Tíminn - 21.03.1967, Qupperneq 12

Tíminn - 21.03.1967, Qupperneq 12
12 TÍMINN ÞRIÐJUDAGUR 21. marz 1967 MINNING Úiafur Daníelsson Hurðarbaki f dag er borinn til grafar að Leirá í Leirársveit heiðursbónd- ínn og fróðleiksmaðurinn Ólafur Daníelsson að Hurðarbaki í Svína dal. Hann fæddist á næsta bæ við Leirá, hvarf aldrei langt frá upp- runa sínum, og nú er hann lagður til hvíldar, sem næst því er vagga hans stóð. Ólafur Daníelsson var fæddur að Melkoti í Leirársveit hinn 4. apríl 1895, elztur af 10 börnum hjónar.na Daníels Ólafssonar og Steinunnar Ólafsdóttur, sem þar bjuggu. Daníel faðir Ólafs lézt árið 1916, en móðir hans Steinunn, lifði fram í háa elli og dó fyrir tveimur árum, níræð að aldri. Fyrst um sinn eftir lát manns síns hafði hún haldið saman búi með börnum sínum, en árið 1921 brtó hún núi og fluttist til Akraness, en börnin fengu samastaði hvert í sinni áttinni. Ólafur fór að Efra skarði og var þar til 1923, en þá fluttist hann að Kambshóli í Svína dal og hóf þar búskap. Hann kvæntist Þórunni Magnúsdóttur frá Efra-Skarði hinn 28. desember það ár. Á Kambshóli bjuggu þau ihjónin aðeins eitt ár, en vorið 1924 fluttust þau að Hurðarbaki í sömu sveit, og þar bjuggu þau upp frá því eða samtals 43 ár. Þórunn, kona Ólafs er enn á lífi og býr áfram að Hurðarbaki með Árna syni þeirra, er lengi hefur verið stoð þeirra og stytta við búskapinn. Þau Ólafur og kona hans eign- uðust sex börn, sem öll eru á lífi. Þau eru: Magnús Daníel, verk- stjóri í Hvalstöðinni í Hvalfirði, kvæntur Kristínu Jónsdóttur frá Neðrihrepp; Sigríður, húsfreyja í Reykjavík, gift Sigurmundi Björnssyni bifreiðastjóra; Ingólf- ur, kaupfélagsstjóri hjá KRON í Reykjavík, kvæntur Erlu Bjarna- dóttur; Óskar, starfsmaður hjá Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi, kvæntur Margréti Jafetsdóttur; Steinunn Daníelína, húsfreyja á Akranesi, gift Jóni Péturssyni vél- virkja, og áðurnefndur Árni, sem nú býr með móður sinni að Hurð arbaki. Ólafur á Hurðarbaki gerði ekki víðreist um dagana. Alla sína sögu átti hann innan sömu sveitar að kalla, þar sem hann bjó sem bóndi meðal bænda. Ekki er mér næsta kunnug búskaparsaga hans, enda er það ekki hennar vegna að ég minnist hans nú, þegar hann er allur, heldur vegna þeirra sam- skipta, sem með okkur tókust á efri árum hans, á allt öðrum vett- vangi. Þegar Þjóðminjasafn ís- lands hóf að safna ýmsum fróð- leik varðandi þjóðhætti á fyrrij tíð, var Ólafur á Hurðarbaki einn | þeirra mörgu góðu manna, sem i við komumst í samband við, og hann varð einn okkar traustasti 'samstarsmaður, meðan kraftar hans entust. Hann tók af okkur margar spurningaskrár og lagði mikla vinnu í að svara þeim. Hann var mjög vel heima í öllu er laut að þjóðháttum og gömlum atvinnu háttum í ‘sínu umhverfi, og allt sem hann miðlaði okkur af slíkum fróðleik var með því marki, að það vakti sérstakt traust. Hann átti heima á sömu slóðum alla sína ævi, og hann þekkti þetta svið út í æsar og það líf sem þar hafði verið lifað á hans dögum pg reynd ar töluvert lengra aftur, á 19. öld, meðan hin gamla íslenzka bænda- menning var enn í skium föstu skorðum. Frá slíku kfmni hann vel að segja á sinn sérstæða gagn orða hátt. Hann skreytti ekki mál sitt með fjölskrúðugum frásagnar brögðum, en kjarni málsins naut sín að því skapi betur. Slíkir heimildarmenn eru gulls ígildi. Þeim fækkar nú óðum, sem þess eru megnugir að miðla lifandi fróðleik um þá gömlu alþýðumenn ingu, sem áður var og við erum flest íunnin upp úr. Ólafur Daníels son á Hurðarbaki var einn þeirra. Skal þess nú minnzt, sem hann lét af mörkum úr sjóði lífsreynslu sinnar og minninga, um leið og hann er kvaddur með virðingu og þökk Kristján Eldjárn. r _ ___ m UTGERÐARSTOÐ TIL SÖLU Eignir h.f. Miðnes í Sandgerði, eru til sölu ef við- unandi tilboð fæst. Nánari upplýsingar gefur undir- ritaður. Björn Sveinbjörnsson, hæsfaréttarlögmaður Sölfhólsgötu 4. Sími 12343 og 23338. Utbod Kópavogskaupstaður óskar eftir tilboðum í við- byggingu við Kópávogsskóla við Digranesveg. — Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu minni, gegn 2000 kr. skilatryggingu. Tilboðum sé skilað í síðasta lagi 3. apríl. Kópavogi 20 apríl 1967. BÆJARVERKFRÆÐINGUR Jón Gré'rar Siaurðsson héraðsdómslöomaður Austurstrceti b, 18783 Fermingarföt Aliar stærðir Ný efni og snið. Terelyne og ull. DreRgjajakkaföt íxp 6—14 ára Úrvalsefni Matrosföt — Matroskjólar Síakir kragar — fiautubönd. ðarnaúlpur, Drengjapeysur Drengjaskyrtur, hálfvirði rt 75,00. Drer-gjabuxur, Drengjasokkar. kr. 30,00. Fyrirliggjandi Dúnsængur, gæsadúnn. Rúmteppi, 2,ia manna (Dialon). Koddar, Sængurver, lök. PATTONS-ULLARGARNIÐ Þl í fimm grófleikum. - Litaúrval, — hleypur ek|ci. SencííS fyrirspurnir. Póstsendum. — ves»urgötu 12. Simi 13510 WILTON TEPPADRBCLAR TEPPALACNIR EFTIR MÁLI Laugavegi 31 - Sími 11822. Rannsóknastarf Aðstoðarstúlka óskast við sýklarannsóknir á Rannsóknarstofu Háskólans. Laun verða greidd eftir launakerfi ríkisstarfsmanna. Umsóknir send- ist Rannsóknastofnuninni fyrir 1. apríl n.k., ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf. Stúdents- menntun eða sérmenntun í rannsóknatækni æski- leg. Rannsóknarstofa Háskólans við B^rónsstíg. ÖTIHURDIR SVALAHURÐIR BÍLSKÚRSHURÐIR HURDAIDJAN SF AUDBREKKU 32 KÓPAV. SÍMI 41425 ÞÝZKAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR úr harðplasti; Formal: innréttingar bjóða upp á annaíí hundrað tegundir skópa og litaúr- val. Allir sképar með baki.og borðplata sér- smíðuð. Eldhúsið fasst með hljóðeinangruð- um stéívaski og raftækjum af vönduðustu gerð. - Sendið eða komið með mél af eldhús- inu og við skipuleggjum eldhúsið samstundis og gerum yður fast verðtilboð. Ótrúlega hag- stætt verð. Munið að söluskattur ér innifalinn í tilboðum frú Hús & Skip hf. Njótið hag- stæðra greiðsluskilmóla og lækkið byggingakostnoðinn. SR—KR Framhald af bls. 13. yfir leikmönnum og áður. Hjörtur var stigahæstur, skoraði 18 stig, Gunnar G. skoraði 12, Einar BoU^t son 11, Kolbeinn 10 og Kristírm Stefánsson 9. Dómarar voru Jón Eysteinsson og Marinó Sveinsson og dæmdu leikinn vel, nema hvað Marinó gerði sig sekan um smávægileg mistök, sem KR græddi á. FH—VALUR Framhald af bls. 13. í byrjun síðari hálfleiks virt- ust Valsmenn ætla að vakna af dvalanum. Bjarni Jónsson og Stef- án Sand'holt skoruðu 2 mörk i röð og staðan var 13:10. En það var allt og sumt. PH-ingar hófu stór skotasókn og fljótlega mátti sjá á markatöflunni 19:11. Lokatölur urðu 25rl5, sem sé 10 marka mun- ur. Þessi leikur var nokkur upp- reisn fyrir FH eftir ófarir í síð- ustu leikjum. Nú var hraðinn aftur á dagskrá og með 'honum tekst FH að rugla mótherjana í ríminu, þó svo, að FH takist ekki að nýta nærri nógu vel eyðurnar, sem myndast. Stundum hefur mað ur það á tilfinning.unni, að FH leiki hratt aðeins hraðans vegna. En hvað iim það, hraðinn er vopn sem dugar FH bezt, og að þessu sinni leyfðist engum leikmanna að draga úr honum. Örn, Geir og Fáll voru skæðuistu sóknarmenn liðsins, en í vöminni bar mest á Birgi Björnssyni, Einari Sigurðs- syni, Jóni Gesti, Auðunni — og reyndar Geir, sem var drjúgur í miðlherj astöðunni og tókst að stel- ast inn í sendingar Valsmanna. Þá má ek'ki gleyma Kristófer, aem varði vel, en að vísu voru sum skot Valsmanna auðveld. Mörk FH skoruðu: Geir 8, Örn 7, Páll 5, Auðunn 2, Birgir og Árni og Jón Gestur 1 hver. Ragnar Jónsson var í skotstuði, en hafði ekki árangur sem erfiði, tókst ekki að skora eitt einasta mark. Sóknarleikur Vals var mjög þungur og vantaði alla hreyfingu. 'Hermann Gunnarsson var mjög miður sín í þessum leik og tókst einungis að skora 2 mörk. Sama var að segja um Berg. Hann skor- aði reyndar 7 mörk, en þar af 6 úr vítaköstum. Þegar þessir tveir leikmenn Vals leika undir getu, er ekki von á góðu. Stefán Sandholt skoraði 2 mörk, Ágúst, Bjarni, Gunnsteinn og Jón Karls- son 1 ihver. Karl Jéhannsson dæmdi leikinn af slíkri festu og öryggi, að hug- mynd um tveggja dómara kerfi virðist fjarlæg og afkáraleg. Ef við ættum marga dómara á borð við Karl Jóhannsson, værum við í ör- uggri höfn í dómaramálunum. —alf. W) Eil RAFTÆKI HÚS & SKIP hf. LAUGAYICI II • SIHI 2151 S BADMINTON Framhald af,bls. 13. Sigurðardóttir Jóninu Niljónusar dóttur í úrs'litum 11:9 og 11:7. Og í tvíliðaleik kvenna sigruðu Lovísa og Hulda Guðmundsdótt ir þær Jónínu og Rannveigu Magnúsdóttur 11:15, 15:10 og 15:0. Næsta óvenjuíegt er, að ekki sé skorað í heilli lotu, eins og þarna skeði í oddinum. í tvenndarkeppni léku Lovísa og Jón Á. saman gegn hjónunum Jónínu og Lárusi . Guðmundssyni og sigruðu 15:6 og 15:12. í 1. flokki léku til úrslita í einliðaleik Friðleifur Stefáns- son, KR, og Björn Finnbjörns- son, TBR. Sigraði Friðleit'ur 15:3 og 18:13. Friðleiiur hefur tekið miklum framförum og verður gam an að fylgjast meo honum. f tvíliðaleiknum komu strak- arnir Haraldur Kornilíusson og Bjöm Finnbjörnsson á óvar með því að sigra Fri'ðleif oe Gunnar Felixison, KR, 15:6, 8:15 oe 15:7.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.