Alþýðublaðið - 22.04.1989, Blaðsíða 12
MÞYB1IBMÐIB
Laugardagur 22. apríl 1989
Jón Baldvin ræðir við Efnahagsbandalagið:
Útvíkkun á fríverslunar-
samningi - frjáls aðgangur að
EB-háskólum
Jón Baldvin Hannibals-
son, utanríkisráðherra,
tekur við formennskti í
EFTA 1. júlí næstkom-
andi. Af þeim sökum átti
hann fund með Fran/.
Andriessen, utanríkisráð-
herra Evrópubandalagsins
á fimmtudaginn. A fund-
inum ræddi ráðherra ann-
arsvegar mál sem viðkoma
viðskiptum íslands og EB,
og hinsvegar ýmis þau mál
sem i deiglunni eru milli
EFTA og EB og fram-
göngu þeirra á árinu.
í samtali sem Alþýðu-
blaðið átti við Jón kom
fram að viðræðurnar um
samninga íslands við EB
voru gagnlegir. Einkum
var rætt um fjögur atriði
að sögn Jóns Baldvins. í
fyrsta lagi tollamál, I öðru
lagi samstarfssamning á
sviði vísinda og rann-
sókna, í þriðja lagi sam-
starf EFTA og EB á sviði
skóla- og menningarmála.
ítrekaði ráðherra mjög
mikilvægi þessa mála-
flokks fyrir ísland og ís-
lendinga með tilliti til þess
að mjög stór hluti íslenskra
námsmanna hefði í gegn-
um tíðina stundað nám við
erlenda háskóla og væri
mikilvægt að þeir gætu
gert það áfram óhindraðir.
Að sögn Jóns gerði hann
Andriessen ljóst að islend-
ingar litu á þennan mála-
flokk sem eitt af
forgangsverkefnum í
samningum við EB. Að síð-
ustu var rædd samræming
á reglugerðum sem varða
heilbrigði- og hollustu-
hætti í matvælavinnslu,
einkum og sér í lagi varð-
andi fiskafurðir. Að sögn
Jóns kom í Ijós að reglur ís-
lendinga eru í flestum tilfell-
um strangari varðandi
meðferð fiskafurða, en
þær sem EB hyggst setja.
Fundurinn var haldinn
fyrir frumkvæði E B ,
sem hefur alit frá árinu
1985 óskað eftir því að
samskiptum íslands við
EB yrði komið á fastan
grundvöll. Liður í því eru
viðræður sem sjávarút-
vegsráðherra, Halldór Ás-
grímsson, hefur nýlega átt
við sjávarútvegsráðherra
EB. Jón Baldvin sagðist
líta svo á að viðræður um
þau málefni væru þar með
komin i fastan farveg.
Hann gerði síðan að um-
ræðuefni viðskiptamál ís-
lands við EB, einkum tolla
ásaltfiski. Árið 1972gerðu
íslendingar fríverslunar-
samning við EB um toll-
frjálsan aðgang að
saltfiskmörkuðum. I þeim
viðræðum var íslendingum
gefin ástæða til að telja að
tollum á saltfisk innan EB
yrði aldrei komið á. 1985
voru hinsvegar teknir upp
tollar á saltfisk innan EB,
fyrir lönd sem stóðu utan
bandalagsins. 1972 var
saltfiskmarkaður ekki
mjög stór innan EB en eftir
því sem aðildarlöndum
bandalagsins hefur fjölgað
hefur hann orðið æ stærri
og mikilvægari. Við upp-
haf fríverslunarsamnings-
ins náði hann til um 70%
af fiskútflutningi okkar til
aðildarlanda EB, nú nær
hann aðeins til á milli 50 og
60%. Benti Jón á að íslend-
ingar ættu rétt á miðað við
forsendur málsins að út-
víkka fríverslunarsamn-
inginn í samræmi við
stækkun markaðarins. Jón
sagði ennfremur að raun-
veruleg óskíslendinga væri
að hverfa aftur til þess
astands sem ríkti fyrir
1985, þegar engir tollar
voru á saltfiskinnflutingi
landa utan EB. Jón benti
ennfremur Andriessen á að
ner væri um næstum priðja
hluta alls útflutningsverð-
mætis íslendinga á fiski að
ræða, málið því ákaflega
mikilvægt fyrir okkur. Að
sögn Jóns komu engin skýr
svör fram frá EB, önnur en
þau að þetta mál væri sam-
hangandi almennri fisk-
veiðastefnu bandalagsins,
veiðiheimildum og aðgangi
að fiskimiðum. Þessi mál
verða rædd þegar sjávarút-
vegsráðherra EB kemur til
íslands í sumar til við-
ræðna við Halldór Ás-
grímsson.
Að sögn Jóns Baldvins
kom fram vilji til þess að
hálfu EB að hraða fram-
gangi þeirra viðræðna sem
bandalagið á í við EFTA.
EFTA ríkin leggja einkum
áherslu á að ná samningum
um frjálsan aðgang stúd-
enta að háskólum innan
EB og samstarfssamning-
um um vísindi og rann-
sóknir, auk þess sem kallað
hefur verið frelsin fjögur,
þ.e. á sviði þjónustu, vöru-
viðskipta, fjármagnsmark-
aðar og vinnumarkaðar.
Ljóst er að utanríkisráð-
herra verður afar bundinn
af vinnu sinni innan EFTA
því fyrir sameiginlegan
fund utanríkisráðherra EB
og EFTA í lok ársins eiga
málin að hafa skýrst mjög.
Mikil vinna mun liggja að
baki þessum viðræðum.
Jón Baldvin hittir utanrík-
isráðherra EB næst 3. júlí,
eða um leið og hann tekur
við formennsku í EFTA.
Sænskir kratar 100 ára
Stokkhólmur var blóm-
um og fánum prýddur í
gaer í tilefni af 100 ára af-
mælis flokks sænskra jafn-
aðarmanna. Að sögn Jóns
Baldvins Hannibalssonar,
formanns Alþýðuflokks-
ins, sem er viðstaddur há-
tíðahöldin, var afar
hátíðlegt um að litast.
Hátíðahöld sænskra
krata eru þó ekki einungis
hopp og hí. Meðan á þeint
stendur starfa fleiri tugir
umræðuhópa sem ræða
hverskyns mál, bæði þau
sem tengjast Svíum sjálf-
um sem og alþjóðamál. Að
auki eru í tengslum við há-
tíðina fluttur fjöldinn allur
af fyrirlestrum þar sem
fyrirlesarar reyna að fást
við mörg þau vandamál
sem brenna munu á stjórn-
málaflokkum í framtíð-
inni, sem og mörg þeirra
mála sem brunnið hafa á
þeim í gegnum tíðina.
ÞEIR KOMUST AF . Sovéskur kjarnorkukafbátur fórst við Bjarnarey fyrir skemmstu. Á myndinni sjást þeir sjó-
liðar sem komust lífs af úr slysinu. Sjálfir sögðu þeir við blaðamenn aö skipstjórinn hefði fórnað lifi.sínu svo fleiri mættu
komast af.
Gro Harlem fékk veglega marsipanköku frá norskum
krötum á 50 ára afmælinu.
Gro fimmtug
Gro Harlem Brundtland
forsætisráðherra Noregs
og formaður norska
Verkamannaflokksins varð
fimmtug í fyrradag, þ. 20.
apríl sl. Gro er geysilega
vinsæl í heimalandi sínu og
hefur verið oftar en einu
sinni nefnd „Móðir
Noregs.“
Gro Harlem er læknir að
mennt. Hún hefur lítið
sinnt læknastörfum und-
anfarin ár, en meir helgað
sig stjórnmálum. Forsætis-
ráðherrann segir þó í við-
tali við Arbeiderbladet í
Noregi, að hún sinni stund-
um læknastörfum innan
fjölskyldunnar og meðal
vina sinna á Stórþinginu,
þótt hún vilji ekki mæla
með sér sem besta
lækninum.
Arbeiderbladet spyr
einnig Gro hvernig tilfinn-
ing það sé að vera orðin
fimmtug. Gro Harlem
svarar: „Það er eiginlega
engin tilfinning. Á margan
hátt kemur dagurinn flatt
upp á mig. Það urðu hins
vegar þáttaskil í lífi mínu í
fyrra þegar faðir minn lést.
Þá var eins og veggur félli
út og mér fannst ég vera
orðin miðaldra. Ég er eig-
inlega orðin fimmtug ári of
seint.“
Aðspurð um hvað hún
muni starfa eftir áratug,
svarar Gro, að nóg séu
verkefnin heima fyrir, en
hún útiloki ekki að vinna
utan landsteina Noregs í
framtíðinni. „Stjórnmála-
menn geta ekki dregið línu
við landamæri síns lands,
það sanna umhverfismálin
meðal annars, „ segir Gro
Harlem Brundtland í af-
mælisviðtalinu við Arbei-
derbladet.
Gro Harlem er fjögurra
barna móðir (3 drengir og
ein stúlka) og á tvö barna-
börn og eitt til viðbótar á
leiðinni.
Jón Baldvin Hannibalsson send-
ir afmœliskveðju til Gro Harlem:
Þökkum forystu-
hlutverkið
Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins
hefursent Gro Harlem Brundtland forsætisráöherra Nor-
egs og formanns norska Verkamannaflokksins eftirfar-
andi skeyti:
„Kæra Gro Harlem Brundtland,
Mér þykir leitt að vegna heimsóknar til Brussel get ég
ekki samglaðst þér ogfélögum okkar I Osló, þann 20. apr-
II.
Frá íslenskum sósíaldemókrötum fœri ég þér kærar
kveðjur og hamingjuóskir.
Við þökkum þér það forystuhlutverk sem þú hefur
gegnt áalþjóðavettvangiog íforystusveit norrrænnasósí-
aldemókrata.
Innilegar kveðjur,
Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins.