Tíminn - 10.12.1967, Blaðsíða 2
)
ÍSAFOLDARBÆKUR
Hjá íelum og hvítabiörnutn,
eftir Friðþjóf Nansen í þýð-
ingu Jóns Eyþórssonar, prýdd
fjölmórgum myndum eftir höf
undinn. Þetta er bólk fyrir
hrausta stráka á öllum aldri
frá átta til áttatíu ára. 284 bls.
Landshornamenn. Sönn saga í
Há-Dúr kallar Guðmundur
Daníelsson þessa bráðskemmti
legu frásögn af ýmsum þekkt-
um „Landshomamönnum“ á
ferð og fhigi um landið. 186
bls. Með teikningum eftir
Halldór Pétursson.
Mamma skilur allt eftir Stefan
Jónsson. „Sagan hans Hjalta
litla“ kom út 1 fyrra í annarri
útgáfu. „Mamma skilur allt“
er beint framhald af þeirri
bók. Báðar þessar bækur hlutu
fádæma vinsældir þegar þær
komu út fyrir um það bil 20
árum síðan. 264 bls. m. mynd
um eftir Halldór Pétursson.
Saga í sendibréfum. Þættir Úr
ævi séra Sigtryggs á Núpi.
Finnur Sigmundsson, fyrrum
landsbókavörður tók saman.
Þetta er sagan af piltinum úr
Garðsárdalnum, sem ungur að
árum gerðist menningarfröm-
uður í sveit sinni, hóf lang-
skólanám 26 ára og varð þjóð-
kunnur fyrir giftudrjúgt ævi-
starf. 230 bls. með myndum.
& WINSTON
Sex daga stríðið, eftir Rand-
olph og Winston Churchill. —
Churchill-feðgarnir lýsa leift-
urstriðinu frá í sumar þegar
ísrae’smenn gjörsigruðu sam-
eiðan her Araba á sex dögum.
256 bls- með mörgum mynd-
um.
Úlfhundurinn, eftir Jack Lond
on í þýð. Stefáns Jónssonar,
námsstjóra. Þetta er fimmt-
ánda bókin í ritsafni Jacks
London. Þetta er góð bók
eftrr góðan höfund. 264 bls.
Tvímánuður. skáldsaga eftir
Katrínu Ólafsdóttur. Eftir
sama höfund hefur komið út
bókin „Liðnir dagar“,' sú bók
seldist upp á skömmum tíma
og var gefin út í annarri út-
gáfu. Þetta er fyrsta skáldsaga
Katrxnar og mun án efa vekja
verðskuldaða athygli. 200
bls.
íslenzk frímerki 1968, eftir
Sigurð H. Þorsteinsson. Þetta
er ellefta árið sem íslenzki frí-
merkjaverðlistinn kemur út.
Bráðnauðsynleg bók fyrir þá
sem fylgjast vilja með verð-
gildi íslenzkra frímerkja. 128
bls.
ÍSAFOLD
Sjóari á hestbaki, ævisaga
Jacks London, eftir Irvmg
Stone Þýð. Gylfi Pálsson.
Ævi Jacks London var ein
óshtin ævintýraslóð frá fá-
tækrahverfum San Francisco
til obyggða Alaska og sólríkra
Suðurhafseyja. 312 bls- með
mörgum myndum.
Undir Ijóskerinu, sagnaþættir
eftir Guðmund L. Friðfinns-
son. Guðmundur er þekktur
sem skáldsagnahöfundur en
hér kvæður hann sér hljóðs á
nýjum vettvangi með sagna-
þáttum úr Austurdal. 97 bls.
með myndum.
Villieldur, skáldsaga eftir
Ragnheiði Jónsdóttur. Villield
ur var síðasta skáldsagan, sem
Ragnheiður Jónsdóttur lét frá
sér tara áður en starfsorkuna
þraut Sagan er að ýmsu ólík
eldri sögum Ragnheiðar en
fullvist er að ekki bregzt höf-
undi bogalistin fremur en
áður. að segja vel sögu.
Matu>- og drykkur, eftir Helgu
Sigurðardóttur. Stærsta og
fullkomnasta matreiðslubók
sem komið hefur út á íslenzku.
Kærkomnasta jólagjöf hús-
mæðranna, nytsöm þeim ungu
og óreyndu og einnig þeim
sem lengra eru komnar í mat-
reiðstuiistinni. Stór bók. 638
bls. með mörgum myndum og
skýringum.
Brennur París? eftir Larry
Collins og Dominique Lap-
ierre. Þýð.: Hersteinn Pálsson,
ein frægasta saga sem skrif-
n5 hefur verið um lok síðustu
heÉmsstyrjaldar. 330 bls. með
myndum.
Helreiðin, eftir Selmu Lager-
löf. Sr. Kjartan Helgason
þýddi. Selmu Lagerlöf þarf
ekki að kynna íslenzkum les-
endum
Þetta er ein fegursta saga
hennar í snilldarþýðingu sr.
Kjartans í Hruna.