Vísir - 09.03.1977, Síða 5

Vísir - 09.03.1977, Síða 5
 Heimilislausir fá frítt orlof Þeir, sem misstu heimili sin i jarðskjálft- unum i Rúmeniu, eiga fyrir höndum að fá tiu daga orlof á kostnað rikisins og þegar þeir snúa heim úr þvi aftur bíður þeirra að fá út- hlutað sjónvarpstækj- um, húsgögnum og fatn- aði. Þúsundir manna misstu heimili sin og hafa nú leiðtogar rúmenska kommúnistaflokksins lofað þeim nýjum hibýlum og annarri fyrir- greiðslu til þess að hjálpa þeim til að hefja nýtt lif. Samtimis þessu hafa yfirvöld krafist þess, að lokið verði að hreinsa stræti höfuðborgarinnar og ryðja burt rústum i kvöld. Fréítamenn sem staddir eru I Búkarest, telja útilokað að unnt verði að mæta þeim kröfum. Tug- ir þúsunda bygginga hrundu, eða eru að hruni komnar, og björgun- arsveitir hafa ekki enn lokið að leita af sér allan grun um, að ein- hverjir leynist grafnir undir rúst- unum. Björgunarmenn og læknar kunna fjölda frásagna af þvi, að fundist hafi fólk á lifi undir rúst- unum, þar sem öll von haföi verið gefin upp. Meðal þeirra sem fundist hafa, var 23 ára móðir, sem i 80 klukkustundir lá undir rústum með 3 mánaða gamalt barn sitt, og hafði það á brjósti. Kvaðst hún hafa kropið á höndum og hnjám allan timann yfir barn- inu og hlift þvi með likama sin- um, en björgunarmenn fundu barnið hinsvegar hvergi þegar þeir komu að móðurinni. Björgunarsveitir og læknalið við uppgröf rústa i Búkarest. Þessi haugur var einu sinni 14 hæða ibúðablokk. » Gerðu tilraun með Ekki sama Jón og séra Jón hjó Sameinuðu þjóðunum Lundúnablaðið Daily un, að Sameinuðu þjóð- Telegraph skrifaði i imar hefðu aldrei lagst leiðara sinum i morg- eins lágt i skripaleik sinum og hræsni gagn- vart mannréttindum og einmitt um þessar mundir. Blaðið rifjaði upp, að sendi- nefnd Bandarikjanna hefði orð- ið að draga til baka á mánudag- inn tillögu sina um athuganir á meintum ofsóknum sovéskra yfirvalda á hendur andófs- mönnum, vegna þess aö tillagan hefði ekki notið stuðnings. ,,En aðeins 24 stundum siðar spangólaði sama hjörðin, sem studdi Sovétrikin gegn afskipt- um af innanrikismálum rússa, einum rómi i fordæmingum á Chile” skrifar blaðið. „Það er fyrir löngu orðiö aug- ljóst, að margar þær rikis- stjórnir, sem skrifað hafa undir hugsjónarika sáttmála um mannréttindi, höfðu aldrei ætl- að sér að fara eftir þeim”, held- ur leiðarahöfundur áfram. Daily Telegraph bendireinnig á, að Sovétrikin sem aldrei hafi gert neitt fyrir þróunarrikin annað en senda þeim vopn, bylt- ingar og falska drætti, hafi ávallt tekið undir harmagrát þeirra, þegar þau bera sig upp undan eftirköstum nýlendu- áranna. „1 staöinn greiða þau atkvæði meö rússum i Samein- uðu þjóðunum”, skrifar leiöara- höfundur og slær bptninn i mál sittmeð: Carter forseti hefur nú gengið úr skugga um, aö hann verður að ganga til mannréttindabaráttu sinnar án nokkurrar hjálpar frá Sameinuöu þjóöunum”. sýklahernað í 17 ór Bandariska leyniþjón- ustan CIA varði rúmum þrem milljónum dollara til rannsókna og tilrauna með sýklahernað á sautján ára timabili, eftir þvi sem Banda- rikjaþingi var gerð grein fyrir i gær. Um leið upplýstist, að njósna- stofnunin OSS, fyrirrennari CIA, heföi byrlaö Hjálmari Schacht, efnahagssérfræöingi Hitlers, eit- ur i mat á striðsárunum til að hindra hann i að sækja efnahags- málaráðstefnu, sem þá var hald- in. Þetta kom fram i skýrslu, sem lögð var fram á fundi einna undir- nefnda öldungadeildarinnar, þar sem fjallað var um heilbrigðis- mál og visindarannsöknir. Spunnust þar inn i upplýsingar um hlut Bandarikjahers í tilraun- um með sýkla, en herinn stóö fyr- ir slikum rannsóknum fyrir CIA. Herinn hefur gert grein fyrir þvi, að frá þvi 1949 hafi hann gert tilraunir 239 sinnum með sýkla til hernaðar. Fram til þessa hefur ekki verið opinberlega kunnugt um nema tvær þessara tilrauna. Tilraunastarf hersins var aðal- lega unniö aö Fort Dietritíi i Maryland, en endi var bundinn á þá starfsemi 1969. 1 skýrslunni kom fram, að til- raunirnarhefðukostaðþrjá menn lifið, sem raunar var vitað áður, og alls hefðu 456 menn veikst af þessum sýklum. Miimingar Fords og konu hans Ford fyrrum Banda- rikjaforseti og Betty kona hans hafa gert samninga við útgáfu- fyrirtækið Harper and Row og Readers Digest um að skrifa æviminn- ingar sinar sitt i hvoru lagi. Þetta er I fyrsta sinn, sem slíkur tvlbura útgáfusamningur er gerður viö fyrrverandi hús- bændur Hvlta hússins. Búist er við þvi að bók Fords hefjist þar sem hann var valinn varaforseti af Nixon til þess að taka við af Spiro Agnew, en fjalli siðan um árin i Hvita hús- inu. Saga Bettyar á hinsvegar að fjaila um einkalif hennar, allt frá árunum, þegar hún starfaði sem sýningarmær og dansmær.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.