Alþýðublaðið - 02.06.1989, Blaðsíða 1
ASÍ- og BSRB-fólk mótmœlir verðhœkkunum:
Þúsundir lögðu niður vinnu
og fjölmenntu á baráttufund
Þúsundir félaga í ASÍ og
BSRB lögðu niður vinnu um
miðjan dag í gær til að fjöl-
mcnna á baráttufund á
Lækjartorgi, þar sem mót-
mælt var verðhækkunum
sem stjórnvöld hafa lagt
blessun sína yfir að undan-
förnu. í álvktun er þess kraf-
ist að ríkisstjórnin stöðvi
allar verðhækkanir og standi
við fyrirheit í nýgerðum
samningum.
„Auðvitað vitum við að
það eru til skýringar á þessu
öllu saman. Þeirra skýringa
má leita í efnahagsreikning-
um olíufyrirtækja, skipafé-
laga, flugfélaga og okur-
fyrirtækja. En heimilin hafa
líka sína efnahagsreikninga
og þá má einnig útskýra.
Auðvitað vitum við að þegar
ofurtekjufólkinu hjá Flug-
leiðuni eru veittar hækkanir
um tæpar 40 þúsund krónur
á mánuði, eða sem nemur
launum lágtekjumanns, þá
þarf að sækja þá peninga
einhversstaðar. Og nú á að
sækja þá í okkar vasa. Þess
fólks sem gerði jafnlauna-
samninga. Það fólk á nú að
borga hærri flugfargjöld í
l'lugi innanlands. Þetta
ákvað ríkisstjórnin. Þessari
ákvörðun og öðrum ákvörð-
unum ríkisstjórnarinnar,
sem opna fyrir verðhækkun-
arbylgjuna mótmælum við.
Við mótmælum öll sem
einn,“ sagði Ögmundur Jón-
asson formaður BSRB m.a. í
sinni ræðu og tóku fundar-
menn vel undir með honum.
Ásmundur Stefánsson,
forseti Alþýðusambandsins,
var ekki minna harðorður en
Ögmundur í sinni ræðu.
Hann minnti á bréf forsætis-
ráðherra þar sem segir að
ríkisstjórnin lofar viðspyrnu
gegn verðhækkunum. „Ég
hef ekki heyrt um neina við-
spyrnu. Ég hef enga tilburði
séð til að hamla gegn verð-
hækkunum. Ég hef hvergi
séð að ríkisstjórnin hafi
reynt að sporna við. Ég segi
þess vegna, að ríkisstjórnar-
flokkarnir hafi brugðist. Það
er hart, það er sárt og auðvit-
að sárast fyrir okkur sem
kusum þá sem flokka jafn-
réttis og félagshyggju. Ef
verðhækkanasóknin bráir
ekki af ríkisstjórninni, þá
hljóta viðbrögð okkar að
verða liörð. Þau hljóta að
ASÍ- og BRSB-fólk lét smá-
rigningu ekki aftra sér frá
þátttöku á útifundi sam-
takanna á Lækjartorgi í
gær, þar sem mótmælt var
kröftuglega verðhækkun-
um. A-mynd/E.ÓI.
verða mjög hörð. Láti ríkis-
stjórnin ekki segjast, þá
verða frekari aðgerðir til að
knýja rikisstjórnina að
standa við sinn hlut að fylgja
í kjölfarið. Við verðurn að
láta það gerast,“ sagði Ás-
mundur Stefánsson.
í ályktun fundarins er
harðlega mótmælt gegndar-
lausum verðhækkunum sið-
ustu daga. Með þeint hafi
brostið forsendur nýgerðra
samninga. Skorað er á
stjórnina að stöðva hækkan-
irnar og bæta Iaunafólki
þann skaða sem orðið hefur.
Fundinum barst fjöldi stuðn-
ingsyfirlýsinga víðs vegar að
af landinu.
Jon Baldvin um verðhœkkanirnar:
Afleiðing óþolandi
mikillar verðbólgu
„Við erum að horl'ast í
augu við al'leiðingar af
þeirri staðreynd, að við er-
um hér með óþolandi
mikla verðbólgu. Það verð-
ur einfaldlega ekki við það
búið í þessu þjóðfélagi til
langframa að liafa hér
meiri verðbólgu en gerist
og gengur í viðskiptalönd-
um,“ sagði Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkis-
ráðherra þegar Alþýðu-
blaðið ræddi við hann í
gær um þær rniklu verð-
hækkanir sem dunið hafa
yfir.
Jón Baldvin sagði að
spurningin væri hvort al-
menningur væri reiðubú-
inn að taka á sig þær fórnir
sem það óhjákvæmilega
þýðir til skamms tíma, að
kveða verðbólgu niður
með afdráttalausum hætti.
„Við munum aldrei komast
út úr þessum vandamálum
að óbreyttu kerfi í undir-
stöðuatvinnuvegunr okkar,
landbúnaði og sjávarút-
vegi,“ sagði Jón Baldvin.
„Sérstaklega er komið á
daginn, að engin ríkis-
stjórn mun ráða við verð-
myndun í íslenskum land-
búnaði að óbreytti i grund-
vallarlöggjöf. Þetta er ekki
bara spurning um það að
knýja fram endurskoðun á
búvörusamningnum, held-
ur verður jal'nframt að
breyta þeirri löggjöf um
Iandbúnaðarmál sem
kveður á um skuldbind-
ingu ríkissjóðs til þess að
greiða og gefa rikistrygg-
ingu fyrir nánast öllum
þeim kostnaði sem hleðst
upp í þessu kerfi — burtséð
frá því hvort framleiðslan
er langt umfram þarfir inn-
anlands eða neyslu.
Þetta er farið að kosta
gríðarlegar fjárhæðir og
kerfið hleður sífellt á sig
nýjunr útgjöldunr sem
ríkisstjórnir og fjármála-
ráðherrar standa varnar-
lausir fyrir, vegna þess að
meirihlutavilji hefur ekki
fengist á Alþingi til þess að
taka á þessum vandamál-
um.
Við erum að ræða hér
um grundvallarvandamál í
okkar tveimur höfuð at-
vinnugreinum, sem verða
ekki frekar en fyrri daginn
leyst með einhverjum
skottulækningum, eins og
gengiskollsteypum, en
valda því þó að á ríkið og
ríkissjóð hlaðast útgjalda-
skuldbindingar langt um-
fram það sem eðlilegt er til
langframa,“ sagði Jón
Baldvin Hannibalsson.
Sjá einnig bls. 3
Vinnueftirlitið:
Hækkun að undir-
lagi launamanna?
Ríkissljórnin hefur fallisl
á beióni Vinnueftirlits ríkis-
ins um hækknn á gjaldskrá,
fyrir sérstaka þjónustu og
eftirlitsstörf. Hækkunar-
hciónin hljóóaói upp á
23,3a/o. Athygli vekur að
stjórn Vinnueftirlitsins cr
skipuó fulltrúum þeirra aðila
sem stóðu aó nýlegum kjara-
sainningum og þeim sömu
sem mótmæla nú kröftug-
lega veróhækkunum.
Þjóðhagsstofnun var beð-
in um að meta beiðnina, sem
er rökstudd með því að hún
sé nauðsynleg til þess að
mæta hækkunum á launaút-
gjöldum og öðru verðlagi.
Vinnueft irlitið er sjálf-
stæð stofnun sem heyrir und-
ir félagsmálaráðuneytið.
Fornraðurinn er skipaður af
ráðherra, en átta aðrir
stjórnarmenn eru skipaðir
samkvæmt tilnefningu aðila
vinnumarkaðarins. Alþýðu-
samband íslands á þrjá full-
trúa í stjórninni, Vinnuveit-
endasambandið tvo, Vinnu-
málasamband samvinnufé-
laganna einn, BSRB og
Samband íslenskra sveitarfé-
laga einn.
A Ihvðubandalagið:
Flokkseigendafélagið
undirbýr hreinsanir
Sjá bls. 3