Alþýðublaðið - 03.05.1984, Side 2
2
Fimmtudagur 3. maí 1984
r-RITSTJORNARGREIN*
Það verður að stokka upp allt
verðlagningarkerfi landbúnaðarins
Söluskattsstrlð fjármálaráðherra og Mjólkur-
samsölunnar hefur vakið miklar umræður um
verðlagningu mjólkurafurða. í þeim efnum hef-
ur ýmislegt komið í Ijós, sem áður var hulið.
Meðal annars hefur komið ( leitirnar mikil og
vönduð skýrsla, sem Hagvangur gerði fyrir for-
sætisráðuneytið árið 1981 um vinnslu og dreif-
ingarkostnað mjólkurvöru.
Þessi skýrsla dregur upp dökka mynd af
mjólkuriðnaðinum i landinu, þar sem vlða virð-
ist vera hin mesta óstjórn. Ákvarðanir um fjár-
festingar eru ekki í neinu samræmi viö raun-
verulega þörf og ekkert samhengi er á milli
framleiðslukostnaðar og útsöluverðs. Ekki
ieikur á því vafi, að verðlagning mjólkurafurða
byggist á geðþóttaákvörðunum ráðamanna
mjólkurbúa og afurðasölufyrirtækja.
Verðákvarðanir eru teknar í samræmi við þá
fjárþörf, sem ráöamenn telja vera fyrir hendi
hverju sinni vegna fjárfestinga, sem þeir leggja
i, án tillits til heildarsamræmingar í mjólkur-
framleiðslunni. Þannig verðaframleiðendurog
neytendur fyrir fjárhagslegu tjóni vegna þess
stjórnlausa valds, sem dreifingar- og vinnslu-
kerfi mjólkur hefur beitt.
í skýrslu Hagvangs er farið kurteislegum
orðum um ástæðurnar, en ekki fer á milli mála,
að sérfræðingum fyrirtækisins hefur ofboðið.
Þeirkomast m.a. að þeirri niðurstöðu, að jöfn-
un mjólkurframleiðslunnar gæti jafngilt allt að
20% sparnaði (fjárfestingum, eða sem nemur
vinnslugetu mjólkurbús.sem vinnurúr20 millj-
ón Ktrum af mjólk á ári.
Þegar Alþýðublaðið hafði birt úrdrátt úr þess-
ari skýrslu lýstu forráöamenn bændasamtak-
anna yfir þvf, að hún hefði alla tíð legið á lausu
og engin leynd hefði hvllt yfir henni. Þetta er
auðvitað hreint bull. Ef þessir sömu menn
hefðu viljað taka mark á niðurstöðum skýrsl-
unnar og gera þetta ófremdarástand lýðum
Ijóst, hefði þeim borið skylda til þess, að taka
þetta mál mjög föstum tökum. En þeir hafa lát-
ið reka á reiðanum, framleiðendum og neyt-
endum til stórtjóns.
Það, sem er verulega eftirtektarvert ( þessu
máli er það, að Morgunblaðið hefur varla
minnst á það. Sjálfstæðisflokkurinn er nú slík-
ur bandingi Framsóknar, að málgagn hans
minnist ekki á það, þegar í Ijós kemur, að verð-
iagningarkerfi landbúnaðarafurða er hreinn
óskapnaður, sem kemur harðast niður á neyt-
endum.
Það virðist ekki skipta „blað allra lands-
rnanna" neinu máli, þótt sérfræðingar hafi
komist að þeirri niðurstöðu, að verðlagning
mjólkurvara er ekki byggð á upplýsingum um
raunverulegan framleiðslukostnað einstakra
vörutegunda, heldur eingöngu stuðst við upp-
lýsingar frá Mjólkursamsölunni í Reykjavík,
sem er úrvinnslu- og dreifingaraðili, og er að
reisa nýja mjólkurstöð, er mun kosta hátt í hálf-
an milljarð króna.
Framsóknarflokkurinn mun auðvitað ekki
hreyfa hönd eða fót I þessu máli. Það er honum
of skylt. Sú ábyrgð hvílir hins vegar á hinum
stjórnarflokknum, að hann láti það ekki við-
gangast að kerfi það, sem notað ervið ákvörð-
un vinnslu- og dreifingarkostnaðar, sé veru-
legagallað. í framhaldi af nauðsynlegri endur-
skoðun og uppstokkun á verðlagsgrundvelli
mjólkurafurða, verður að brjóta upp allt verð-
lagningarkerfi landbúnaðarafurða, og reyna að
koma við meiri hagræðingu og sparnaði.
- ÁG -
PÓST- OG SÍMA-
MÁLASTOFNUNIN
óskar aö ráða
aðstoðarmenn við bilanadeild stofnunarinnar.
Umsækjendur þurfa að vera a.m.k. 25 ára gamlir
og hafa góða framkomu. Nánari upplýsingar
verða veittar hjá starfsmannadeild stofnunarinn-
arog Þorleifi Björnssyni yfirdeildarstjóra bilana-
deildar.
Norðurlandaráð
óskar eftir að ráða
ritara
Samgöngumálanefndar
Norðurlandaráðs
Forsætisnefnd Norðurlandaráðs auglýsir lausa til um-
sóknar stöðu ritara samgöngumáianefndar Norður-
landaráðs. Staðan er laus frá 1. september 1984.
I Noröurlandaráöi starfa saman ríkisstjórnir og þjóð-
þing Norðurlanda.
Samgöngumálanefnd Norðurlandaráðs fjallar meðal
annars um samstarf landanna um samgöngu- og f lutn-
ingamál, ferðamál, umferðarmál, fjarskiptamál og
tölvutækni innan þessara málaflokka.
Ritara nefndarinnar ber að undirbúa nefndarfundi,
semja drög aö nefndarálitum og ályktunum um þau
mál, sem fyrir nefndinni liggja. Auk þess ber honum að
sinna almennum ritarastörfum fyrir nefndina. Ritarinn
hefur aðsetur í Stokkhólmi og starfsaðstöðu á skrif-
stof u forsætisnef ndar Norðu rlandaráös, sem er við Tyr-
gatan 7, Stockholm.
Ritarastaðan er veitt til fjögurra ára, en mögulegt er í
vissum tilvikum að fá ráðningarsamning framlengdan.
Rikisstarfsmenn sem starfa hjá Norðurlandaráöi eiga
rétt á fjögurra ára leyfi frá störfum í heimalandi sinu.
Föst laun ritara samgöngumálanefndar verða á bilinu
10.286—12.851 sænskar krónur á mánuði auk staðar-
uppbótar. Við ákvörðun um launakjör er tekið tillit til
fyrri starfa, hæfni og reynslu. Staða þessi er einungis
auglýst á Islandi. Góð kunnátta ( dönsku, norsku eða
sænsku er nauðsynleg.
Nánari upplýsingar um stöðuna veita Friðjón Sigurðs-
son skrifstofustjóri Alþingis, í sfma 15152, Snjólaug
Ólafsdóttir ritari íslandsdeildar Norðurlandaráðs, í
síma 11560, ásamt llkka-Christian Björklund, aðalritara
forsætisnefndar Norðurlandaráðs, Ake Petterson vara-
ritara samgöngumálanefndar Norðurlandaráðs í síma
8/143420 í Stokkhólmi.
Umsóknarfrestur rennur út 15. maí 1984. Umsóknum
skal beina til forsætisnefndar Norðurlandaráðs og
skulu þær sendar til Nordiska rádets presidiese-
kretariat, Box 19506, S 104 — 32 Stockholm.
Lánin 1
fram við frumvarp að lögum um
Húsnæðisstofnun ríkisins, felst
m.a. eftirfarandi:
1. að efla félagslegar íbúðarbygg-
ingar og tryggja að lánakjör
rýrni ekki frá því sem nú er,
2. að endurskoða skipulag og fjár-
mögnun félagslegra íbúðabygg-
inga og skapa nýja valkosti í hús-
næðismálum landsmanna,
3. að jafna lánskjör milli kaupa á
nýju og notuðu húsnæði,
4. að vaxtaákvarðanir verði ekki í
höndum ríkisstjórnar heldur
verði hámark vaxtastigs ákveðið í
lögum um Húsnæðisstofnun
ríkisins eins og verið hefur.
5. að tryggja Byggingarsjóði ríkis-
ins og Byggingarsjóði verka-
manna fastan tekjustofn og auk-
ið framlag úr ríkissjóði. Mark-
miðið er að ryðja braut til þess að
hægt verði að hækka lánshlutfall
í áföngum á næstu árum í 80%
byggingarkostnaðar. Og að
Byggingarsjóður verkamanna
geti fjármagnað a.m.k. einn
þriðja hluta af árlegri íbúðaþörf
landsmanna án þess að fjárhags-
stöðu sjóðsins sé stefnt í gjald-
þrot með stórfelldum lántökum,
6. að tryggt verði að lánshlutar fylgi
breytingu á lánskjaravísitölu
þannig að lánveitingar rýrni ekki
þegar lán eru greidd út í tvennu
eða þrennu lagi,
7. að viðskiptabankarogsparisjóð-
ir auki til muna lánveitingar til
húsnæðismála.
Samstaða 4
daginn 11. apríl hafa fangaverðirnir
neytt niður í okkur matinn. Kropo-
wicki tekur við magaslöngunni án
þess að veita viðnám, en sjálfur
reyni ég að verjast mötuninni.
Undanfarna þrjá daga hef ég verið
gerður varnarlaus með því að hand-
járnum hefur verið skellt á mig og
svo ráðast þau á munninn með kú-
beini og öðrum pyntingum. Ég er
tjóðraður niður í stól og síðan er
trampað á tánum á mér og snúið
upp á hendur og fætur, — yfirleitt
í gagnstæðar áttir þannig að þeir
sem snúa upp á handlegginn neyða
mig til að rétta úr mér, en hinir sem
snúa upp á fæturna koma í veg fyrir
að ég geti það. Eða þeir skorða fæt-
ur mína við rúmbríkina og einn
þeirra sest á mig og snýr upp á hné-
skeljarnar. Eða þá þeir þrýsta sköfl-
ungunum á mér úpp að rúmstokkn-
um og einn fangavarðanna snýr
höfði mínu aftur og þrýstir á
kjálkaliðina á meðan læknir eða
hjúkrunarkona ræðst á skoltana á
mér með töng. Þegar ég öskra er
töngin rekin upp í kjaftinn á mér og
þar með er ég á þeirra valdi. Það
eina sem þá þarfa að gera er að
þræða slönguna ofan í mig og hella
vellingnum í.
Það eru yfirleitt fimm til sex
fangaverðir, einn læknir og ein
hjúkrunarkona, sem sjá um mötun-
ina. Ein af hjúkkunum tekur þátt í
pyntingunum. Hún fann það út að
það er mjög sársaukafullt að þrýsta
fast á sogæðarnarý skrifar hann og
lýkur svo frásögn sinni með því að
upplýsa, að fimm af fangelsuðu
Samstöðumönnunum, eru í
einangrunarklefum. Þrír þeirra í
svokölluðum „hitabrúsum“, sem
eru auðir klefar með tvöfalda veggi,
ekkert salerni, vatn eða ferskt loft.
„Ég vona að þann 1. maí í ár verði
aftur mótmælt kröftuglega einsog
undanfarin ár. Það er mjög mikil-
vægt að halda þeirri venju. Ef það
leggst af er hætt við að þess verði
langt að bíða að aftur verði risið
upp. Ég sendi öllum, þeim sem
muna og halda áfram baráttunni,
kveðju mína.
Bréfið er dagsett þ. 13. apríl í
Barczewo- fangelsi og undirritað af
Andrzej Slowikl
•5 Skólastjóri
y? Tónlistarskóla
Staða skólastjóra við Tónlistarskóla
Garðabæjar er laus til umsóknar. Um-
sóknum ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf skal skila til undirritaðs
eigi síðar en 30. maí n.k.
Bæjarritarinn í Garðabæ
Frá Mýrarhúsaskóla
Innritun nýrra nemenda fer fram fimmtudaginn 3.
maí
Skólastjóri
Tökum að okkur
hverskonar
verkefni
í setningu,
umbrot og
plötugerð, svo
sem:
Blöð í dagblaðaformi
Tímarit
Bœkur
o.m.fl.
Ármúla 38 —
Sími 81866