Tíminn - 01.06.1968, Page 11
LAUGARDAGUR 1. júnf 1968.
TIMINN
11
KEISARASKURÐUR
Fram'bald af bls. 5
sögnum á JúKus Cæsar að hafa
komið í heiminn á sínum tíma á
þennan hátt, og dregur aðgerðm
nafn sitt af því. Hins vegar hafa
sagnfræðingar fultyrt, að þessi
sögn eigi við engin rök að styðj
ast Fyrr á tímum, þegar hrein
lætiskröturnar voru ekki sem
mesfcar, létust langflestar konur,
sem gengust undir keisaraskurði.
Á okkar dögum eru keisaraskurð-
ir ekki lengur neitt hættuspil, svo
framarlega sem þeir eru fram-
kvæmdir af læknum, sem vita,
hvað þeir eru að gera.
En Serifa Kadrija hafði ekki
haft hugmynd um, hvað hún var
að gera. Aldrei á ævi sinni hafði
hún heyrt um keisaraskurð, en
samt sem áður komust læknarQÍr
á spítalanum í Orizren, að raun
um, að hún hafði gert þetta meist
aralega veL
— Engin taug né heldur ein
einasta æð hefur skaðazt við þessa
aðgerð, sagði Dr. Krasnici, eftir
að konan hafði verið rannsökuð
gaumgæfilega á spítalanum. Hún
fór alveg rétt að þessu. Skurðui-
inn er að vísu dálitið óregluleg-
ur og líkast því a'ð hann hafi
verið gerður með sög, en það er
auðvitað vegna þess, að hún
þurfti að nota rakvélarblað til
þessa, og það gamalt og sljótt.
En a'ð öðru leyti er eins og hér
hafi verið sérfræðingur að verki.
Barnið var fullkomlega heiltorigt
og vó við fæðingu kíló, en
var 53 cm. á lengd. En ég vil bæta
því við, að það er mjög vafasacnt
hvont Serifa hefði haldið lífi, ef
hún hefði eklki fljótlega verið
flutt á spítalann, svo að hægt var
að koma í veg fyrir að eitrun
fcæmist í sárið. Vitað er um þrjú
tilfelli, þar sem fæðandi konur
hafa reynt að gera á sjálfum sér
keisaraskurði, en allar dóu þær
skömmu síðar. Serifa er eina kon
an í heiminum, sem hefur gert á
sér keisaraskurð og iifað af,
a.m.k. svo áð vitað sé.
Serifa komst aftur til meðvit-
undar nokkrum klukkustund
um eftir að hún var flutt á sjúkra
húsið. Hún fann ekki til lengur,
og hún svaraði fúslega öllum
þeim spurningum, sem læknarnir
toáru fram við hana. Hún var
toýsna föl, en að öðru leyti virt-
ist ekkert vera að hennl
Við nánari athugun fundu lækn
arnir reyndar stórt æxli í móður-
lífinu, og það var það, sem kom-
ið hafði í veg fyrir eðlilega fæ'ð-
ingu. Æxlið reyndist góðkynjað,
og var fj'arlægt, og þá var Serfia
heiltorigð.
Núna, tæpum 9 mánuðum eft-
ir fæðinguna líður bæði móður ug
barni prýðisvel. Serifa er drottn-
ing þorpsins vegna hugrekkis síns
og dugnaðar og litli drengurinn
Agim, er yndislegt barn. fallegt
og geðgott. Einhvern tímiann vill
hann. sjálfsagt vifca, hvers vegna
hann heitir „dagrenning" og þa
fær hann í fyrsta siun að heyra
hvernig móðir hans bjargaði lífi
þeirra beggja með sljóu rakvéla-
blaði í dagrenningu siðla í sept
emtoermánuði.
(Þýtt og endui-sagt.)
H-ÖRYGGI
Framhald af bls. 1.
ir þykist færir í flestan sjó
hægra megin á götunum þá
eru margir gangandi vegfar-
endur hvergi nærri búnir að
átta sig á úr hvaða átt bíla
er von, þegar þeir fara vfir
götur. Verður því að virða
hraðatakmörkin á meðan veg-
farendur eru að venjast nýj-
um ökureglum.
Um síðustu helgi sýndu í-
búar í þéttbýli víða um land
að þeir gátu sýnt varúð og til-
litsemi í umferðinni og mun
óhætt að fuilyrða að þá hafi
allir vegfarendur verið ákveðn
ir í að fara að settum reglum
og stóðust end’a þá prófraun
með prýði, að skipta yfir úr
vinstri umferð í hægri, þótt
nokkur misbrestur hafi verið á
hægri akstri síðan. En nú
verða ökumenn að ganga gegn
um aðra prófraun. Um hvíta-
sunnuna munu þúsundir bíla
streyma út á þjóðvegina og
langflestir bílstjórar verða þá
byrjendur í hægri umferð úti
á vegum. Oft hefur verið bent
á þá staöreynd að hætturnar
samfara umferðarbreyting
unni eru meiri úti á vegum
en í þéttbýli. Er þvi mjög
mikilvægt að ökumenn sýni
sömu tillitsemi og varúð í
akstri úti á vegum og þeir
gerðu á H-dag í þétfcbýli. Á
vegunum skapast vandamál í
samtoandi við hægri umferð
sem ekki er hætta á í þétt-
býli. Ef ökumenn aka lengi án
þess að þeir hafi önnur öku-
tæki fyrir augunum, en þau
sem þeir eru í sjálfir, er hætt
við að þeir hafi ekki stöðugt
í huga að aka á hægra vegar-
helmingi. Flestir þjóðvegir eru
ekki breiðari en svo að tæp-
ast er hægt að segja, að þeir
séu nema ein akrein þótt bíl-
ar geti mætzt þar. Aka því
flestir bílar að meira eða
minna leyti eftir miðjum veg-
inum. Er ávallt hætta á að þeg
ar bílar mætast á slíkurn veg-
um að viðbrögð bílstj óra séu
ekki rétt og að þeir víki t’-i
vinstri, eins og þeir eru van-
astir en ekki til hægri og nú
ber að gera. Þá er framúrakst
ur nú sérstaklega hættulegur.
Aka verður fram úr toílum
vinstra megin við þá og þótt
það hafi gengið blessunarlega
vel í þéttbýli er það sýnu
hættulegra að treysta á rétt
viðtorögð úti á vegum. Vegirn-
ir eru yfirleitt mjórri. Hætt er
við aö ökumenn haldi sig ekki
nægilega vel úti í hægra kanti
og vegabrúnir eru oft lausar
í sér og lítið svigrúm á þjóð-
vegum.
Við umferðarbreytinguna
var löggæzla úti á þjóðvegum
allt að því fjórfölduð frá því
sem verið hafði. Tólf bifreiðar
ríkislögreglunnar hafa verið
við eftirlits- og löggæzlustörf
úti á þjóðvegum, og auk þess
var löggæzla í kaupstöðum og
kaupfcúnum landsins stóraukin.
Þessari löggæzlu verður haldið
áfram.
Um hvítasunnuhelgina verð
ur þjóðvegalöggæzla enn stór
aukin, einkum á Suðvestur
landi. svo og út af Akureyri,
þar sem búast má við mestri
umferð. Aðalverkefni þjóð-
vegalöggæzlunnar verður að
fylgjast með að reglur um há
markshraða verði virtar og
^ökumenn hagi akstri sínum í
samræmi við a'ðstæður og stað
setji ökutæki sin rétt á veg-
unum.
Auk þessarar löggæzlu verða
til staðar flokkar löggæzlu-
manna, sem unnt verður að
senda til þeirra staða, sem
þörf verður á.
Upplýsinga- og fjarskipta
stöð lögreglunnar verður
starfrækt með svipuðu sniði
og var um síðustu helgi, er
breytt var yfir í hægri umferð,
í náinni samvinnu við Ríkisút
varpið. Verður áminningum og
leiðbeini.ngum til ökumanna
útvarpað við og við alla helg-
ina.
Sjö vegaþjónustubifreið-
ar frá Félagi isienzkra bif-
reiðaeigenda verða úti á þjóð
vegum. aðallega nér á Suö-
vesturlandi. vegfarendum til
aðstoðar.
— Leggjumst öll á eitt um
að skapa farsæla og slysalausa
hvítasunnuumferð --- þá verð-
ur neimkoman ánægjuleg.
HVEE AF ÞESSUM
ÞREM
KAFFITE6UNDUM
ER BEZT?
Það er smekksatriði - hitt er staðreynd að allt er þetta
úrvalskaffi. Þess vegna eru allar tegundirnar svona hressandi.
*
0. JOHHSON &KAABEB
/EUUtt Islenzkt(Jc|)islenzkan IDNÁD
STUÐNINGSMENN
GUNNARS THORODDSENS
efna til almenns fundar í Stykkishólmsbíói, STYKKISHÓLMI,
þriðjudaginn 4. júní kl. 20,30.
Gunnar Thoroddsen og kona hans koma á fundinn.
STUÐNINGSMENN
GUNNARS THORODDSENS
efna til almenns fundar í Röst, HELLISSANDI, miðvikudag-
inn 5. júní kl. 20,30.
Gunnar Thoroddsen og kona hans koma á fundinn.
STUÐNINGSMENN
GUNNARS THORODDSENS
í VESTMANNAEYJUM
efna til almenns fundar í samkomuhúsinu, fimmtudaginn
6. júní kl. 21,00.
Gunnar Thoroddsen og kona hans koma á fundinn.