætt á fund-
inn Magnús H. Magnússon, vara-
formaður, Kristín Guðmunds-
dóttir, framkvæmædastjóri
flokksins og Bjarni P. Magnússon
formaður framkvæmdastjórnar.
Þau mynda saman kosninga-
stjórn flokksins.
Kjartan lagði áherslu á að Al-
þýðuflokkurinn hefði þá sérstöðu
fram yfir hina flokkana að hann
bæri enga ábyrgð á því ástandi
sem nú ríkir. Flokkurinn hefði
verið utan ríkisstjórnar allt þetta
tímabil utan eins árs.
Ellert Schram ritstjóri og frambjóðandi:
„Var ráðinn á DV sem
sjálfstæðismaður"
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins
sammála um að víkja afstöðunni til
ríkisstjórnarinnar til hliðar
Gengur Sjálfstæðisflokkurinn
sameinaður til næstu Alþingis-
kosninga? Þessari spurningu velta
fjölmargir fyrir sér eftir öll átökin
innan flokksins á undanförnum
árum. Sjálfstæðismenn láta að
því liggja _að við það eitt að
Gunnar Thoroddsen ætlar ekki í
framboð þá hafi flokkurinn
smollið saman
Alþýðublaðið ræddi við Ellert
B. Schram, ritstjóra hins „óháða
og frjálsa“ DV og frambjóðanda
Sjálfstæðisflokksins og var hann
beðinn um að leggja sitt mat á
hvort flokkurinn færi sameinaður
í kosningabaráttuna.
„Já það er mitt mat að Sjálf-
stæðisflokkurinn muni ganga
heill og óskiptur til þessarar
kosningarbaráttu og er það mikið
fagnaðarefni eftir allt það sem á
undan hefur gengið. Það er afrek
út af fyrir sig eftir öll þau átök
sem um þessa ríkisstjórn hafa
orðið. En í stórum stjórnmála-
flokki koma upp mismunandi
sjónarmið og verður alltaf svo“.
Ef flokkurinn er sameinaður,
hefur þá stjórnarandstööuarmur-
inn ákveðið að styðja stjórnina
eða hafa stjórnarliðar gengið til
liðs við stjórnarandstöðuna?
„Það er nú bara svo að menn
hafa orðið sammála um að víkja
því máli til hliðar, enda fer þessi
stjórn brátt frá og þetta ríkis-
stjórnarmynstur verður ekki
endurtekið. Frambjóðendur
flokksins eru orðnir sammála um
að standa saman i því að skýra þá
meginstefnu sem flokkurinn hef-
ur að leiðarljósi. Einnig um að
standa saman að því að flokkur-
inn myndi næstu ríkisstjórn og
auðvitað hlýtur það að vera mark-
mið flokksins að fá hreinan meiri-
hluta. En að minnsta kosti ér
stefnt að því að flokkurinn komist
í þannig stöðu, að framhjá hon-
um verði ekki gengið“.
Það vakti mikla athygli að
Gunnar Thoroddsen treysti sér
ekki til að lýsa yfir ótvíræðum
stuðningi við Sjálfstæðisflokkinn
í sjónvarpsviðtali nýlega. Hvernig
túlkar þú þá þögn hans?
„Ég minni á að Gunnar
Thoroddsen hefur verið í flokkn-
um frá unga aldri og þar á hann
heima. Mér dettur ekki annað í
hug en að hann komi til með að
styðja Sjálfstæðisflokkinn í
komandi kosningum“.
Að lokum Ellert, hvernig fer
það saman hjá þér að vera hvoru
tveggja ritstjóri á „frjálsu og ó-
háðu“ dagblaði og svo fram-
bjóðandi fyrir ákveðinn stjórn-
málaflokk?
„Ég er nú búinn að svara þessari
spurningu svo oft að það ætti að
Framhald á 2. síðu
„Verðbólgan var um 6% þegar
þetta tímabil hófst fyrir 12 árum
en er nú um 70% og sumum reikn-
ast hún reyndar enn hærri. Ekki
nóg með það, heldur á fólk erfitt
með að koma sér fyrir og þess eru
dæmi að launafólic verði að leita
til hjálparstofnana. Það eina ár
sem við vorum í stjóm gerðum við
tilraun til að knýja fram ger-
breytta efnahagsstefnu, en þegar
það kom í Ijós og það fullreynt að
það tækist ekki fórum við úr
ríkisstjórninni. Það er mjög ó-
venjulegt fyrir íslenskar aðstæður
að stjórnmáiaflokkur sýni þá á-
byrgðartilfmningu að leggja svo
ríka áherslu á stefnumið sín að
hann telji ekki að hann eigi að
taka þátt í ríkisstjóm ef hann nær
ekki fram sínum málum“.
Því næst greindi Kjartan nánar
frá efnahagsstefnu flokksins, sem
kynnt var í bæklingnum „Betri
leiðir bjóðast“ og þar sem megin-
áherslurnar komu fram undir
fjórum undirköflum: „Afkomu-
öryggi“, „Ný atvinnustefna“,
„Uppstokkun i ríkisbúskapnum ‘1
„Ábyrg samskipti“. Kjartan lagði
áherslu á að sem jafnaðarmanna-
flokkur legði Alþýðuflokkurinn
mikla áherslu á kjör þeirra sem
höllu'm fæti standa.
„Það hefur margvíslegur skaði
skeð á þessum síðustu árum og nú
er orðin þjóðarnauðsyn að menn
fari inn á nýjar brautir í efnahags-
stjórn. Ráð hinna flokkanna hafa
verið reynd. Þetta ástand sem hér
ríkir þýðir náttúrlega að það verð-
ur ekki hægt að segja já við öllu
og það gengur ekki að vera með
gylliboð og þau munu ekki koma
frá okkur .alþýðuflokksmönnum.
Skuldasöfnunin erlendis er stað-
reynd sem við getum ekki horft
framhjá, verðbólgan sömuleiðis.
Atvinnan er í hættu. En menn
hafa verið svo uppteknir að
bjargast frá degi til dags að menn
fái tækifæri til að dafna og að ný-
tækniiðnaður og nýjar atvinnu-
greinar eins og fiskirækt fái raun-
veruleg vaxtarskilyrði.
Jafnframt teljum við það nauö-
synlegt, að taka upp eftiriit með
óeðlilegri erlendri samkeppni við
íslenska framleiðslu og að ríkið
verði að ganga á undan í því að
kaupa islenskar vörur. Einnig
verður þegar í stað að taka upp
skynsamiegri stjórnun á fiskveið-
um, en hún hefur eins og kunnugt
er tekist mjög hrapalega að
undanförnu“.
Kjartan sagði nauðsynlegt aö
gera nýja hagstjórnar áætlun til
10-16 mánaða, þar sem afkomu-
öryggi sæti í fyrirrúmi.
„Það þarf í fyrsta lagi að breyta
greiðslubyrði af lánum þannig að
hún ráðist af tekjuþróun, þannig
að vinnutíminn sem þarf til að
standa undir afborgunum og
vöxtum sé ekki sífellt að lengjast.
í annan stað verður að auka hús-
næðislán, einkum til þeirra sem '
eru að byggja í fyrsta skipti og í
þriðja lagi verður að gera almennt
sparifé verðtryggt þannig að raun-
virði er skilað til sparifjáreigenda
og sparnaður aukist“.
Kjartan lagði áherslu á að
flokkurinn hefði lagt þessi mál
fram á þingi, sum hver fyrir mörg-
um árum, þannig að ekkert væri
eftir nema að samþykkja þau.
Hann taldi að i framhaldi af þessu
yrði að setja upp markmið um
gengisþróun er drægi úr verð-
bólgu. Gengið hefði nú á þriggja
mánaða skeiði fallið og sigið frá
áramótum um 22%. Hann sagði
að þessi hraði yrði að vera kominn
niður í fjórðung eða þriðjung þess
sem nú ríkir undir lok þessa 10-16
mánaða tímabils. Samræma yrði
verðiagsþróun og lækka vexti stig
af stigi.
„Þessu verður að fylgja eftir
með samningum um launaþróun,
Framhald á 2. síðu
Oddur A. Sigurjónsson látinn
Oddur A. Sigurjónsson fyrrum
skólastjóri og ritstjóri er látinn.
Oddur var skólastjóri lengst af
á Norðfirði frá 1937-1960 og eftir
það skólastjóri í Víghólaskóla í.
Kópavogi frá 1960-74. Hann var
bæjarfulltrúi á Norðfirði fyrir
Alþýðuflokkinn tvö kjörtímabil.
Oddur hafði mikinn og lifandi
áhuga á þjóðmálum alla tíð.
Hann gaf út blaðið Hamar á
Norðfirði en starfaði m.a. árum
saman á Alþýðublaðinu eftir að
hann fluttist suður.
Odds A. Sigurjónssonar verður
minnst hér sérstaklega í blaðinu
síðar. Útför hans verður gerð frá
Landakirkju á laugadag n.k.
Oddur A. Sigurjónsson