Vísir - 09.03.1977, Blaðsíða 8

Vísir - 09.03.1977, Blaðsíða 8
til írlands" Miðvikudagur 9. mars 1977. vism — hrópuðu írsku blöðin þegor Guðmundur Kjœrnested, skipherra, kom til landsins „Hernoðar- ráðgjafinn kominn „Ég áttimjög erfittmeð að fá gæslunnar” sagði Guðmundur irsku blaðamennina til að trúa Kjærnested, skipherra, sem er þvi að ég væri ekki kominn til nýkominn heim úr trlandsheim- þess að vera hernaðarlegur sókn, ásamt Margréti konu ráðunautur frsku landhelgis- sinni. Sum blöðin drógu fram risafyrirsagnirnar þegar þau sögðu frá þvl að þorskastrfðs „súperhetjan” frá tslandi væri komin. „Margir blaöamennimir voru sannfærðir um að opnun báta- sýningarinnar væri bara yfir- skyn og að ég myndi sitja löng- um stundum á herráðsfundum til að skipuleggja landhelgis- varnirnar”. Irsku blöðin bera þessa vitni, þviaðiþeim máttisjá risafyrir- sagnir um að „þorskastriösheja islensku Landhelgisgædlunnar” væri komin til trlands, til að ræða við Patrick Kavanagh, yfirmann irsku gæslunuar. „Sannleikurinn i málinu er þó sá að ég var boðinn til Irlands til að opna sýningu Sambands irskra skipasmiða. Það stóð aldrei til að ég færi sem neinn hernaðarráðunautur. Hinsveg- ar hef ég fulla samúð með mál- stað ira og ég sagðist vera fús til hjálpar ef ég yrði beðinn um það. Ég ræddi svo reyndar við Kavanagh og fleiri, en þótt við spjölluðum eðlilega um land- helgismál, þá var þaö mjög svo óformlegt og engar hernaðar- áætlanir smiðaöar.” írar hyggjast sem kunnugt er taka sér fimmtiu milna einka- lögsögu, en ýmis Efnahags- bandalagsriki leggjast hart gegn þvi. Þetta er þvi mikið hitamál þar i landi og það varð hálfgerð sprenging þegar Guð- mundur kom þar fram i sjón- varpsþætti. „Það voru mættir þar ýmsir skipstjórar frá vesturströndinni og þeir höfðu eölilega mikinn á- huga á okkar landhelgisbaráttu. Þeir spurðu mig meðal annars hvort Irar gætu varið fimmtiu milna landhelgi”. „Ég svaraði þvi til að auövit- að gætu þeir það. Ef 220 þúsund islendingar gætu varið 200 mil- ur, ætti fjórar milljónir ira að geta varið fimmtiu. Þeir urðu mjög háværir útaf þessu. Irska stjórnin hefur verið hikandi i þessu máli og slegið þvi á frest. Þvi hefur meðal annars verið borið við að erfitt yrði aö verja fimmtiu milna einkalögsögu”. „Ég komst annars að þvi að ég þurfti litið að fræöa þá um okkar baráttu. Þeir hafa greini- lega fylgst mjög vel með henni og voru vel að sér i þeim aðferð- um sem við notuðum” „Okkur Margréti likaði mjög vel að vera með irum. Þetta er afskaplega elskulegt fólk og það tók okkur einstaklega vel. Við hittum lika ýmsa sem hafa haft eitthvað af íslandi að segja, svo sem Thomas MacAnna, leik- stjóra, og áhöfnina á skinnbátn- um Brendan. Hann er nú i geymslu i skýlinu hjá okkur, en strákarnir ætla að koma hingað I sumar og halda áfram ferð- inni”. „Ég held að við getum haft miklu meiri samskipti við ira. Það er til dæmis margt sem við getum kennt þeim um sjávarút- vg. Fiskveiðar hafa ekki skipað þar háan sess. Sem dæmi má nefna að það er nýbúið að setja á stofn embætti fiskimálaráð- herra”. „Upp úr sjónum I kringum Ir- land kemur álika mikið af fiski og úr sjónum i kringum ísland. En irar veiða sjálfir ekki nema um þrjátíi prósent af þeim afla, hinu skófla erlendar þjóðirupp. Fiskibátar þeirra eru lika gamaldags trébátar og kjör sjó- manna sýnu verri en hér. Þeir hafa til dæmis enga aflatrygg- ingu”. „Þetta ástand á sjálfsagt sinn þátt i þvi að landhelgisgæslan er ekki upp á marga fiska eins og hún er núna. Þeir eru með f jög- ur skip sem öll eru gömul. og gagnlitil, og enga flugvél”. * ,Þeir höfðu þvi mikinn áhuga á uppbyggingu islensku land- helgisgæslunnar, og spurðu margra spurninga um hana. Ég vona að þeir geti byggt upp sina gæslu og fái sinar fimmtiu mil- ur, þvi eins og aðrir i Islending- ar hlýt ég að styðja þá sem vilja verja landhelgi sina”. Guömundur, meö skjöld sem hann fékk fyrir að opna bátasýning- una. A honum erbarómet ogskipsklukka. Visismynd: Jens. •# ].f--- Bílasalan Höfóatuni 10 s.18881 &18870 1 Þessir bllar fást fyrir fasteignatryggð veðskuldabréf Mercedes Benz 250 '71 Mercedes Benz 280 '69 Dodge Dart '70 Willys Wagoneer '75 Pontiac Le Mans '69 Fíat132 '74 Toyota Crown '72 Sífelld þjónusta V opió9-19& ld. 10-18 - Bílasalan 2.000 þús. 2.000 þús. 1.150 þús. 3.400 þús. 900 þús. 1.300 þús. 1.300 þús. „ij*1 ® „Doðinn virðist aílsráð- andi" — segja Samtök íslenskra verktaka og vara við auknum ríkisrekstri „Stjórn Samtakanna vill sér- staklega vekja athygli á þeim doða sem viröist allsráðandi. Menn eru hættir að velta fyrir sér hvers vegna allir þessir sjóðireru stofnaðir. Það er ekki Fella ætti niöur tolla af vinnuvélum, segja verktakar lengur spurt hvort hægt sé að breyta ófremdarástandinu og gera atvinnufyrirtækjum kleift að starfa.” Þannig er komist að orði i yfirlýsingu sem Samtök Isl. verktaka hafai sent frá sér vegna skipunarnefndar til að gera frumvarp að lögum um stofnlánasjóð vegna kaupa á langferðabifreiðum, vörubif- reiðum og stórvirkum vinnuvél- um. I ályktuninni er bent á að unnt sé að hefja rtkisrekstur á þann hátt að einkaframtakið sé ofur- seltrikisvaldinu, án þess að um beina þjóönýtingu sé að ræða. Þá segir. Telur stjórn Samtakanna að nauðsynlegt sé að fella niður tolla af vinnuvélum og gera af- skriftarreglur þannig úr garði að heilbrigður rekstur atvinnu- tækjanna geri það kleift, að hægt sé að endurnýja þau á eðli- legum tima. Telur stjórnin nauðsynlegt að heimila aftur er- lend lán og að almennum lána- stofnunum sé gert kleift að taka að sér hlutverk stofnlánasjóða.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.