Alþýðublaðið - 01.08.1985, Side 2
2
Fimmtudagur 1. ágúst 1985
'RITSTJORNARGREINj'
Blýantsbændur í vanda
Þá eru sendimenn Islenskra sauðfjárbænda
komnir til landsins úr Bandarlkjaför sinni. Þeir
tvlmenningarnir, dr. Sigurgeir Þorgeirsson bú-
fjárfræðingur og Gunnar Páll Ingólfsson for-
stjóri hafa verið vestan hafs til þess að kanna
möguleika á sölu Islensks dilkakjöts á Banda-
rfkjamarkaði. Það hefur komið fram hjá þeim
félögum, að þeir hafi fengið góðar undirtektir
tveggja matvöruverslanakeðja í Néw York á
þeim grundvelli að íslenska kjötið yrði kynnt
og selt sem sérstök gæðavara.
Sendiför þessara tveggja manna styður það,
sem hér hefur verið haidið fram, að þeir sem
einokað hafa sölu á framleiðslu sauöfjár-
bænda hafa brugðist. Ef sölusamtökin hefðu
haft einhvern áhuga á því að afla markaða vest-
anhafs, hefði sendiförin nú verið ástæðulaus.
Markaðurinn hefurverið fyrir hendi árum sam-
an en aldrei verið nýttur. Astæöan er auðvitaö
það vitlausa kerfi, að gróðavænlegra sé fyrir
seljendurna að geyma framleiðsluna heidur en
að selja hana. Rlkissjóður sá jú alltaf um aö
greiða geymslukostnaðinn. Auðvitaö tekur það
nokkur ár að vinna uþþ viðunandi markað fyrir
fslenska dilkakjötið vestanhafs, þau ár sem
þegar eru glötuð vegna gróðasjónarmiðs Sam-
bandsins. Það hefur kostað sauðfjárbændur
og þjóðina alla ómældar fjárfúlgur. Það sár-
grætilegasta er þó, að blýantsbændurnir I
Bændahöllinni, þeir sem alvörubændurnir
hafa falið forystu í slnum málum, hafa varið
Sambandið með kjafti og klóm. Þau kauþfélög,
sem sláturieyfi hafa, eru þessa dagana að
mynda samtök um það, að afurðadeild SÍS fái
áfram einkarétt á sölu dilkakjötsins. Það er því
I hæsta máta undarlegt, að bændur skuli ófá-
anlegir til þess að hlíta forsjá annarra en þeirra
sem hafa reynst þeim verst á undanförnum ár-
um.
m
I framhaldi af þessu kjötsölumáli er ekki úr
vegi að minnast á ummæli Gunnars Guðbjarts-
sonar, formanns Framleiðsiuráðs landbúnað-
arins, I blöðum nú ádögunum. Þarheldurhann
þvl fram að stórkostlegt kjötsmygl eigi sér stað
út af Keflavlkurflugvelli. Liðsmenn á vellinum
geti flutt út af hersvæðinu kjöt að vild og það
sé slðan selt I verslanirog I hótel á Reykjavlkur-
svæðinu. Gunnar Guðbjartsson hefur það eftir
lögreglustjóranum á Keflavlkurflugvelli, að
hann geti ekki haft það eftirlit sem þarf til þess
að stöðva þennan ólögmæta kjötútflutning af
vellinum. Gunnar segir ennfremur orðrétt I við-
tali við NT: „Það er talið og reyndar fullyrt af
kunnugum mönnum, að nautakjöt sé flutt I
stórum stll út af vellinum og selt með miklum
hagnaði og þetta býður auðvitað heim óskaþ-
legu svindli og lögbrotum.“ Framleiðsluráð
landbúnaðarins óskaði slðast eftir rannsókn á
þessu kjötsmygli fyrir tæpum tveimur árum.
Gunnar Guðbjartsson segir að ekkert hafi út úr
þvl komið og áhugi greinilega lltill á því að
skoða málið.
Jón Þórarinsson, þáverandi lögmaðurbæmda-
samtakanna, ritaði landbúnaðarráðherra bréf I
mars 1984 og tiundaði hvern þátt GunnarGuð-
bjartsson, formaður Framleiðsluráðs, og Ingi
Tryggvason, formaður Stéttarsambands
bænda, áttu I því að eyöileggja sjálfir það
kærumál. Forystumenn bændasamtakanna
virtust vilja gera sem minnst úr því máli vegna
meints brots Hótels Sögu. Auövitað hefði það
orðið mjög vont mál fyrir blýantsbændurna I
Bændahöllinni, að þeirra eigið hótel hefði
verslað með smyglað kjöt I stað þess að nota
framleiðslu eigenda sinna. B. P.
Friðarbúðir í
minningu
helsprengiunnar
Hinn 6. ágúst eru liðin 40 ár frá
því kjarnorkusprengjunni var varp-
að á Hirosima. í tilefni af þessu
munu verða starfræktar friðarbúð-
ir á vegum Samtaka herstððvarand-
stæðinga með stuðningi ýmissa
samtaka dagana 6. til 10. ágúst.
í þessu sambandi hafa Samtök
herstöðvaandstæðinga sent frá sér
eftirfarandi fréttatilkynningu.
— Aldrei aftur Hirosima
— aldrei aftur Nagasaki
I ár eru liðin 40 ár frá því er
bandaríski herinn varpaði kjarn-
orkusprengjum á japönsku borg-
irnar Hirosima og Nagasaki. Frið-
arhreyfingar um heim allan munu
minnast þessara atburða með stór-
fundum og fjölbreyttum aðgerðum
víða um lönd.
SHA hugsa sér til hreyfings dag-
ana. 6.—10. ágúst. Raunarmásegja
að upphafspunktur aðgerðanna
verði strax kl. 23. 15 þann 5. ágúst
en á því augnabliki fyrir 40 árum
var sprengjunni varpað á Hirosima.
f nafni alheimssamstöðu í baráttu
friðarsinna gegn kjarnorkuvopn-
um verður á þessu augnabliki fleytt
kertum á vötnum og ám um heim
allan í minningu fórnarlambanna í
Nagaskí og Hirosima. Hér fer at-
höfnin fram við Reykjavíkurtjörn
Ríkissjóður 1
hækkun frá í fyrra. Frá fyrra ári
hækkuðu beinir skattar um 17% en
óbeinir skattar um 28%.
Spá um framvindu ríkisfjármála
bendir til þess að afkoma ríkissjóðs
verði nokkru lakari en fjárlög árs-
ins gerðu ráð fyrir. „Má einkum
rekja það til aukinna útgjalda
vegna launa- og tryggingamála"
segir í frétt ráðuneytisins og einnig
„að tekjur af aðflutningsgjöldum á
árinu 1985 muni dragast saman að
raungildi“.
með því að japönskum og íslensk-
um minningarkertum verður rennt
út á vatnið.
Aðalaðgerðirnar hefjast á Hiro-
simadaginn 6. ág. með því að slegið
verður upp friðartjaldbúðum í
Njarðvíkum en síðan verður úti-
fundur við aðalhlið Vallarins með
stuttum ávörpum og ljóðasöng. Þar
næst verður kveiktur minningareld-
ur sem látinn verður loga samfellt
til 9. ág. sem er Nagasakidagurinn.
FRIÐARBÚÐIR OG GANGA: í
friðarbúðunum mun fólk dveljast í
þrjá daga og þrjár nætur, sumir all-
an tímann en aðrir skemur, farið
verður í könnunarferðir um Rosm-
hvalanes og Miðnesheiði. í friðar-
búðunum verður afmarkað sérstakt
athafna- og leiksvæði fyrir börn,
bæði úti og inni í stóru samkomu-
tjaldi. Þar verða leikföng og leik-
tæki á boðstólum. Auk þess verður
skipulögð barnadagskrá dag hvern
frá 13—15 í umsjá fóstra. Á kvöldin
verður margt til gamans gert, byggð
upp friðarbúðamenning með leik
og söng, haldnar grillveislur og lagt
á ráðin með friðaruppákomur.
Launin 1
ríkir milli karla og kvenna í af-
greiðslustörfum, karlar með 7.300
kr en konur með 5.600 kr.
Kjararannsóknarnefnd hefur
einnig kannað meðalfjölda vinnu-
stunda á viku. Hefur hann aukist á
þessu tímabili hjá öllum stéttum
nema verkamönnum. Hjá körlum'
hefur hann minnkað um 0,3% og
hjá konunum um 1%.
Mest hefur aukningin verið hjá
iðnaðarmönnum og konum í af-
greiðslustörfum, 1,8% hjá báðum
stéttum. Næst mest er aukningin
hjá konum í skrifstofustörfum,
1,2%. Aukningin hjá körlum í
skrifstofustörfum og í afgreiðslu-
störfum er 1%.
Friðarbúðaaðgerðir enda með
fundi í Félagsbíói í Keflavík þar sem
boðið verður upp á fjölbreytta
menningardagskrá.
Laugardaginn 10. ág. verður
fjöldagangagegn kjarnorku. Geng-
ið verður frá Hafnarfirði með við-
komu í Kópavogi og víðar og endað
á friðarfundi á Lækjartorgi í
Reykjavík.
HEIMSÓKN FRÁ HIROSIMA:
Japanska friðarhreyfingin Gensui-
kyo sendir út flokk manna, sem fer
víða um lönd og mætir á fundina
sem haldnir verða. Hér er um að
ræða fólk sem lifði af kjarnorku-
árásirnar og man þessa atburði vel.
TVeir menn úr hópnum koma til ís-
lands og taka þátt í aðgerðunum
hér og munu flytja ávörp, bæði á
fundi í Keflavík og á Lækjartorgi.
Ráðgert er að þeir hitti forseta Is-
lands og forsætisráðherra að máli
og von okkar ér, að þeir snúi heim
til Hirosima í þeirri fullvissu, að á
íslandi fari fram ötul barátta gegn
hörmungum á borð við þær sem
dundu yfir Hirosima og Nagasaki
fyrir 40 árum.
Gensuikyo hefur boðið SHA að
senda fulltrúa til Japan á hinar
miklu aðgerðir sem þar verða
2.—12. ágúst. Samtökin hafa
þekkst þetta boð og mun Guð-
mundur Georgsson læknir fara sem
fulltrúi þeirra með gjafir og sam-
stöðukveðjur frá íslensku friðar-
baráttufólki.
Skráning í aðgerðirnar SHA og
nánari upplýsingar fást á Skrifstofu
SHA í Mjölnisholti 14, sími 1 79 66.
5. ágúst, mánudagur
Minningarkertum fleytt á Reykja-
víkurtjörn kl. 23.15 þegar nákvæm-
lega 40 ár eru liðin frá kjarnorku-
sprengingunni yfir Hirosima.
6. ágúst, þriðjudagur
1. Slegið upp tjaldbúðum á tjald-
stæði Njarðvíkur. 2. Fundur við
aðalhlið kl. 21.30. Upphafsorð:
Ingibjörg Haraldsdóttir. Mússikk:
Hörður Torfason. Leiklestur: Úr
Lýsiströtu; Erla Skúladóttir, Rósa
Guðný Þórsdóttir og María Sigurð-
ardóttir. Ávarp: Þóra Kristín Ás-
geirsdóttir. Minningareldur kveikt-
ur og varðstaða hafin. (Rútuferðir
úr bænum).
7. ágúst, miðvikudagur.
1. Friðarbaráttuuppákomur.
2. Hafin gerð 48 kröfuspjalda í
mynd kjarnorkudjúpsprengja af
gerðinni B-57. 3. Barnagaman frá
13.00—15.00 undir umsjá fóstra.
4. Tekið á móti japönunum Toshio
Okamura og dr. Yoshio Niki. Mót-
tökuathöfn við hliðið, friðardúfum
sleppt. (Flugvélin væntanleg kl.
15.10). 5. Kynnisferð um Rosm-
hvalanes og Miðnesheiði: Ferðast
verður í rútu með vana leiðsögu-
menn. 6. Kvöldvaka í friðarbúð-'
um. 7. Sveinbjörn Beinteinsson
magnar níðstöng gegn kjarnorku á
fornum krossgarði við Sjónarhól.
8. Árni Björnsson ræðir um stöng-
ina og merkingar hennar.
8. ágúst, fimmtudagur
1. Friðarbaráttuuppákomur.
2. Barnaskemmtun 13.00—15.00.
3. Fjöruferð: Stafnes - Ósabotnar.
4. Fylgst með ferðum flugvéla og
leiðbeint um tegundagreiningu.
5. Kvöldvaka í friðarbúðum —
Grillveisla. Japanirnir koma til við-
ræðna í búðunum.
9. ágúst, föstudagur.
1. Friðarbaráttuuppákomur.
2. Gróðursetningarferð á Miðnes-
heiði. 3. Barnatívolí 13.00—15.00.
4. Tjaldbúðir • teknar niður.
5. Samkoma í Félagsbíói í Kefla-
vík. Fundarstjóri: Jóhannes
Ágústsson. Ávarp: Árni Hjartar-
son. Ljóð: Hjörtur Pálsson. Leik-
þáttur: Rokkhjartað slær (Leikfél.
Hf.). Upplestur: Þórarinn Eldjárn.
Ljóðasöngur: Megas. Ávarp frá
Japan. 7. Tjaldbúðir felldar —
Minningareldur slökktur. Haldið
heim (Rútuferðir).
10. ágúst, laugardagur.
Hafnarfjarðarganga
Gönguleið: Thorsplan í Hafnar-
firði — Reykjavíkurvegur — Hafn-
arfjarðarvegur — Nýbýlavegur —
Skemmuvegur — Reykjanesbraut
— Miklabraut — Rauðarárstígur
— Laugavegur — Lækjartorg.
Tímasetning: 14.00 — 19.00
Safnast saman á Kirkjutorginu upp
úr kl. 13.30. Friðarbúðamenning;
söngvar og uppákomur sem friðar-
búðafólk hefur æft upp. Ávarp:
Eggert Lárusson. Kvæðalestur og
söngur. Tölt af stað kl. 14.30
(6 km). Áning á Borgarholti í Kópa-
vogi kl. 15.40. Ávarp: Ingibjörg
Hafstað. Söngur og kvæðalestur.
Brokkað áfram kl. 16.00 (5,6 km).
Áning við hrossið við Suðurlands-
braut kl. 17.00. Ávarp: Unnur Jóns-
dóttir. Söngur: Örn Bjarnason.
Ávarp: Ragnar Þórsson. Skeiðað í
bæinn kl. 17.30 (5,6 km). Fundur á
Lækjartorgi: Avarp. Hvatning.
Hvatning frá Hirosima. Söngur:
Bjartmar Guðlaugsson. Lokaorð:
Atli Gíslason lögfræðingur. Rokk:
Einar örn og co. Leikslok kl. 19.00.