Tíminn - 11.05.1967, Page 8

Tíminn - 11.05.1967, Page 8
8 ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR FIMMTUDAGUR 11. maí 1967. Nítján valdir til lokaæfinga í Rvík Hætt við æfingabúðir, en landsliðsæfingamar verða haldnar í Reykjavík um hvítasunnuna Alf-Reykjavík. — Landliðsnefnd Knattspyrnusambands fslands, skipuð þeim Sæmundi Gíslasyni og Reyni Karlssyni, landsliðsþjálf ara, hefur nú valið 19 leikmenn til lokaæfinga undir landsleikinn við Spán, sem verður síðast í þessum mánuði. Líklegt er að landsliðið verði nær eingöngu valið úr þess um 19 manna hóp, en þó getur verið um frávik að ræða. Sú ráðagerð að fara með hópinn í æfingabúðir utan Reykjavíkur um hvítasunnuna er fokin út í veður og vind. Þess í stað hefjast lokaæfingamar í Reykjavík á laug ardaginn og verður æft þann dag og eins á sunnudaginn, en annan í hvítasunnu verður fri í 19 manna hópnum eru sex Keflvíking ar, 4 HR-ingar og 4 Vafesmenn, 3 Framarar, 1 Akureyringnr og 1 Akurnesingur. Þessir leikmenn hafa verið valdir: KR-piltar til Berlínar * r r I 2. flokks lið KR í knatt- spyrnu mun fara í keppnis för til Vestur-Berlínar í ág úst n. k. í Vestur-Berlín verða KR-piltarnir á vegum vinafélags KR, Blue Weiss, sem oftsinnis hefur^ komið með unglingalið til íslands. Tvö íslands- m met voru sett Á afmælissundmóti Ármanns, sem háð var í Sundhöll Reykja- víkur í fjyrakvöld, voru sett tvö fslandsmet í boðsundum — og í báðum tilfellum voru Ármanns- sveitir að verki. í 4x50 metra fjórsundi setti karlasveitin nýtt met, synti á 2;02,0 mínútum, en fyrra metið var 2:04,7 míniútur. Átti Ármann einnig það met. í 3x100 metra þrísundi setti kvenna sveitin nýtt met, synti á 3:58,1 mín útum, en gamla metið var 4:02,8 mínútur. Og einnig var hér Ármanns-met slegið. Árangur á þessu afmælissund- móti Ármanns var yfirleitt nokk uð góður og setti unga fólkið sinn svip á það eins og undanfar- in mót. Guðmundur Gíslason, nú Ármenningur, náði ágætum tíma í 200 metra bringusundi, synti á 2:40,3 mfraútum, sem er prýðis- árangur. Markverðir: Guðmtmdur Pétursson, KR Kjartan Sigtryggsson, Keflavik Signrður Ilagsson, Val. Bakverðir. Ámi Njálsson, Val Jóhannes Aflason, Fram Guðnd Kjartansson, Keflavík Miðverðir. Sigurður Albertsson, Keflavik Ársæll Kjartanssom, KR Anton Bjamasan, Fcam Framverðir. Ellert Stíhram, KR Magnús Torfason, Keflavik Framherjar. Eyleifur Hafsteinsson, KR Elmar Geiisson, Eham Ingvar EKsson, Val Hermann Gtmnarsson, Val Kári Ámason, Akm-eyri Björn Lámsson, Akranesi Jón Jóhannsson, Keflavfk Valur og Þrótt- ur leika í kvöld Fjórði leikur Reykjavíkurmóts- ins í knattspymu verður háður á Melavellinttm í kvöld. Leika þá Valur og Þróttur. Hefst leikurinn klukkan 8. Mikil þátttaka í skíöamöti UMSE Umf. Svarfdæla sigraði í stigakeppninni f síðasta mánuði efndi UMSE til skíðamóts á Dalvík. Þátttakendur voru frá Umf. Svarfdæla, Umf. Reyni, Umf. Skriðuhrepps, Umf. Ársól og Árroðans og Umf. Þor- steini Svörfuði. í stigakeppni fé- laganna bar Umf. SvarOlæla sig ur úr býtum, hlaut 83,5 stig, en Umf. Reynir varð í öðru sæti, hlaut 15,5 stig. Þátttaka var mjög góð. Hér á eftir verður getið um sigurvegara ■ hverri grein. í stórsvigi kvenna bar Kristrún Hjaltadóttir, Umf. Sv. sigur úr býtum — og í stórsvigi karla Heiðar Árnason, Umf. Svarfdæla, stjgahæsti einstaklingurinn i karla. greinum. Frá laodsliðsæflngu í knaftspyrnu ( vor. Ellert Schram er með knötflnn, t. h. Vtð MI3 hans er Þorsteinn Friðþjófsson. Lengra frá sjást Elmar Geirs son og Ingvar Elísson. Eflaust verða skiptar skoðanir um það, hvort þetta séu 19 sterk nstu leflonenn okkar í dag, en erf itt hefnr verið fyrir landsliðsnefnd að velja, þar sem aðeins örfáir leik ir hafa verið leiknir í Reykjavík. Akureyri hefur engan leik leikið — og Keflavík og Akranes — einu liðin í nágrenni Reykjavíkur, sam virðast eiga „landsliðs-kanditata" — hafa aðeins leikið tvo leiki inn byrðis. Leikjabókin væntan- í næstu viku Leikjabókin í knattspyrnu kem ur væntanlega ut í næstu viku, en útkoma hennar hefur tafizt vegna breytinga, sem orðið hafa í byrjun keppnistímabilsins. Marg ir hafa spurt eftir bókinni — og væntanlega geta menn fengið hana í næstu viku. í bókinni er hægt að fá upplýsingar um aHa knartt spyrnuleiki sumarsins, sem fara fram á vegum KSÍ og KRR, tóma- og staðsetningu. Heiðar Árnason úr sama félagi. í stökki karla sigraði Ríiklharður Bjömsson, Umf. Sv, en í stökki drengja Árni Björnsson, Umf. Þ. Sv. í svigi drengja sigraði Sig- valdi Júlíusson, Umf. Sv. í svigi kvenna sigraði Helga Jóhannsdótt ir úr sama félagi — og í svig keppni karla sigraði Heiðar Áma son. í 4x2,5 km. göngu drengja, 16 I ára og yngri, sigraði sveit Umf. j Skriðuhrepps. í sveitinni voru Halldór Þórisson, Valgeirs Guð- mundsson, Anton Þórisson og GMsli Pálsson. Gísli Pálsson hlaut bezta tímann af einstaklingum. í 4x5 km göngu karla sigraði sveit Umf. Svarfdæla, en í sveitinni vora Stefán Steinsson, Þorsteian Skaftason,_ Baldur Friðleifsson og Heiðar Árnason. Beztan tíma hlaut Bergur Höskuldsson, en hann var í sveit Um. Ársólar og Árroðans. Stigahæstu einstaklingar voru Heiðar Ámason í karlaflokki, Krist rún Hjaltadóttór í kvennaflokki og í drengjaflokki Sigvaldi Júlíusson, öll úr Umf. Svarfdæla. í lok keppninnar var sigurveg- urum í hverri grein afhentir verð launapeningar. Umf. Svarfdæla var afhent Skíðastytta UMSE, sem félagið vann nú í annað sinn í röð. Drengja-boðgöngusveit Umf. Skriöuhrepps. Talið frá vinstri: Gísli son, Anton Þórisson, Valgejr Guðmundsson og Halldór Þórisson. Fyrsti leikurínn í 7. deili 27. maí - þá leika Keflavík og Akureyri Alf-Reykjavík. — Fyrsti leik urinn í 1. deildar keppninni í knattspyrnu í ár fer fram laug ardaginn 27. maí. Þá mætast á Njarðvíkurvellinum Keflavík og Akureyri. Eftir þennan fyrsta leik mótsins verður r.okk urra daga hlé vegna landsleiks ins við Spánverja, sem háður verður 31. maf, en strax i júní hefst keppnin af fullum krafti aftur. Önnur knattspyrnumót, svo sem 2. deildar keppnin, hefjast um líkt leyti. í Reykjavík hefj ast knattspyrnumót yngri ald- ursflokkanna ednnig í júníbyrj un, en keppni 1. flokks hefst að öllum líkindum um aðra helgi.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.