Alþýðublaðið - 30.06.1987, Blaðsíða 1
Jón Baldvin skilaði umboðinu:
.Þflfl ER EINN
„Ég er umboðslaus maður“,
sagði Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins þegar
hann gekk af fundi forseta íslands
laust fyrir kl. 17 í gær, eftir að hafa
skilað af sér umboði til stjórnar-
myndunar. „Það er einn stóll í van-
skilum einhversstaðar", bætti hann
við aðspurður um hversu langt við-
ræðurnar hefðu verið komnar.
í stuttu samtali við fréttamenn,
sagði Jón Baldvin að hann væri
þeirrar skoðunar að Ijúka ætti því
verki sem hann hefði hafið og
mynda ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokks, Alþýðuflokks og Fram-
sóknarflokks undir forsæti Þor-
steins Pálssonar. Hann kvað mál-
efnasamning hafa verið tilbúinn og
langt komið að fara yfir hann „frá
orði til orðs“. Fullt samkomulag
hefði einnig verið um skiptingu
ráðuneyta þar til á síðustu stundu
að einn ráðherrastóll reyndist „í
vanskilunt einhversstaðar" og átti
greinilega við kröfu framsóknar-
manna rétt fyrir miðnætti í fyrri-
nótt um fjórða ráðherrann.
Búast má við að Þorsteini Páls-
syni verði falið að reyna að ganga
frá stjórnarmyndun þessara flokka,
en þó er vitað að a.m.k. í herbúðum
framósknarmanna hefur síðustu
daga komið upp áhugi fyrir mynd-
un fjögurra flokka stjórnar.
Friðarboðskapur Þorsteinn Pálssonar:
„Einkennileg aðferð"
— Segir Albert Guðmundsson
„Þetta er einkennileg aðferð ef
hann er að boða sættir, því hann
hefur ekkert talað við mig fyrr en
þarna," sagði Albert Guðmunds-
son, formaður Borgarasflokksins i
samtali við Alþýðublaðið, aðspurð-
ur hvort ummæli Þorsteins Páls-
sonar á Lækjartorgi á sunnudaginn
boðuðu sættir milli þeirra.í tilefni
friðarhlaups sem lauk á Lækjar-
torgi fiuttu forystumenn stjórn-
málaflokkanna stutta tölu og orð
Þorsteins Pálssonar voru: „Svo er
þetta líka friður á milli okkar
Alberts.“
„Ég sagði ekkert, það var hann
sem sagði þetta í framhaldi af mín-
um orðum. — Ég var að tala um
friðarhlaupið eins og efni stóðu til,
þá greip hann þetta svona. Við skul-
um vona að hann fylgi því eitthvað
eftir, því það hefur aldrei staðið
neitt á mér að vinna með Sjálfstæð-
isflokknum, — þrátt fyrir það sem
þeir hafa gert mér,“ sagði Albert.
Hann sagði ennfremur að sam-
þykkt Borgaraflokksins stæði enn
varðandi vilia til stiórnarþátttöku
með Framsókn og Sjálfstæðis-
flokknum. Albert benti á að Fram-
sókn lýsti sig reiðubúna til forystu í
slíkri stjórn og því væri ekkert til
fyrirstöðu ef vilji væri fyrir hendi
hjá Sjálfstæðisflokknum. „í mín-
um huga væri það klukkutíma-
spursmál, en ekki daga spursmál að
mynda slíka stjórn"
Jón Baldvin Hannibalsson gekk á fund forseta íslands kl. 16 I gær. Fyrr um daginn hafði forsetinn rætt við bæði
Steingrím Hermannsson og Þorstein Pálsson.
Eftir miðstjórnarfund:
Alþýðubandalagið tilbúið í stjórn
- ef eftir því verður leitað. Ekki ágreiningur um stjórnarþátttöku eða efni til að
setja á oddinn, segja fulltrúar beggja fylkinga. Menn almennt sáttfúsari eftir
fundinn
Það er létlara yfir Alþýðubanda-
lagsmönnum eftir helgi en var í síð-
ustu viku. Miðstjórnarfundurinn
virðist hafa hreinsað andrúmsloftið
í flokknum og nú virðast flestir
áhrifamenn í flokknum reiðubúnir
að lýsa því yfir að flokknum sé ekk-
ert að vanbúnaði til þátttöku í ríkis-
stjórn, ef svo vill verkast.
Margir, bæði flokksmenn og
ýmsir aðrir sem vel hafa fylgst með
gangi mála, áttu von á mun meiri
hörku í umræðum á miðstjórnar-
fundinum en raun varð á um helg-
ina. Ástæðurnar fyrir þessari trú
manna voru annars vegar ýmsar yf-
irlýsingar forystumanna flokksins
að undanförnu og hins vegar skýrsl-
urnar sem til umfjöllunar voru á
miðstjórnarfundinum en þar bar
margt á milli og ýmis sjónarmið
virtust illsættanleg.
Á fundinum kom hins vegar í Ijós
að þótt ágreiningurinn sé verulegur,
télja flestir flokksmenn fleira horfa
til sameiningar en sundrungar.
Einn miðstjórnarmanna utan af
landi orðaði þetta sjónarmið þann-
ig að þetta mál væri ekki svo merki-
legt að löngum tíma þyrfti að eyða
til að ræða það.
Með tilliti til þess hvernig gang-
urinn hefur verið í stjórnarmynd-
unarviðræðum að undanförnu,
gæti nú aftur komið upp sú spurn-
ing, hvernig Alþýðubandalagið sé í
stakk búið til að taka þátt í stjórn-
armyndun. Eftir miðstjórnarfund-
inn virðist staða flokksins í því efni
hafa batnað verulega og almenn
samstaða um það í flokknum að
láta deilumálin ekki hafa áhrif á
stjórnarþátttöku, ef eftir slíku verði
leitað.
Svavar Gestsson, formaður
flokksins, telur t.d. eftir fundinn að
ekki yrði neinn verulegur ágreining-
ur um stjórnarþátttöku, eða þau
málefni sem sett verða á oddinn,
komi til þess að Alþýðubandalagið
taki þátt í stjórnarmyndunarvið-
ræðum á næstunni.
Ólafur Ragnar Grímsson, tók
mjög í sama streng að þessu leyti,
þegar Alþýðublaðið átti tal við
hann í gær. Hann sagðist telja það
tryggt að sú endurnýjunarþróun
sem nú stæði yfir í flokknum,
myndi ekki stöðvast þótt flokkur-
inn tæki þátt í ríkisstjórn og kvaðst
ekki sjá neitt á móti stjórnarþátt-
töku að því tilskildu.
Sú stjórn sem Alþýðubandalags-
menn sjá fyrir sér að gæti komið til
umræðu á næstunni er væntanlega
fjögurra flokka stjórn með þátt-
töku þeirra flokka sem nú sitja á
þingi annarra en Sjálfstæðisflokks
og Borgaraflokks. Fram að þessu
hafa talsmenn stærri flokkanna,
einungis viljað ræða myndun
þriggja flokka stjórnar, en Alþýðu-
bandalagsmenn munu margir telja
að nú sé senn fullreynt og röðin
gæti þvi farið að koma að myndun
fjögurra flokka ríkisstjórnar.
Sá möguleiki að A-flokkarnir
færu í stjórn með Sjálfstæðis-
flokki, er auðvitað fyrir hendi,
reiknað út frá þingstyrk.en áhugi
fyrir slíkri stjórn er vægast sagt
mjög takmarkaður innan Alþýðu-
bandalagsins og þótt einhverjir af
forystumönnum flokksins, væru
e.t.v. tilbúnir að taka þátt í viðræð-
um um slíka stjórn, er afar hæpið
að þær viðræður næðu almennum
hljómgrunni í flokknum. Hins veg-
ar er væntanlega mun auðveldara
að ná samstöðu í flokknum um
hefðbundið samstarf vinstri og
miðjuflokka.
Þótt Alþýðubandalagið virðist
mun heillegraeftir helgi en fyrir, fer
því auðvitað víðs fjarri að heilar
sættir hafi tekist. Enn er fólk í báð-
um fylkingum sem gæti hugsað sér
að láta skerast í odda og gera út um
málin í eitt skipti fyrir öll. Á mið-
stjórnarfundinum kom hins vegar í
ljós að miðstjórnarmenn voru al-
mennt ekki tilbúnir til að taka
ákveðna afstöðu með einum og
móti öðrum. Árangurinn sem sagt
meiri sáttfýsi á báða bóga, en þó að
því er virðist án þess að menn hygg-
ist sópa vandanum undir teppið.
Eða með tilvísun til hliðstæðrar
stöðu Sjálfstæðisflokksins og orða-
lagi Ólafs Ragnars Grímssonar í
gær: „Sumir flokkar læsa vandann
inni í skjalaskáp, — aðrir taka hann
til umræðu“
Frá miðstjórnarfundi Alþýðubandalagsins um helgina. Kristln Á. Ólafsdóttir I ræðustól.