Tíminn - 04.10.1967, Síða 6

Tíminn - 04.10.1967, Síða 6
6 TÍIVIINN MIÐVIKUDAGUR 4. okt. 1967. Garðar Sigurgeirsson: VEGAMÁL í ÓLESTRI Garðar Sigurgeiisson Á fyrsta landsþingi Félags íslenzkra bifneiðaeigenda, sem haldið viair í Borgarnesi 23. og 24. septemiber 1967, voru vega miálin ofarlega á baugi og ílutt nokkur erindi um þau mái. Hlér á eftir fer erindi Garðars Sigurgeirssonar, viðskiptafræð- ings en hann var einn framsögu manna um þetta mál. Góðir fundarmenn, í fáum löndum heims rikir jafn mikil og almenn velmegun og hérlendis. Þetta er kunnara en að frá þurfi að segija. Allt í kring- um okkur eru merki þessa: Við búum í betri og rýmri húsa- kynnum en aðrar þjóðir: Full- komin heimilistæki eru á lang- flestum heimilum, Veitinga- húsin fytllast út úr dyrum um, bverja helgi. Skemmtiiferðafólk þyrpist tii útlanda í þotum jg tiiguiegum fariþegaskipum, meira atð segja bifreiðin er orðin al- menningseign, þrátt fyrir óheyri leg aðflutnimgsgjöld. — Það fer ekki fram hjá neinum, að íslend ingar eru ekki á nástrái. Bn þrtát fyrir öli þessi edn- kenni veHystinga, er hér- á landi svo bágborið vegakerfi að ætla mætti, að hér byggi siveltandi þjóð. — Þannig er ís- land land andstæðnanna, jafnt í efnahagslegu tiiiiti sem náttúr- iegu tilliti. Skilningsleysi á þýðimgu vega- málanna hefur til skamms tíma verið hér landiægt. Þó hefur skilningur manna á þessum mái- um batnað á allra síðustu árum, ráðamanna því ’mifður þó meira í orði em í verki. En sú trú, að við hefðum ekki ef ni á að koma vegum okkar í við unandi og miannsæmandi horf, ætl ar að vera æði langiíf. Samt ligg ur að sjálfsögðu í augum uppi, að það er dýrt fyrir þjóðina — það er rándýrt — að mis- þyrma sívaxandi oig stöðuigt batnandi bílakosti sínum á þeim vegum, sem við búum við. Við erum fámenn þjóð, í til- tölulega stóru landi. Veganet okik ar er víSfeðmit, og við eigum lengri vegi á hvern ibúa iands ins en almennt gerist. Þannig eru hér um 16 íbúar á hvern kílö- metra vegar, en til dæmis í Nor- egi, sem á evrópskian mæli- kvarða er strjálbýlt land, eru þeir um 70. Um 6 ísjendingar eru nú um hverja fóíksbifreið eða svipað og í Danmörku og Bretlandi — en það er meira en í Nonegi, Finn landi og Vestur-Þýzkalandi. ís- lendingar eru þvi mikil bíla- þjóð, enda er þaið eðlilegt, því að hér eru engar járnbrautir. Um sl. ánamót voru hér á landi FJÁRBYSSUR RIFFLAR HAGLABYSSUR SKOTFÆRI ALLSKONAR Stærsta og f jölbreyttasta úrval landsins. Póstsentíum GOÐABORG, Freyjugötu 1 slmi 1-90-80- 39.278 bifreiðir, og gert er ráð fyrir, að fjöMi þeirra tvölfald ist fram til 1980. Þessar staðneyndir sýna okkur ótvírætt, hve srnar þáttur vega- málin eru í íslenzku þjóðlífi. Opiniberlega hefur verið lýst yfir því, að viðhaid vegainna væri þegar orðið óviðráðanlegt, og með hlifðsjón af tölunum hér að framan ætti engum að bland ast hugur um það, hve bráð- nauðsyniegt það er þjóðinni, að snör handtök séu höfð við að koma vegamálunum í gott horf. Iiagning góðra vega á fslandi er arðbær fjárfesting. Eina átak ið, sem gert hefur verið í þess um efnum á undanförnum ár uim er Reykjanesbraut, og þa® fé, sem ti'l hennar fór, skilar góðum arði. Ekki ætl-a ég hér að gera veggijaldið að umtalsefni, heldur að ræða aðeins um þjóð hagsiegt gildi ve>garins. Reykjanesbrautin kostaði eins og kunmiigt er, um 270 millj. kr. þegar ákveðið var afnotagjaid af henni, var það ákveðið helming- ur þess sparnaiðar, samkvæmt nokkri reynslu, sem bíleig- endur nytu við að aka hana miðað við maiarveg. Innkomið veggjaid af braut- inni varð fyrsta árið 14.2 millj. króna, en það á að vera Wlming- ur hagnaðarins og má því tvö- falda þá tölu tii að finna sam- svarandi þjóðhagslegan hagn að, þ.e. 28.4 milijónir króna. Tii að finna anðsemi fjlárfest ingarinriar” * m'á enrifrenrúf bæta við. þessar 28.4 miiliónir spör uðum viðhaldskostnafSi. —r Norð menri teija sína vegi ekH góða, en áriegur viðhaldskostn aður þar er um 32 þús. ísi. krónur á hvern kílómetra vegar. Sé sú tála margiföMuð mieð 37.5 sem er lengd Réykjanesbnautar, fást fiást 1.2 milijónir króna, sem segja má, að sparist fyr-ta árið. — Nemur þá samanlagð- ur hagnaður 29,6 milljónum króna. Nú kann einhver a® segja, að tdl árlegs viðhalds á gom’a Reykjanesbrautinni hafi þessari uipphœð ekki verdð varið áður a.m.k. ekki síðustu árin, og því nemi sparnaðurinn ekki þessari uppbæð. Þá er því tid að svara, að þjóðarbúið sparar efcki á við- haldsieysd þjóðvega. Rdkissjóð- ur kann aö spara þannig, en rekstrarkostnaður bifredða, sem slíka vegi aka, verður bara þeim mun hærri, og þá eru það bíleigendur í stað ríkissjóðs, sem ■greiða kostniaðinn.. Við útreikning á arðsemi fjár flestingar á R<Jykj anesbraut er fleira að athuga. Það er viður kennt, að fullnægjandi hefði veriið að malbika Reykjanes braut, en m.a. vegna Sements- verksmiðju ríkisins var ráðizt í að steypa hana. Með malbikun hefðu sparazt um 52 milljónir króna og kostnaður hennar hefði numið um 218 milljónum, en hagnaður sam kvæmt ofangreindu 29,6 milljón- um króna fyrsta árið, eða 13 6% aem þykja dágóðir vextir. í þess um útreikningi er ekki tekið tiliiti til afskriftar né viðhalds vegarins, en fileiri atriði koma einnig til greina toknamegin. Umferðin um Reykjanesbraut og þar af leiðandi tekjur vegar ins hefur stóraukizt með sívaxandi notkun Keflaiviíkurflugvaldar, nú síðast með tilkomu þotu Flue félagsins. Veruleg umferð er einn ig um veginn milli Straumsvíkur og Hafnarfjarðar og Álftanesaf- leggjara, og sömuleiðis víða ann- ars staðar á veginum, þar sem umferðdn sleppur við veggjaldið. Þá er eftir að meta tii peninga þægindi fólks af því að aka slík an veg, miiðað við hrauuið áður, sömuleiðis hreinlætisaukann og síðast en ekki sízt hið aukna ör- yggi, sem veginum er samfara. Niðurstaða þessa miáls er óum- deilanlegia sú, að Reykjanes- brauitin var góð fjárfesting, sem þegar skilar góðum arði, og með sívaxandi uimferð kem ur hún til með að færa þjóð arbúinu stórfelldan gróða í fram tíiðinni. Á undangengnum árum hefur allt kapp verið lagt á að Íooma öllum landsmönnum í vegasam- band, og segja má, að nú hafi það tekizt. Eins og alþjóð er kunnugt hefur þetta hins veg ar verið gert óþyrmilega á kostnað viðhalds þedirra vega, sem fyrir voru og mesta um ferð bera. Enda sýna athugan ir, sem gerðar hafa verið af sér fræðingum, að viðhaMskostn aður veganna er hér mikl- um mun lægri á kídómetra en eðli Legt getur talizt, enda hefur fátt í þessu þjóðfélagi verið van- ræktara en viðhald veganna. Útreikningar Vegamáliaskrif- stofunnar sýna ennfremur, að viðhaldskostnaður á hvern kíló metra hefur farið lækkandi á tímaibiiinu 1949—1962, og þótt aukin notkun véia sé til lækkun ar á, tímabilinu, verður hin -tór aukna umferð á tímabilinu mikl um mun byngri á metaskálunurr. Til að komast út úr þeim víta hring, sem vegamálin eru komin í, er vart önnur leið fær en =ú, að einíieita ölium okkar kröftum í að leggja vara-nlegt siitlag á vegina og hætta um sinn að þenja út vegafcerfið. Vi® þessar framfevæmdir verður fyrst og fremst að gœta þess, að verkm séu unnin með þeim hætti og í þeirri röð, að fjármagn og tæki nýtist sem bezt og gefi þjóðinni sem mest í aðra hönd. Talið hefur verið, að um 30% allrar umferðar á landinu hivíii á aðeins 1 Yí% vegakerfisins, og að um helmingur umfenffarinn ar hjvíli á aðeins 4% veganna. Vegirnir sem bera þannig hehn ing umfierðarinnar, eru: Reykjanesbraut, Vegurinn frá Reykja/vík að Pjórsá. - Vegurinn frá Reykjavík að Dals mynni, Vegarkaflar við Akureyri, Vegurinn milli Egilsstaða og Lagarfljótsbrúar, Vegurinn öð Akranesi, Vegurinn að Borgarnesi, Vegurinn milli Reykjavíkur og ÞingvaHa. Þessir vegir munu samtals .vera um 400 kílómetrar, og að- éins Reykjanesbraut er með var an,legu slitlagi, eins og kunnugt er. Samkvæjnt verkfræðilegum út reikningum ættu ofangreindir vegir allir að malbikast, nema kafl inn frá Reykjavik til Þingvalla afleggjara, sem hagkvæmast yrði áð síeypa. Nú er talsvert^ um þa® rætt af opinberum aðiium, að láta vinna þessiar fram'kvæmdir á skömm- um tíma mieð útboði verk anna. Virðist það vera heppileg náðstöfun. Hins vagar er það mjög mdður, að því sem næst engar framkvæmdir hafa verið unnar í sumar, á sama tíma og tæki, sem til eru í landinu, eru Hla nýtt og almenn atvinna minni en undanfarin ár. Samtimis því, sem ofangreind ar framkvæmdir væru unnar af verktöfeum, kæmi mjög tii, greina, að Vegagerðin hæfist handa við lagningu olíumal- ar í stórum stíl á aðrar fjölfarn ar leiðir, t.d. frá Daismynni til Akurieyrar og frá Þingvöllum til Ölfuss. Oliumalartilraunin á Helldsbeiði, sem gerð var í fyrra, við óheppi- legar aðstæður, hefur þegar sann að framtíðarmöguleifea þessa efn- is hérlendis. — Ekki rná í þessu sambandi rugla saman oldumialar- borna kaflanum þarna og fram- haldi þess kafla, sem er lagður „asfalt emulsion", og virðist gefla oi'íumölinni mikið eftir að gæð um. Kostnaðurinn við að leggja olíumöl á þessa vegi, án þess að undirbyggja þá sérstaklega, nema í und'antekningartilfellum, er tiltölule'ga mjög lágur, og sparn- aður i viðhaidi þessara vega rétt- lætir víðtœkia notkun olíu- malar á vegum, sem bera umferð undir 1000 bílum á da.g Öfllun fjár tii þessara fram kvæmda er hin hidð máWins. Öll- um er kunnugt, að ríkisstjóður hefur árlega haft hundruðir miilj óna f tekjur af bdfreiðum og rekstrarvörum þeirra, umfram það sem lagt hefur verið til vegamála. PÍB hefur í mörg ár bent á, að nauðsynlegt væri að verja um nokkurra ára sfceið, öíl- um tekjum ríkissjóðs af bdf reiffum og rekstrarvörutn tii þeirra til vegaframkvæmda. Með þessu fyrirkomulagi mælir öil sanngirni, ekki sdzt, þegar haft er í huga, að það eru goiit fleiri en bifreiðaeigendur, sem njóta góðs af því, að vegirnir séu í góðu ástandi. Hröfckvi aðrar tekjur rikis- sjóðs aftur á móti ekki fyrir öðrum gjaldaliðum, er það anniað mM, sem að sjálfsögðu venffur að lagfæra. Koma þar til greina margar ieiðir, og þótt það ætti ekki að vera mál bifreiðaeigendia sem slikra, að leyisa það, hefur FÍB oft kom- ið með vinsamlegar áibendjng- ar í þeim efnum. Síðustu árin höfum við arlega fjárfest í þjóðvega- mannivirkjum um 1% tekna okk ar. Á sama tíma hefur vdðhald veg anna verið undir '/2% af þjóðartekjunum. Til þjóðvega anna höfum við því samtals vari® undanfarin ár innan við iy2% af þjóðartekjum. Vestur-Þjóðverjar og Banda- ríkjamenn verja um 2.5% þjóðartekna sinna tii þjóð- vega og ber að hafa hugfast, að þessar þjóðir búa þegar við til- tölulega mjög fullfeomin vega- kerfd. Japanir gera sér einnig grein tyrir þvi, að vegirnir eru undirstaða iðnþróunar og eyða nú um 3^2% þjóðartekna sinna til þjóðvega og munu í framtíð- inni verja 5%. ísland er a® miklum mun strjálbýl'la en þéssi lönd og því væri eðlilegt, að við verðum mun hærri hluta þjóðartebna til vegamáia. Ennfremur ber að hafa í huga, að veigamálin hafa hér á undanförnum árum vérið sett mjög á hakann. Ef við verðum árlega 3'/2% þjóðarteknanna til þjóðveganna n£emi sú upphæð um 835 millj ónum króna, og þá myndu ekki líða mörg ár. þar tii vegir okk ar yrðu cil fyriwnyndar, eins og þeir fyililega verffskulda hjá nú tíma menningarþjóð.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.