Vísir - 23.01.1977, Qupperneq 4
4
Sunnudagur 23. janúar 1977 vism
GUNNAR ÞÓRÐARSON var
einn umtalaöasti hljómlistarmað-
ur á sfðastliónu ári. Þar kom til
samningur sem hann gerði viö
Lee nokkurn Kramer og fyrirtæki
hans, World Wide Enterprises,
slit samstarfs þeirra Hljóm-
abræðra Gunnars og Rúnars
Júliussonar og stofnun nýs út-
gáfuhiutafélags, Ýmis, sem gaf
út 4 piötur á árinu þar sem Gunn-
ar, forstjóri fyrirtækisins, kom
meira og minna við sögu. Auk
þess vann hann við þrjár plötur
aðrar, eina með Vilhjálmi Vil-
hjálmssyni, aðra með Rió og sú
þriðja var svo sú sem mikið hefur
verið umrædd, og mikið umskrif-
uð, „Einu sinni var”, liklega sölu-
hæsta plata siðasta árs þó hún
hafi ekki komiö út fyrr en um
miðjan nóvember. Og ofan á allt
þetta lét hann i lögum á ýmsum
plötum á árinu, samdi og flutti
auglýsingalög og svona ýmislegt
sem til féll.
Gunnar hefur þvi á einu ári
komið fram i fleiri gervum en
gengur og gerist hjá hljóðfæra-
leikurum.
Tónhornið átti stutt viötai viö
Gunnar á sunnudagseftirmiðdegi
fyrir stuttu inn f Hljóörita, en þar
var hann að vinna að smá lagstúf
sem hann lék á öll hljóðfæri í.
Hvernig gengur meö Kramer
samninginn núna?
Ja, ég veit nú satt best að segja
ekki mikiö hvernig það stendur
eins og er, en þaö stendur til aö
koma henni út nú I næsta mánúöi.
Eg flýg út núna á þriöjudaginn
(18. jan) til aö kanna málin. Plat-
an veröuö blönduö á ný (Sólóplat-
an frá 1975) núna næstu daga.
Nú hafa áöur veriö gerðir ýmsir
samningar við erlenda aðiia og
blöðin hér blásið upp væntanlega
heimsfrægð og Hljómar nú
kannski eitt nærtækasta dæmið
um brostnar vonir á framandi
ströndum...
Já, Já þaö var mikiö samiö
bæöi hér heima og erlendis, við
CBS t.d. um þaö aö gefa út 9 smá-
skifur, en þar var reyndar bara
ein gefin út (Show Me You Like
Me/Stay), en hinar hefðu líklega
veriö gefnar út ef viö heföum
verið I betri aöstöðu til þess aö
halda sambandi viö þá.
Þetta ævintýri er ekkert frá-
brugðiö fyrri ævintýrum utan þaö
aö það er mun betra að standa i
þessu einn og ég er þægilega
frjáls. Ef þessi plata hreyfist eitt-
hvaö má auðvitað búast viö þvi að
annarrar plötu sé æskt, og þá
verður hún gerð úti I Los Angeles
aö öllum likindum.
— Hvernig lagðist árið 76 f þig,
þú hefur leikið á ógrþnni af plöt-
um, samið mikið af lögum og þar
fram eftir götunum?
Ég var nú úti fram I júní, og
vann reyndar aö 4 plötum frá
mars fram i mai! Þar áður hjálp-
aöi ég til á plötunni hans Vil-
hjálms með lög og spil. Þessar
fjórar voru Rió sem var unnin
minnir mig i mars og apríl, svo
kom Jensen, Halla og Ladda
platan, og i mai var Visnaplatan
unnin, Eins og sjá má eru þetta
engin stórvægileg verk eins og viö
geröum hérna einu sinni, en þá
voru tækifærin lika færri.
— Stendur ekki til ab vinna eitt
hvab timamótaverk á árinu?
Ekki vil ég segja þaö, en hug-
myndir eru uppi um að vinna al-
varlega upp úr einu gömlu verki,
en ég veit ekki hvort þaö veröur
nokkuö úr þvi.
— Þú kemur upp með Ýmis-
plöturnar, og byrjar á þriðju
Lónli Blú Bojs plötunni...
Já, viö tókum „Lónli Blú Bojs á
ferö” næst i Hljóörita og eyddum
þó nokkrum tima 1 hana. Strax I
upphafi stóð til að fylgja henní
duglega eftir og kanna hvaö
kynningarferöalag gæti gert. Ég
veit nú ekki hvað kynningin geröi
upp á sölu plötunnar, en þetta var
allavega þrælskemmtilegt. Ann-
ars klikkaöi hljómurinn eitthvaö
á plötunni og hún hefði kannski
mátt vera betur undirbúin. Þetta
var til dæmis allt komiö i betra
horf I hljómleikaferöinni, andinn
var lika finn þá.
— Varstu svo aö vinna bara
fyrir aðra fram að áramótum?
Nei, nei. Við gerðum jólaplöt-
una nokkuð fljótt eftir túrinn, lik-
lega af þvi aö okkur langaði til
þess. Sjónvarpiö tók nokkurn
tima lika og svona ýmislegt nost-
ur.
Ertu búinn aö semja tónlistina
við „Blóörautt sólarlag” Hrafns
Gunnlaugssonar?
Nei, ekki enn. Þeir eru ekki enn
búnir aö klippa myndina, og tón-
listin viö svona kvikmyndir er
eintóm sekúnduvinna, reyndar
bölvað nostur. Annars ætti aö
vera hægt að vinna þetta fljót-
lega, eftir aö myndin er klippt, ég
hef lika unnið svona^agaö áður.
— Þú hefur samið þó nokkuð
fyrir sjónvarpsauglýsendur, ertu
farinn að vinna alveg eftir
pöntunum?
Tja, ég segi þaö nú ekki, en það
er annað mál aö mér þykir gam-
an aö vinna auglýsingalög, þvi
þau þurfa oftast að vera ansi góð
og gripandi, og svo er líka gaman
aö geta tekið svona litiö verkefni
fyrir og geta lokið þvi á skömm-
um tima.
— Nú hefur þú tekið að þér
verkefni eins og Olgu Guörúnu
meö „Eniga Meniga”, Vilhjálm
Vilhjálsmsson „Meö sínu nefi”
og „Einu sinni var”, fyrir önnur
útgáfufyritæki en þitt eigið, ertu
ekki þarna að keppa við sjálfan
Þ‘g?
Biddu nú hægur, það er ekki
markmiöiö aö Ýmir sé gróö avél,
þaö veröur aö vera á hreinu! Aö
gefa út sjálfur gefur manni al-
gjört ákvöröunarvald og fullkom-
inn eignarrétt yfir öllum upptök-
um sem geröar eru fyrir fyrir-
tækið, það er mergurinn málsins.
Til dæmis mættu núna vera til á
markaönum allavega báöar
fyrstu hljómplöturnar og ..Lifun”
þetta eru plötur sem mundu alltaf
mjakast eitthvað, eins er meö
margar aðrar islenskar plötur.
Þú hlýtur aö vera farinn að
huga að plötu sjálfur er ekki svo?
Jú, jú, ég er búinn aö semja
svona nokkra grunna og farinn aö