Tíminn - 19.05.1967, Blaðsíða 11

Tíminn - 19.05.1967, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 19. maí 1967 TÍMINN n TÓNLEIKAR Framhalri af bls. 5 á kromatisku fantasíunni og sérf í lagi fúgunni, var réleg og áferSarfalleg. Gunnar Björnsson hefur þeg ar til að bera staðgóða taekni, ásamt ágætum túlkunarhæfi- leikum og frábæru tónminni. Einleikssónötur Baeh, eru brautreyndum listamönnum mikill vandi, en í því verkefni sdóð Gunnar sig afburðavel. Sama má segja um túlkun hans á e-moll sónötu Brahms, þar hafði hann mikið fram að færa frá sjálfum sér. Frammi- staða hins unga fólks var bæði kennurum og skóla til sóma, og óskar undirrituð þeim alls góðs á þroska- og framfara- braut. Góð aðsókn og hlýlegar móttökur álheyrenda báru vott um skilning og áhuga á starfi og afrekum hinna ungu nem- enda. Unnur Arnórsdóttir. —------ 1 1 BARÁTTA Framhald af bls. 8. í bygigð og framleiða þá holl- ustu og beztu fæðru, sem kost- ur er á fyrdr þjóðina alla. Að það metur og virðir fóstur og uppeldi þess fjiöldia barna og unglinga, sem átt hafa þess kost undanfarin sumiur, að njóta sveitalífsins. Að hin svo- nefnda „almenna velgengni" þjóðarinnar er ekki orðin tóm, heldur getur hún nú staðið við stóru orðin og veitt næigilegt fjiármagn tafarlaust til þess að bjarga frá tímabundnu haliæri í byggðum landsins. Páll H. Jónsson. SJÓNVARPIÐ Framhald af bls. 5. gerist með barnakóra, en laga- vaiið var leiðinlegt og kómum var ætiaður alitof langur tími. Eitt tii tvö lög hefði verið nóg. Ekki verður sagt að sjón- varpið hafi frumftatt fyrsta leikritið með sérstökum glaesi- brag, enda var varla til þess ætiazt. Það er allt annar hand- leggur að sýna leikrit á sviði heldur en í sjónvarpi, sem hef- ur kvikmynda- og upptöku- tækni að bakhjarii til að gera verkið lifandi og skemmtilegt, en upptaka þessa leikrits var ákaflega einhliða, og tæknin að litLu nýtt. Þess ber þó að gæta, að leikritið var alls ekki samið eða æft fyrir sjónvarp og leik- tjöld ekki gerð með sjónvarps- upptöku fyrir augum, svo að sjónvarpsmönnum hefur verið nokkuð erfitt um vi'k. Síðasta atriðið á þessari kvölddagskrá var látbragðsleik ur meistarans Marcel Mareau og Sisi Jeanmera, listrænt og einkar skemmtilegt atriði. Af sjónvarpsefni næstu viku má efna dagskrá um Bítlana frá Liverpool, sem flutt verð- ur á mánudaginn, kvikmynd úm Kátrínu mikiu eftir Alex- ander Korda, en hún verður flutt á miðvikudaginn. BRUNI Framhald af bls. 2 tryggður.'Hins vegar tókst slökkvi liðinu að koma í veg fyrir að eld- urinn kæmi?t í íbúðina á hæðinni fyrir ofan, en þar urðu þó mikl- ar skemmdir af reyk og vatni. . Eigandi verzlunarinnar hafði kjallarann á leigu, og verzlaði hann með ýmsan varning, matvör ur, fatnað o. fl. Svo sem að framan greinir er ókunnugt um eldsupptök, en réttarhöld stóðu yfir í málinu í dag. HUMARVERÐ Framhald aí bls. 2. kola og var þeirri verðákvörðun því vísað til úrskurðar yfirnefnd- ar. Það verð á að gilda frá 1. júní n.k. Samfcvæmt ákivörðun verðlags- ráðs í gær, verður lágmarksverð á humar í ár sem hér segir: — 1. flokkur (ferskur og heill, sem gefur 30 gr. hala og yfir) 70 krónur pr. kg. 2. flokkur (smærri, þó ekki undir 70 cm. hala og brotinn stór) 28 krónur pr. kg. Verðin eru miðuð við slitinn bumar. GERFIHNETTIR Framhald af bls. 2 Það eru þrír veðurhnettir sem fara á braut yfir ísland. Liggur braut þeirra yfir þæði heimsikaut- in og koma þeir hingað frá norðri og fara yfir til suðurs. Að öllu jöfnu er ekki tekið á móti myndum héi nema frá einum þesisara gerfihnatta, enda reynast myndir frá honum mun skýrari en írá hinum tveimur. Gerfihnött ur þessi nefnist SR-2 og fer hann umhverfis jörðu á tveim tímum. Þegar hann er yfir íslandi sendir hann sjálfkrafa út myndir af yfir- iborði jarðarinnar og skýjafari. Er þá eKki annað að gera fyrir starfs menn veðurstofunnar er að setja JarSarför Benedikts Sveinssonar, bókara, Borgarnesi, fer fram frá Borgarneskirkju, laugardaginn 20. maf kl. 13.30. Ferð verður frá Umferðamiðstöðinni kl. 8 sama dag. Jóhanna Jóhannsdótflr. Við þökkum af alhug vináttu vlð andlát og útför ArnheiSar Bjornsdóttur. Arnheiður Sveinsdóttlr, Sveina Sveinsdóttir, Björn Pálsson, Jóna Svelnsdóttir, Þorkell Hjálmarsson, Þórunn Sveinsdóttir, Björn Stefánsson, Hulda Sigfúsdóttir, Einar Sveinsson og barnabörn. Jarðarför eiginmanns míns og föður okkar, Guðjóns Jónssonar, Reykjum, Vestmannaeyjum, fer fram frá Landakirkju, laugardaginn 20. maí ki. 2 e. h. Minning- arathöfn úr Kópavogskirkju verður útvarpað ki. 10.30 f. h. sama dag. Bergþóra Jónsdóttir og börn. móttökutækin í gang sem skila myndinni jiafnóðum út úr þar til gerðu tæki. Blaðamönnum var fyrir nokkru boði|ð að fylgjast með, er tekið var á móti myndunum frá gerfi- hnettinum og hvernig veðurfræð ingar vinna úr þeim. Mátti gjörla sjá á þeim hvernig veðurfar var á öllu Norður-Atlantshafi og einn ig itígu hafíssins fyrir norðan landið var. En með tilkomu veður hnattanna verður auðvelt að fylgj ast með ísröndinni hverju sinni. Búizt er við að í framtíðinni kunni þessir gerfihnettir að breyta veðurspám mikið. Bæði er að þær verða nákvæmari og hægt verður að spá um veðurfar á stór um svæðum lengra fram í tímann en nú er. JAKOB OG ÞORSTEINN Framhals af bls. I. lagsmálum og stjórnmálum, m. a. sem blaðamaður við hið myndar- lega flokksblað sunnlenzkra Fram sóknarmanna, Þjóðólf. Ég spái þvi, að er tímar líða, fái Sjálfstæðis- menn að kynnast Sandvíkurbónd anum, sem mjög ákveðnum, hörð- um en drengilegum andstæðingi. Að því er látið liggja í skrifum Morgumblaðsins, að flokksþingið hafi kosið 100 menn í miðstjórn og þó hafi ekki verið rúm fyrir mig í öllu þessu fjölmenni, sem mál- um flokksins stjórnar. Það sanna er, og það vita Morgunblaðsmenn- irnir, að flokksþingið kaus aðeins 15 menn í miðstjórn, 12 úr röðum eldri manna og 3 úr hópi hinna yngri. íhugleiðingu um 100 manna miðstjómina í Staksteinum Morg unblaðsins 9. maí s. 1. segir svo: „Ástæðurnar fyrir því, að Fram- sóknarmenn spörkuðu þessum mönnum (þ. e. Jakobi Frímanns- syni og mér) úr hinni fjölmennu miðstjórn sinni, eru meðal ann- ars þær, að þótt andstæðingum Framsóknarflokksins finnist nóg um misnotkun Framsóknarmanna, t. d. á samvinnuhreyfingunni, finnst Framsóknarmönnum sjálf- um, að þessir tveir menn hafi ekki verið nógu eftirlátir þeim, að misnota þau tvö fjöldasamtök sem þeir eru í fyrirsvari fyrir í þágu Framsóknarflokksins." Hér eru svívirðingárnar ekki skornar við nögl. Þeim er ausið út á báðar hendur. Framsóknarmenn almennt og þó einkum forsvarsmenn flokks ins, fá sinn skammt vel útilátinn, með kröfunni á hendur okkar Jak- obs, að þeirra sögn, að misnota fé- lagssamtökin, sem okkur er trú- að fyrir, í þágu flokksins. Hlut.ur okkar Jakobs er heldur bágbor- inn, því í gegnum frásögnina sér í róginn um, að við níðumst á því, sem okkur er til trúað, aðeins „ekki verið nógu eftirlátir." Ég tel það langt fyrir neðan virðingu mína að fara að bera af flokkn- um og mér slíkar getsakir svo lúa- legar, sem þær eru. Vel má vera, að Sjálfstæðisflokkurinn eigi liðs menn, sem þyki þetta gott og trú-. legt. Mér er sama um þá. En ég undanskil bændur í þessu máli, hvar í flokki, sem þeir eru. Af sama toga er spunnin „skáld sagan“, um ræðumennsku mína á flokksþinginu, sem birtist fyrst í feitletraðri rammagrein á öft- ustu síðu Morgunblaðsins 9. maí og síðan í endurbættri útgáfu í leiðara blaðsins 12. maí s. 1. Þar segir orðrétt: „Þorsteinn Sigurðs- son, bóndi á Vatnsleysu, formað- ur Búnaðarfélags íslands, sí'gði flokksmönnum sínum til syndanna á flokksþingi Framsóknar i marz s. 1. Þorsteinn á Vatnsleysu mót- mælti sífelldum áróðri Framsókn arflokksins um að allt væri á niðurleið í landbúnaðinum og sagði, að þessi áróður hefði þeg ar haft hin verstu áhrif fyrir landbúnaðinn og m. a. valdið því, að jarðir hefðu ekki byggzt, búið væri að sverta þennan atvinnuveg svo með stanzlausum barlómi, að menn vildu ekki leggja fyrir aig búskap. Fyrir þessi ummæli m. a. var Þorstein á Vatnsleysu felld ur úr miðsitjórn Framsóknarflokks ins“. í rammagreininni 9. maí endar þessi frásögn á þessa leið: „---------og flutti hann þá aðra ræðu og segja þeir, sem á hlýddu, að hann hafi „ibellt sér yfir“ Fram sóknarmenn. og Framsóknarfor- ystuna." Þetta átti að hafa gerzt, eftir að flokkþingsmenn höfðu andmælt fyrri ræðu minni, að sögn blaðsins. Allt er þetta þvætt ingur og uppspuni frá rótum. Ó- sannindin eru svo blygðunarlaus, að ekki er eitt einasta orð satt, sem frá er sagt. Ræða mín um landbúnaðinn, sem blaðið gerir svo mikið úr, hélt ég alls ekki. Hún er bara hugarfóstur ritstjór- ans. Og er þá svarræða mín fall- in af sjálfu sér. Framsóknarflokk- urinn hefur á engan hátt barið lóminn fyrir landbúnaðinn. Það hefur aðeins verið sagt frá þeim erfiðleikum, sem bændur og fé- lagssamtök þeirra eiga við að striða vegna hinnar geysilegu óða verðbólgu, sem flætt hefur yfir landið og ógnar öllum atvinnuveg um landsmanna. Eitt af því, sem þrengir mjög að afurðasölufélög um bænda og þá jafnframt að bændum sjálfum ,er skortur á aí- urðalánum. Vegna vaxandi fram leiðslu landbúnaðarvara og síhækk andi verðlags, hefur verðmæti þeirra allt að því fimmfaldazt á undanförnum árum, en afurðalán- in staðið í stað að mestu leyti s. 1. 7 ár. Og ég veit ekki betur en að flestir atvinnuvegir hafi líka sögu að segja, nema þá he'zt sá hluti verzlunarstéttarinnar, sem hefur fengið fyrir ráðstafanir nú- verandi ríkisstjórnar, að flytja inn alls konar varnig-alveg ótak- markað í samkeppni við íslenzkan iðnað t. d- allt’ ofan í hina marg nefndu tertubotna, sem eru orðn- ir frægir í stjórnmálasögu þessara síðustu ára, sem þessi ríkisstjórn hefur ráðið öllu, bæði til sjós og lands. Ég er ekki einn af þeim mönn- . um, sem fordæma allt, blindum Viðgerð gatnaskemmda miðar óhæfilega hægt AK-Reykjavík, fimmtudag. „Hvenær er ráðgert, að lokið verði viðgerð þeirra skemmda, er urðu á s. 1. vetri á götum borgar- innar og hvað má telja líklegt, að þær framkvæmdir kosti.“ Fyrirspurn þessa bar Einar Ágústsson, borgarfulltrúi Fram- sóknarflokksins, fram á fundi borgarstjórnar í dag og svaraði borgarstjóri henni með því að lesa bréf gatnamálastjóra þar sem talið er, að viðgerðum á gatnaskemmdum vetrarins muni verða lokið í júní-mánuði og að vonir standi til að þær 22 milljón ir, sem fjárhagsáætlun borgarinn ar ætlar á þessu ári til gatnavið halds, muni duga til viðhaldsins. Einar Ágústsson kvaðst telja það mjög gott, ef áætlunin um þetta stæðizt en ástæða væri til að draga það í efa að svo væri, þar sem gatnaskemmdirnár í vor hafa verið mjög miklar til viðbót ar þeim sem urðu fyrir miðjan vetur. Bvitt: Akureyri Gunnlaugur Guðmundsson. Mareeir ‘steingríuisson. 43. Bel—d2 Hh5—e5 SKÁKIN Svart: Reykjavík: Jónas Þorvaldsson Hallur Simonarson augum, sem stjórnmálalegir and stæðingar gera. Það þykir mér lág kúruháttur, sem ég vildi mjög gjajman, að íslenzk stjórnmál losn uðu við. En það eru fleiri en Framsóknarmenn, sem telja það höfuðnauðsyn að breytt verði um stjórnarstefnu eftir 11. júní n. k. Þorsteinn Sigurðsson. GAZASVÆÐI Framhals af bls. 1. ísrael myndi ekki verða fyrst til að grípa til vopna í Mið-Austur- löndum. Sagði hann, að hið hættu lega ástand væri á engan hátt sök ísraels. Fastafulltrúi Egyptalands sagði í kvöld, að það væri verkefni U Thants að ákveða hvaða dag friðar sveifir Sameinuðu þjóðanna yrðú kallabar heim, til þess þyrfti enga samþykkt innan allsherjarþings- ins. Israel er á öndverðri skoðun. Friðarsveitir SÞ nema 3.393 mönn- um, að því er sagt var í aðal- stöðvum SÞ í dag. Fles-tir eru frá Indlandi, eða 978 menn, 800 eru frá Kanadaj~,580 frá Júgóslavíu, 528 Irá Svfþjó'S og 432/frá Brasi- líu. 72 erii frá Noregi .og 3 frá Danmörku. Friðarsveitunum var komið á í'ót eftir innrás ísraels árið 1956 í sambandi Ivið Suez- deiluna alræmdu. Samkvæmt fregnum í kvöld hafa mikluj varnarráðstafanir verið gerðar í Egyptalandi vegna hætt- unnar á styrjöld. Hafa ráðstafanir verið gerðar til að verja þýðingar mikil mannvirki, svo sem Suez- skurðinn og brúna yfir Níl. Jafn- framt hafa sjúkrahús, slysavarð- stofur og almannavarnir verið und irbúnar undir möguleikana á styr.iöld. Þá gerðist það í dag, að ísraelsk orustuþota skaut aðvörimarskotum að SÞ-flugvél, sem hafði m.a. æðsta mann friðarsveitanna um borð, og reyndi að neyða hana til að lenda á ísraelskri grund. U Thant mót- mælti þessu harðlega í dag, og hefur ísrael beðist afsökunar á atburðinum. Brunamál Iðnaðar bankans AK-Reykjavík, fimmtudag. Borgarstjóri upplýsti það í borg arstjórn í dag, er hann svaraði fyr irspurn borgarfulltrúa Alþýðu- bandalagsins, að brunamál Iðnað- arbankans, þ- e. a. s. vafinn á heimild til glugganna á suður- hlið hússins væri nú til athugun ar hjá félagsmálaráðuneytinu og saksóknara, og meðan skýrsla um þá athugun væri ekki fram kom- in, væri ekki tímabært að ræða um málsatriði. /

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.