Alþýðublaðið - 25.01.1985, Qupperneq 2
2
Föstudagur 25. janúar 1985
fasteignamarkaðnum
■RITSTJÓRNARGREIN........
Misréttið á
Staðgreiðsluverö eldra ibúðarhúsnæðis á
höfuðborgarsvæðinu var lægra en byggingar-
kostnaður nýrra íbúða, ef tekið er mið af fyrir-
liggjandi tölum frá síðasta ári. Munurinn er
ennþá meiri ef farið er út fyrir höfuðborgar-
svæðið, út áiandsbyggöina; þarmunar 32-55%
á staðgreiðsluverði eldri íbúða og aftur bygg-
ingarkostnaöi.
Þessar upplýsingar og fleiri varðandi fast-
eignamarkaðinn komu fram í fróðlegu erindi
Sigurðar E. Guðmundssonar framkvæmda-
stjóra Húsnæðisstofnunar ríkisins og borgar-
fulltrúa í hljóðvarpinu fyrir skömmu. Alþýðu-
blaðió hefur og birt þetta erindi Sigurðar.
Sigurður bendir réttilega á, að hart sé til
þess að hugsa að þegar almenningur og sveit-
arstjórnir leggja kapp á að reistar verði margar
ibúðir, að húsnæðisvandræðin verði sem
minnst, þá geti það átt stóran þátt í almennu
veröfalli áeldri ibúðum. Segir Sigurður að orða
mætti þetta þannig, að uppboðskerfi hins
frjálsa markaðar refsi mönnum fyrir framtakið
og dugnaðinn.
Annar mikilvægur þáttur fasteignamarkaóar-
ins er sá verðmunur á íbúðum sem fyrirfinnst
eftirstaðsetningu húsnæðis. Upplýsir Sigurð-
ur E. Guðmundsson að söluverð eldri íbúða í
tveimur kaupstöóum á Suðurlandí hafi á fyrri
hluta síðasta árs ekki numið nema helmingi af
söluverði sambærilegra íbúða í Reykjavík. Ef
samanburðinum við Reykjavík er haldið áfram
og skoöaðirstaðirá borð við Akureyri, isafjörð
og sveitarfélögin á Suðurnesjum, þá kemur í
Ijós að íbúðarverð var þriðjungi iægra en i
höfuðborginni.
Og eðlileg spurning vaknar hjá Sigurði E.
Guðmundssyni í kjölfar áðurgreindra stað-
reynda: Er of hár byggingakostnaður og nei-
kvæð verðþróun eldri íbúða, samfara undir-
verði íbúða á landsbyggðinni, hugsanlega að
kippafótunum undan byggingaframkvæmdum
víða á landinu?
I framhaldi af þessu ervelt vöngum yfirafleið-
ingum frjálsa markaðskerfis ibúðarhúsnæðis
á lif fólks, vonir þess, þrá og óskir. Hver er t. a.
m. staða þess fólks sem eyðir stórum hluta
ævinnar í byggingu vandaösibúðarhúsnæðis
úti á landi, en ytri aðstæður kallafram nauðsyn
þess að þetta sama fólk flytji til höfuðborgar-
svæðisins? í mörgum tilvikum gætu íbúðir
þessa fólks veriðseldar fyrirsmánarveró, langt
undir sannvirði, afraksturinn af lífsstarfi þess
er aö hluta til gerður upptækur og menn jafn-
framt snarlækkaðir í húsnæðiskjörum, færðir
aftur á bak um nokkra áratugi, á það stig, sem
þeir byrjuöu á sem ungir menn. Undir vissum
kringumstæðum geta íbúðir þannig virkað
sem átthagafjötrar, þegar fólk þarf og vill flytja
til annars byggðarlags.
Sigurður E. Guðmundsson gerir einnig að
umtalsefni ekki slður alvarlegt mál I þessum
efnum og það er þegar háir vextir og verðtrygg-
ing íbúðalánaverðurtii þess að fasteignaiánin
hækka hlutfallslega meir en íbúðarverðið
sjáift. Slik dæmi eru til staðar, einkum þar sem
verðhækkana gætir einna minnst.
Ekki eru tök á því á þessum vettvangi að fara
nákvæmlegaofan í saumanaáþeim fjölmörgu
mikilvægu atriðum, sem Sigurðru E. Guð-
mundsson drepur á í erindi sínu, en í þvi er að
finna margháttaðan fróðleik um þróunina á
fasteignamarkaðnum, enda Sigurður öllum
hnútum kunnugur á þeim vettvangi. Það er og
ástæða til að taka undir með greinarhöfundi,
þar sem hann lýsir þeirri skoðun sinni, að fast-
eignamarkaðurinn í núverandi mynd, og öll þau
göt og ailt það misrétti er þar má finna, er
ekkert óumbreytanlegt náttúrulögmál. Þar má
koma við úrbótum, ef vilji er fyrir hendi.
r
I niðurlagi greinar sinnar segir Sigurður E.
Guðmundsson: „Það er sorglegt hve halloka
íbúðarkaupendur úti á landi fara í viðskiptum
sínum við kerfi fasteignamarkaðarins. Það er
hörmuiegt hvernig ungt fólk og aörar efnalitlar
manneskjur verða að knékrjúpa því svo það fái
frumþörfum sínum fullnægt og það með ofur-
kjörum, sem eru þyngri en nokkru tali tekur.
Þaö er furðulegt að Alþingi skuli ekki fyrir
löngu hafa látið þessi mál til sín taka og knúið
fram leióréttingar, svo fasteignamarkaðurinn
komist í takt við þá tíma, sem við lifum á.“
- GÁS.
Fangar 4
aldrinum 16—20 ára, en 1983 var
þetta hlutfall komið niður í 1,7%.
Árið 1979 voru 45,2% fanga á aldr-
inum 21—30 ára, en 1983 var þetta
hlutfall komið upp í 55,3%. Árið
1979 voru 29% fanga á aldrinum
31—40 ára, en 1983 var þetta hlut-
fall komið niður í 23,2%. Og árið
1979 voru 14,7% fanga 41 árs eða
eldri, en 1983 var þetta hlutfall
13,8%. Af þessu má ráða að fjölgun
fanga er einkum meðal fólks á aldr-
inum 21—30 ára. Frá 1979 til 1983
fjölgaði föngum almennt úr 157 í
246 eða um 56,7%, en innan aldurs-
flokksins 21—30 ára nam fjölgunin
úr 71 í 136 eða um rúmlega 95%.
Afbrot og kynferði
Ekki er skýrsla þessi sundurliðuð
eftir kynferði fanganna, en í sama
tölublaði Verndarblaðsins er hins
vegar að finna fróðlega grein eftir
Hannes Hilmarsson félagsráðgjafa,
þar sem hann veltir því fyrir sér
hvers vegna konur gisti sjaldnar
fangelsin en karlar. Á timabilinu
1960—1972 taldist brotatíðni ís-
lenskra kvenna vera 5%, en á hinum
Norðurlöndunum yfirleitt um 10%.
Er meðal annars vitnað í Otto
Pollak sem telur að i reynd sé eng-
inn eða óverulegur munur á af-
brotahneigð karla og kvenna. Telur
hann að konur fremji hins vegar í
ríkara mæli brot sem auðleyndari
eru og að konur njóti forréttinda og
linkindar umfram karlmenn að því
leyti að þær sæti síður kæru, hand-
töku, málshöfðun og sakfellingu.
Með greininni fylgir tafla yfir
„þátttöku í samfélagi götunnar“
eins og það er orðað, en þá er byggt
á skýrslum Útideildar 1977—1978.
Þar kemur fram að til þessa hóps
teljist 17,5% 16 ára pilta og 17,8%
stúlkna sama aldurs og því um jafn-
ræði að ræða. Hjá 17 ára piltum fer
hlutfallið hins vegar upp í 18,6%, en
hjá 17 ára stúlkum hins vegar niður
í 5,2%. „í samfélagi götunnar
17—18 ára, þá virðist greinilegt að
stúlkurnar róist og verði heimakær-
ari. Þær hafa enda í meira mæli tek-
ið þátt i „samfélagi götunnar" á
fyrri árum, því á aldrinum 14—15
ára er hlutfall stúlknanna hærra.
Fylgi_______________________£
Kvennalistinn 4. Með öðrum orð-
um fengi Alþýðuflokkurinn 4 þing-
menn til viðbótar, Framsóknar-
flokkurinn tapaði 3 þingmönnum,
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 2 til
viðbótar og Kvennalistinn 1, en Al-
þýðubandalagið tapaði 1 þing-
manni.
Sem fyrr segir verður að hafa
þann vara á, að upp undir helming-
ur aðspurðra var óákveðinn eða
neitaði að svara. Tölurnar hér að
framan miðast í raun við að sá hóp-
ur skiptist á sambærilegan hátt
milli flokka og hinir sem afstöðu
tóku. Verður hver og einn að meta
hvort það sé líklegt eða ekki.
Þá var í könnun Helgarpóstsins
spurt um stuðning við ríkisstjórn-
ina. Um 29% aðspurðra svöruðu
ekki ákveðið, en hinir skiptust
þannig að 46% tjáðu sig styðja rík-
isstjórnina, en 54% að þeir gerðu
svo ekki. í könnun DV frá því í
október töldu um 47,5% sig vera
fylgjandi stjórninni en um 52,5%
vera henni andvíga og er munurinn
á milli þessara talna vart marktæk-
ur, en þær sýna þó svo ekki verður
um villst að stuðningsmenn ríkis-
stjórnarinnar eru komnir í minni-
hluta.
Þá er loks að geta þess að Ellert
B. Schram hefur lofað skoðana-
könnun í kringum þingsetninguna,
en hún verður næsta mánudag. Við
munum því brátt hafa úr þremur
könnunum að moða og ættu þær
allar til samans að gefa okkur
sterka vísbendingu um þróun og
stöðu mála um þessar mundir hvað
fylgi stjórnmálaflokka varðar.
PÓST- OG
SlMAMÁLASTOFNUNIN
óskar aö ráða í stööu
blaðafulltrúa,
um hlutastarf getur veriö aö ræöa.
Nánari upplýsingar veröa veittar
starfsmannadeild stofnunarinnar.
hjá
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar aö ráöa
skrifstofumann — vélritunarkunnátta
æskileg.
Nánari upplýsingar veröa veittar hjá
starfsmannadeild.
Húsgagnasmiöi
eöa húsasmiði vana innréttingasmíöi.
Upplýsingar veitir Halldór Stefánsson,
trésmíöaverkstæðinu á Jörfa, sími
687341.
Bréfbera í 50% starf viö póst- og sím-
stööina á Varmá.
Nánari upplýsingar veitir stöövarstjóri
Pósts og síma, Varmá.
Fulltrúa stöðvarstjóra viö póst- og sím-
stöðina á Patreksfirði.
Upplýsingar veitir stöövarstjóri Pósts og
síma á Patreksfirði.
Útboð
Tilboð óskast í eftirfarandi málningarvinnu fyrir bygg-
ingardeild:
1. Málun leiguíbúða í fjölbýlishúsum.
2. Málun leiguíbúða I stofnunum aldraðra.
Útboðsgögn eru afhent áskrifstofu vorri, Frikirkjuvegi
3. Reykjavik, gegn kr. 2.500,— skilatryggingu fyrirhvert
verk fyrir sig. Tilboðin verða opnuö á sama stað mið-
vikudaginn 13. febrúar nk. kl. 14 e. h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
9 útboð
Tilboð óskast í að selja grjótmulningsstöð Reykjavíkur-
borgar, Bólstraberg, til framleiðslu á muldum ofaní-
buröi.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi
3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 6.
febrúar nk. kl. 11 f. h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
FÉLAGSSTARF
ALÞÝÐUFLOKKSINS
Árshátíð
Hafnarfirði og Garöabæ
Árshátið Alþýðuflokksfélaganna í Hafnarfirði og
Garðabæ verður haldin laugardaginn 2. febrúar
næstkomandi og hefst klukkan 19.30.
Mikil stemmnfng. — Mætum öll.
Nánar síðar.
Nefndin.