Tíminn - 16.06.1967, Síða 1
Nokkur hús brunnu f óeirSunum í Tampa. Eltt þeirra sézt hér á
myndinni í Ijósum logum, en fyrir framan standa lögreglumenn
vlS vegatálmun.
Frá óelrSunum I Tampa. Lögreglumaður skellir höfði blökkumanns
niður á vélarhús bifreiSar.
„Heitasta sumarið" í Bandaríkjunum:
OeirSir og íkveikjur
dagiega í borgunum
NTB-Cincinnati, fimmtudag.
Miklar kynþáttaóeirðir hafa verið víða í Bandaríkjunum, það
sem af er þessari viku og í dag virtist svo, sem þær væru að
breiðast út og færast í aukana. f gærkvöld hvöttu leiðtogar
blökkumanna þá til nýrra mótmælaaðgerða gegn hvítum mönn-
um. Sums staðar hafa orðið vopnaviðskipti, mikið er um rán,
íkveikjur og alis konar ofbeldisaðgerðir og herma fréttir, að
svertingjar standi fyrir þeim.
Oflugar sveitir lögreglu- og
hermanna fóru í dag um íbúða
hverfi svertingja í borginni
Cincinnati í Ohio en síðustu 3
daga hafa verið þarna blóðugar
kyraþáttaóeirðir Um 300 mianns
hafa verið handtekin. Miklar
skiemmdir eru á mannverkjum,
einkum ve.gna íkveikju.
Miklar óeirðir voru einnig í
dag í Tampa í Florida, í einu
af.úthverfum Chicaco og í svert
ingjahluta borgarinniar Watts í
Los Angeles. í Dayton, um 96
km norður af Cincinuati fóru
flokkar svertingja ruplandi og
rænandi um götur, eyðilögðu
margar verzlanir, kveiktu í
möfguim bygginiguim og lumbr-
uðu á hvítum mönnum.
Einn af foringjum blökku-
Framhald á bls. 15.
SETJA 10
MILLJÓN
KÚLUR í
SJÓ VIÐ
HEIMAEY
FB-Reykjavík, fimmtudag.
Eftir helgina verða hvorki meira
né minna en 10 milljón gular
frauðplastkúlur látnar í sjóinn
við Heimaey í Vestmannaeyjum
þÞað er Surtseyjarfélagið, sem
stendur fyrir þessu, og tilgang-
urinn er að sjá, hvert kúlumar
berast með hafstraumnum, og þá
aðallega, hvort þær berast í stór-
um stíl til Surtseyjar, en með
því er hægt að sýna fram á að
frá Vestmannaeyjum geti ýmis-
legt annað borizt til eyjarinnar,
eins og t.d. plöntufræ og þess
konar, sem síðar á eftir að setja
svip sinn á jurtalífið í Surtsey.
Stefán Ridhter náttúrufræði-
nemi sagði okkur frá þessari til-
raun í dag. Sagðist hann setja
kúlurnar í sjóinn, líklega á þriðju
daginn í nasstu viku, en það
færi þó eftir veðri. Verður kúl-
unum kastað á haf út úr Klauf
Framhald á bls. 14.
EJ-Reykjavík, fimmtudag.
f kvöld lagði sáttasemjari fram
miðlcnartillögu i farmannadeil-
unni á fundi með deiluaðilum. —
Á fundi í Vélstjórafélakinu í
kvöld var tillagan felld. Stýri-
menn og loftskeytamenn halda
fundi eftir hádegi á morgun um
tíliöguna.
Alvarlegar ásakanir Sovétríkjanna og Egypta á hendur Israelsmönnum:
Segja þá myrða stríðsfanga
og taka konur og börn af lífi
NTB-Moskvu, New York, Amman,
París, fimmtudag.
•k Sovétríkin saka ísraelsmenn
um að myrða arabíska strí'ðsfanga
og skipuieggja opinberar aftökur
arabíska kvenna og barna.
Flóttamannahjálp Samcin
uðu þjóðanna hefur nú með að
gera um 700 þúsund flóttamenn
beggja egna Jórdan-árinnar.
★ Tut.tugu og tvö ríki S. þ. liafa
fallizt á, að Allsherjarþingið
'■erði kallað saman, en nauð
syniegt er jákvætt svar 62 aðildar
ríkja.
★ Fulltrúar 15 aðildarríkja OE-
CD ræða nú sérstaka neyðaráætl-
un vegna hins alvarlcga ástands
í kjölfar olíubanns Arabaríkjanna.
í forystuigrein í stjórnarblað-
inu Izvestija í Moskvu í dag segir,
að ísraelsmenn hafi gerzt sekir um
mestu Iögleysur, sem sögur fara
af í Austurlöndum nær. í bar-
dögum á arabísku laridsvæði hát'i
ísraelsku hermennirnir murk-
að niður arabíska fanga og al-
menna btrgara. skipulagt jpin-
berar aftökur og hrakið tbúana
brott frá heimkynnum sínum. Lík
ir blaðið aðförum ísraelsku her
mannanna víð framferði nazista-
sveita Hitlers í hernumdum lönd
utn í seinni heimsstyrjöldinni. Eru
þetta alvarlegustu ásakanirnar
af hálfu Sovétmanna í garð ísra-
elsmanna, frá því fordæmingar-
skrif hófust í sovézkum blöðum
vegna deilu Egypta og ísraels-
manna.
Þá er í greininni einnig ráðist
að Bandaríkjamönnuin,' Bretum
og Vestur-Þjóðverjum óg þeir sa.k
aðir um að hafa beitt ísraels-
mönnum ti’ að koma fram heims
valdastefnu sinn, í ríkjunum fvrir
botni Miðjarðarhats
Bæði fzvestija og Pravda hafa
endurtekið kröfu Sovétstjórnar-
innar um að Allsherjarþing S.þ.
verði þegar hvatt saman til auka-
fundar.
Sendiherra Egyptalands í stöðv
um S. þ. i Genf sakaði í dag ísra-
elsmenn um skipulagt þjóðar-
morð gagnvart Egyptum. Sagði
hann, að ísraelsmenn hefðu skilið
tugþúsundir egypzkra hermanna
vatns- ug matarlaus, marka með
alvarleg sár, eftir í brennandi eyði
mörk Sínaískaga.
Sendiherrann spurði- Hvernig er
hægt að réttlæta slík fjöldamorð.
Hann fullyrti, að ísrael.smenn létu
egypzku hermenninia hreinlega
stikna til bana í eyðiimörkinni, með
því að hindra hjálparsveitir í að
komiast á vettvang. Sendiherrann,
Hussein Khallaf, sem situr nú
afvopnunarráðstefnuna í Genf
hafði kallað saman sérstakan fund
til þess að skýra frá þessum alvar
legu ásökunum.
Hjálparsveitir S. Þ. fyrir Piadest-
ínufanga, UNRWA, hefur nú mikið
starf að vinna í Jórdaníu, þar sem
flóttamannavandamálið vex með
degi hverjum. Aðstoð UNRWA
nær til um 300 þúsund flóttamanna
Framhald á bls. 14.