Alþýðublaðið - 22.05.1992, Page 20
20
Föstudagur 22. maí 1992
Andrés Amalds, gróðurvemdarjulltrúi:
„Við tökum vel á móti öllum sem
til okkar leita, enda teljum við starf
áhugahópa mjög mikilsvert Starf
þeirra skapar aukinn skilning á
þessum umhverfisvanda og veitir
stjórnmálamönnunum aukinn
þrýsting,“ segir Andrés Arnalds
gróðurvemdarfulltrúi hjá Land-
græðslunni. Á síðustu ámm hefur
orðið mikil vakning varðandi land-
græðslu- og gróðurverndarmálin,
enda blasa vandamálin víða við aug-
um manna. Þrátt fyrir þröngan fjár-
hag hefur Landgræðslunni tekist að
þoka málum áfram og nú sjá menn
fram á skipulagðari vinnubrögð en
oft áður og aukið samstarf við bænd-
ur og aðra áhugamenn.
„I ár var byijað óvenju snemma á
sáningu melgresis til að stöðva sand-
fok,“ segir Andrés. „Fyrst vestur við
Skaftá í Vestur-Skaftafellssýslu. En á
síðustu árum hefur Skaftá verið að
mynda heilmiklar sanddyngjur, hlaup-
in hafa verið smærri og tíðari. Á Mýr-
dalssandi og Skógasandi hefur tilgang-
urinn aðallega verið að hindra sandfok
yíir veginn og einnig við Óseyrarbrú
við Ölfusá. Þá er einnig nokkuð síðan
sáning lúpinunnar byijaði, en henni er
sáð á nokkrum völdum stöðum á land-
inu í uppgræðsluskyni.
Síðan byijar áburðarflugið um mán-
aðamótin með hefðbundnu sniði.
Af nýjum liðum í starfseminni sem
verða efidir sérstaklega, má nefna sam-
starf við bændur, við uppgræðslu í
heimalöndum.
Markmiðið er að auka gróður á
heimajörðunum þar sem við á, einkum
á gróðurfarslega viðkvæmum svæðum,
sem hægt er að nýta til beitar vor og
haust, og létta þar með á öðrum gróðri
á viðkvæmustu tímabilunum."
Gervitunglamyndir varpa nýju
ljosi á vandann
Sum af þessum verkefnum sem
Andrés nefnir eru stór í sniðum, svo
sem uppgræðslan við Skaftá og á Mýr-
dalssandi. .JEinnig er mikið verk á
Hólsfjöllunum. en þar tókust samning-
ar í fyrra við bændur um að leggja af
sauðfjárbúskap og nú er fjárlaust á
Fjöllum. Lokið verður við girðingar í
sumar milli Öxarfjarðar og Hólsfjalla,
en auk þess verður farið út í víðfeðmt
vamarstarf, sem einkum verður fólgið f
því að sá melgresi þvert á þurrustu
vindáttimar, í trausti þcss að melurinn
safni sandinum í sig og nái að mynda
sandvamargarða. íslenska melgresið er
í rauninni eina plantan sem hægt er
nýta til að stöðva sandfok, hún er harð-
gerð jurt sem hægt er að nota við mjög
erfið skilyrði. þolir bæði mikla þurrka
og sandsvörfun.
Einnig verður unnið heilmikið starf
að stöðvun jarðvegseyðingar í Mý-
vatnssveit, en Mývatnssveitin og Hóls-
Qöll ásamt afréttum Bárðdælinga em
alvarlegustu uppblásturssvæðin á land-
inu.“
- Það hefur veríð lomið eftir ákveð-
inni áeetlim íMývatnssveit?
„í gegnum tfðina hafa þar verið reist-
ar margar landgræðslugirðingar, yfir
30 talsins. Þessum girðingum hefur að-
allega verið ætlað að stöðva eyðingu í
endunum á sandfokstungum. Nýjar
gervitunglamyndir sýna okkur hins
vegar betur samhengi hlutanna og und-
irstrika að við verðum að vinna mun
skipulegar að stöðvun sandfoksins.
Sandurinn berst sunnan af Öræfunum,
Sjálfáefið að
verstfömu
afréttir verði
friðaðar
Dimmuborgum ógnað. ,,Sandurinn má ekki þokast eitt hænufet til viðbótar," segir Andrés.
allt til jökuls, og stöðva verður hann
áður en hann berst of nálægt megin-
gróðurlendunum. Nú er unnið að land-
græðslu- og landnýtingaráætlun fyrir
Mývatnssveit sem tekur mið af þessu.“
Aukið samstarf við bændur
Á vegum Rannsóknarstofnunar
landbúnaðarins hefur verið unnið all-
mikið starf að rannsóknum á jarðvegs-
eyðingu. I fyrra var til að mynda stigið
stórt skref við kortlagningu á út-
breiðslu eyðingarinnar f Skútustaða-
hreppi. Andrés segir þetta starf auð-
velda mjög alla skipulagsvinnu. Og
fieira kemur til, sem gefur tilefni til
bjartsýni í þeim efnum: ,.í vetur var sett
á laggimar samstarfsnefnd Mývetn-
inga sem á að móta línumar með Land-
græðslunni. í nefndinni eiga sæti full-
trúar frá Búnaðarfélagi Mývetninga.
sveitarstjóm, skógræktarfélaginu og
nýstofnuðum áhugamannasamtökum
um gróðurvemd og landgræðslu í Mý-
vatnssveit. Við höfum fundað nokkr-
um sinnum með þessari nefnd og
áherslur byijaðar að skýrast.
Eitt það fyrsta sem verður gert er að
efia samstarf við Mývetninga um upp-
græðslu heimalandanna, í því skyni að
létta á viðkvæmum gróðurlendum.
Jafnframt munu bændur koma í aukn-
um mæli í landgræðslustörf með Land-
græðslunni. Bændur leggja mikið af
mörkum sjálfir í þessu samstarfi. bæði
í fjármagni og vinnu, en einnig munu
þeir að einhverja leyti sinna launuðum
störfum við stöðvun landeyðingarinn-
ar, líkt og fieiri bændur á landinu munu
gera í ár.“
Átak til bjargar
Dimmuborgum Andrés nefnir einn-
ig miklar aðgerðir sem eru fyrirhugað-
ar í Dimmuborgum. en síðastliðið sum-
ar fengu sjónvarpsáhorfendur að sjá í
fréttum hve gífurleg hætta er þar á ferð-
um. „Þar eru alvarlegri hlutir að gerast,
e n
viðs
höfðum gert okkur grein fyrir. Við
rannsóknir á jarðvegseyðingunni hefur
komið íljós. að mikill sandur stefnir að
Dimmuborgum, hægt en sígandi. Ef
okkur tekst ekki að hefta hann. þá er
þessi mikla þjóðargersemi sem
Dimntuborgir eru, í mikilli hættu.
Sandurinn má ekki þokast eitt hænufet
til viðbótar."
- Finnið þið vcLxandi álniga hjá
bœndum varðcmdi landgra'ðsln- og
gróðunemdarinálin?
.Já. svo sannarlega. Það er bæði al-
mennur áhugi f sveitum landsins til að
taka virkan þátt í þessum störfum og
auk þess má segja að landgræðslu- og
gróðurvemdarmálin séu nú orðinn
hluti af kjarasamningi bænda við ríkis-
valdið, með búvörusamningnum.
Samkvæmt honum er gert ráð fyrir
að allt að tveimur milljörðum króna
verði varið til landgræðslu- og skóg-
ræktarstarfa bænda á samningstíman-
um. Að því er bændastéttina varðar er
markmiðið að reyna að mæta á þann
hátt þeirri tekjuskerðingu sem sam-
dráttur í sauðfjárframleiðslu veldur, að
auki er með þessu hlúð betur að land-
inu, og þeim búskap sem eftir verður
komið betur fyrir. Hann verði stundað-
ur í sátt við landið og óskir þjóðarinnar
um vel skipulagðan búskap."
Ákvæði búvörusamningsins
halda ekki
Samkvæmt búvörusamningnum er
gert ráð fyrir að þetta fjármagn komi til
viðbótar við annað fjármagn til land-
græðslumála. En hefur það orðið raun-
in?
„Því miður verður að segjast eins og
er, að enginn liður á fjárlögum land-
græðslunnar er undir þessu heiti. Engu
að síður varð úr að verja 14 milljónum
króna til landgræðslustarfa bænda í ár f
tengslum við samninginn. Nú ríður á
að sjá til þess að samningurinn verði
ekki svikinn og framlög verði stórauk-
in á næsta ári. Við trúum ekki öðru en
svo verði. Annað væri fullkomið órétt-
læti og brot á samningi sem gerður var
í góðri trú.
Við teljum að þessu fjármagni verði
vel varið. Með því væri fundin ágætis
leið til að styrkja byggðir og mæta
tekjurýmun vegna samdráttar. Að auki
er þetta ódýr leið til að efla landgæði til
framtíðarinnar, því verðum að skila í
landinu heilu til næstu kynslóða. Ef
þörf verður fyrir aukinn gróður, þá þarf
hann að vera til staðar. Og það vill
stundum gleymast, að þær gróður-
skemmdir sem nú blasa við, urðu ekki
til í tíð núlifandi bænda. heldureru þær
arfur fortíðarinnar sem er skylda sam-
tíðarinnar að bæta.“
Vilji Alþingis um aukið fjár-
magn gekk ekki eftir
Alþingi samþykkti á sínum ti'ma
þingsályktun um að stöðva alla hrað-
fara jarðvegseyðingu fyrir aldamót.
Sérstakri nefnd var falið að vinna að
áætlun í samræmi við ályktunina og
samkvæmt hennar niðurstöðu var gert
ráð fyrir stórauknum fjárveitingum til
að stöðva jarðeyðinguna. Þegar á
reyndi í spamaðaraðgerðunum við af-
greiðslu fjárlaga í haust varð niðurstað-
an hins vegar sú, að hækkunin varð
engin. Fjárveitingar til Landgræðsl-
unnar em því svipaðar í ár og í fyrra.
- Gelur verið að stjómvöld trexsti á
cmkin frctmlög einkaaðila í þessum efn-
itm ?
„Nei, það held ég ekki. Þetta em það
umfangsmikil verkefni, og dýrt að
vinna upp þá jarðvegseyðingu sem
orðin er. A hinn bóginn leggja einstak-
lingar, félagasamtök og fyrirtæki gífur-
lega mikið af mörkum til landgræðslu-
starfsins. Nærtækasta dæmið em raðs-
áðvélamar, sem Húsgull-samtökin á
Húsavfk beittu sér fyrir að yrðu keypt-
ar í' samstarfi við Ingvar Helgason hf.,
Hagkaup. fslandsbanka og hóp tann-
lækna. Þessar vélar vom gefnar Land-
græðslunni og munu auðvelda okkur
baráttuna við sandinn.
Vélamar margfalda nýtingu á fræi
og áburði."
- Verður árið 1992 lengi í minnum
hafisem gróðun entdarár?
„Öll ár em og eiga að vera gróður-
vemdarár. Að þessum málum er unnið
eins tullega og efni leyfa. Og gróður-
vemdarmálin snúa ekki bara að baráttu
við sandinn. Einnig er verið að skipu-
leggja ýmis konar fræðslustarfsemi,
Fjárlaust á Fjöllum. Stærsti áfanginn sem náðist í gróðurvemd í fyrra var friðun Hólsfjalla fyrir búfjárbeit.
í ár verður starfmu haldið áfram og lokið við gjrðingar milli Öxarfjarðar og Hólsfjalla.
Stóðhross rekin í sumarhaga í Hvítámesi. Fjölgun hrossa hcfur skapað ný vandamál við gróðurvemd- og
iandgræðslu.