Vísir - 23.06.1976, Side 8
8
VÍSIR
Útgcfandi: lieykjaprcnt hf.
Framkvæmdastjóri: Daviö Guömundsson
liitstjórar: Dorsteinn Pálsson, ábm.
ólafur Kagnarsson
Kitstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson
Frcttastj. erl. frétta: Guömundur Pétursson
Klaöamcnn : Anders Hansen, Anna Heiður Oddsdóttir, Edda Andrésdóttir,
Einar K. Guöfinnsson Jón Ormur Halldórsson, Kjartan L. Pálsson, Ólafur
Hauksson, Óli Tynes, Rafn Jónsson, Sigriður Egilsdóttir, Sigurveig Jóns-
dóttir, Þrúöur G. Haraldsdóttir.
iþróttir: Björn Blöndal, Gylfi Kristjánsson.
útlitstciknun: Jón Óskar Hafsteinsson, Þórarinn J. Magnússon.
Ljósmyndir: Jens Alexandersson, Loftur Ásgeirsson.
Auglýsingastjóri: Þorsteinn Fr. Sigurösson.
Dreifingarstjóri: Siguröur R. Pétursson.
Auglýsingar: Ilverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiösla: II verfisgötu 44. Simi 86611
Kitstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611.7 linur
Askriftargjald 1000 kr. á mánuöi innanlands.
I lausasölu 50 kr. eintakiö. Blaðaprent hf.
Flokksböndin rofna
Segja má að eftir landhelgissamningana við breta
i Osló hafi myndast hálfgert lofttæmi i stjórnmála-
lifinu. Einstaka stjórnmálamenn hafa þó reynt að
halda sér á lofti i þessu tómarúmi með hugmyndum
um að leysa fjárhagsvandræði rikisins með þvi að
biðja bandarikjamenn um fjárframlög til ýmiss
konar framkvæmda.
Þessi nýja hugsjónastefna hefur rofið öll
flokksbönd og jafnvel riðlað fylkingum i innan-
flokksátökum. Að því leyti eru yfirlýsingar stjórn-
málamanna um þetta efni mjög athyglisverðar.
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins hefur haft
forystu fyrir þeim mönnum, sem berjast nú fyrir
þvi a.m.k. i orði kveðnu, að bandarikjamenn kosti
hér vegaframkvæmdir og hafnargerð. Af forystu-
mönnum i stjórnmálum hafa einnig gengið undir
þetta merki sjávarútvegsráðherra, samgönguráð-
herra og formaður Alþýðuflokksins. Erfitt er hins
vegar að geta sér til um hvar dómsmálaráðherra
stendur i málinu, þvi að yfirlýsingar hans hér um
má teygja á ýmsa vegu.
Gegn þessum bónbjargarsjónarmiðum hafa hins
vegar mælt utanrikisráðherra, formaður þingflokks
Alþýðuflokksins og formaður þingflokks Fram-
sóknarflokksins, svo og einn af fulltrúum Sjálf-
stæðisflokksins i utanrikisnefnd Alþingis.
Ummæli forsætisráðherra í þjóðhátiðarræðunni
verða ekki skilin á annan veg en hann sé á öndverð-
um meiði við varaformann Sjálfstæðisflokksins. En
forsætisráðherra sagði þar, að við hefðum hvorki á-
stæðu né afsökun að byggja þetta land með öðru en
eigin vinnu og framtaki og sniða okkur stakk eftir
þvi, svo að við yrðum ekki öðrum háðir og gætum af
fullri reisn komið fram gagnvart öðrum þjóðum.
Ekki er ástæða til að ætla annað en þessi loftbóla
um bónbjargarstefnuna fjari út. En hún gefur eigi
að siður ástæðu til þess að velta vöngum yfir ýms-
um grUndvallaratriðum varðandi samskipti okkar
við aðrar þjóðir. Að þvi leyti eru þessar umræður
gagnlegar.
Það er vissulega með öllu útilokað að koma i veg
fyrir að erlent varnarlið hafi einhver áhrif á þjóðfé-
lagið. En fram til þessa hafa menn verið á einu máli
um að draga sem mest má vera úr þessum áhrifum.
Og segja má að tekist hafi ágætlega að fylgja þeirri
stefnu fram.
Varnarliðið er ekki og á ekki að vera verslunar-
vara eins og fiskur eða bilar, sem menn græða á
annan daginn en tapa hinn. Við eigum þvi ekki að
vera fjárhagslega háðir varnarliðinu, þvi að á-
kvarðanir um veru þess á að taka út fra varnarsjón-
armiðum en ekki fjárhagslegum.
Allt tal um að nauðsynlegt sé að byggja upp vegi
og hafnir vegna varna landsins er tilbúningur
manna, sem gefist hafa upp við að leysa þau vanda-
mál og viðfangsefni, sem hver sjálfstæð þjóð þarf
að glima við. Það alvarlegasta við bónbjargaloft-
bóluna er, að hún er blásin upp vegna efnahagsörð-
ugleika en ekki varnarsjónarmiða. Ástæðan fyrir
þvi að flokksböndin rofna, svo sem raun hefur orðið
á, er sú að i öllum flokkum eru misjafnlega rismikl-
ir stjórnmálamenn.
EANES ÞYKIR
LÍKLEGASTUR
Þrlr þeirra fjögurra, sem
bjófta sig fram til forseta-
kosninganna i Portúgal, horfa
niftur af veggspjöldum á múrum
Lissabon á vegfarendur og
andlitin ljóma af bjartsýni.
Hinsvegar er erfitt aft koma
auga á ástæðuna fyrir þvi, aft
þeir eru svona broshýrir, þvi aft
þeir eru nær öruggir um aft tapa
fyrir fjóröa frambjóftandanum,
sem horfir kaldur og grafalvar-
legur fram fyrir sig.
Þaö er Antonio Ramalho
Eanes, hershöfftingi i fótgöngu-
liftinu, sem meft stuöningi
þriggja stærstu stjórnmála-
flokka landsins, er talinn eiga
visan sigurinn i kosningunum
27. júni.
Stuftningsmenn keppinauta
hans, Jose Pinheira de Azevedo,
forsætisráftherra, sem nii er,
Octavio Pato úr kommún-
istaflokknum og Otelo Saraviva
de Carvalho, majór, hafa barist
Azevedo aftmíráll segir, aft
flokkarnir séu á leift meft aft
„tilnefna” forseta Portúgals.
um á hæl og hnakka til þess aö
reyna aft hræra i kjósendum,
meftan allarspár ganga Eanes i
vil.
Hreyfing komst á hlutina tiu
dögum fyrir kosningar, þegar
óeirftir brutust út i land-
búnaftarhéraftinu Alentejo i
suðurhluta Portúgal.
baft sló i brýnu i bænum
Evora, þegar stuftningsmenn
Carvalho majórs reyndu aft
draga Eanes hershöföingja
nauöugan út úr bifreiö hans þar
sem hann var á leiö frá útifundi
á nautaatsleikvangi staðarins.
Li'fverftir hershöfftingjans og
lögreglulift bæjarins urftu aft
gripa til þess aft skjóta upp i
loftiö af vélbyssum sinum til aft
hemja skrilinn. — Einn var
drepinn, sex særftust.
1 Evora eiga kommúnistar og
róttækir vinstrimenn traust
fylgi. Þar lita menn á uppskipt-
ingu s.tóru bújarftanna, sem
eina stærstu umbæturnar, er
byitingin hefúr leitt af sér.
1 þeirra augum er Eanes
hershöfftingi ihalskurfur, þrátt
fyrir yfirlýsingar hans um aft
vifthalda völdum verkalýftsins.
Hann bauft þvi hættunni heim,
þegar hann lagfti leift sina um
þetta héraft. — Á öllum vegg-
spjöldum i Evora,meft myndum
af Eanes, hafa einhverjir teikn-
aft á myndirnar tannbursta-
skegg og Hitlershárgreiðsiu.
Fyrir ári var Eanes óþekktur
ofursti, sem reis i tign eftir aft
hann braut á bak aftur
byltingartilraun vinstri aflanna
i hernum i nóvember i fyrra.
Hann var gerftur aft hershöfö-
ingja og siftan aft yfirmanni her-
ráösins, og kom á aga innan
hersins, þar sem ringulreiöin
hafði verift vift völd siöustu tvö
ár eftir byltinguna.
Eftir þingkosningarnar i
april, þeirra fyrstu, sem e&it
hefur veriö til I Portúgal i hálfa
öld, bundu jafnaöarmenn, miö-
demókratar og ihaldssamari
flokkar traust sitt vift Eanes,
sem stóft utan flokka og virtist
ekki draga taum eins efta neins.
í ræftum sinum lætur Eanes á
sér skilja, aft hann hafi veriö
dreginn nauftugur inn i stjórn-
málin, og segist afteins hafa
gefiö kost á sér til þess aö ekki
verði frekari sundrung innan
hersins. — Hann hefur heitið
þvi, aft nái hann kjöri, muni
hann styftja jafnaftarmenn til
st jórnarmyndunar undir
forystu Mario Soares.
Eanes er af millistéttarfólki
kominn, ættaftur frá land-
búnaðarþorpinu Alcains. Hann
var sendur I herskólann, þvi aft
skyldfólk hans sá sér ekki fært
aft kosta hann til háskólanáms
meö öftrum hætti.
Fljótlega bar á þvi hjá hinum
unga liftsforingja, aft hann var
greindur i betra lagi, náfti góft-
um sálfræðilegum tökum á
undirmönnum sinum, vel iþrótt-
um búinn og djarfur i her-
mennsku. Hann var heiftraður
fyrir hreystilega framgöngu
gegn skæruliöum i Angóla, fyrr-
um nýlendu Portúgals. Hann
gegndi einnig herþjónustu i
Mozambique, Guinea-Bissau og
Austur-Timor.
Hann þykir samt hlédrægur
og á erfitt meft aö finna tengsl
við fjöldann. Sjálfur segist hann
ekki eiga önnur áhugamál, en
fjölskyldu sina, sálfræöi og
iþróttir. Eina fikn hans viröist
vera dökkur bjór og ökuferö á
sunnudögum eftir fjölfarnasta
þjóftveginum frá Lissabon.
Meftal keppinauta hans þykir
Azevedo aftmiráll vera sá eini,
sem liklegur sé til þess aö veita
honum einhverja keppni. Hann
er 59 ára eöa 18 árum eldri en
Eanes.
A sinni stjórnmálasiglingu
hefur aömiráilinn staöiö af sér
stormasamar árásir róttækra
vinstrimanna, sem linntu ekki á
andstööu sinni vift hann, eftir aft
Azevedo varft forsætisráftherra i
september 1975.
Azevedo nýtur aö visu ekki
stu&nings neins stjórnmála-
flokks, en treystir á presónu-
fylgi sitt og stjórnmálareynslu
til þess aft laöa aft sér atkvæfti
frá Eanes. Hann segist sjálfur
hafa boftift sig fram til forseta,
til þess aft kosningarnar yrftu
annaö og meira en kapphlaup
eins manns og meft lýöræftislegu
snifti. Hann hefur andmælt þvi,
aft flokkarnir þrir skuli allir
fylkja sér á bak viö eitt fram-
boösefnift. Segir hann þaft leifta
til þess, að forsetinn verfti
„tilnefndur” en ekki kjörinn af
þjóöinni.
1 fyrstu eftir aft Azevedo varft
forsætisráðherra sem var til
málamiftlunar, þegar Vasco
Goncalves féll frá völdum, tók
aftmirállinn sér stööu vift hlift
Mario Soares og jafnaftar-
manna hans. — Siðan hefur
hann lýst.yfir vantrausti sinu á
Soare s.
Octavio Pato, eldheitur
kommúnisti, sem lengi hefúr
eldaft grátt silfur við gömlu
einræftisstjórnina, vonast til
þessaft geta hafift flokk sinn aft-
ur til vinsælda, sem glötuðust
við hina misheppnuðu
byltingartilraun vinstriafla
hersins. Hann er talinn vera
annar eða þriðji mesti áhrifa-
maður innan kommúnista-
flokksins á eftir Alvaro Cunhal.
Eins og Cunhals þoldi hann
súrt undir gömlu einræftis-
stjórninni, sat niu ár i fangelsi,
missti bróftur sinn á piningar-
bekkjum leynilögreglunnar og
fyrsta kona hans fyrirfór sér,
meftan hann sat i fangelsinu. —
Hinsvegar hefur hann aldrei
fariö i útlegft, en varft stundum
að fara huldu höföi i heimalandi
sinu.
Reisa flokksbræftur hans
nokkrar vonir á þvi, aö sú fortift
kunni aö höffta til kjósenda.
Eanes hershöföingi nýtur stuðnings þriggja stærstu flokkanna og
þykir eiga visan sigur I forsetakosningunum.