Alþýðublaðið - 27.05.1986, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 27. maí 1986
3
HClíh.
cMCýjtúflofks SetjÓisfjafÓarfaujts&ýciK
1, TMcujtúiS (júÓnutndsson
2. JÍaíísUl ti n 'Tritjjojsso n
23. Jor^íí JÍetcj ason
4. Jíelew 'BircjisÁb'ttir
5. JÍaíúíór jfartarson
6. J’orSteinn JÁrnson
?. JJÁrni Stíjcítisson
$, JÁnna Jttaria jQraíJsáotti
9. JÍiímar UjjóCýson
10. 'BnjtuCts Ucjilsson
í 1. jíutía QutwýörscíSttir
Í2. Jíjörcús Jorújörnscfottir
U. JÁtatstiinn Izittarsson
14. 'Ofájir Jijaríanssoti
15. JÁSta J’orsteinsdíttir
1(), (junnfir björnsson
ir
Tjarfrar(ta%ci 10.
Kuncj’ótu- 21.
jQtntliBaíféa 10.
UótnafiC$ 11.
'BótnafiíiÝ 30.
J/lá(avecji 27.
Qiísúaffea l.
JMtMCuú 9.
jQfnaraótu 26.
'Botwdfá 27.
Qartarsvecji 2.
CÁuíturvecji 139.
JtííÓtúni t
JÁúlavecji (6.
jÁiÁavecji 27.
Qarffarsvecji 2.
3. Þorkell Helgason
4. Helena Birgisdóttir
Seyðisfjörður:
„Alls ekki fjarlægur draum-
ur að fella meirihlutann“
— segir Magnús Guðmundsson, efsti maður á
lista Alþýðuflokksins á Seyðisfirði.
— Kosningarnar hér á Seyðis-
firði snúast fyrst og fremst um það
að fella samstjórn Framsóknar og
íhalds, sem hér hefur setið að völd-
um í þrjú kjörtímabil, eða tólf ár
samfleytt, sagði Magnús Guð-
mundsson, efsti maður á lista Al-
þýðuflokksins á Seyðisfirði, þegar
Alþýðublaðið hafði tal af honum í
gær.
Á hvaða stefnumál leggið þið
einkum áherslu í kosningunum?
— Þar ber fyrst að nefna barátt-
una fyrir sjálfstæði sveitarfélag-
anna. Landsbyggðarmenn verða að
vinna að því í sameiningu að
minnka miðstýringuna frá Reykja-
vík og færa völdin út í byggðirnar.
Hvað varðar okkar mál hér
heima, þá vil ég í fyrsta lagi nefna
mengunar- og umhverfismál sem
eru ofarlega á baugi hér hjá okkur.
í þessum efnum hefur fráfarandi
meirihluti haldið mjög illa á málum
og því mikið verk að vinna.
í öðru lagi koma svo atvinnumál-
in. Það ber að sjálfsögðu brýna
nauðsyn til að styrkja þau atvinnu-
fyrirtæki sem fyrir eru, en þau
standa mörg á brauðfótum. En
jafnframt þessu þarf svo líka að
huga að því að auka fjölbreytnina í
atvinnulífinu hér.
Hvernig hafið þið hugsað ykkur
að gera það?
— Við viljum reyna að laða
hingað ný fyrirtæki. í því sambandi
þarf kannski að liðka fyrir um hús-
næði og eins mætti hugsa sér að
fella niður aðstöðugjöld af nýjum
fyrirtækjum fyrsta árið.
Ef við snúum okkur að húsnæð-
ismálum, þá leggjum við áherslu á
hugmyndir Alþýðuflokksins um
kaup-leiguíbúðir, en að því er varð-
ar húsnæðismál gamla fólksins, þá
höfnum við algerlega öllum hug-
myndum fráfarandi meirihluta um
íbúðir í gamla sjúkrahúsinu fyrir
þetta fólk. Við viljum í staðinn
byggja sérstakar íbúðir sem tengdar
yrðu sjúkrahúsinu, þannig að íbú-
arnir geti notið þjónustu þaðan.
Nú eru samgöngumái, sífellt
vandamál að vetrarlagi þarna fyrir
austan. Hafið þið einhver sérstök
áhersluatriði í því sambandi?
— í samgöngumálum leggjum
við mikla áherslu á áframhaldandi
uppbyggingu vegarins yfir Fjarðar-
heiði og ekki síður að stórauka
snjóruðninga þar. Við minnum líka
á að í firðinum er flugvöllur sem
hingað til hefur verið lítill sómi
sýndur og þar verður að verða
breyting á.
Að því er varðar samgöngur á sjó
og hafnarmál, þá þarfnast hafnar-
svæðið í fyrsta lagi skipulagningar
þannig að ekki verði fleiri slys varð-
andi niðursetningu mannvirkja á
hafnarsvæðinu. Það þarf líka að
ljúka frágangi smábátahafnar, með
hagsmuni fiskibáta að leiðarljósi.
Samgöngur á sjó eru í þokkalegu
lagi, hvað varðar vöruflutninga,
bæði innanlands og til útlanda. Að
þessu verður þó að hlúa.
Margt fleira mætti nefna, svo
sem götur og gangstíga, heiisusam-
legt vatn, félagsaðstöðu o.fl. o.fl.,
en það má benda fólki hér á Seyðis-
firði á stefnuskrá okkar Alþýðu-
flokksmanna, sem hefur verið
dreift í hvert hús. Þar geta menn
kynnt sér stefnu okkar nánar.
Að lokum. Hefurðu trú á því að
þið hafið einhverja raunverulega
möguicika til að fella núverandi
meirihluta?
— Já, ég verð að segja það. Við
verðum varir við stórkostlegar
sveiflur í fylgi, þannig að ég held að
það sé alls ekki fjarlægur draumur.
Innilegar þakkir til hinna mörgu vina og vandamanna
er heimsóttu mig, hlý handtök og góðar gjafir og skeyti
á 85 ára afmæli mínu 17. maí s.l.
Guð blessi ykkur öll.
Þórður Þórðarson
Háukinn 4, Hafnarfirði.
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður
Við Menntaskólann viö Sund eru lausar kennarastöður
í dönsku og sögu.
Við Menntaskólann á ísafirði eru lausar kennarastöður
í stærðfræði, eða stærðfræði og efnafræði saman,
fullt starf, I dönsku hálft starf og Islensku, hálft starf.
Umsóknarfrestur til 10. júnl.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið.
Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins
Til upplýsingar
fyrir tóbaksneytendur
Skrá um nokkur efni í slgarettum á fslenskum markaði.
Miðað er við milligrömm í reyk hverrar sígarettu.
Birt án ábyrgöar samkvæmt upplýsingum umboðs-
manna tóbaks til tóbaksvarnanefndar.
Tjara Nikótín Kolsýrl- ingur
Camelfán síu) . 21,2 1,5 13.5
Camel . . 17,6 1,3 16,9
Camel Lights . 8,9 0,7 11,8
Craven A . . 16,4 1,3 11.8
Dunhill . . 15,5 1.2 11,8
Dunncap . . 12,0 1,2 11,8
Dunncap Lights . . 8,4 0,8 11,8
Gauloises (án síu).. . . 22,8 1,4 11,8
Gauloises . . 13,9 0,8 11,8
Gitanes . . 12,2 0,8 11,8
Gold Coast . . 15,0 1,1 14,0
Gold Coast Menthol.. . . 15,0 1,1 14,0
Gold Coast Lights ... . . 11,0 0,8 12,0
HB Crown . . 15,0 0,9 12,0
Kent .. 13,0 1,0 14,0
Kent Lights . . 8,5 0,8 8,5
Kim Menthol . . 12,0 0,6 8,5
Kim Mild .. 12,0 0,7 8,5
Kool .. 16,0 1,3 16,0
Lucky Strike . . 15,0 1,2 15,0
Merit Menthol 7,9 0,6 10,2
More .. 17,4 1,4 20,1
More Menthol .. 17,1 1,4 19,5
Pall Mall (án síu) . . 19,0 1,2 13,0
Prince .. 20,0 1,7 20,0
Prince Lights . . 14,0 1,3 14,0
Rothmans . . 16,5 1,3 14,0
Royale . . 14,9 1,2 15,3
Royale Menthol . . 14,9 1,0 15,9
Royale Lights .. 4,9 0,5 7,7
Salem . . 16,7 1,3 16,3
Salem Lights 9,0 0,8 10,8
S.G. Export .. 14,0 1,0 13,5
S.G. Lights . . 14,1 1,0 13,5
Stanton .. 12,8 1,0 13,5
Vantage .. 9,4 0,7 12,4
Viceroy .. 15,5 1,2 13,5
Viceroy Lights .. 9,0 0,8 11,0
Vitory .. 18,5 1,3 18,0
Welcome Blue . . 18,6 1,4 16,0
Welcome Red .. 18,8 1,3 16,2
Winston .. 19,0 1,4 17,7
Winston 100’s .. 18,6 1,3 19,2
Winston Lights . . 10,8 0,8 12,0
Lögtök
Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavfk og að undangengn-
um úrskuröi verða lögtök látin fram fara án frekari fyrir-
vara á kostnað gjaldenda, en ábyrgö ríkissjóðs, að átta
dögum liðnum frá birtingu auglýsingar þessarar, fyrir
eftirtöldum gjöldum:
Söluskatti fyrir jan., febr. og mars 1986, svo og sölu-
skattshækkunum, álögðum 14. mars 1986 — 22. maí
1986; vörugjaldi af innlendri framleiðslu fyrir jan., febr.
og mars 1986 og mælagjaldi af dísilbifreiðum, gjald-
föllnu 11. febr. 1986.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
22. maí 1986.
Þjónusta vegna
utankjörstaða-
atkvæðagreiðslu
Utankjörstaðaskrifstofa Alþýðuflokksins í Reykjavík
vegna sveitarstjórnarkosninganna er ( Alþýðuhúsinu
við Hverfisgötu. Þar er slminn 29282. — Þeir Helgi
Gunnlaugsson og Höskuldur Dungal veita skrifstof-
unni forstööu. — Þeir félagar veita alla þjónustu vegna
utankjörstaðaatkvæðagreiðslu. — Hafið samband.
Opið frá 10.00—22.00 alla daga.